Fréttablaðið - 20.11.2002, Blaðsíða 2
2 20. nóvember 2002 MIÐVIKUDAGUR
MADRID, AP Gríska olíuskipið
Prestige, sem skráð var á Bahama-
eyjum, brotnaði í tvennt í gær-
morgun og sökk stuttu síðar um 240
km út af norðvesturströnd Spánar.
Skipstjórinn á Prestige, hinn
gríski Apostolos Mangouras, var
handtekinn eftir að hann yfirgaf
skipið ásamt þeim skipverjum sem
enn voru eftir um borð. Honum er
gefið að sök að hafa óhlýðnast
stjórnvöldum og að hafa valdið um-
hverfistjóni.
77 þúsund tonn af olíu voru um
borð í skipinu, sem lenti í hremm-
ingum í hvassviðri norðvestur af
Spáni í síðustu viku. Gat kom á
skipið og nokkur þúsund tonn af
olíu láku úr því strax þá. Hluti
þeirrar olíu hefur þegar valdið
verulegu umhverfistjóni á norð-
vesturströnd Spánar.
Berist öll olían til strandar yrði
það eitt versta umhverfisslys sög-
unnar. Þetta er helmingi meira
magn af olíu heldur en lak úr olíu-
skipinu Exxon Valdez úti af strönd-
um Alaska árið 1989.
Fjölmargir hafa unnið undan-
farið að því að hreinsa þykka olíu-
brák af norðvesturströnd Spánar.
Hlúa þurfti að hundruðum fugla og
annarra dýra, sem lent höfðu í
olíunni.
La Coruna
Malpica
PORTÚGAL
SPÁNN
Finisterre
13. nóv.:
Gat kom á
olíuskipið
Olíumengun
á ströndinni
0 50 km
Olíuskipið Prestige sokkið:
Skipstjórinn handtekinn
SKIPIÐ KLOFNAÐI Í TVENNT
Í GÆRMORGUN
Stjórnvöld á Spáni og Portúgal vildu ekki
leyfa að skipið yrði dregið til hafnar, þar
sem hægt hefði verið að gera við það.
AP
/M
YN
D
Útvarpsráð:
Frestun á
fréttastjóra
SJÓNVARP Útvarpsráð frestaði at-
kvæðagreiðslu og umræðum um
umsækjendur um starf fréttastjóra
Ríkissjónvarpsins á hátíðarfundi
sem ráðið hélt á Akureyri í gær í til-
efni af vígslu nýrra höfuðstöðva
Rásar 2 á staðnum.
„Við vildum hafa fullskipað í ráð-
inu þegar fjallað væri um málið.
Nokkrir ráðsmenn voru fjarver-
andi,“ sagði Markús Örn Antonsson
útvarpsstjóri að loknum fundinum.
Meðal útvarpsráðsmanna sem
áttu ekki heimangengt og komust
ekki til Akureyrar voru Mörður
Árnason og Kristín Halldórsdóttir.
Talið er fullvíst að val ráðsins
standi á milli Elínar Hirst, starfandi
fréttastjóra Ríkissjónvarpsins, og
Sigríðar Árnadóttur, fréttakonu á
fréttastofu Útvarps. Páll Benedikts-
son fréttamaður dró umsókn sína
um starfið til baka fyrir skemmstu.
Að auki sækja fjórir aðrir um
fréttastjórastarfið, þeirra á meðal
Logi Bergmann Eiðsson. Einn um-
sækjandi er með meðmæli frá Jóni
Ólafssyni, aðaleiganda Stöðvar 2. Sá
þykir ekki koma til greina.
VÍS og Ker:
Konungs-
ríkjum skipt
VIÐSKIPTI Norvik, sem keypti 25%
hlut í Vátryggingarfélagi Íslands,
hefur selt þann hlut til Hesteyrar
í skiptum fyrir hlut í Keri. Þar
með eru staðfest vænt skipti
valda milli Ólafs Ólafssonar, for-
stjóra Samskipa, og Þórólfs Gísla-
sonar kaupfélagsstjóra innan S-
hópsins svokallaða. Hesteyri er í
eigu Kaupfélags Skagfirðinga og
Skinneyjar Þinganess.
