Fréttablaðið - 15.10.2002, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. október 2002
FÓTBOLTI Arsenalklúbburinn á Ís-
land á 20 ára afmæli í dag. Það var
þann 15. október árið 1982 sem fé-
lagarnir Kjartan Björnsson og
Hilmar Hólmgeirsson stofnuðu
klúbbinn. Í dag eru félagsmenn
1720 talsins og fer þeim jafnt og
þétt fjölgandi. Hefur klúbburinn
meðal annars staðið fyrir 30 hóp-
ferðum á Arsenal-leiki. Næstkom-
andi laugardag klukkan 14 verður
sérstök afmælishátíð haldin á
Súlnasal Hótels Sögu þar sem
haldið verður upp á áfangann með
pompi og prakt.
Arsenalklúbburinn 20 ára í dag:
Um 1700 félags-
menn á landinu
ÁHANGENDUR
Íslenskir áhangendur Arsenal fagna bikar-
meistaratitli félagsins síðastliðið vor. Mynd-
in er tekin úr fréttablaði sem Arsenal-
klúbburinn sendir til félagsmanna sinna.
FÓTBOLTI „Ég held við verðum að
átta okkur á því að Litháar eru
ekki með lélegt landslið. Við verð-
um að bera fulla virðingu fyrir
þeim og ná betri leik en við lékum
síðast,“ segir Logi Ólafsson, fyrr-
verandi landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu og núverandi aðstoðar-
þjálfari hjá Lilleström í Noregi,
um leikinn gegn Litháum á mið-
vikudag. „Ég ætla engum íslensk-
um leikmanni það að hafa ekki
lagt sig fram á móti Skotum. Liðið
náði bara ekki upp réttum takti.“
Loga finnst skrýtið hvernig
staðið sé á bak við landsliðið hér
heima og segir að því verði að
breyta.
„Skotarnir biðu til dæmis af-
hroð í Færeyjum en samt standa
áhangendur liðsins og pressan
með þeim í hvívetna. Í Noregi og á
Norðurlöndunum standa menn
þétt við bakið á sínum landsliðum.
Það logar hins vegar allt í illdeil-
um heima löngu áður en leikurinn
hefst.“
Logi segir að gagnrýnin verði
að vera málefnaleg og ekki sé
hægt að ætlast til að
landsliðsþjálfari stilli
upp öðru liði en því
sem honum líður best
með. „Þjálfari setur
alltaf það lið inn á
völlinn sem hann tel-
ur að muni vinna leik-
inn. Þess vegna vill ég
hvetja menn til að
standa þétt við bakið
á honum og landslið-
inu. Það er það sem
við þurfum á að halda
ef við ætlum að verða
eitthvað í fótboltan-
um. Við höfum ekki
efni á því að standa í
einhverjum illdeilum.
Eftir síðasta leik
finnst mér eins og Ís-
lendingar fari á völl-
inn til að finna fjóra
til fimm leikmenn og
þjálfarann og tala
illa um þá eftir á í
stað þess að njóta
þess sem fyrir
augu ber. Þó verð
ég að viðurkenna
að það var ekki
margt sem gladdi
augað í leiknum á laugardag.“
Logi telur að þrátt fyrir úrslit-
in gegn Skotum sé það ákveðin
huggun að þeir hafi tapað tveimur
stigum gegn Færeyingum. „Ís-
lenska landsliðið getur enn náð
markmiði sínu.“
kristjan@frettabladid.is
LUNDÚNIR,AP Réttarhöld enska
knattspyrnusambandsins yfir Roy
Keane, leikmanni Manchester
United, fara fram í dag vegna um-
mæla kappans í sjálfsævisögu
sinni. Þar sagðist hann hafa meitt
Alf Inge Haaland, leikmann
Manchester City, viljandi í leik
liðanna í úrvalsdeildinni á síðasta
ári. Keane var fyrir vikið ákærð-
ur af knattspyrnusambandinu
fyrir að illt hafi vakið fyrir honum
með tæklingunni og fyrir að hafa
hagnast á atvikinu í bók sinni.
Haaland hafði reitt Keane til
reiði þremur árum áður er hann
sagði Keane hafa gert meira úr
meiðslum sínum en þörf var á í
leik Manchester United og Leeds,
sem Haaland lék þá með. Talið er
að Keane segi við réttarhöldin að
hann hafi ekki ætlað að meiða
Haaland þrátt fyrir það sem kem-
ur fram í bókinni. Þar sagði: „Ég
beið í um 180 mínútur eftir Alfie,
í þrjú ár ef þú lítur þannig á það.
Ég hafði beðið nógu lengi. Ég fór
harkalega í hann. Boltinn var
þarna (held ég). Hafðu þetta.“
Roy Keane, leikmaður Manchester United:
Réttarhöld haldin í dag
KEANE
Roy Keane á yfir höfði sér allt að átta
leikja bann, verði hann fundinn sekur.
Þriðjudag og miðvikudag kl. 15-19
Gengið inn að utan baka til við hliðina á Flugleiðum
Kringlunni
Lagersala
60-90% afsláttur
13
LOGI ÓLAFSSON
Starfar nú sem aðstoðarþjálfari hjá
Lilleström í Noregi. Hann segir Lit-
háa með teknískt lið og að bera
verði virðingu fyrir liðinu. „Leikurinn
er alls ekki unninn fyrirfram.“
Þurfum að standa þétt
við bakið á landsliðinu
Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, segir að Íslendingar verði
að standa við bakið á landsliðinu og þjálfaranum. Hann segir landsliðið
enn geta náð markmiði sínu.
Í BARÁTTUNNI
Logi Ólafsson segir að Íslendingar hafi aldrei fundið taktinn í leiknum
við Skota. Hann varar þó við landsliði Litháen og segir að það sé ekki
fyrirfram unninn leikur. Ísland mætir Litháen á miðvikudag.