Fréttablaðið - 18.11.2002, Side 6
6 18. nóvember 2002 MÁNUDAGUR
SJÁVARÚTVEGUR
ERLENDIR
HLUTABRÉFAMARKAÐIR
Dow Jones 8.579,1 0,4%
Nasdaq 1.411,1 -0,0%
FTSE 4.091,6 0,9%
DAX 3.191,8 0,1%
Nikkei 8.503,6 2,4%
S&P 909,8 0,
Lokaverð á erlendum mörkuðum
á föstudag.
Hjartavernd gerir samning um rannsókn
á sjón og heyrn:
Rannsókn í samvinnu
við Bandaríkjamenn
HEILBRIGÐISMÁL Hjartavernd hefur
í samvinnu við Öldrunarstofnun
bandaríska heilbrigðisráðuneytis-
ins skrifað undir samning við
Augnstofnun bandaríska heil-
brigðisráðuneytisins og Heyrna-
rannsóknastofnun bandaríska
heilbrigðisráðuneytisins að verð-
mæti um fjórar milljónir dollara
til rannsókna á sjón og heyrn.
Samningurinn er gerður í kjölfar
samnings sem gerður var á síð-
asta ári við Öldrunarstofnun
bandaríska heilbrigðisráðuneytis-
ins.
Hluti styrksins til rannsókna á
sjón felur í sér fullkomna augn-
botnamyndavél og sjónlags- og
sjónmælingatæki. Markmiðið
með augnbotnamyndunum er að
kanna tilvist og alvarleika æða-
breytinga í augnbotnum sem gætu
verið vísbendingar um augnbotna-
hrörnun og skemmda í sjónhimnu
vegna sykursýkisbreytinga og
meta ólæknanlegt sjóntap tengt
þessum sjúkdómum.
Styrkurinn til rannsókna á
heyrn er að hluta til notaður til að
kaupa tæki til heyrnarmæl-
inga.Fyrirhugað er að gera rann-
sóknir á eyrum og heyrn og teng-
ja aldursbundnar breytingar á
starfsemi eyrans, miðeyra og
innra eyra ásamt heyrn við önnur
líffærakerfi sem rannsaka á, eins
og starfsemi heila, æðakerfi, jafn-
vægi og sjón.
HEYRN OG SJÓN
Mikilvægar rannsóknir sem gerðar eru í samvinnu við bandaríska heilbrigðisráðuneytið.
Kalkþörungavinnsla í
Arnarfirði ígildi stóriðju
Skapar allt að sextán störf, þar af ellefu í verksmiðjunni sjálfri. Mun styrkja sunnanverða
Vestfirði í heild en talið er að íbúum sveitarfélagsins fjölgi um 35 til 45 manns, mest á Bíldudal.
Umhverfisáhrif kalkþörunganáms úr botni Arnarfjarðar talin minniháttar.
STÓRIÐJA Bygging og rekstur kalk-
þörungaverksmiðju í Arnarfirði
mun hafa veruleg bein áhrif á at-
vinnu- og mannlíf á sunnanverðum
Vestfjörðum, einkum á Bíldudal,
Tálknafirði og Patreksfirði. Verk-
smiðjan er í raun ígildi stóriðju
fyrir svæðið en talið er að íbúum
sveitarfélagsins fjölgi um 35 til 45
manns, mest á Bíldudal, vegna
hennar.
Áform um vinnslu kalkþörunga
úr Arnarfirði ganga samkvæmt
áætlun. Stofnað hefur verið undir-
búningsfélag um vinnsluna, Ís-
lenska kalkþörungafélagið ehf., og
er félagið framkvæmdaraðili þessa
verks. Haft hefur verið samráð við
írska fyrirtækið Celtic Sea Miner-
als og búist er við að það muni taka
verulegan þátt í framkvæmdum í
Arnarfirði.
Vinnsla kalkþörunga felur í sér
dælingu kalkþörungasets af sjáv-
arbotni og frekari vinnslu þess í
verksmiðju sem yrði reist í
firðinum.
Úrvinnslan felst í þurrkun, síun,
mölun og sekkjun efnisins. Full-
unnið kalkþörungaset úr fyrirhug-
aðri verksmiðju í Arnarfirði verð-
ur fyrst og fremst notað sem
íblöndunarefni í skepnufóður. Sú
íblöndun gæti hugsanlega farið
fram að einhverju leyti í verk-
smiðjunni. Verksmiðjuhúsið í heild
þarf að vera um 3.500 fermetrar að
stærð.
Ekki hefur endanlega verið
ákveðið hvar verksmiðjan verður
en fimm staðir í Arnarfirði koma
til greina, tveir á Bíldudal, þ.e. á
hafnarsvæði og í nágrenni hafnar,
á Haganesi til móts við Bíldudal, í
Otradal og loks í Dufansdal.
Stöðugildi í verksmiðjunni
verða ellefu talsins og má reikna
með að minnsta kosti fimm afleidd-
um störfum í tengslum við verk-
smiðjureksturinn. Á framkvæmda-
tíma er reiknað með að um 25 störf
skapist vegna byggingar verk-
smiðjunnar og hafnarfram-
kvæmda.
