Fréttablaðið - 10.01.2003, Síða 20
20 10. janúar 2003 FÖSTUDAGUR
JAMES BOND kl. 5, 8 og 10.50Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12
Kl. 4, 6, 8, 10, 11.45 - Powersýning
Sýnd í lúxus kl. 7 og 11kl. 5.45, 8 og 10.15GRILL POINT
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 3.45 VIT498 SANTA CLAUS kl. 3.45 og 5.45
VIT
485
HARRY POTTER m/ísl.tali kl. 5 VIT493
HARRY POTTER kl. 6 og 9.15 VIT468
GHOSTSHIP kl. 8 og 10.15 VIT487
kl. 6GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 8 og 10.05 HAFIÐ
kl. 10.10HLEMMUR
Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15
Sýnd í lúxus kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 VIT 468
Leikarinn Harrison Ford slappmeð skrekkinn er áhættuat-
riði er hann lék í mislukkaðist. Þó
að Ford sé að nálgast sjötugsald-
urinn vill hann helst framkvæma
eins mikið af áhættuatriðum sín-
um eins og mögulegt er. Hann og
leikarinn Josh Harnett voru að
kvikmynda bílaeltingarleik og
var Harnett undir stýri. Í einni
beygjunni misreiknaði ungi leik-
arinn sig og bifreið þeirra skall á
vegg á miklum hraða. Báðir
sluppu við teljandi meiðsli. Ford
hélt ró sinni og kom sér út úr bif-
reiðinni af eigin rammleik.
Harnett varð víst ögn skelkaðri,
enda ekki jafn mikið hörkutól og
Indiana Jones.
FRÉTTIR AF FÓLKI
TÓNLIST Rafkvintettinn Worm Is
Green á sér lengri sögu en marga
grunar. Liðsmenn hafa þekkst
lengi, fjórir liðsmannanna eru frá
Akranesi en söngkonan Guðríður
Ringsted frá Borgarnesi. Þau hafa
mallað saman tónlist í nokkur ár,
með mismunandi áherslum og
nöfnum. Eins og flestir íslenskir
tónlistarmenn tóku þau eitt sinn
þátt í Músíktilraunum Tónabæjar.
Það var árið 1998 þegar sveitin lék
rokk undir nafninu Fuse.
„Við vorum alveg hökkuð nið-
ur,“ segir Árni Teitur Ásgeirsson,
höfuðpaur sveitarinnar. Málróm-
ur hans er hljóðlátur og feimnis-
legur, það á vel við í ljósi þess að
hægt væri að lýsa tónum sveitar-
innar á svipaðan hátt. „Það var
meira að segja talað um að loka
Hvalfjarðargöngunum. Það var
svolítið „wake up call“. Það var
sami hópurinn en við tókum al-
gjöra stefnubreytingu eftir það.“
Mótlætið blés í þau nýjan
metnað og tilraunamennska færð-
ist í aukana. Ráðist var í að kaupa
nýstárlegi tæki sem skiluðu
fyrstu tilraunum liðsmanna í raf-
tónlistarsmíðum.
„Við tókum svo þátt í tónlistar-
keppni á Akranesi sem Fjöl-
brautaskóli Vesturlands hélt. Þar
lentum við í öðru sæti. Ég gerði
svo sólóplötu í 100 eintökum hjá
útgáfunni okkar, Worm Is Green
Recordings. Þá kallaði ég mig
John Mug. Eitt lag af þeirri plötu
rataði á safnplötu Thule sem heit-
ir „42 more Things to Do in Zero
Gravity“. Árni segist hafa sent
Þórhalli Skúlasyni, eiganda Thule,
plötuna meira í gamni en alvöru
þar sem hann hafði setið á upptök-
unum lengi án þess að hafa trú á
því að nokkur myndi vilja gefa
tónlistina út. Eftir að lagið var
gefið út á safnplötunni bauð Þór-
hallur sveitinni að hljóðrita heila
plötu. Það hefur líklegast kitlað
sjálfstraust liðsmanna örlítið.
Frumraun þeirra kom í búðir
hér á landi nokkrum dögum fyrir
jól og er formlegur útgáfudagur í
Bretlandi 4. mars næstkomandi.
Frekari dreifing í Evrópu og
Bandaríkjunum fylgir svo í kjöl-
farið.
Worm Is Green og Ampop
stefna á samstarf hvað tónleika-
hald varðar á næstum vikum.
biggi@frettabladid.is
Grænir og glaðir
Skagamenn
Það kom mörgum á óvart þegar nær óþekkt sveit, Worm Is Green, var meðal til-
nefndra í flokknum „Nýliði ársins“ til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2003.
Sveitin gaf út frumraun sína, „Automagic“, þremur dögum fyrir jól.
WORM IS GREEN
Worm Is Green er skipuð æskuvinum frá Skaganum. Það eru þau Árni Teitur Ásgeirsson, forritari og höfuðpaur,
Bjarni Þór Hannesson, forritari og hljómborðsleikari, Þorsteinn Hannesson trommuleikari, Viðberg Hafsteinn Jónsson
bassaleikari og Guðríður Ringsted söngkona.
TÓNLIST Upptökumaðurinn Steinar
„Husky“ Höskuldsson er tilnefnd-
ur til Grammy-verðlauna fyrir
vinnu sína á plötu Noruh Jones. Þar
er hann titlaður upptökumaður.
Höskuldur fluttist til Los Angeles
árið 1991 til þess að læra hljóðupp-
töku við UCLA. Fljótlega að loknu
námi fékk hann vinnu sem aðstoð-
armaður hjá One on One Studios.
Frá því vann hann sig áfram og
hefur meðal annars unnið með
ýmsum þekktum tónlistarmönnum.
Auk þess að vinna með Noruh
Jones hljóðblandaði hann til dæmis
síðustu skífu Tom Waits, „Blood
Money“, og hljóðritaði plötu Aimee
Mann „Bachelor no.2“. Hann hljóð-
ritaði og hljóðblandaði svo frábæra
plötu rokksveitarinnar Fantomas,
„Director’s Cut“, sem er hljómsveit
Mike Patton, fyrrum söngvara
Faith No More.
Steinar hefur einnig unnið með
Michael Penn (bróður Sean Penn),
Vanessu Paradis, The Wallflowers
(hljómsveit sonar Bob Dylan),
Sheryl Crow og Meredith Brooks.
Plata Noruh Jones er tilnefnd til
8 Grammy-verðlauna, þar á meðal
fyrir bestu plötu. Hátíðin fer fram
þann 23. febrúar í New York. ■
Hljóðupptökumaðurinn Steinar Höskuldsson:
Tilnefndur til
Grammy-verðlauna
STEINAR „HUSKY“ HÖSKULDSSON
Á heimasíðu sinni segist Steinar alltaf
hljóðrita á segulband og aðeins styðjast
við stafræna tækni sem aukahjálpartæki.