Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.01.2003, Blaðsíða 8
8 10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Húsavík fékk tilkynningu að dráttarvél hefði verið ekið yfir mjöðm á tæp- lega tveggja ára gömlu barni í Kelduhverfi skammt frá bænum Meiðavöllum á sunnudag. Hafði ökumaður dráttarvélarinnar verið að aka efni í þrettándabrennu þegar barnið varð fyrir dráttar- vélinni. Fór annað framdekk dráttarvélarinnar yfir mjöðm barnsins sem var íklætt snjógalla og bleyju þar undir. Var barnið flutt með sjúkrabifreið á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri og við læknisskoðun reyndist það lít- ið slasað, hafði sloppið með mar og skrámur. ■ Húsavík: Ekið yfir tveggja ára barn AUGLÝSINGAR Mikill vöxtur virðist hafa færst í auglýsingar á áfengi að undanförnu. Slíkar auglýsingar eru bannaðar. „Fyrirtækin virða auglýsinga- bannið gjörsamlega að vettugi með skollaleik sem felst í að aug- lýsa bjór sem er með 0,0 prósent áfengisinnihaldi,“ segir Þorgerð- ur Ragnarsdóttir, framkvæmda- stjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs: „Síðan eiga þeir aðeins nokkra kassa af þessum áfengislausa bjór á lager.“ Þorgerður segir að núorðið sé jafnvel ekki haft fyrir því að taka fram að um áfengislausa tegund sé að ræða. „Ég er til dæmis með bækling frá Ungmennafélaginu Fjölni. Í honum eru bjórauglýs- ingar úti um allt. Sonur minn sem er sex ára er í þessu íþróttafélagi og mér finnst þetta ekki eiga við,“ segir hún. Tilkynnt hefur verið um bæk- ling Fjölnis til lögreglu eins og önnur mál sem Áfengis- og vímu- varnaráð verður áskynja. „Oftast finna þeir ekki flöt á að sækja málið,“ segir Þorgerður. Þorgerður átti sæti í hópi sem stofnað var til hjá ríkislögreglu- stjóra og skilaði skýrslu fyrir um ári. Hún segir ekkert hafa heyrst af því máli síðan: „Lögin eru ekki að virka og ein niðurstaðan var sú að breyta þyrfti lögunum og við- urlögunum eða einfaldlega leyfa þetta. Það held ég þó að hafi ekki hljómgrunn.“ Ólafur Ingi Ólafsson, formaður Sambands íslenskra auglýsinga- stofa (SÍA), segir að minna virðist fylgst með áfengisauglýsingum en áður. Fjölmiðlarnir séu fleiri og virðist hafa slakað á kröfum sínum. „Þeir sem auglýsa áfengi kæra ekki keppinautana eins og gerist á markaði fyrir aðra vöru. Allir eru sammála um að ganga eins langt og hægt er og eru ekki að vekja athygli á því,“ segir Ólafur Ingi. Ólafur Ingi segir það vera grundvallarviðhorf auglýsinga- stofa að löglegt eigi að vera að auglýsa það sem löglegt sé að selja. „Það er óttaleg þversögn að leyfa sölu á einhverju sem má ekki auglýsa. Til dæmis væri nán- ast vonlaust að koma nýjum ís- lenskum bjór á markað ef hvergi mætti segja frá honum. Það er nánast eins og bjórtegundunum sem fyrir eru og fólk þekkir hafi verið úthlutuð sérstök markaðs- hlutdeild,“ segir hann. gar@frettabladid.is Fjölnir kært fyrir bjórauglýsingar Framkvæmdastjóri Áfengisvarnaráðs segir áfengissala gjörsamlega virða auglýsingabann að vettugi. Íþróttafélagið Fjölnir hefur verið kært til lögreglu. Formaður sambands auglýsingastofa segir menn samtaka í að ganga eins langt og hægt er. ÞORGERÐUR RAGNARSDÓTTIR „Ég er með bækling frá Ungmennafélaginu Fjölni. Í honum eru bjórauglýsingar úti um allt,“ segir framkvæmdastjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs. Lögreglu hefur verið tilkynnt