Íslenska kalkþörungafélagið
hefur lagt fram skýrslu um mat á
umhverfisáhrifum vinnslunnar á
vinnslu kalkþörungasetlaga í Arn-
arfirði. Samkvæmt henni verða
umhverfisáhrif efnistökunnar
minniháttar, litlar líkur eru taldar
á því að samfélögum eða dýrateg-
undum verði útrýmt á svæðinu við
efnisnám. Athugasemdafrestur við
skýrsluna er til 20. desember.
the@frettabladid.is
BÍLDUDALUR
Talið er að fyrirhuguð kalkþörungaverksmiðja styrki mjög byggð á svæðinu, einkum á
Bíldudal.
Hlutabréfakaup
almennings:
Skatta-
skammtur-
inn hverfur
HLUTABRÉF Skattaafslátturinn sem
menn fengu vegna kaupa á hluta-
bréfum heyrir sögunni til um ára-
mótin. Eftirlitsstofnun Evrópu
gerði athugasemdir við skatta-
ívilnun vegna hlutabréfakaupa og
leit á hana sem ákveðið form nið-
urgreiðslu. Í vefriti fjármálaráðu-
neytisins er fjallað um afsláttinn.
Rifjaði er upp að tilgangur hans
hafi í upphafi verið að hvetja al-
menning til að fjárfesta í atvinnu-
lífinu. Upphaflegum tilgangi hafi
verið náð og því ekki áform um að
framlengja afsláttinn.
RÚMLEGA FJÓRÐUNGUR VEIDDUR
37.000 tonnum af síld, eða
fjórðung leyfislegs afla, hefur
verið landað það sem af er ver-
tíðinni. Mestu hefur verið landað
hjá Búlandstindi, um 6.000 tonn-
um.
KOLMUNNAAFLI FIMMFALDAST
Rúmlega fimmfalt meiri
kolmunnaafli barst til vinnslu í
fiskimjölsverksmiðju Samherja í
Grindavík á þessari vertíð en
þeirri síðustu. Á síðasta ári bár-
ust sex þúsund tonn á land.
Olíuskip enn í hrakningum úti af Spánarströnd:
Olíulekanum
haldið í skefjum
MADRID, AP Spánverjar reyndu sitt
ítrasta til þess að halda í skefjum
olíunni sem lak úr olíuskipinu
Prestige norðvestur af Spáni.
Töluvert af olíunni hafði þegar
borist upp að Spánarströndum og
valdið þar spjöllum á viðkvæmu
náttúrulífi.
Megnið af olíunni, um 77 þús-
und tonn, var þó enn um borð í
skipinu um það bil 70 mílur vest-
ur af Spáni.
Stjórnvöld á Spáni reyndu að
gera sem minnst úr um-
hverfistjóninu. Jose Maria Aznar,
forsætisráðherra Spánar, gaf þó í
skyn að Spánverjar myndu reyna
að fá skaðabætur vegna olíulek-
ans. Hann nefndi þó ekki hvaðan
þær bætur ættu að koma.
Leki komst að spænska olíu-
skipinu Prestige, sem er skráð á
Bahamaeyjum, þegar það lenti í
miklu hvassviðri skammt norð-
vestur af Spáni á miðvikudaginn.
Sprunga kom á hægri hlið skips-
ins og var um tíma óttast að skip-
ið myndi klofna í tvennt.
Skipið var dregið burt frá
ströndinni. Enn er óljóst hvort
reynt verður að gera við skipið
eða hvort olíunni verður dælt í
annað skip.
Handteknir í London:
Ætluðu
að dreifa
eiturgasi
LONDON, AP Þrír menn eru í haldi í
Bretlandi fyrir að hafa ætlað að
fremja hryðjuverk í London.
Breska dagblaðið Sunday Times
hélt því fram í gær að mennirnir
hafi ætlað sér að dreifa eiturgasi,
hugsanlega blásýrugasi, í neðan-
jarðarlestakerfi borgarinnar.
Mennirnir þrír heita Rabah
Chekat-Bais, Rabah Kadris og
Karim Kadouri. Breska lögregl-
an segir þá hafa verið ákærða
fyrir að hafa í fórum sínum efni,
sem hægt væri að nota til þess að
fremja hryðjuverk. Lögreglan
vildi ekki segja hvaða efni þetta
væru.
John Prescott, aðstoðar-
forsætisráðherra Bretlands,
sagði í gær að fjölmiðlar hefðu
gert meira úr þessu máli en efni
stæðu til.
Mennirnir eiga að koma fyrir
dómara í dag.
ÞAKINN OLÍU
Þessi fugl varð heldur betur var við olíuna
úr skipinu Prestige á norðvesturströnd
Spánar um helgina.
AP
/C
AR
M
EL
O
A
LE
N
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Nýjasta Harry Potter-myndin
var frumsýnd um helgina.
Hvað eru margar bækur
komnar út og hvað verða
margar skrifaðar um galdra-
strákinn?
Hvað kallast fjárfestahópurinn
sem keypti hlut ríkisins í Bún-
aðarbanka um helgina?
Magnús Stefánsson sigraði í
kosningum um leiðtoga lista
Framsóknarmanna í Norðvest-
urkjördæmi. Fulltrúi hvaða
kjördæmis er hann nú?