Þórólfur mun því ríkja yfir VÍS
og Ólafur yfir Keri. Saman munu
þeir standa að kaupum á Búnaðar-
bankanum.
BAGDAD, AP Íraksstjórn sagðist í
gær ætla að fara að kröfu Örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna um að
skila ítarlegri skýrslu um efna-,
sýkla- og kjarnavopn sín ekki síð-
ar en 8. desember.
Mohamed El Baradei, yfirmað-
ur Alþjóðlegu kjarnorkustofnun-
arinnar, sagði að Írakar hefðu lof-
að þessu á fundi með Hans Blix,
yfirmanni vopnaeftirlits Samein-
uðu þjóðanna, á mánudagskvöld.
Írakar hafa jafnan haldið því
fram að engin efna-, sýkla- eða
kjarnavopn séu í landinu.
Tuttugu og fimm manna hópur
vopnaeftirlitsmanna kom til Íraks
á mánudaginn ásamt þeim El
Baradei og Blix. Þessi hópur á að
undirbúa hið eiginlega vopnaeft-
irlit, sem hefst eftir að Írakar
hafa gefið skýrslu sína 8. desem-
ber.
Sama dag og vopnaeftirlits-
mennirnir komu til Íraks vörpuðu
bandarískar og breskar flugvélar
sprengjum á loftvarnarkerfi
Íraka á nyrðra flugbannssvæðinu.
Loftárásir af þessu tagi hafa verið
gerðar með nokkurra daga milli-
bili allar götur frá því Persaflóa-
stríðinu lauk.
Undirbúningur vopna-
eftirlits gengur vel:
Írakar lofa
að veita
upplýsingar
VIÐ HÖFUÐSTÖÐVAR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA Í BAGDAD
Íraskur hermaður sést þarna lesa dagblað.
AP
/H
U
SS
EI
N
M
AL
LA
EINKAVÆÐING Kauphöll Íslands
hefur sett Búnaðarbankann á at-
hugunarlista vegna þess að ekki er
ennþá ljóst hvernig aðkomu frans-
ka bankans Société Générale að
kaupum á Búnaðar-
bankanum verður
háttað. Franski
bankinn ætlar að
taka sér frest til 6.
desember til að
ákveða hvernig
hann kemur að mál-
inu. Fulltrúi HSBC
bankans í London
sem sá um úttekt á
kaupendum bank-
anna, staðfesti að
yfirgnæfandi líkur
væru á aðkomu al-
þjóðlegs banka að
kaupum S-hópsins.
Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins vildi S-hópur-
inn bíða þar til gengið hefði verið
frá samkomulagi við franska
bankann. Einkavæðingarnefnd
vildi hins vegar ganga frá undirrit-
un.
Efasemdir hafa verið uppi um
að S-hópurinn hefði efni á að
kaupa bankann. Heildarfjárfest-
ing fyrirtækjanna sem að hópn-
um standa sé um 22 milljarðar ef
lögð eru saman kaupin á VÍS og
kaupin á Búnaðarbankanum. Inn-
koma Norvikur, eigenda BYKO,
með 3,4 milljarða inn í Ker sem
gengið var frá í gær, auðveldar
fjármögnun. Þar fyrir utan má
búast við að minnsta kosti þrigg-
ja milljarða erlendri fjárfest-
ingu. Eftir stendur að þeir sem að
kaupunum standa þurfa að ná
góðri afkomu í eigin rekstri sem
og í bankanum sjálfum til að
standa undir 16 milljarða fjár-
festingu.
HSBC bankinn gerði athugun á
bjóðendum í bankann. Edward
Williams, fulltrúi bankans, sagði
niðurstöður úttektarinnar ekki
gefa tilefni til að efast um getu S-
hópsins til að kaupa bankann.
