Fréttablaðið - 24.09.2002, Qupperneq 21
ÞRIÐJUDAGUR 24. september 2002
um
jól
in
Al
ica
nte
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Beint leiguflug me› Fluglei›um
til Alicante 18. desember
og 6. janúar.
33.240 kr.*
Ver›dæmi:
*miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja-11ára ferðist saman.
37.630 kr. ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug og flugvallarskattar.
Munið að hjá Plúsferðum er unnt að greiða með Atlasávísunum,
VR ávísunum og Fríkortspunktum að eigin vild og lækka
ferðakostnaðinn.
Takmarkað sætaframboð.
Áströlsk gasgrill. Þau dýrustu í heimi en nú á
sérstöku tilboðsverði!
Sunshine gasgrill
Bíldshöfða 12 • 110 Reykjavík • Sími: 577 1515
Tilboð k
r. 79.900
.-
Gagnvarinn harðviður. 3 brennarar, grillgrind og hitahella úr pott-stáli.
Útdraganleg undirhilla sem feitin drýpur á. Stærð 126 x 58 x 85 cm,
þyngd 70 kg, fýkur ekki! Ekki bara grill, heldur nýr lífsstíll!
Lok með hitamæli fylgir. Ekki á myndinni.
Strikamerkjakönnum á gosdrykkjasölu í stórmörkuðum:
Kók 80 - Pepsí 20
GOSDRYKKIR Samkvæmt niðurstöð-
um á skoðun á strikamerkingum á
sölu gosdrykkja í öllum helstu
stórmörkuðum á höfuðborgar-
svæðinu hefur Kóka kóla algera
yfirburði yfir Pepsí. Salan á
venjulegu kóki náði 78,4 prósent-
um en Pepsí aðeins 18,7 prósent-
um. Bónuskóla blandaði sér vart í
baráttuna með aðeins 1,4 prósenta
sölu. Strikamerkjakönnun var
gerð 11. ágúst og náði til sölu á
kóladrykkjum fjóra mánuði aftur
í tímann. Á diet-markaðnum
stendur Pepsí sig hins vegar mun
betur og slagar hátt upp í diet-
drykki Kóka kóla með 42 prósent
sölu. Þar er kók með 55,6 prósent.
Í þessum tölum er Tab-drykkur
Kóka kóla innifalinn og við sölu-
tölur á diet-Pepsí bætist sala á
Pepsí Max.
Emmy-verðlaunin:
Vesturálman ræður
enn ríkjum
SJÓNVARP Það voru sjónvarpsþætt-
irnir „The West Wing“, „Friends“
og „The Gathering Storm“ sem
unnu flest stærstu verðlaunin á
Emmy-hátíðinni í ár sem fram fór
á sunnudagskvöldið.
„Vesturálman“ vann verðlaun-
in sem „besti dramatíski þáttur-
inn“ þriðja árið í röð. John
Spencer sem leikur Leo McGarry,
ráðgjafa forseta, vann verðlaunin
sem besti leikari í aukahlutverki.
Starfssystir hans Allison Janney
sem leikur CJ Cregg fékk verð-
launin sem besta leikkona í aðal-
hlutverki. Leikkonan Stockard
Channing, sem leikur forseta-
frúna í þáttunum, fékk verðlaunin
sem besta leikkonan í aukahlut-
verki.
Breski leikarinn Albert Finney
vann verðlaunin sem besti leikari
í aðalhlutverki. Hann leikur Win-
ston Churchill, fyrrum forsætis-
ráðherra Breta, í þáttunum „The
Gathering Storm“ sem leikstjór-
inn Ridley Scott framleiðir.
„Friends“, sem nú er á níundu
og síðustu seríunni, fékk verð-
launin fyrir bestu grínþáttaröð-
ina. Leikkonan Jennifer Aniston,
sem leikur Rachel, vann einnig
verðlaunin sem besta aðalleikkon-
an í grínþætti. Eiginmaður hennar
Brad Pitt var tilnefndur sem besti
gestaleikari fyrir leik sinn í ein-
um „Friends“ þáttanna en vann
ekki. Þau verðlaun tók leikarinn
Anthony LaPaglia fyrir leik sinn í
„Frasier“.
Ray Romano fékk fyrstu
Emmy verðlaun sín fyrir leik í
„Everybody Loves Raymond“.
„Sex and the City“ vann fyrir leik-
stjórn. David Letterman, sem
mætir aldrei á verðlaunafhend-
ingar, vann verðlaunin fyrir besta
kvöldspjallþáttinn.
Leikarinn Tom Hanks tók við
verðlaununum fyrir bestu smá
seríuna fyrir „Band of Brothers“.
Hann afhendi einnig Bob Hope
mannúðarverðlaunin í fyrsta
skiptið spjallþáttardrottningunni
Opruh Winfrey.
ENDURMENNTUN „Þetta er gamall
draumur. Mig hefur lengi langað
að sigla,“ segir Egill Ólafsson,
tónlistarmaður og leikari, sem
hefur skráð sig til náms í Sjó-
mannaskólanum og hyggst ljúka
þaðan svokölluðu pungaprófi.
„Það veitir mér rétt til að stjórna
30 rúmlesta báti,“ segir hann.
Egil segir að námið felist í að
tileinka sér siglingafræði og regl-
ur þar að lútandi svo og margvís-
leg björgunaratriði: „Það skiptir
máli að sigla; við verðum alltaf að
vera á ferð. Og ég leyni því ekki
að ég stefni að því að verða skip-
stjóri. Sá sem stjórnar skipi er
skipstjóri,“ segir Egill.
Söngvari vill sigla:
Egill í Sjó-
mannaskólann
EGILL ÓLAFSSON
Ætlar að verða skipstjóri.
THE WEST WING
Leikarahópur Vesturálmunnar var skiljanlega í góðu skapi á sunnudagskvöldið.
KÓK OG PEPSÍ
Kók hefur yfirburði en Pepsí sækir í
sig veðrið á diet-markaðnum.
Bæjarhrauni 8 S 565 1499
TIL
BO
Ð