Fréttablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 15. október 2002
Athugun á:
• Olíu á gírkassa, drifum og vökvastýri
• Loftsíu
• Olíusíu
• Ísvara á rúðusprautu
• Vökvahæð í forðabúri hemla og kúplingar
• Ástandi (rakastigi) hemlavökva
• Þurrkublöðum
• Ljósaperum
• Hjólbörðum – mældur loftþrýstingur
• Viftureim
• Rafgeymi – álagsmæling, hleðsla
• Pústkerfi
Að auki:
• Hurðalamir og læsingar smurðar
• Þéttikantar á hurðum og farangursrými sílikonbornir
Verð fyrir fólksbíl: 1.950 kr. – 3.250 kr. með smurningu.
Verð miðast við 4 strokka japanska og evrópska bíla.
Innifalin vinna og olía, 10w40 ultra.
Tilboðið gildir til 31/10 2002.
Afgreiðslutími
í smurstöð Geirsgötu:
Frá 8 til 18 alla virka daga.
Sími 551 1968.
Vertu tímanlega í því!
A
B
X
/
S
ÍA
9
0
2
1
4
2
7
Viltu a› bíllinn flinn haldi
betur út veturinn? Komdu
flá me› hann í vetrarsko›un
hjá fijónustustö› ESSO
vi› Geirsgötu
– í hjarta mi›bæjarins.
KIRKJUÞING Prestssetrasjóði verð-
ur heimilt að færa til milli kirkju-
jarða, þann mjólkurkvóta og sauð-
fjárkvóta sem fylgir prestssetr-
um, samkvæmt tillögu sem séra
Dalla Þórðardóttir flytur á kirkju-
þingi. Fáist tillagan samþykkt, til-
heyrir kvótinn prestssetrasjóði en
ekki jörðunum og verður heimilt
að færa kvótann milli landshluta
ef því er að skipta. Séra Dalla seg-
ir að það sé orðið æ fátíðara að
sóknarprestar stundi búskap á
jörðum sem fylgja embættum
þeirra. Enginn sóknarprestur
stundi mjólkurframleiðslu á
kirkjujörð en tíu prestar stundi
sauðfjárbúskap, þó mjög lítinn.
Aðeins þrír til fjórir hafi fleiri en
hundrað ærgildi.
Dalla segir að búskapur, sér í
lagi fjárbúskapur gefi af sér lítinn
arð en kosti mikla vinnu. Fólk sem
hafi köllun til prestsstarfa, hafi
ekki köllun til búskapar. Oftar en
ekki hafi kvóti prestsjarðarinnar
verið leigður til nábúa í sveitinni
en að loknum leigutíma hafi kvót-
inn ekki komið aftur til jarðarinn-
ar. Sömuleiðis séu dæmi um að
kvóti hafi í seinni tíð hreinlega
verið seldur af prestssetursjörð-
um.
„Hugsunin er að halda eignum
kirkjunnar, jörðunum og gera þær
byggilegri þeim sem kjósa að búa
og gera búskap sér að lifibrauði.
Jarðir eru auðlegð og eignir kirkj-
unnar og svo er einnig um kvót-
ann og er þetta leið til þess að við-
halda þeim,“ segir Dalla Þórðar-
dóttir.
Mjólkurkvóti og sauðfjárkvóti á prestssetrum:
Lagt til að kvóti verði fær-
anlegur milli kirkjujarða
DALLA ÞÓRÐARDÓTTIR
Bendir á að æ sjaldgæfara sé að sóknar-
prestar stundi búskap á jörðum sem fylgja
embættum þeirra.
Fíkniefni fundust:
Sex ung-
menni
handtekin
LÖGREGLUMÁL Sex ungmenni voru
handtekin af lögreglunnar á Sel-
fossi eftir að samkvæmi í heima-
húsi var leyst upp seint á laugar-
dagskvöld. Fundust fíkniefni á
nokkrum ungmennanna og tól til
fíkniefnaneyslu voru í húsinu. Með-
al gesta voru þrír unglingar á aldr-
inum fjórtán og fimmtán ára. Alls
voru ellefu manns í húsinu. Daginn
eftir voru unglingarnir látnir lausir
að lokinni skýrslutöku. Þá var full-
trúi barnaverndarnefndar kallaður
til vegna þeirra yngstu í hópnum.
Banaslys á Skeiðavegi:
Lögreglan
óskar eftir
vitnum
BANASLYS Lögreglan á Selfossi lýs-
ir eftir vitnum að banaslysinu
sem varð þegar fólksbíll og jeppi
skullu saman á Skeiðavegi á veg-
arkafla sunnan við Kílhraun síð-
degis á sunnudag. Ökumaður
fólksbifreiðarinnar, Sigurgeir
Guðjónsson, 49 ára, til heimilis að
Hraunbæ 102, lést í slysinu. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og tvö
börn. Tíu ára sonur mannsins var
með honum í bílnum og hlaut hann
minniháttar áverka. Fimm manns
voru í jeppanum. Einn farþeganna
rifbeinsbrotnaði en aðrir hlutu
minniháttar meiðsl.
Lögreglunni barst tilkynning
kl. 17.30 um alvarlegt umferðar-
slys. Sjúkra- og lögreglubifreiðar
fóru þegar á staðinn ásamt björg-
unarbíl frá Brunavörnum Árnes-
sýslu. Tildrög slyssins eru ókunn
og biður lögregla alla þá sem ein-
hverjar upplýsingar geta veitt að
hafa samband í síma 4801010.
Sænskir unglingar:
Taka geðlyf í
ríkara mæli
GEÐHEILSA Neysla sænskra ung-
linga, á aldrinum 13 til 17 ára, á
geðlyfjum hefur fimmfaldast
undanfarin sex ár. Þetta kemur
fram í grein í sænska blaðinu
Aftonbladet. Umboðsmaður barna
í Svíþjóð, Lena Nyberg, hefur
áhyggjur af þróuninni. Hún segir
að geðlyf ættu að vera síðasta
hálmstráið fyrir unglinga sem eru
þunglyndir. Raunin sé hins vegar
sú að þeir hafi lélegt aðgengi að
sálfræðingum og öðrum sem
gætu hjálpað þeim að takast á við
vandamálin áður en tekin en
ákvörðun um að leita í lyfin.
Rjúpur og hvalir:
Vill skjóta
hvoru tveggja
ALÞINGI „Ég ætla hvorki að ræða
rjúpur né hvali. Ég vil einfaldlega
skjóta hvoru tveggja,“ sagði Guð-
mundur Árni Stef-
ánsson, þingmaður
Samfylkingar, þeg-
ar hann kvaddi sér
máls í umræðu við
upphaf þingfundar í
gær. Þingmenn
höfðu þá rætt hval-
veiðar í kjölfar þess
að Árni Mathiesen,
sjávarútvegsráð-
herra, hafði tilkynnt
þingheimi um að Ísland væri aftur
orðinn aðili að Alþjóða hvalveiði-
ráðinu. Rjúpuveiðar voru ræddar í
kjölfar þess að Jón Bjarnason,
Vinstri-grænum, gerði athuga-
semd við að tillaga um frekari
styttingu rjúpuveiðitímabilsins
hefði ekki komið til umræðu.
Rjúpuveiðitímabilið hefst í dag.
GUÐMUNDUR
ÁRNI
STEFÁNSSON
Styður veiði
á rjúpum og
hvölum.