Fréttablaðið - 24.09.2002, Qupperneq 16
FYRIRLESTUR
12.05 Guðmundur Hannesson og
skipulag Reykjavíkur, nefnist há-
degisfyrirlestur Guðjóns Friðriks-
sonar sagnfræðings á vegum
Sagnfræðingafélags Íslands í sam-
starfi við Borgarfræðasetur. Fyrir-
lesturinn er hann haldinn í Nor-
ræna húsinu. Allir velkomnir.
MYNDLIST
Austurríski ljósmyndarinn, Marielis
Seyler sýnir ljósmyndir í Listasal Man,
Skólavörðustíg 14. Myndirnar voru tekn-
ar á Íslandi sumarið 2001.
Þóra Þórisdóttir opnar sýnir í
galleri@hlemmur.is undir titlinum
„Rauða tímabilið“ (“The red period“).
Innsetningin samanstendur af myndum
unnum á lín og vatnslitapappír með
tíðablóði, ásamt víngjörningi og áhor-
fendaleik.
MYX Youth Artist Exchange sýnir í
Gallerí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth
Artist Exchange er hópur ungra myndlis-
tamanna frá Bandaríkjunum og Íslandi.
Margrét St. Hafsteinsdóttir er með
myndlistarsýningu í kaffistofunni
Lóuhreiðri, Kjörgarði, Laugarvegi 59.
Sýningin stendur yfir til 14. október.
Lóuhreiður er opið virka daga kl. 10 til
17 og laugardaga kl. 10 til 16.
Sýningin Þrá augans - saga ljósmyn-
darinnar er í Listasafni Íslands.
Sýningin lýsir þróunarskeiðum ljósmyn-
darinnar frá um 1840. Sýningin stendur
til 3. október.
Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn
hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í
Listasafninu á Akureyri.
Málverkasýningin Stælarer í Gallerí
nema hvað, Skólavörðustíg 22c.
Þátttakendur eru Árni Bartels, Davíð
Örn Halldórsson, Guðmundur
Thoroddsen og Ragnar Jónasson.
Sýningin stendur til 22. september og er
opin milli 14 og 18.
Sýning Kimmo Schroderus og
Charlottu Mickelsson í Gallerí Skugga.
Á jarðhæð, í aðalsal og bakatil, sýnir
Kimmo skúpltúra sem bera yfirskriftina
„Tilfinningar“. Charlotte nefnir verk sitt í
kjallara Gallerí Skugga „Kjallari“.
Ólöf Björg myndlistarmaður sýnir í
Galleríi Sævars Karls, málverk, hluti,
hljóð og lykt.
Sýning á verkum Eero Lintusaari skart-
gripahönnuðar og Harri Syrjanen
gullsmiðs og leðursmiðs sýnir í Listhúsi
Ófeigs við Skólavörðustíg. Sýningin
verður opin mánudaga til föstudaga frá
10 til 18 og laugardaga frá 11 til 16.
Sýningunni lýkur 25. september.
Ásdís Spano sýnir olíuverk á Kaffi
Sólon. Sýningin stendur til 27. septem-
ber.
Í Rauða Húsinu á Eyrarbakka sýnir
Hafliði Magnússon, rithöfundur og teik-
nari, sýningu á lituðum teikningum með
götumyndum frá Eyrarbakka, Stokkseyri
og Selfossi.
Afmælissýning Myndhöggvarafélag
Íslands stendur yfir í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Fjórtán mynd-
höggvarar sýna. Félagið fagnar nú 30
ára afmæli sínu. Sýningin stendur til 6.
október.
Listin meðal fólksins er yfirskrift
sýningar Listasafns Reykjavíkur í
Ásmundarsafni. Á sýningunni eru verk
Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara
skoðuð út frá þeirri hugsjón hans að
myndlistin ætti að veraÝ hluti af daglegu
umhverfi fólks en ekki lokuð inni á
söfnum. Sýningin stendur til ársloka.
16 24. september 2002 ÞRIÐJUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
STOKKHÓLMUR Söngleikur um hina
dularfullu, sænsku leikkonu,
Gretu Garbo, sem frumsýndur var
í Svíþjóð síðastlðinn fimmtudag,
hefur fengið slæma útreið gangrý-
nenda.
Söngleikurinn, Garbo the
Musical, fjallar um líf leikkonunn-
ar frá því hún er ung stúlka í Sví-
þjóð og þar til hún er orðin goð-
sögn í Hollywood. Gagnrýnendur
kvörtuðu yfir að söngleikurinn
væri „geldur“ og afhjúpaði ekki
nýjan sannleik um leikkonuna,
sem forðaðist fjölmiðla og tók lít-
inn þátt í glamúrlífi stjarnanna.
Greta Garbo fæddist í Stokk-
hólmi 1905, fór tvítug til
Hollywodd og varð ein af frægustu
kvikmyndastjörnum fjórða ára-
tugarins. Hún kom aðdáendum sín-
um á óvart árið 1941 þegar hún
sneri baki við kvikmyndaleik, þá á
hátindi frægðarinnar, og flutti til
New York þar sem hún vildi helst
fara einförum.