um meint lögbrot í bæklingnum, sem fjallar um tippkeppni í nafni Fjölnis og tiltekinnar bjórtegundar. AUGLÝSINGAR Snorri Hjaltason, formaður Fjölnis, hafði ekki heyrt um fyrirhugaða kæru Áfengis- og vímuvarnaráðs á hendur Fjölni. Vildi hann ekki tjá sig um þetta mál. Um mistök væri að ræða sem lægju alfarið hjá Vífilfelli, umboðsaðila Carlsberg. „Auglýsingar af þessu tagi eru eins langt frá hugsjón félagsins og getur verið. Við gefum okkur út fyrir að vera í forvarnar- starfi og svo verður áfram.“ Snorri sagðist búast við að gefin yrði út sameiginleg yfirlýsing með Vífilfelli. Að auki yrði prentaður nýr bæklingur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins setti Snorri Hjaltason aðalstjórn Fjölnis af- arkosti fyrir þremur dögum þess efnis að hér eftir sem áður yrðu bjórauglýsingar ekki not- aðar í tengslum við starfsemi Fjölnis. Að öðrum kosti myndi hann segja af sér formennsku. Var einróma samþykkt að banna bjórauglýsingar. ■ Bjórbæklingur Fjölnis: Formaður hótar afsögn BJÓRBÆKLINGUR FJÖLNIS Bjórauglýsingar Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafavogi eru skrifaðar á Vifilfell. Bót og betrun er lofað eftir að formaðurinn hótaði afsögn. Nýr bæklingur verður prentaður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ISLAMABAD, AP Það varð ekki til að draga úr tilraunum Indverja með kjarnorkuvopn að ráðherrar í rík- isstjórnunum þeirra og Pakistana keppast nú við að hafa í hótunum hverjir við aðra um afleiðingar kjarnorkustríðs. Indverjar héldu í gær áfram tilraunum með eld- flaugar sem geta borið kjarnorku- vopn, skömmu eftir harðorðar skeytasendingar ráðamanna í löndunum tveimur. „Við þolum sprengju eða tvær, jafnvel fleiri. En þegar við svör- um verður Pakistan ekki lengur til,“ sagði George Fernandes, varnarmálaráðherra Indlands á dögunum, reyndar í viðtali þar sem hann gagnrýndi pakistanska stjórnmálamenn harkalega fyrir harðorðar yfirlýsingar meðan ótt- ast var að stríð kynni að brjótast út milli ríkjanna tveggja. Pakistanar tóku orðum varnar- málaráðherrans ekki þegjandi. Rashid Ahmed, upplýsingamála- ráðherra Pakistans, sagði að ef Indverjar hæfu kjarnorkustríð væri ljóst að Pakistan myndi kenna þeim lexíu sem Indverjar myndu aldrei gleyma. ■ Indverjar og Pakistanar rífast: Gortað af kjarn- orkuvopnum JARÐSPRENGJUR FJARLÆGÐAR Unnið er að því að grafa upp jarðsprengjur sem komið var fyrir þegar óttast var að stríð brytist út. Mengun í Osló: Líkt við Mexíkóborg OSLÓ Mælingar á andrúmsloftinu í Osló undanfarna daga hafa sýnt að það er álíka mengað og loftið í Mexíkóborg. Sérfræðingar hafa ráðlagt astmasjúklingum að halda sig innandyra þar til ástandið batn- ar. Mengunin stafar aðallega af bílaumferð en þar sem íbúatala Osló eru aðeins brot af íbúatölu of- antalinna stórborga hafa sérfræð- ingar leitað skýringa í veðurfari. Miklir kuldar hafa verið í borginni að undanförnu og liggur þunga, kalda loftið í botni Oslófjarðar. Heitara loft liggur ofan á eins og hjálmur yfir borginni og mengaða loftið kemst því ekki út. ■ ORÐRÉTT FINGRAFÖR BLÁU HANDARINNAR Jæja. Þá er víst bara eitt eftir. Ónefndur fundarmaður þurrkaði fingraför sín af glasi eftir að Landsbankinn hafði tryggt að Jón Ásgeir Jóhannesson næði ekki meirihluta í Tryggingamiðstöðinni. Morgunblaðið, 8. janúar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.