Verðið sem kaupendur ríkis-
bankanna greiða fyrir þá er al-
mennt talið í hærri kantinum. Sér-
fræðingar á markaði eru almennt
á því að ríkið megi vel við una með
söluverðið. Sérfræðingar á mark-
aði og stjórnarandstaðan eru gagn-
rýnin á þær breytingar sem urðu á
S-hópnum í söluferlinu. Í hópnum
hafa frá upphafi verið fyrirtæki
sem tengjast Sambandi íslenskra
samvinnufélaga. Mikil eignatengsl
eru á milli fyrirtækjanna og hóp-
urinn skilgreindi sig ekki endan-
lega gagnvart einkavæðingar-
nefnd fyrr en í síðustu lotunni.
Benda menn á að Gilding hafi ver-
ið gagnrýnd á sama tíma fyrir að
koma ekki skýrt fram sem hópur.
haflidi@frettabladid.is
Vildu flýta
undirskriftinni
S-hópurinn vildi bíða til 6. desember með undirritun um kaup á Búnað-
arbankanum. Einkavæðingarnefnd vildi drífa undirskrift af. Kauphöll
Íslands setti Búnaðarbankann á athugunarlista.
STÓRAR FJÁRFESTINGAR
Með kaupum á Búnaðarbankanum er fjárfesting fyrirtækja innan S-hópsins komin í 22
milljarða. Einkavæðingarnefnd vildi ekki bíða með undirskriftina þar til aðkoma fransks
banka lægi ljós fyrir.
HSBC bankinn
gerði athugun
á bjóðendum
í bankann. Ed-
ward Williams,
fulltrúi bank-
ans, sagði nið-
urstöður út-
tektarinnar
ekki gefa til-
efni til að ef-
ast um getu
S-hópsins til
að kaupa
bankann.
Ekið á 13 ára stúlku:
Líðan
óbreytt
SLYS Líðan stúlkunnar sem varð
fyrir bíl á Vesturlandsvegi 6. nóv-
ember síðastliðinn er óbreytt. Að
sögn vakthafandi læknis á gjör-
gæsludeild Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss hefur henni verið
haldið sofandi í öndunarvél frá
því slysið varð. Stúlkan, sem er
þrettán ára, hlaut alvarlega höf-
uðáverka og hefur hún gengist
undir skurðaðgerð.
Slysið varð með þeim hætti að
stúlkan var að hlaupa yfir Vestur-
landsveg við Ásland í Mosfellsbæ
þegar hún lenti fyrir bíl.
Umferðarátak hefst í dag:
Bílbelta- og
farsímanotk-
un könnuð
UMFERÐ Lögregluembættin í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði, Keflavík, Keflavíkurflug-
velli og Selfossi, auk starfsmanna
umferðardeildar ríkislögreglu-
stjóra, standa fyrir sameiginlegu
umferðarátaki sem hefst í dag.
Athygli lögreglumanna verður
sérstaklega beint að notkun bíl-
belta og öryggisbúnaðar fyrir
börn og brotum á reglum um notk-
un farsíma án handfrjáls búnaðar
við akstur,
Átakið stendur til 22. nóvem-
ber næstkomandi.
SAMEIGINLEGT UMFERÐARÁTAK
Eftirlit verður haft með notkun bílbelta og
handfrjáls búnaðar.
Vilhjálmur Egilsson þingmaður varð í fimmta sæti
prófkjörs sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi.
Litlu munaði að hann næði fyrsta sætinu og hefur
hann viljað meina að brögðum hafi verið beitt til
að fella hann.
Þetta eru bara örlög mín að lenda í þessari
stöðu. Ég held ég væri að bregðast stuðn-
ingsmönnum mínum, Sjálfstæðisflokknum
og þjóðinni ef ég gæfist upp.
SPURNING DAGSINS
Af hverju gefstu ekki
bara upp?