Fréttablaðið - 10.01.2003, Síða 18
18 10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
mezzosópran og Eyjólfur Eyjólfs-
son tenór syngja. Jónas Ingi-
mundarson leikur á píanóið. Tón-
leikarnir eru aðeins ætlaðir félög-
um í Rótarýhreyfingunni og gest-
um þeirra.
LEIKHÚS
20.00 Halti Billi eftir Martin McDonagh
verður sýndur á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinterberg
og Mogens Rukov verður sýnt á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss-
ins.
20.00 Herpingur eftir Auði Haralds og
Hinn fullkomni maður eftir Mik-
ael Torfason verða sýnd á Þriðju
hæðinni í Borgarleikhúsinu í
samstarfi við Draumasmiðjuna.
Þetta er síðasta sýning.
20.00 Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare verður sýnt á Litla
sviði Borgarleikhússins í sam-
vinnu við Vesturport.
20.00 Grettissaga, saga Grettis, leikrit
eftir Hilmar Jónsson byggt á
Grettis sögu, verður sýnt í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
KVIKMYNDIR
22.00 Annað kvikmyndamaraþon Ís-
lands hefst í kvöld í Loftkast-
alanum. Allar sextán myndir eftir
Stanley Kubrick verða sýndar, þar
af fjórar myndir sem aldrei hafa
verð sýndar hérlendis. Ekkert þátt-
tökugjald. Viðurkenningar eru
veittar fyrir áhorfsseiglu. Popp og
aðrar veitingar verða í boði.
OPNANIR
20.00 Óboðnir gestir er heiti sýningar
Þuríðar Sigurðardóttur á Galleríi
Hlemmi, sem opnuð verður í
kvöld.
SKEMMTANIR
Unglingahljómsveitin POPS leikur á
Players. Allir Bítla- og Stonesaðdáendur
ættu að nota tækifærið núna og draga
fram dansskóna, því fáir ná að fanga
stemningu sjöunda áratugarins með við-
líka hætti og drengirnir í POPS.
D’Syncro verður á neðri hæðinni og
Benni á efri hæðinni á 22 í kvöld. Mun-
ið stúdentaskírteinin.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir á
Ara í Ögri.
Sælusveitin leikur fyrir dansi á Café
Catalina, Hamraborg 11 í Kópavogi.
FÖSTUDAGUR
10. JANÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
TÓNLEIKAR
19.30 Hinir árlegu Vínartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands verða
í Háskólabíói í kvöld. Garðar Thór
Cortes syngur einsöng og Lucera
Tena leikur einleik á kastanettur
með hljómsveitinni. Peter Guth
stjórnar.
20.00 Árlegir stórtónleikar Rótarýhreyf-
ingarinnar á Íslandi verða haldnir
í Salnum í Kópavogi. Þau Jó-
hanna Guðrún Ólafsdóttir
KVIKMYNDIR Næstkomandi helgi
verður í Loftkastalanum svokall-
að Kubrick bíóþon en það felst í
því að sýnd verða samfellt í 33
klukkustundir öll verk sem hinn
mikli meistari kvikmyndagerð-
arinnar, Stanley Kubrick, sendi
frá sér. Bíóþon er sem sagt ný-
yrði sem stendur fyrir maraþon-
kvikmyndasýningar. Aðstand-
endur bíóþonsins er Bíó Reykja-
vík, hópur kvikmyndagerða-
manna sem vill byggja upp nýtt
samfélag kvikmyndagerðafólks
á Íslandi. Sá sem fer fyrir
Kubrick-bíóþoninu er Gio
Shanger.
„Af hverju Kubrick? Þetta er
annað bíóþon sem við höldum.
