Fréttablaðið - 20.11.2002, Page 1
PERSÓNAN
Beið eftir
lækni
bls. 18
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 20. nóvember 2002
Tónlist 12
Leikhús 12
Myndlist 12
Bíó 12
Íþróttir 10
Sjónvarp 14
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
FRUMSÝNING Leikritið sígilda Rómeó
og Júlía verður frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu í dag í nýrri þýðingu
Hallgríms Helgasonar. Sýningin er
í samstarfi við Íslenska dansflokk-
inn, Vesturport og 1001 nótt. Auk
leikara taka dansarar, fjölleikafólk,
söngvarar, fimleikamenn og eld-
gleypar þátt í sýningunni.
Rómeó og Júlía
FÓTBOLTI Íslendingar mæta Eistlandi
í vináttulandsleik klukkan 16 í dag.
Leikurinn verður sýndur beint í
Ríkissjónvarpinu.
Ísland mætir
Eistlandi
GÖNGUTÚR Ferðafélag Íslands stend-
ur fyrir kvöldgöngu á fullu tungli.
Lagt verður af stað frá BSÍ klukk-
an 19.30 og ferðinni heitið upp fyrir
Hafnarfjörð þar sem gengið verður
frá Kaldárseli í Valaból. Þátttak-
endum er bent á að hafa með sér
góð ljós.
Kvöldganga
á fullu tungli
TÓNLEIKAR Minningartónleikar um
Svanhvíti Egilsdóttur, söngkonu og
prófessor við Tónlistarháskólann í
Vínarborg, verða haldnir í Hafnar-
borg klukkan 20. Svanhvít stundaði
söngnám og störf í Þýskalandi í
skugga Hitlers og heimsstyrjaldar-
innar síðari. Guðrún Egilsson mun
einnig lesa upp úr bókinni
Tvístirni - saga Svanhvítar og
segja frá ævi hennar og störfum.
Minning
um Svanhvíti
FÓLK
Hunda-
haldið lífsstíll
MIÐVIKUDAGUR
232. tölublað – 2. árgangur
bls. 18
Byggðu á þínum tíma
Grafarvogi
Vestur í bæ
Kópavogi
Ármúla
ÍÞRÓTTIR
Allir ferskir
og frískir
bls. 11
UPPSELT Á CAVE Á 55 MÍNÚTUM Miðar á tónleika Nick Cave seldust upp aðeins 55 mínútum eftir að salan hófst. Fyrstu menn
mættu í biðröðina við verslanir Japis kl. 9 í gærmorgun. Miðasalan hófst kl. 13 í gær og náði biðröðin þá frá verslun Japis á Laugavegin-
um upp að plötuversluninni Hljómalind. Snorri Thors, aðstandandi tónleikanna, segist agndofa yfir áhuganum. Hann segir það í athugun
að bæta við aukatónleikum daginn eftir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
REYKJAVÍK Hæg austlæg eða
breytileg átt. Úrkomulítið
síðdegis. Hiti 2 til 7 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Rigning 5
Akureyri 10-15 Skýjað 7
Egilsstaðir 10-15 Skýjað 7
Vestmannaeyjar 3-5 Rigning 4
➜
➜
➜
➜ +
+
+
+
Rekstur Flugleiða batnar:
3,3 milljarð-
ar í hagnað
UPPGJÖR Afkoma Flugleiða fyrir
skatta batnaði um tæpa 3,9 millj-
arða fyrstu níu mánuði ársins
samanborið við sama tímabil í
fyrra. Hagnaður félagsins eftir
skatta fyrstu níu mánuði ársins
var 3,3 milljarðar. Sigurður Helga-
son, forstjóri Flugleiða, segir ár-
angurinn mikið fagnaðarefni.
Hann skýrist af uppbyggingar-
starfi undanfarinna ára og sam-
stilltu átaki starfsmanna og stjórn-
enda. Tap er venjulega af rekstri
Flugleiða síðustu mánuði ársins,
en búist er við að rekstrarniður-
staða ársins í heild verði góð.
LÖGREGLUMÁL Tryggingasjóður
lækna, séreignasjóður um lífeyr-
issparnað, sem starfræktur hefur
verið síðan á fimm-
ta áratugnum er
rjúkandi rúst og lít-
il sem engin von til
þess að þeir læknar
sem lagt hafa fé í
sjóðinn fái sparnað
sinn til baka.
