Fréttablaðið - 15.10.2002, Blaðsíða 12
15. október 2002 ÞRIÐJUDAGUR
FÓTBOLTIÍÞRÓTTIR Í DAG
18.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu
19.30 Vestmannaeyjar
ESSO deild kvenna (ÍBV - Fylk-
ir/ÍR)
19.30 Sýn
Heimsfótbolti með West Union
20.00 Sýn
Íþróttir um allan heim
22.30 Sýn
Sportið
00.30 Sýn
Golfmót í Bandaríkjunum
(Texas Open At La Cantera)
Sol Campbell, leikmaður enskalandsliðsins í knattspyrnu,
verður að öllum líkindum með á
móti Makedóníu í undankeppni
EM á morgun. Hann var meiddur
í sigri liðsins gegn Slóvakíu á
laugardaginn.
Bruce Rioch hefur lýst yfiráhuga sínum á knattspyrnu-
stjórastarfinu hjá enska 1. deild-
arliðinu Ipswich, sem Hermann
Hreiðarsson leikur með. Stutt er
síðan George Burley var rekinn
frá félaginu.
FÓTBOLTI Mick McCarthy, lands-
liðsþjálfari Írlands í knatt-
spyrnu, ætlar að láta af störfum
eftir tvö ár. Segist hann hafa hug
á að þjálfa félagslið er hann hætt-
ir með landsliðið. „Ég vil komast
í úrslit Evrópukeppninnar. Þá hef
ég verið átta ár í starfinu og ég
held að það sé meira en nóg,“
sagði McCarthy. „Ég mun hætta,
hvað sem gerist. Jafnvel þótt við
komust í lokakeppni EM ætla ég
að leita að nýju starfi.“
Mick McCarthy,
þjálfari Íra:
Hættir
eftir tvö ár
MCCARTHY
Mick McCarthy er fyrrverandi
knattspyrnustjóri hjá Milwall.
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Slóvakíu hefur beðið enska knatt-
spyrnusambandið afsökunar á
kynþáttahatri slóvönsku stuðn-
ingsmannanna sem beint var gegn
þeldökkum leikmönnum enska
landsliðsins í viðureign þjóðanna á
laugardag. Sambandið hyggst ein-
nig senda afsökunarbréf til leik-
mannanna Ashley Cole og Emilie
Heskey. Sá síðarnefndi segir að
hann hafi aldrei lent í öðru eins á
ferli sínum og vill að stuðnings-
mönnum Slóvakíu verði meinaður
aðgangur á leiki á næsta ári.
Enska knattspyrnusambandið
hefur rætt við forsvarsmenn Evr-
ópska knattspyrnusambandsins,
UEFA, þar sem leikmenn liðsins
hafa ítrekað orðið fyrir aðkasti
stuðningsmanna vegna litarháttar
þeirra.
Slóvenska knattspyrnusambandið:
Biðst afsökunar
á kynþáttahatri
stuðningsmanna
EMILIE HESKEY
Sést hér í baráttunni í leiknum við Slóvakíu um síðustu helgi. Hann segist aldrei hafa lent
í öðru eins.
FÓTBOLTI „Ég hef ákveðið að draga
mig úr landsliðshópnum fyrir
leikinn gegn Litháen eftir að hafa
brotið reglur hópsins. Ég harma
þessi mistök og vona að liðið og
þjálfarinn fái frið til þess að und-
irbúa sig fyrir mikilvægan leik á
miðvikudag,“ segir í tilkynningu
sem Lárus Orri Sigurðsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu sendi frá
sér í gær.
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálf-
ari, staðfesti að Lárus Orri hefði
brotið reglur um áfengisdrykkju.
Aðspurður hvort fleiri leikmenn
hefðu gert slíkt hið sama sagði
Atli. „Við vorum úti að borða og
ég veit ekki hvort einhver hafi
fengið sér einn bjór eða ekki.
Þetta snýst ekki um það.“
Ólafur Örn Bjarnason, leik-
maður Grindavíkur, kemur inn í
landsliðshópinn í stað Lárusar
Orra.
Lárus Orri Sigurðsson:
Braut
agareglur
LÁRUS ORRI SIGURÐSSON
Mun ekki leika fyrir Íslands hönd gegn Litháen.
15% afsláttur
af öllum buxum
í dag þriðjudag