Fréttablaðið - 18.11.2002, Síða 13
MÁNUDAGUR 18. nóvember 2002
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í
tveggja mánaða fangelsi og svipt-
ur ökuréttindum ævilangt fyrir
ölvunarakstur og fyrir að hafa
komið því til leiðar að saklaus
maður var ákærður.
Maðurinn hefur þrisvar verið
tekinn ölvaður við akstur frá því í
apríl árið 2000. Síðast var hann
stöðvaður af lögreglu á sendibíl í
júní í sumar. Þegar lögreglan
spurði til nafns gaf hann upp rangt
nafn, sem leiddi til þess að saklaus
maður var ákærður fyrir að hafa
ekki haft ökuskírteini meðferðis.
Ákærði flutti mál sitt sjálfur fyrir
dómi og játaði skýlaust sök.
Nýr forsætisráðherra Tyrklands:
Lofar lýðræðislegu
íslömsku ríki
ANKARA, AP Nýi forsætis-
ráðherrann í Tyrklandi
telst vera hófsamur
stjórnmálamaður. Hann
er þingmaður íslamska
Réttlætis- og þróunar-
flokksins, sem vann stór-
sigur í þingkosningunum
3. nóvember.
„Við viljum sýna fram
á að múslimskt ríki getur
verið lýðræðislegt, gegn-
sætt og nútímalegt og lif-
að í samneyti við um-
heiminn,“ sagði Abdullah
Gul forsætisráðherra í
blaðaviðtali sem birtist í
gær, daginn eftir að hann
tók við embætti.
Recep Tayyip Erdog-
an, leiðtogi Réttlætis- og
þróunarflokksins, má
ekki gegna embætti for-
sætisráðherra í Tyrk-
landi vegna þess að hann
hlaut dóm árið 1999 fyrir
að brjóta gegn hinni ver-
aldlegu stjórnskipan
landsins með því að æsa
upp trúarhita.
ABDULLAH GUL
Forseti Tyrklands valdi
Abdullah Gul til þess
að mynda nýja stjórn
í landinu.
Héraðsdómur:
Fangelsi fyrir
ölvunarakstur
HÉRAÐSDÓMUR
Ákærði játaði skýlaust sök.