Fréttablaðið - 20.11.2002, Qupperneq 11
bls. 10
UNDIRBÚNINGUR
Smáköku-
bakstri lokið
fyrir aðventuna
bls. 4bls. 6
JÓLABRÖNS
Í stað
smáköku-
baksturs
HEILSUSAMLEGT
Lífrænt
hráefni og
spelt
Kökublaðið
jólin 2002Sérblað um jólabaksturinn
Sérhæfir sig í Sörum
Ég hlakka alltaf til jólanna þvíég er mikið jólabarn,“ segir
Theodór Júlíusson. Hann og kon-
an hans vinna bæði í Borgarleik-
húsinu og þegar sýningum lýkur
í kringum 10.desember hefst
jólabaksturinn. Þá eru bara æf-
ingar í leikhúsinu fram að hátíð-
um og því gefst meiri tími til jó-
laundirbúnings. „Við erum frek-
ar með seinni skipunum í
smákökubakstrinum en bökum
engu að síður 5 til 6 sortir. Á að-
ventunni maulum við smákökur
yfir kertaljósi á meðan við pökk-
um inn gjöfunum og skreytum
húsið.“ Dætur Theodórs eru all-
ar fluttar að heiman en eru mik-
ið hjá foreldrunum yfir hátíðirn-
ar ásamt barnabörnunum fjór-
um. Þess vegna er nauðsynlegt
að eiga nóg til af góðgæti í hús-
inu.
Theodór segist alltaf hafa tek-
ið þátt í jólabakstrinum á heimil-
inu. „Við hjónin höfum bakað
sömu jólasmákökurnar í gegnum
30 ára hjónaband með litlum
breytingum.“ Vanilluhringirnir
sem hann vandist í æsku eru í
miklu uppáhaldi og að hans sögn
eru engin jól án þeirra. En það
eru engu að síður Sörurnar sem
hann hefur sérhæft sig í og kann
best lagið á. „Ég er búinn að baka
Söru Bernharðs-kökur fyrir jólin
í mörg ár og lít á þær sem mitt
sérsvið,“ segir Theodór. „Ég og
konan mín gefum oftast vinum
og ættingjum Sörur fyrir jólin og
sendum þær meira að segja með
jólapökkunum út á land.“
Theodór er þess fullviss að
hans Sörur séu þær bestu sem
bjóðast og hefur fengið það stað-
fest hjá fjölskyldu og vinum.
Áralöng þjálfun í „Sörubakstri“
hefur kennt honum hvernig best
sé að bera sig að til að kökurnar
verði sem ljúffengastar. „Það er
mjög mikilvægt að mylja möndl-
urnar ekki í matvinnsluvél því
þær hakka svo hratt að allur vök-
vinn fer úr þeim.“ Þess vegna
notar Theodór nú orðið „töfra-
sprota“ (handmyljara). „Ég hef
líka uppgötvað að það er mun
fljótlegra að setja deigið á plöt-
urnar með rjómasprautu og það
sama má gera þegar kremið er
látið á.“
Theodór bendir þó á að hafa
beri í huga að hráefnið í Sörur er
viðkvæmt og því þarf að gera
allt mjög varlega, sérstaklega
þegar verið er að blanda möndl-
unum og flórsykrinum út í eggja-
hvíturnar. „Það mikilvægasta er
að gera þetta allt af ást og um-
hyggju,“ segir Theodór, sem er
um þessar mundir að leika í
verkinu „Kryddlegin hjörtu“ í
Borgarleikhúsinu og hefur
greinilega orðið fyrir áhrifum af
þeirri lífsspeki sem þar er í há-
vegum höfð.
Botn:
300 g möndlur, með hýði
250 g flórsykur
5-6 eggjahvítur (fer eftir stærð
eggjanna)
Krem:
150 g sykur
1 1/2 dl vatn
5-6 eggjarauður
1/4 tsk. neskaffi
300 g smjör
1 1/2 msk. kakó
Súkkulaði til að hjúpa
Aðferð:
Hakkið möndlurnar vel niður í
„handhakkara“ (EKKI matvinnslu-
vél). Þeytið eggjahvíturnar þar til
þær eru mjög vel stífar. Blandið
þá saman möndlum og flórsykri og
varist kekki. Hrærið möndlublönd-
unni mjög varlega út í eggjahvít-
urnar með sleif. Sprautið eða setj-
ið með teskeið á plötur með bökun-
arpappír. Bakið við 180˚C í ca 8-9
mín. í blásturs-ofni.
Setjið sykur og vatn í pott, hrærið
vel saman og sjóðið þar til fer að
þykkna. Stífþeytið eggjarauður á
meðan, hellið sykurlegi mjög var-
lega út í og þeytið á vægum hraða
í smástund. Sprautið eða smyrjið
kreminu á kaldar kökurnar og setj-
ið í ísskáp í stutta stund eða þar til
kremið er orðið stíft. Hjúpið að
lokum með súkkulaði. Geymið kök-
urnar á köldum stað.
Sörur
að hætti Theódórs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
THEODÓR JÚLÍUSSON.
Bakar hér Sörur í félagi við Guðrúnu Febeu dótturdóttur sína. Hún er yngsta barnabarnið,
tæplega eins árs. Theodór Júlíusson
leikari bakar Sörur
af ást og umhyggju
og leyfir vinum og
ættingjum um land
allt að njóta með sér
afrakstursins.