Fréttablaðið - 24.09.2002, Síða 24
Við vöknum, fáum okkur kaffieða te og rennum yfir blaðið.
Einhverjir ofvirkir hlaupa hring í
hverfinu eða æða í leikfimi fyrir all-
ar aldir. Sumir drífa barnaskara af
stað í skóla. Svo er gengið, ekið,
hjólað eða brunað með strætó í
vinnu eða hvað sem það nú er sem
bíður okkar allra yfir daginn. Öll
erum við þó að hella olíu á hjól at-
vinnulífs og mannlífs - hvert á sinn
hátt.
Einhverjir halda bílum gangandi
og vegum akfærum, aðrir troða viti
í kolla og enn aðrir fiðri í sængur.
Sumir hafa af því atvinnu að gleðja
maga eða augu og til eru þeir sem
fá greitt fyrir að gera sem minnst.
Mér hefur þó alltaf þótt sérstök
ástæða til að taka ofan fyrir þeim
okkar sem axla poka sína og arka til
sjós. Þar er þó verið að sækja verð-
mæti í greipar Ægis og hann ekki
alltaf jafn ljúfur og tilleiðanlegur að
láta af fjársjóðum sínum. En vaskur
hópur manna býður honum birginn
og færir björg í bú, að vísu ekki
endilega í þjóðarbúið, en einhvers
bú.
Aðrir bruna á sjúkrahúsin - bretta
upp ermar og bjarga mannslífum,
lina þjáningar og græða hjartasár.
Mér bauðst að vera fluga á vegg
Landspítalans í vikunni. Þá rann
upp fyrir mér hve mögnuð krafta-
verk er hægt að framleiða á færi-
bandi með samvinnu, samhæfingu
og mikilli þekkingu. Með langa
biðlista, misvitra stjórnmálamenn
og stöðuga gagnrýni á bakinu vinn-
ur starfsfólk sjúkrahúsanna undra-
verð afrek á degi hverjum. Hjúkr-
unarfólk stendur vaktir, jafnvel sól-
arhringum saman, til þess að halda
spítalavélinni gangandi - vél sem er
úthlutað lágmarks eldsneyti svo hún
hökti áfram og næturgalinn Flórens
gengur aftur á íslenskum sjúkra-
húsum.
Amerískur sjúkramálaráðherra
hrósaði þessari maskínu í hástert og
bað okkur í guðs bænum að breyta
engu og landinn fylltist stolti yfir
þessu mikla lofi að vestan. En það
er ekki sama hver hrósar. Til dæmis
þætti okkur ekki mikið til þess
koma ef Kínverjar hrósuðu okkur
fyrir mannréttindamál eða Tyrkir
fyrir aðbúnað í fangelsum. Betur
má ef duga skal og kosningamál
veturs komandi ætti að vera að af-
nema biðlista og styðja þétt við það
magnaða starf sem daglega er innt
af hendi á sjúkrahúsum landsins.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Hin fjársvelta
Flórens
Grensásvegi 12 • Sími: 533 2200
FRÁBÆR PIZZA Á FRÁBÆRU VERÐI!