ÞRIÐJUDAGURINN
24. SEPTEMBER
Árni Haldorsen. 13 ára. Nemi.
Artemis Fowl í annað skipti enda skemmti-
leg bók.
LONDON Hundruð verka eftir lista-
manninn Francis Bacon, sem tal-
in voru glötuð, hafa fundist í
vinnustofu hans í Kensington í
London. Forsvarsmenn Huge
Lane-gallerísins í Dyflinni, sem
hafa undanfarin ár unnið að því
að setja upp nákvæma eftirlík-
ingu í galleríinu af vinnustofu
Bacons, eyddu tveimur árum í að
yfirfara vinnustofu hans í
London. Þar vann hann vann öll
sín verk í 30 ár, en vnnustofan var
þekkt fyrir algjöra óreiðu, þar
sem ægði saman öllu mögulegu
og ómögulegu og ekki sást í auðan
díl fyrir gömlum dagblöðum,
málningardósum og drasli. Verk-
in sem fundust í vinnustofunni
varpa nýrri sýn á líf og starf
Bacons og í ljós kemur að lista-
maðurinn gerði uppköst að mörg-
um sinna bestu mynda, en hann
sagðist sjálfur hafa hætt því árið
1962. Margarita Cappock, sem
hefur umsjón með listadeild teng-
da Bacon í Huge Lane í Dyflinni,
segir teikningarnar og uppköstin
sanna að Bacon hafi verið mun
nákvæmari og vandvirkari lista-
maður en hann vildi sjálfur vera
láta. Bacon, sem eyðilagði sjálfur
mörg verka sinna, fæddist á Ír-
landi, en fluttist á unglingsárun-
um til Englands. Hann lést á
Spáni árið 1992.
EFTIRLÍKING AF VINNUSTOFU BACONS
Listagallerí í Dublin hefur gert nákvæma eftirlíkingu af vinnustofu Bacons í London. Lista-
maðurinn sagðist ekki þrífast nema þar sem allt væri í óreiðu.
Ný verk eftir Francis Bacon fundin:
Varpa nýju ljósi á
starf listamannsins
Söngleikur um Gretu Garbo:
Fær slæma útreið
gagnrýnenda
FANGAKLEFINN
Laura Hunter skoðar mynd eftir Nelson Mandela sem ber heitið „Klefinn“. Á myndinni
sést inn í fangaklefann sem Mandela dvaldi í árum saman. Myndin er til sýnis í Belgravia
Art Gallery í London. Málverkið er hluti af röð verka eftir forsetann fyrrverandi sem eru
innblásnar af fangelsisvist hans.
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
VINSÆLUSTU BÆKURNAR
HJÁ AMAZON.COM
Alice Sebold
THE LOVELY BONES
Cornelia Funke
THE THIEF LORD
Anna Quindlen
BLESSINGS
Michel Faber
THE CRIMSON PETAL AND
THE WHITE
Thomas L. Friedman
LONGITUDES AND ATTITU-
DES
Nicholas Perricone
THE PERRICONE
PRESCRIPTION
Stephen King
FROM A BUICK 8
Sean Hannity
LET FREEDOM RING
Artie Bucco
THE SOPRANOS FAMILY
COOKBOOK
Shawn Phillips
ABSOLUTION
EIGNAKAUP FASTEIGNASALA – S: 520-6600
Ármúli 38
108 Reykjavík
Fax: 520-6601
www.eignakaup.is
eignakaup@eignakaup.is
Opið 9-17 alla virka daga.
Jakob Jakobsson sölumaður.
Grétar Kjartansson sölumaður.
Þórður Bragason sölumaður
Inga S. Halldórsdóttir sölumaður
Kristinn Kristinsson sölumaður.
Sigurberg Guðjónsson hdl lögg. fasteigna- og skipasali.
Holtsgata - Vesturbær.
Vorum að fá í sölu góða íbúð á þriðju hæð
í góðu fjölbýli.Þrjú svefnherb.tvær stórar
stofur. Bað, flísar í hólf og gólf, sturtuklefi.
Hús í góðu standi,gluggar og gler nýlegt.
Verð 14,7 millj.
Hraunbær
Vorum að fá í einkasölu glæsilega 4-5
herb endaíbúð með auka herbergi í kjall-
ara ,gott til útleigu. Íbúðin skiptist í hol og
stóra stofu, gott eldhús og svefnálmu
með baði og þrem góðum svefnherbergj-
4-5 HERBERGJA
um. tvennar svalir sem snúa í austur og
suður. Vönduð gólfefni eru á allri íbúð-
inni. Verð 13,9 millj.
Kleppsvegur - Rvk.
Vorum að fá í sölu þessa góðu eign.
Íbúðin er á 2. hæð, parket og flísar á
gólfum, í dag eru 3 svefnherb en mögu-
leiki er á því fjórða, geymsla og
þvotthús í kjallara, ásett verð 12,2 millj
Sörlaskjól - risíbúð m. bílskúr.