„Þarna átti sér stað mikil fjár-
málaóreiða og ég kannast ekki
við að hafa nokkurn tíma fengið
fundarboð,“ segir Uggi Agnars-
son hjartalæknir sem er einn
þeirra sem tapa miklum fjármun-
um á sjóðþurrð Tryggingarsjóðs
lækna. Lögreglurannsókn stend-
ur nú yfir vegna sjóðþurrðar sem
blasir við eftir að umsjónarmað-
ur sjóðsins gaf sig fram við Fjár-
málaeftirlitið í byrjun maí á
þessu ári og viðurkenndi að hafa
notað fé sjóðsins til eigin þarfa.
Maðurinn, sem er löggiltur end-
urskoðandi, hafði séð um rekstur
sjóðsins um þriggja áratuga
skeið. Uggi segir þetta koma illa
við marga lækna sem hafi safnað
upp lífeyri til að eiga til efri ár-
anna.
Matthías Kjeld læknir tekur í
sama streng. Hann segir að ein-
stakir læknar tapi milljónum
króna af ævisparnaði sínum
vegna þessa máls.
„Ég veit ekki betur en þarna
hafi átt sér stað sjóðþurrð. Það er
augljóst að þessi mál þarf að
skoða vandlega,“ segir Matthías.
Maðurinn sem játaði á sig fjár-
dráttinn lýsti því við lögreglu að
hann hefði tekið 27 milljónir
króna ófrjálsri hendi á tíu árum
en skilað öllum þeim fjármunum
aftur. Sjóðfélagar sem Frétta-
blaðið hefur rætt við telja að
þarna sé um að ræða mun hærri
upphæðir, eða á bilinu 80-100
milljónir króna, og þessi ævi-
sparnaður þeirra sé að mestu
glataður.
Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra, segir að rannsókn á
málinu sé enn ekki lokið.
„Við sjáum ekki enn hve mikið
umfang er á þessu máli. En það
er ljóst að sjóðurinn er í algjöru
uppnámi og rannsóknin snýst um
að upplýsa það hvað hafi orðið til
þess,“ segir Jón.
Sjóðstjórinn fyrrverandi býr í
Bandaríkjunum.
rt@frettabladid.is
Eftirlaunasjóður
lækna rjúkandi rúst
Talið að 80 til 100 milljónir vanti í Tryggingasjóð lækna. Sjóðstjóri játaði
fjárdrátt en sagðist hafa endurgreitt. Lögregla segir sjóðinn vera í al-
gjöru uppnámi. Milljóna ævisparnaður lækna talinn glataður.
„Ég veit ekki
betur en
þarna hafi átt
sér stað sjóð-
þurrð“.
VEÐUR Gífurlegar rigningar vöktu
Reykvíkinga í gærmorgun þegar
regndropar skullu með óvenju mikl-
um krafti á húsþökum. Og regn-
droparnir voru stærri en venjulega:
„Jú, þeir voru stærri, sem
skýrist af vatnsmiklum lægðum
yfir landinu. Samfara miklum
vindi urðu skellirnir því meiri þeg-
ar droparnir splundruðust,“ segir
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur, sem spáir uppstyttu í
dag. Áfram verður hlýtt í veðri, 4-
7 stig, en á sunnudag fer svo að
kólna og birta til: „Þá fer fólk að
sjá mun á degi og nóttu í höfuð-
borginni,“ segir Sigurður.
Regndropar verða til í ísingu í
efri loftlögum og stærð þeirra fer
eftir því hversu miklu vatni þeir
safna í sig á leið til jarðar og ekki
síður hversu mikið þeir splundrast
á niðurleiðinni. Í fyrrinótt var hita-
stig það lágt að úrkoman jaðraði
við slyddu sem umbreyttist á síð-
ustu metrunum í óvenjustóra regn-
dropa.
Vatnsmiklar lægðir yfir landinu:
Regndroparnir stækka
debenhams
S M Á R A L I N D
Landsins
mesta úrval af
herranærfötum
FLUGLEÐIR
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, segir
árangurinn mikið fagnaðarefni.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
55%
81%
Kökublað
fylgir í dag
AUKABLAÐ Í blaðinu er m.a. að
finna viðtöl við fólk, uppskriftir
og heilræði. Í næstu viku mun
veglegt jólablað fylgja Frétta-
blaðinu.
