Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 4
4 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
ÍRAKSDEILAN
ERLENT
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Eiga bankarnir að lækka
vexti á útlánum?
Spurning dagsins í dag:
Ætlar þú til útlanda í sumarfríinu?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
11,7%Nei
88,3%
VEXTIR LÆKKI
Langflestir vilja lægri vexti útlána.
Já
HEILBRIGÐISMÁL Þjónusta við sjúk-
linga á Vogi hefur verið stórbætt
og aðeins karlar sem hafa áður
verið í meðferð og eru 20 ára eða
eldri þurfa hugsanlega að bíða
eftir plássi á Vogi lengur en örfáa
daga, að sögn Þórarins Tyrfings-
sonar yfirlæknis.
„Starfsemin á Vogi hefur auk-
ist um 15-20% undangengin þrjú
ár og tekur nú meira mið af hinni
miklu þörf fyrir skyndiþjónustu.
Þá má nefna að biðlistum hefur
verið eytt þegar í hlut eiga ung-
lingar og konur,“ segir Þórarinn.
Hann segir þjónustu fyrir
áfengis- og vímuefnasjúklinga
bjarga mörgum mannslífum. Með
því að viðkomandi fái aðstoð fyrr
sé komið í veg fyrir slys, sjúkdóma
og sjálfsvíg. Þórarinn upplýsir að
innritunum hafi fjölgað um 300 og
séu nú um 2.350 á ári. „Fleiri og
fleiri eru lagðir í skyndi eða flýti á
Vog, bæði fyrir orð aðstandenda og
sjúklinga sjálfra og frá stofnunum
eins og Landspítala, neyðarvistun
Stuðla og lögreglunni. Í byrjun
þessa árs var ráðinn sérstakur
áfengisráðgjafi á göngudeildina
við Vog sem sér um að samræma
þessa þjónustu. Með þessu fækkar
fólki á biðlistum verulega.“
Þetta er mikil breyting til batn-
aðar því á árunum 1996-1999 voru
stöðugt 300 til 400 manns á biðlista
og ástandið óviðunandi, að mati
Þórarins. „Það hefur breyst á síð-
ustu árum að þeir sem koma inn og
hafa verið án vímuefna eða áfeng-
is í nokkurn tíma þurfa ekki að
dvelja eins lengi og áður. Nú met-
um við það eftir hverju einstöku
tilfelli.“ ■
BÆTT VIÐ MILLILANDAFLUGI
Bromma-flugvöllur, nærri Stokk-
hólmi, verður opnaður fyrir milli-
landaflugi eftir að ESB gagn-
rýndi að reynt var að takmarka
hann við innanlandsflug. Sam-
kvæmt reglum ESB er allt flug
milli ESB-ríkja innanlandsflug.
TEKIN MEÐ TVÖ KÍLÓ KÓKAÍNS
Tollverðir á Kastrup-flugvelli
gerðu tvö kíló af kókaíni upptæk
þegar þeir stöðvuðu konu sem
var að koma frá Brasilíu. Allt síð-
asta ár gerði lögreglan í Kaup-
mannahöfn 5,8 kíló af kókaíni
upptæk en 16 kíló árið áður.
NAUTGRIPUM SLÁTRAÐ Ástralsk-
ir bændur hafa neyðst til að
slátra milljónum nautgripa síð-
asta hálfa árið. Þeir gátu ekki
tryggt nautunum vatn og fæðu í
versta þurrki Ástralíu í öld.
BJÓÐA FRAM AÐSTOÐ Rússar eru
reiðubúnir að leggja til þjálfaða
flugmenn og
eftirlitsflug-
vélar ef til-
laga Frakka
og Þjóðverja
um aukið
eftirlit í Írak
nær fram að
ganga, segir
Sergei
Ivanov, varn-
armálaráð-
herra
Rússlands. Beiðnin þurfi þó að
koma frá Sameinuðu þjóðunum.
ENGIN ÞÖRF Á HERVALDI Vopna-
eftirlitsmenn í Írak eru að ná ár-
angri og
þess vegna
er engin þörf
á því að
beita her-
valdi gegn
Írak að svo
stöddu, sagði
talsmaður
Gerhards
Schröders,
kanslara
Þýskalands, í gær.
GREITT ÚR FLÆKJUNNI George
Papandreou, utanríkisráðherra
Grikklands, sem er í forsæti Evr-
ópusambandsins, hefur kynnt
áætlanir um ráðstefnu ESB-ríkja
í næstu viku til að greiða úr
flækjunni sem ólík afstaða ríkj-
anna til Íraksdeilunnar hefur
leitt af sér.
ÍRAKAR LEYFA EFTIRLITSVÉLAR
Írösk stjórnvöld hafa sent bréf til
vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu
þjóðanna þar sem þeir heimila
þeim notkun U-2 eftirlitsflugvéla,
að sögn írasks sendifulltrúa hjá
SÞ. Í bréfinu er því ennfremur
lofað að sett verði lög um bann
við notkun á gereyðingavopnum
þegar í næstu viku.
HAFNA HERKALLI Fimmti hver
varaliði í breska hernum sem
hefur verið kallaður til herþjón-
ustu vegna fyrirsjáanlegrar inn-
rásar í Írak hefur beðist undan
kallinu eða hunsað það.
FLUGFÉLÖGIN TAPA Talsmaður
Alþjóða flugflutningasambands-
ins segir að stríð í Írak myndi
leiða til þess að flugfarþegum
fækkaði um 15-20 prósent. Það
þoli flugfélögin illa enda séu þau
rétt að jafna sig eftir áfallið þeg-
ar ráðist var á Tvíburaturnana og
Pentagonið.
