Fréttablaðið - 11.02.2003, Síða 8
8 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Vopnahlé í Sri Lanka:
Ósætti vegna
kvenfatnaðar
SRI LANKA, AP Yfirvöld í Sri Lanka
og uppreisnarmenn úr röðum
Tamíl-tígranna hafa samið um
vopnahlé eftir nítján ára blóðug-
ar erjur. Báðir aðilar hafa lofað
að veita stríðsföngum frelsi en
erfitt ætlar að reynast að ná sam-
komulagi um reglur varðandi
fatnað kvenna. Herinn hefur
bannað kvenkyns skæruliðum að
ganga með belti þar sem það gefi
til kynna að þær séu uppreisnar-
menn. Þetta hefur vakið hörð við-
brögð meðal Tamíl-tígra og hafa
þeir nú lagt fram kvörtun vegna
málsins við evrópska friðar-
gæsluliða. ■
Íslenskir bjórframleiðendur:
Skoða áhrif auglýsingadóms
ÁFENGISAUGLÝSINGAR Sænskur dóm-
ur um áfengisauglýsingar gæti
haft áhrif á túlkun EES-samnings-
ins að mati Sigríðar Andersen, lög-
fræðings Verslunarráðs Íslands.
Niðurstaða dómsins var sú að bann
við áfengisauglýsingum væri
óheimilt. „Dómurinn hefur ekki
bein áhrif hér á sama hátt og í Sví-
þjóð, en það má búast við því að
hann hafi áhrif hér á landi, þó ekki
nema með því að menn láti á þetta
reyna.“
Jón Diðrik Jónsson, forstjóri
Ölgerðarinnar, segir að menn séu
að skoða þessa dómsniðurstöðu, en
engar ákvarðanir hafi verið teknar
um hvort eða hvernig verði látið
reyna á réttmæti banns við áfeng-
isauglýsingum. „Við höfum ekki
farið nákvæmlega ofan í þennan
dóm, en erum að skoða hann.“
Jón Diðrik segir innlenda fram-
leiðendur ekki sitja við sama borð
og erlenda. Erlendir bjórframleið-
endur auglýsi vöru sína í fjölmiðl-
um sem Íslendingar hafi aðgang
að. Þá séu slíkar auglýsingar á
íþrótta-viðburðum sem sýndir séu
hér. „Okkur finnst þetta brot á
jafnræðisreglu.“ ■
Pílagrímar í Mekka:
Hajj nær hámarki
SÁDI-ARABÍA, AP Tæplega tvær
milljónir pílagríma söfnuðust
saman á fjallinu Arafat í Sádi-Ar-
abíu í gær til þess að biðjast fyrir.
Athöfn þessi eru hápunktur hajj,
en það er heitið á aldagamalli píla-
grímsferð múslíma til helgu borg-
arinnar Mekka. Borgin er fæðing-
arstaður Múhameðs spámanns og
því vagga íslamstrúar en á fjall-
inu Arafat mun spámaðurinn hafa
haldið sína hinstu ræðu. Pílagrím-
arnir, sem koma hvaðanæva að úr
heiminum, klæðast allir hvítum
klæðum og hafast við í hvítum
tjöldum í dalverpi skammt frá
borginni.
Ströng öryggisgæsla er í
Mekka vegna þess mikla fjölda
sem sækir borgina heim af þessu
tilefni en óttast er að efnt verði til
mótmæla vegna yfirvofandi árása
Bandaríkjamanna á Írak. Þyrlur
sveima yfir fólkinu en á jörðu
niðri sjá hundruð lögreglumanna
og öryggissveita um að allt fari
friðsamlega fram.
Ætlast er til þess að hver ein-
asti múslími taki þátt í hajj að
minnsta kosti einu sinni á lífsleið-
inni ef fjárhagur hans leyfir en
ekki er óalgengt að fólk leggi fyr-
ir fé svo áratugum skiptir til þess
að geta heimsótt Mekka. ■
Kemst ekki í sturtu
Nágrannaerjur í Rauðagerði 39 að snúast upp í harmleik. Deilur um tré
og píanóleik hafa orðið til þess að húsvörðurinn í Þjóðarbókhlöðunni
kemst ekki lengur í bað heima hjá sér. Borgarfulltrúar komnir í málið.
NÁGRANNAERJUR Í fimm ár hafa
geisað nágrannaerjur í Rauða-
gerði 39 en þar eigast við Krist-
ján Guðmundsson, fyrrum skip-
stjóri, og Baldvin Atlason, hús-
vörður í Þjóðarbókhlöðunni. Sá
síðarnefndi keypti íbúð af þeim
fyrrnefnda í húsi hans fyrir ell-
efu árum og til að byrja með
gekk allt vel. En þegar Baldvin
felldi nokkur tré í garði hússins
fór allt í loft upp. Dómsmálin
eru orðin tvö og Kristján hefur
nú skrúfað fyrir hitann í íbúð
Baldvins þannig að þrír af fimm
ofnum sem þar eru hitna alls
ekki og úr sturtuhausnum kem-
ur ekki heitur dropi:
„Ég fer í sturtu í vinnunni,“
segir Baldvin. Kristján vill hins
vegar ekkert tjá sig um málið en
segir Baldvin ekki greiða hita-
reikninga. Baldvin segist hins
vegar hafa reynt það í lögreglu-
vernd en Kristján vilji ekki taka
við greiðslu. Kristján hefur tök
á Baldvini varðandi hitann því
heitavatnskranarnir fyrir allt
húsið eru í bílskúr Kristjáns og
þangað kemst Baldvin ekki inn.
