Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.01.2003, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 10.01.2003, Qupperneq 6
6 10. janúar 2003 FÖSTUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Breskur almenningur er sleginn óhug í kjölfar fregnar af því að lögregla lagði hald á leifar af banvænu efni. Hvað heitir efnið? Nýtt íslenskt lággjaldaflugfélag hóf göngu sína í gær. Hvað heitir félagið? Hver hefur verið nefndur sem arftaki Höskuldar Ólafssonar í Quarashi? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 80.83 -0.43% Sterlingspund 130.18 0.17% Dönsk króna 11.44 0.59% Evra 84.98 0.60% Gengisvístala krónu 125,14 0,02% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 482 Velta 10.468 m ICEX-15 1.333 0,69% Mestu viðskipti Bakkavör Group hf. 189.742.494 Íslandsbanki hf. 184.273.239 Baugur Group hf. 165.709.850 Mesta hækkun Þormóður rammi-Sæberg hf. 12,50% Olíuverslun Íslands hf. 5,38% Kögun hf. 3,77% Mesta lækkun Íslenskir aðalverktakar hf. -2,86% Síldarvinnslan hf. -2,86% Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. -2,50% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8733,7 1,6% Nasdaq*: 1438,3 2,7% FTSE: 3934,0 0,2% DAX: 3037,7 1,5% Nikkei: 8497,9 -0,2% S&P*: 924,2 1,6% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 SAMGÖNGUR Nýja lágfargjaldaflug- félagið Iceland Express tók til starfa í gærmorgun með því að opna heimasíðu sína á Netinu og skrifstofu við Suðurlandsbraut 24. Að sögn Sigurðar Halldórsson- ar stjórnarformanns var meira en nóg að gera þennan fyrsta dag. „Það hefur verið stöðugur straumur fólks til okkar í dag og áhugi almennings hefur farið fram úr okkar björtustu vonum. Álagið inn á Netið hefur að sama skapi verið meira en við ráðgerð- um og þess vegna hafa verið smá- vægileg vandræði með að komast inn á heimasíðu okkar til að byrja með.“ Sigurður segir afgreiðsluna hafa gengið vel og mikið selt bæði til Kaupmannahafnar og London. „Við fljúgum á Kastrup í Kaup- mannahöfn og Stanstead-flugvöll norður af London til að ná betri tengingu áfram með hinum lág- fargjaldaflugfélögunum.“ Á skrifstofu félagsins starfa um það bil tuttugu manns. Einnig hafa verið ráðin 12-15 flugfreyjur og flugþjónar um borð í vél fé- lagsins, sem tekin er á leigu frá flugrekstarfélagi í Bretlandi. Fyrsta flugið verður morgunflug til Kaupmannahafnar þann 27. febrúar. ■ Iceland Express tekur til starfa: Stöðugur straumur fólks JÁKVÆÐIR STRAUMAR Í GARÐ NÝJA FLUGFÉLAGSINS Margir ætla að notfæra sér að komast úr landi fyrir hagstætt verð og því hefur verið mikið að gera á skrifstofu félagsins. RAUFARHÖFN „Því miður verður ekki hægt að klára haustönn tón- listarskólans að þessu sinni. Tón- listarskólagjald haustannar verð- ur lækkað í réttu hlutfalli við veitta þjónustu og leiðréttingar sendar út fljótlega. Ekki er útséð með það að stundakennari skólans kenni eitthvað áfram en það mun koma í ljós á næstu dögum,“ segir Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitar- stjóri á Raufarhöfn. Nemendum tónlistarskólans hefur fækkað mikið undanfarin ár og varð ekki komist hjá skipulags- breytingum. Sveitarstjórn taldi ekki lengur forsendu fyrir því að vera með skólastjóra í fullu starfi ásamt stundakennara og vildi minnka starfshlutfall skólastjór- ans. Samningar tókust ekki við skólastjórann, sem bauðst fullt starf við tónlistarskóla í öðru bæj- arfélagi. Hreppurinn gat ekki keppt við það og skólastjórinn hætti. „Í framhaldi af því sá stundar- kennarinn sér ekki fært að starfa án skólastjóra. Við leitum logandi ljósi að kennara í fullt starf. Það hefur aldrei staðið til að loka tón- listarskólanum og harmar sveit- arstjórn Raufarhafnarhrepps mjög hvernig málum er nú komið. Gert hefur verið ráð fyrir starf- semi skólans á fjárhagsáætlun og mun tónlistarskólinn