Fréttablaðið - 24.09.2002, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 24. september 2002
Mörgum sjálfstæðismönnumhefur gramist kuldinn milli
Össurar Skarphéðinssonar, for-
manns Sam-
fylkingarinnar
og Davíðs
Oddssonar, for-
manns Sjálf-
stæðisflokks-
ins. Eftir að
Össuri tókst að
ná flokknum
upp og færa
hann inn á
miðjuna fjölgar
þeim íhalds-
mönnum sem
telja að eftir
næstu kosning-
ar eigi Sam-
fylkingin og
Sjálfstæðis-
flokkurinn að mynda stjórn. Í
opnuviðtali við DV sagði Össur
að á meðan Davíð gerði ekkert
nema hælbíta Samfylkinguna
hefði hann ekkert við sjálfstæð-
ismenn að tala. Davíð Oddsson
var ekki lengi að taka boltann
sem Össur gaf þarna upp. Í við-
tali við Ísland í dag talaði hann
einsog þeir Össur væru aldavin-
ir, lauk lofsorði á samstarf
þeirra í ríkisstjórn, og sagði að
Össur hefði að vísu stundum
ekki verið nógu gætinn, - en það
hefði bara verið í gamla daga!
Pólitíkin virðist því vera að
galopnast og möguleikar á
stjórnarmyndunum fleiri en
menn töldu.
Mikil ferð er á Einari OddiKristjánssyni sem berst
fyrir pólitísku lífi sínu í aðdrag-
anda prófkjörs
sjálfstæðis-
manna í nýja
norðvesturkjör-
dæminu. Flokk-
urinn er talinn
eiga þrjú þing-
sæti, en fimm
þingmenn eru
um hituna. Flestir töldu að hann,
ásamt Guðjóni Guðmundssyni,
myndi tapa öruggu þingsæti.
Einar nýtur þess hins vegar að
hafa staðið ítrekað uppi í hárinu
á ríkisstjórninni í sjávarútvegs-
málum, einkum í málefnum
trillukalla. Svo virðist sem þetta
dugi til og vestra telja menn að
Einar Oddur dragi hratt á nafna
sinn Einar K. Guðfinnsson.
Sömuleiðis virðist Guðjón Guð-
mundsson sigla góðan byr, og
þeim fjölgar sem eru þeirrar
skoðunar að Einar Oddur og
Guðjón kunni að koma á óvart,
og halda öruggum þingsætum.
Hafi stuðningsmenn KR ver-ið efins í afstöðu sinni til
fæðingarorlofs feðra hefur
ástæðan sem Þormóður Egils-
son gaf fyrir því að hafa spilað
enn eitt tímabil náð að sann-
færa þá. Móði sagði í viðtali á
Útvarpi Sögu að ástæðan væri
sú að í maí hefði hann farið í
fæðingarorlof. Þá hafi gefist
betri tími til knattspyrnuæfinga
en áður. Hann hefði því ákveðið
að spila eitt tímabil enn þrátt
fyrir vonbrigði síðasta sumars.
Sér væntanlega ekki eftir því
núna.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Avis býður betur . . . um allan heim
Traustur alþjóðlegur þjónustuaðili Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – sími 591-4000
RAUTT TILBOÐ Í DANMÖRKU
JEPPATILBOÐ INNANLANDS
www.avis.is Netfang avis@avis.is
Flokkur A Opel Corsa
Innifalið er ótakmarkaður akstur,
trygging og allir skattar
Ef þú ert með farseðil frá
Flugleiðum áttu möguleika á
stærri bíl. (Ef bókaður er bíll í A
flokki þá í B flokk og B í C flokk.)
Tilboð þetta er á vegum AVIS og eru Flugleiðir ekki aðili að því.
Kaupmannahöfn kr. 3.500 á dag
Billund kr. 3.500 á dag
Frábært tilboð á jeppum
Hafðu samband við Avis í síma 591-4000
(lágmarksleiga / dagar)
LONDON Handskrifað og mynd-
skreytt handrit að Enesarkviðum
Virgils frá Viktoríutímabilinu, í
eigu tónlistarmannsins Andrew
Lloyd Webber, verður boðið til
sölu á uppboði í London nú í nóv-
ember. Handritið gerðu ljóðskáld-
ið Morris og listmálarinn Edward
Burne Jones í sameiningu árið
1873, en þeir félagar fullgerðu þó
aldrei handriti. Aldrei mun
merkara handrit frá þessu tíma-
bili hafa verið til sölu á uppboði.
„Ég hef safnað listmunum frá
Viktoríutímabilinu í mörg ár,“
segir Webber. „Handritið að Enes-
arkviðunum er einn af gimstein-
unum í safninu mínu og það væri
eigingjarnt af mér að halda því
fyrir mig þar sem ég skoða það
alltof sjaldan. Þetta er gripur sem
almenningur þarf að eiga aðgang
að.“ Talið er að handritið seljist á
1,5 milljónir punda.
ANDREW LLOYD WEBBER
Getur ekki réttlætt fyrir sér að eiga handrit-
ið sjálfur og býður það til kaups á uppboði
í London.
Handrit að Enesarkviðum frá Viktoríutímabilinu:
Selt á uppboði fyrir
rúmar 200 milljónir