Fréttablaðið - 10.01.2003, Side 7

Fréttablaðið - 10.01.2003, Side 7
FÖSTUDAGUR 10. janúar 2003 ALCOA Stjórn bandaríska álfyrir- tækisins Alcoa tekur í dag afstöðu til framkvæmda við álver Fjarða- áls ehf. í Reyðarfirði. Stjórnin kom saman í Pittsburgh í gær og verður fundum fram haldið í dag. Endan- leg ákvörðun liggur fyrir í kvöld. Stjórn Alcoa ræðir einnig um- fangsmiklar aðhaldsaðgerðir í rekstri fyrirtækisins en gríðarlegt tap varð af rekstri fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Tapið nam 223 milljónum Banda- ríkjadala eða nálægt 18 milljörð- um íslenskra króna. Það mun þó að sögn Jakes Siewerts, upplýsinga- fulltrúa Alcoa, ekki hafa nein áhrif á áform fyrirtækisins á Íslandi. Vegna taprekstrar hyggjast stjórnendur grípa til fjöldaupp- sagna, aðallega í bandarískum ál- verum Alcoa. Talað er um upp- sagnir allt að 8 þúsund starfs- manna en það er um 6% af starfs- liði Alcoa. Fækkað var um 10 þús- und störf á síðasta ári hjá Alcoa en tæplega 130 þúsund manns vinna hjá fyrirtækinu víða um heim. Álver Alcoa á Reyðarfirði: Lokaákvörðun stjórnar í dag Lækjartorg: Rændur við hrað- banka RÁN Maður var rændur við hrað- banka á Lækjartorgi um klukkan sex síðdegis í fyrradag. Var hann nýbúinn að taka út 10.000 krónur þegar maður kom aðvífandi og ógnaði honum með hnífi. Hafði hann af honum 10.000 krónurnar og lét sig síðan hverfa. Ekki hefur tekist að hafa uppi á ræningjanum og er málið í rann- sókn. Að sögn lögreglu verða myndskeið skoðuð sem tekin voru af eftirlitsvél lögreglunnar á Lækjartorgi sem og eftirlitsvél bankans. ■ SADDAM HUSSEIN Leiðtogar nokkurra arabaríkja vilja að hann fari í útlegð þannig að tryggja megi frið við Persaflóa. Arabaríki reyna að koma í veg fyrir stríð: Vilja Saddam í útlegð NOUAKCHOTT, MÁRITANÍU, AP Forystu- menn í nokkrum arabaríkjum eru farnir að tala fyrir hugmyndinni um að reyna að sannfæra Saddam Hussein um að fara frá völdum í Írak og fara í útlegð. Með þessu vilja þeir reyna að koma í veg fyr- ir að stríð brjótist út við Persaflóa með árás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra á Írak. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hugmyndir heyrast um að Saddam Hussein haldi í útlegð. Þær voru einnig bornar fram í að- draganda Persaflóastríðsins 1991- 1992. Stjórnvöld í Máritaníu sáu í gær ástæðu til að lýsa því yfir að þau hefðu ekki boðið íraska for- setanum hæli ef hann héldi í út- legð. Landið hefur verið nefnt sem eitt mögulegra landa þar sem hann kynni að fá hæli. Meðal ann- arra landa sem hafa verið nefnd eru Líbýa og Rússland. Máritanar studdu Íraka í Persaflóastríðinu en hafa síðan hallað sér meira upp að Vestur- löndum og eru eitt af þremur arabaríkjum sem hafa stjórn- málatengsl við Ísrael. ■ HAMRABORG 1, 200 KÓPAVOGI SÍMI 554 4011, NETFANG: www.innval.is hugmyndir innblástur hönnun Fjölbreytt úrval í boði fyrir þá, sem gera kröfur. Profil eldhús er valkostur sem vert er að skoða. Profil eldhús, vandað og vel skipulagt valkostur vandlátra og uppáhalds sam- verustaður fjölskyldunnar. Profil eldhús eru búin vönduðum fylgihlutum sem veita fjölskyldunni ánægju í daglegri umgengni. Profil eldhús fyrir fagurkera

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.