VEÐUR Vonskuveður var á öllu land-
inu í gærdag. Undir Eyjafjöllum
geisaði mikið óveður og mældist
vindhraðinn þar allt að 48 m/sek.
Björgunarsveit Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar á Flúðum var
kölluð út rétt fyrir klukkan tólf á
hádegi eftir að þak fauk af gisti-
húsi í Smárahlíð. Ekki varð tjón á
nærliggjandi húsum en litlu mun-
aði að þakið fyki á íbúðarhús við
hliðina á gistihúsinu. Fimm björg-
unarsveitarmenn unnu við að færa
þakplötur sem lágu á víð og dreif.
Á Hvolsvelli var einnig aftaka-
veður. Björgunarsveitin Dagrenn-
ing var kölluð út klukkan níu um
morguninn eftir að þakplötur byrj-
uðu að fjúka af fjórum húsum. Þá
lögðust grindverk annað hvort nið-
ur eða tókust á loft í mestu vind-
hviðunum. Tuttugu björgunar-
sveitarmenn voru að störfum og
aðstoðuðu húseigendur að festa
niður þakplötur. Fuku sumar plöt-
urnar á nærliggjandi hús og ollu
skemmdum. Þá barst hjálpar-
beiðni frá þremur sveitabæjum í
hreppnum. Í Vík í Mýrdal barst
björgunarsveitinni beiðni um að-
stoð frá bóndanum á Brekkum.
Járn var farið að losna af útihús-
um og hafði bóndinn áhyggjur af
velferð dýranna. Sex björgunar-
sveitarmenn gátu afstýrt frekara
foki.
Kennsla féll niður í nokkrum
skólum á landinu. Þá frestaði
Herjólfur brottför vegna óveðurs
og allt innanlandsflug lá einnig
niðri. Óveður geisaði á Hellisheiði
og ráðlagði Vegagerðin ökumönn-
um að vera ekki á ferð. Þá varð
rafmagnslaust um tíma á Kjalar-
nesi í gærmorgun. Á höfuðborgar-
svæðinu tilkynntu nokkrir bílaeig-
endur að lauslegir hlutir hefði fok-
ið í bílana og valdið tjóni. Að sögn
lögreglu var um nokkur tilfelli að
ræða og tjónið minniháttar. Í Borg-
arnesi fauk ruslagámur til í einni
hviðunni utan í nærliggjandi bíl og
olli tjóni.
Þrátt fyrir veðurhaminn unnu
menn að löndun á 44 tonnum af
fiski úr Skarfi GK í Grindavíkur-
höfn snemma í gærmorgun. Menn
voru vel gallaðir og létu veðrið
ekki stoppa sig.
kolbrun@frettabladid.is
Kjötsala stóreykst:
Áratugur
kjúklingsins
NEYSLA Kjötsala á Íslandi jókst
um 31,3 prósent á síðasta áratug
og munar þar mest um aukna
sölu á hvítu kjöti; kjúklingum og
svínum. Sala á fuglakjöti var 180
prósent meiri síðasta áratug en
áratuginn þar á undan. Svínakjöt-
ið tók líka kipp í kjötborðunum
en salan á því jókst um 112 pró-
sent á umræddu tímabili. Á móti
kom að sala á kindakjöti dróst
saman um fimmtung.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofunni hefur orðið mark-
tæk breyting á kjötneyslu Íslend-
inga, sem flutt hafa neyslu sína
yfir í kjúklinga og svín, en sam-
kvæmt sömu upplýsingum er
kjötneysla á íbúa í landinu 71 kíló
á ári. Til samanburðar má geta
þess að kjötneysla í Bandaríkjun-
um er 78 kíló á mann á ári. ■
Þak fauk af gistihúsi
Vonskuveður gekk yfir landið í gær. Þakplötur fuku af húsum og ollu
tjóni í einstaka tilfellum. Kennsla féll niður á nokkrum stöðum.
HUGAÐ AÐ BÁTUNUM
Örfá skip voru á miðunum í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Tilkynningaskyldunni lágu minni bátar við bryggju um allt
land nema helst fyrir norðan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Biðlistum hefur verið eytt á Vogi:
Konur og ung-
lingar bíða skemur
KONUR OG UNGLINGAR ÞURFA EKKI AÐ BÍÐA EINS LENGI
Þjónustan hefur verið bætt á Vogi og segir Þórarinn Tyrfingsson að þeir sem komi inn í
góðu ástandi þurfi ekki að dvelja í afvötnun eins lengi og tíðkaðist áður.
STÁLU GREIÐSLUKORTI
Tveir menn voru handteknir á
veitingastað í Tryggvagötu á
sunnudagsmorgun þegar þeir
reyndu að greiða með greiðslu-
korti ungrar stúlku. Voru menn-
irnir færðir á lögreglustöð og síð-
an í fangageymslu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.98 1.12%
Sterlingspund 125.76 1.39%
Dönsk króna 11.2 1.59%
Evra 83.27 1.55%
Gengisvístala krónu 121.15 -0,94
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 273
Velta 4.378 milljónir
ICEX-15 1.353 -0,24%
Mestu viðskipti
Bakkavör Group hf. 68.461
Íslandsbanki hf. 83.925
Eimskipafélag Íslands hf. 33.955
Mesta hækkun
Aco Tæknival hf 8,70%
SR-Mjöl hf. 3,12%
Skeljungur hf. 2,05%
Mesta lækkun
Landssími Íslands -6,19%
Sláturfélag Suðurlands svf. -3,48%
Ker hf -3,36%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7.906,8 0,5%
Nasdaq*: 1.291,0 0,7%
FTSE: 3.579,1 -0,6%
DAX: 2.584,8 0,6%
Nikkei: 8.484,9 0,4%
S&P*: 834,0 0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00