Við hið fyrsta tókum við eftir því
að Kubrick er eftirlæti hinna
mýmörgu kvikmyndaáhuga-
manna sem þá komu.“
Allar 16 myndir Kubricks
verða sýndar í tímaröð, þar af
fjórar myndir sem aldrei hafa
verið sýndar á Íslandi, þeirra á
meðal fyrsta mynd Kubricks í
fullri lengd. Hún heitir Fear and
Desire, mynd sem Kubrick vildi
ekki sýna og gerði allt sem í hans
valdi stóð til að hún kæmi aldrei
fyrir almenningssjónir, brenndi
öll eintök sem hann komst yfir,
en einhver sluppu sem þó liggja
ekki á lausu. Það tók þá Bíó
Reykjavíkurmenn fjóra mánuði
að ná í eintak af myndinni.
Af hverju að sýna kvikmynd
sem meistaranum var svona illa
við? „Bíóþonið er sannarlega til
heiðurs Kubrick, enginn skal ef-
ast um það. En þetta er rétt.
Kubrick fannst þessi mynd vond.
Mér finnst hún góð. Við hefðum
ekki vogað okkur að sýna mynd-
ina nema að honum gengnum.
Fear and Desire er mikilvægt
skref í þróun Kubricks og varpar
ljósi á ýmis stef sem finna má í
meistaraverkum hans. Þegar
horft er yfir ferillinn í samfellu
öðlast maður miklu betri skiln-
ing á höfundarverkinu en ann-
ars,“ segir Gio og á honum að
heyra að þetta hafi verið erfið
ákvörðun. Engar kvikmyndahá-
tíðir erlendis myndu leyfa sér að
sýna myndina. ■
Kubrick-bíóþon í Loftkastalanum
Bíóbrjálæðingar vaka í
yfir 33 klukkutíma
SIR STANLEY KUBRICK (1928-1999)
Aðdáendur þessa mikla meistara kvikmyndagerðarlistarinnar eiga von á glaðningi um
helgina.
KUBRICK-BÍÓÞON Í
LOFTKASTALANUM
22.00 Day Of The Fight (1951) Walter
Cartier, Vincent Cartier.
Flying Padre (1951) m/ Father Fred
Stadtmueller & his Piper Cub.
The Seafarers (1952) m/ The Seafar-
ers International Union.
23.30 Fear and Desire (1953) Kenneth
Harp, Paul Mazursky, Steve Coit, Frank
Silvera, Virginia Leith.
01.00 Killer´s Kiss (1955) Frank Silvera,
Jamie Smith, Irene Kane, Jerry Jarret,
Ruth Sobotka, Mike Dana.
02.30 The Killing (1956) Sterling
Hayden, Jay C. Flippen, Marie Windsor,
Elisha Cook Jr, Vince Edwards.
04.15 Paths of Glory (1957) Kirk
Douglas, Ralph Meeker, Adolphe
Menjou, Suzanne Christian-Kubrick.
06.00 Spartacus (1960 - útgáfa leik-
stjóra) Kirk Douglas, Laurence Olivier,
Jean Simmons, Charles Laughton,
Peter Ustinov, John Gavin, Tony Curtis,
Nina Foch, Herbert Lom, John Ireland,
John Dall, Charles McGraw, Woody
Strode.
10.00 Lolita (1962) Sue Lyon, James
Mason, Peter Sellers, Shelly Winters, Di-
ane Decker, Jerry Stovin.
12.45 Dr. Strangelove or How I Learn-
ed to Stop Worrying and Love the
Bomb (1964) Peter Sellers, George C.
Scott, Sterling Hayden, Keenan Wynn,
Slim Pickens, Peter Bull, Tracy Reed,
James Earl Jones.
14.30 2001: A Space Odyssey (1968)
Keir Dullea, Gary Lockwood, HAL 9000.
17.10 A Clockwork Orange (1971)
Malcolm McDowell, Patrick Magee,
Michael Bates.
19.45 Barry Lyndon (1975) Ryan
O´Neal, Marissa Berenson, Patrick
Magee, Harry Kruger.
23.20 The Shining (1980) Jack Nichol-
son, Shelly Duvall, Danny Lloyd, Scat-
man Crothers, Anne Jackson.