Vorum að fá í einkasölu góða 65 fm
3ja-4ra herb. rísíbúð með 31.2 fm bíl-
4 HERBERGJA
skúr. Gólfefni eru teppi, dúkur og parket.
Eldhús með eldri innr.,baðherbergi flísar í
hólf og gólf,sturtuklefi. Hús lítur vel út.
Laus stax. Áhv. ca 6.0 millj. Verð. 12.0
millj.
Grafarvogur - LAUS STRAX
Erum með í einkasölu vel skipulagða 4ra
herb. íbúð á 2. hæð í fjölbýli í
Grafarvogi. Íbúðin er með flísum og dúk-
um á gólfum, ágætum skápum og
innréttingum. Þvottaherb. í íbúð. Vestur-
svalir. Gott verð 12,1 millj.
Smárinn -LAUS FLJÓTLEGA.
Höfum fengið í sölu fallega 86,1 fm. íbúð
á 2. hæð ásamt 5 fm geymslu í kjallara í
litlu fjölbýli á besta stað í Smáranum.
Mjög falleg og vel skipulögð íbúð. LÆKK-
AÐ VERÐ 12,4 millj.
Eskihlíð - efsta hæð - útsýni.
Vorum að fá í einkasölu góða 122 fm
íbúð á fjórðu hæð í góðu fjölb. 4 svefnh.2
stofur og eldhús með eldri innréttingu.
Stórt geymsluloft. Ekkert áhv. Verð.
15.0 millj.
Breiðvangur - Hfj.
Vorum að fá í sölu bjarta og skemmtilega
3ja herb íbúð. Hol, stofa, borðstofa og
eldhús parketlögð út í eitt, góðar suður-
svalir og gott útisvæði. Nýbúið að taka
húsið í gegn að utan. Verð 8,5 millj.
3 HERBERGJA
5-7 HERBERGJA
Erum með kaupanda að sérhæð,
rað-, par- eða einbýli í Mosfellsbæ
eða Mosfellsdal. Verð allt að 16,5
millj. - Grétar.
Erum með kaupanda að íbúð í
lyftuhúsi á svæði 101,105, verð
allt að 15.0 millj. - Grétar
Einbýli, parhús, raðhús. 4 svefn-
herbergi eða fleiri, helst á einni
hæð, ræktaður garður, gott
ástand, staðsetning vestan
Elliðaáa. Verð allt að 25 millj. -
Þórður.
Í Kópavogi vantar íbúð á verðbilinu
7- 8 milljónir. Æskilegt að ca 3
milljónir séu áhv.
Vantar íbúð á verðbilinu 9-10
milljónir í vesturbæ Kópavogs. -
Þórður.
Vantar 3ja - 4ra herb. íbúð í
Hólahverfi í Efra-Breiðholti. - Inga.
ATH. OKKUR BRÁÐVANTAR
EIGNIR Í VOGUM
VATNSLEYSUTRÖND!
Vesturberg- - góð eign.
Vorum að fá í sölu mjög góða 4-5
herb. íbúð á annarri hæð. Parket og
flísar á gólfum. Nýjar hurðir. Baðher-
berg ný standsett,sturklefi og kar.
Góðir fataskápar. Hátt brunabóta-
mat. Verð 12.0 millj.
4 TIL 5 HERBERGJA
Vegna mikillar sölu vantar okkur allar stærðir eigna á
skrá en þó sérstaklega 2ja, 3ja og 4ra herb!
Eigendur félagslegra eignaíbúða
Við viljum benda eigendum félagslegra eignaíbúða á að Alþingi
samþykkti lög sem heimila sveitarfélögum að aflétta kaupskyldu og
forkaupsrétti sínum. Þeir sem eiga húsnæði í þessu kerfi geta því farið
að undirbúa sölu á íbúð sinni.
Endilega hafið samband við okkur ef þið hafið hug á að selja.
Vesturberg - 2ja herb.
Vorum að fá góða 2ja herbergja íbúð á
þriðju hæð í fjölbýli. Mikið útsýni. Nýleg
eldhúsinnrétting, flísar milli skápa. Stórt
baðherb.t.f. þvottavél og þurrkara.Hús
ný tekið í gegn að utan. Verð. 7,9 millj.
Skrifstofur í Hafnarfirði
Glæsilegar nýinnréttaðar skrifstofur
samtals 120,9 fm við Reykjavíkurveg, í
Hafnarfirði. Allt húsnæðið er nýtekið í
gegn í hólf og gólf. Skrifstofurnar eru í
góðri útleigu með fínar tekjur, mikið
áhvílandi, ásett verð 10,9 millj.
Eignarlóðir í Garðabæ.
Höfum fengið í sölu tvær eignarlóðir
samtals 2250 fm, heitt og kalt vatn,
örstutt í alla þjónustu, svo sem skóla og
verslun. Ásett verð lóðar er
6,750 þús. Áhv. 3.0 millj. á lóð.
LÓÐIR
ATVINNUHÚSNÆÐI
2 HERBERGJA