bls. 10
UNDIRBÚNINGUR
Smáköku-
bakstri lokið
fyrir aðventuna
bls. 4
bls. 6
JÓLABRÖNS
Í stað
smáköku-
baksturs
HEILSUSAMLEGT
Lífrænt
hráefni og
spelt
Kökublaðið
jólin 2002
Sérblað um jólabaksturinn
Sérhæfir sig í Sörum
Ég hlakka alltaf til jólanna þvíég er mikið jólabarn,“ segirTheodór Júlíusson. Hann og kon-an hans vinna bæði í Borgarleik-húsinu og þegar sýningum lýkurí kringum 10.desember hefstjólabaksturinn. Þá eru bara æf-ingar í leikhúsinu fram að hátíð-um og því gefst meiri tími til jó-laundirbúnings. „Við erum frek-ar með seinni skipunum ísmákökubakstrinum en bökumengu að síður 5 til 6 sortir. Á að-ventunni maulum við smákökuryfir kertaljósi á meðan við pökk-um inn gjöfunum og skreytumhúsið.“ Dætur Theodórs eru all-ar fluttar að heiman en eru mik-ið hjá foreldrunum yfir hátíðirn-ar ásamt barnabörnunum fjór-
um. Þess vegna er nauðsynlegtað eiga nóg til af góðgæti í hús-inu.
Theodór segist alltaf hafa tek-ið þátt í jólabakstrinum á heimil-inu. „Við hjónin höfum bakaðsömu jólasmákökurnar í gegnum30 ára hjónaband með litlumbreytingum.“ Vanilluhringirnirsem hann vandist í æsku eru ímiklu uppáhaldi og að hans sögn
eru engin jól án þeirra. En þaðeru engu að síður Sörurnar semhann hefur sérhæft sig í og kannbest lagið á. „Ég er búinn að bakaSöru Bernharðs-kökur fyrir jóliní mörg ár og lít á þær sem mittsérsvið,“ segir Theodór. „Ég ogkonan mín gefum oftast vinumog ættingjum Sörur fyrir jólin ogsendum þær meira að segja meðjólapökkunum út á land.“
Theodór er þess fullviss aðhans Sörur séu þær bestu sembjóðast og hefur fengið það stað-fest hjá fjölskyldu og vinum.Áralöng þjálfun í „Sörubakstri“hefur kennt honum hvernig bestsé að bera sig að til að kökurnarverði sem ljúffengastar. „Það ermjög mikilvægt að mylja möndl-urnar ekki í matvinnsluvél þvíþær hakka svo hratt að allur vök-vinn fer úr þeim.“ Þess vegnanotar Theodór nú orðið „töfra-sprota“ (handmyljara). „Ég heflíka uppgötvað að það er munfljótlegra að setja deigið á plöt-urnar með rjómasprautu og þaðsama má gera þegar kremið erlátið á.“
Theodór bendir þó á að hafaberi í huga að hráefnið í Sörur erviðkvæmt og því þarf að geraallt mjög varlega, sérstaklegaþegar verið er að blanda möndl-unum og flórsykrinum út í eggja-hvíturnar. „Það mikilvægasta erað gera þetta allt af ást og um-hyggju,“ segir Theodór, sem erum þessar mundir að leika íverkinu „Kryddlegin hjörtu“ íBorgarleikhúsinu og hefurgreinilega orðið fyrir áhrifum afþeirri lífsspeki sem þar er í há-vegum höfð.
Botn:
300 g möndlur, með hýði
250 g flórsykur
5-6 eggjahvítur (fer eftir stærð
eggjanna)
Krem:
150 g sykur
1 1/2 dl vatn
5-6 eggjarauður
1/4 tsk. neskaffi
300 g smjör
1 1/2 msk. kakó
Súkkulaði til að hjúpa
Aðferð:
Hakkið möndlurnar vel niður í
„handhakkara“ (EKKI matvinnslu-vél). Þeytið eggjahvíturnar þar til
þær eru mjög vel stífar. Blandið
þá saman möndlum og flórsykri og
varist kekki. Hrærið möndlublönd-unni mjög varlega út í eggjahvít-
urnar með sleif. Sprautið eða setj-
ið með teskeið á plötur með bökun-arpappír. Bakið við 180˚C í ca 8-9
mín. í blásturs-ofni.
Setjið sykur og vatn í pott, hrærið
vel saman og sjóðið þar til fer að
þykkna. Stífþeytið eggjarauður á
meðan, hellið sykurlegi mjög var-
lega út í og þeytið á vægum hraða
í smástund. Sprautið eða smyrjið
kreminu á kaldar kökurnar og setj-ið í ísskáp í stutta stund eða þar tilkremið er orðið stíft. Hjúpið að
lokum með súkkulaði. Geymið kök-urnar á köldum stað.
Sörurað hætti Theódórs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
THEODÓR JÚLÍUSSON. Bakar hér Sörur í félagi við Guðrúnu Febeu dótturdóttur sína. Hún er yngsta barnabarnið,tæplega eins árs.
Theodór Júlíusson
leikari bakar Sörur
af ást og umhyggju
og leyfir vinum og
ættingjum um land
allt að njóta með sér
afrakstursins.