02.20 Full Metal Jacket (1987) Matt-
hew Modine, Adam Baldwin, R. Lee
Ermey, Vincent D´Onofrio.
04.15 Eyes Wide Shut (1999) Tom
Cruise, Nicole Kidman, Sydney Pollack,
Ed Norton, Leone Vitali.
MYNDLIST Í gallerí i8 við Klappar-
stíg eru nú sýnd nokkur verk
eftir ýmsa listamenn sem áður
hafa sýnt verk sín í galleríinu.
„Þetta er eins konar sýning á
milli sýninga,“ segir Dorothée
Kirch. „Við völdum verk sem
passa vel saman og gefa yfirlit
yfir þá listamenn sem við höfum
verið að starfa með.“
Hún segir að fólk hafi sýnt
þessum verkum mikinn áhuga.
Ekki síst hafi súkkulaðimolarnir
hans Sigurðar Guðmundssonar
vakið athygli.
„Þetta er síðasta tækifærið til
að sjá þá hér á landi,“ segir hún.
„Þeir fara frá landinu eftir þessa
sýningu.“ Sýningunni lýkur eftir
rúma viku.
Á sýningunni eru tvær nýjar
myndir frá Gjörningaklúbbnum,
sem ekki hafa sést áður hér á
landi. Flest önnur verk hafa ver-
ið á öðrum sýningum í gallerí-
inu.
Listamennirnir sem eiga verk
á sýningunni eru þau Birgir
Andrésson, Hreinn Friðfinns-
son, Kristján Guðmundsson, Sig-
urður Guðmundsson, Georg
Guðni Hauksson, Roni Horn,
Eggert Pétursson, Finnbogi Pét-
ursson, Ragna Róbertsdóttir,
Karin Sander, Hrafnkell Sig-
urðsson og Þór Vigfússon. ■
FRÁ GALLERÍ I8 VIÐ KLAPPARSTÍG.
Molar eftir Sigurð Guðmundsson eru á gólfinu í forgrunni myndarinnar. Í bakgrunni
má sjá myndir eftir Eggert Pétursson, Rögnu Róbertsdóttur og Roni Horn.
Gallerí i8:
Sýnt milli sýninga
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
SKRIFSTOFUVÖRUR
Vandaður 80 gr fjölnotapappír
500 blöð í búnti
298.-
Geisladiskar CD-R 25 stk
720Mb / 80 mín / 1x - 32x
1.458.-
Bréfabindi A4 7 cm kjölur
Ýmsir litir
138.- stk
Á tilboði núna
KYNNING
á stefnu og starfi
Guðspekifélagsins
laugardaginn
11. janúar kl. 15
í húsi félagsins að
Ingólfsstræti 22.
Guðspekifélagið er 122 ára
félagsskapur, sem helgar sig
andlegri iðkun og fræðslu.
Félagið byggir á skoðana- og
trúfrelsi ásamt hugsjóninni
um bræðralag alls mannkyns.
Starfsemi félagsins fer fram
yfir vetrartímann og felst
m.a. í opinberum erindum,
opnu húsi, námskeiðahaldi,
námi og iðkun. Einnig býður
bókaþjónusta þess mikið
úrval sölubóka og bókasafnið
bækur til útláns fyrir félaga.
Íslandsdeild félagsins býður
áhugafólki um andleg mál
að kynnast starfi félagsins.
Einkunnarorð félagsins eru:
“Engin trúarbrögð eru
sannleikanum æðri.“
www.gudspekifelagid.is
–––––––––––––––––––––
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins hefst fimmtudaginn
16. janúar kl. 20.30.
ER TRIPPIÐ ÓÞÆGT?
Af frjálsum vilja með
Ingimari Sveinssyni
um helgina 10. til 12.
janúar.
2 pláss laus vegna forfalla
Upplýsingar og skráning
í síma 899 4600 (Bjarni) og 575 1566
Reiðskólinn Þyrill – Reiðhöllinni Víðidal.