taka til starfa um leið og kennari fæst,“ segir sveitarstjórinn. ■ Tónlistarkennsla í uppnámi á Raufarhöfn: Skólastjórinn farinn GYÐNÝ HRUND KARLSDÓTTIR Segir aldrei hafa staðið til að loka tónlist- arskólanum, enda gert ráð fyrir starfsem- inni á fjárhagsáætlun hreppsins. SAMNINGAVIÐRÆÐUR Mikið bar á milli í kröfum samningsaðila á fundi Evrópusamandsins og Frí- verslunarsamtaka Evrópu í Brussel í gær. Fundurinn er sá fyrsti í röð samningaviðræðna í tengslum við stækkun Evrópusambandsins árið 2004. Framkvæmdastjórn ESB lagði þar fram kröfur sínar um aukin framlög í sjóði sambandsins af hálfu EFTA-ríkjanna þriggja, Íslands, Noregs og Liechtenstein, og samninganefndir landanna kynntu sín sjónarmið. Framlög Ís- lendinga nema nú um 100 milljón- um á ári en sambandið gerir kröf- ur um margfalda þá upphæð. Að sögn Gunnars Snorra Gunn- arssonar, ráðuneytisstjóra í utan- ríkisráðuneytinu, er það mark- verðasta sem fram kom á fundin- um það að viðmiðanir Evrópusam- bandsins um auknar greiðslur Ís- lendinga eru ívið hærri en gert hafði verið ráð fyrir, eða allt að því 38-föld núverandi framlög. „Afstaða hvers aðila var út af fyr- ir sig þegar kunn,“ segir Gunnar Snorri. „Þetta verða erfiðar við- ræður eins og við höfum alltaf vit- að, enda ber mikið á milli. Íslend- ingar og Norðmenn eru harðir á því að þessar kröfur sambandsins eigi ekki rétt á sér og fram- kvæmdastjórnin veit mæta vel að þetta verður ekki lendingin.“ Í norska blaðinu Aftenposten er haft eftir Kjartani Jóhanns- syni, sem leiðir viðræðurnar fyrir Íslands hönd, að greiðslukröfur sambandsins séu himinháar auk þess sem óréttmætt sé að fara fram á að erlendir aðilar fái að fjárfesta í íslenskum sjávarút- vegi. Skiptar skoðanir eru um það hvernig hagsmunum Íslendinga sé best borgið í samskiptum við Evrópusambandið og hafa því ýmsir lagt orð í belg í tengslum við samningaviðræðurnar. Eirík- ur Bergmann Einarsson stjórn- málafræðingur bendir á að sam- kvæmt reglum sambandsins eigi Íslendingar góða möguleika á að fá stóran hlut af því sem þeir greiða í sjóði þess endurgreiddan með beinum eða óbeinum hætti. „Ég lít á þessa 27-földun sem fram kemur í samningsumboði ESB sem brúttótölu.“ Samkvæmt útreikningum Ei- ríks ætti endanleg tala að vera um fimm- til tíföld sú upphæð sem við nú greiðum. Þarna er tekið tillit til þeirra niðurfellinga sem Ísland fær vegna landfræðilegra að- stæðna, sem og ávinnings af nið- urfellingu tolla af sjávarafurðum. Að mati Eiríks eiga Íslendingar að stefna að því að ná brúttóupphæð- inni svo langt niður að reiknings- dæmið endi á núlli. Næsti fundur aðila verður í lok mánaðarins. brynhildur@frettabladid.is Alþjóðamatvæla- stofnunin: Of mikil áhrif fram- leiðenda MATVÆLAEFTIRLIT Matvælaframleið- endum hefur tekist að hafa meiri áhrif á störf Alþjóðamatvæla- stofnunarinnar en æskilegt er. Þetta kemur fram í leynilegri skýrslu sem óháður sérfræðingur vann fyrir stofnunina og breska blaðið Guardian hefur komist yfir. Í skýrslunni segir að sterkur grunur sé um að matvælafram- leiðendur hafi haft óeðlileg áhrif á stefnumótun Alþjóðamatvæla- stofnunarinnar og Matvæla- og landbúnaðarstofnunarinnar í ýmsum málaflokkum. Þá hafi þeir styrkt samtök sem veita stofnuninni ráðgjöf og reynt að koma heppilegum vísindamönn- um í störf hjá stofnuninni. ■ AÐALSTÖÐVAR EVRÓPUSAMBANDSINS Í BRUSSEL Fyrsta fundi samninganefnda ESB og EFTA er lokið en formlegum viðræðum verður haldið áfram í byrjun febrúar. Ekkert gefið eftir í samningaviðræðum Kröfur Evrópusambandsins eru fullkomnlega óraunhæfar, að sögn Kjartans Jóhannssonar, sem leiðir samninganefnd Íslendinga. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur telur Íslendinga eiga góða möguleika á að ná hagstæðum samningum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.