Kristján kærði Baldvin fyrir
að fella tré í garðinum en tapaði
því máli bæði í héraðsdómi og
hæstarétti. Þá kærði hann Bald-
vin fyrir að leika á píanó í tíma
og ótíma og tapaði því máli
einnig í héraði:
„Að sjálfsögðu má ég leika á
píanó heima hjá mér. Það er
bara verst að þegar ég reyni að
leika þá byrjar Kristján að spila
á hljómflutningstæki í kapp við
mig. Spil hans truflar mig ekki
síður en píanóleikurinn hann,“
segir Baldvin, sem hefur fengið
borgarfulltrúa til liðs við sig:
„Ég talaði við Steinunni Val-
dísi og hún hefur lofað að ræða
málið við Alfreð Þorsteinsson,
þar sem hann er stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar. Þeir
verða að sjá til þess að ég fái
heitt vatn eins og aðrir. Það eru
mannréttindi,“ segir Baldvin
Atlason í Rauðagerði 39, sem
hefur keypt sér nokkra raf-
magnsofna til að lifa af vetur-
inn. Hann hefur hugleitt að selja
íbúð sína til að fá frið: „En það
er ekki auðvelt að selja svona
íbúð þegar nágrannarnir fylgja
með,“ segir hann.
eir@frettabladid.is
Suðurskautslandið:
Vegarlagn-
ing skoðuð
á suðurpól
NÝJA-SJÁLAND, AP Bandarískir vís-
indamenn eru að skoða mögu-
leika á að leggja veg frá strönd
Suðurskautslandsins að suður-
pólnum til að flytja birgðir að
Amundsen-Scott rannsóknastöð-
inni.
Arthur Brown, talsmaður
National Science Foundation,
segir hugmyndina þá að nota
megi 1.600 kílómetra langan
veginn yfir sumartímann, í
rúma þrjá mánuði.
Þá væri hægt að flytja birgð-
ir með skipi að strönd Suður-
skautslandsins og þaðan land-
leiðina.
Nú þarf að flytja allar birgðir
með flugi, 250 ferðir yfir sumar-
tímann. ■
TVÖ INNBROT Á AKUREYRI
Brotist var inn á tveimur stöðum á
Akureyri um helgina. Aðfaranótt
laugardagsins fór viðvörunarkerfi
Frumherja í gang. Lögreglan fór á
vettvang ásamt starfsmanni Secur-
itas en greip í tómt. Þjófarnir voru
á bak og burt og höfðu með sér tíu
þúsund krónur í skiptimynt. Á
laugardagsmorgun var tilkynnt um
innbrot í Veganesti við Hörgár-
braut. Gluggi hafði verið brotinn á
útihurð. Þá hafði sjóðsvél verið
brotin upp og eins spilakassi frá Ís-
lenskum söfnunarkössum. Höfðu
þjófarnir með sér á annað hundrað
þúsund krónur í spilakassanum.
FIMM ÓHÖPP Í UMFERÐINNI
Fimm minniháttar umferðar-
óhöpp urðu á Akureyri um helg-
ina og einn ökumaður var kærður
fyrir of hraðan akstur. Eitt
minniháttar fíkniefnamál kom
upp en í heild var skemmtanalíf
helgarinnar tíðindalítið. Þó voru
bókuð fjögur mál vegna ölvunar
á almannafæri.
EÐA SVONA DÝRT
AÐ HAFA HANN
Ef maðurinn er svona mikils
virði er þá ekki keppikefli að
halda í hann?
Guðmundur G. Þórarinsson, um 200
milljóna starfslokasamninga. DV, 10. feb.
SKILUR MILLI FEIGS
OG ÓFEIGS
Ertu í liði forsætisráðherra eða
ekki, þarna er efinn.
Ingibjörg Sólrún Gíslandóttir um af-
skipti stjórnmálamanna af atvinnulífi.
Flokksþing Samfylkingarinnar, 9. febrúar.
ÞÁ VAR ÖLDIN ÖNNUR ER
SVEINBJÖRN STÖKK Á STÖNG
Sannleikurinn er sá að aðeins í
frjálsum íþróttum höfum við kom-
ist á blað og það var á gullöld gömlu
strákanna sem nú eru ýmist komnir
til guðs eða við háan aldur í dag.
Hannes skrifar lesendabréf þar sem
honum þykir nóg um dýrkun á bolta-
íþróttum. DV, 10. febrúar.
BANNAÐ AÐ AUGLÝSA
Íslenskir framleiðendur eru að skoða
hvaða áhrif sænskur dómur hefur á bann
við áfengisauglýsingum. Dómurinn gæti
haft áhrif hér á landi.
HVÍLIR LÚIN BEIN
Karlkyns pílagrímar klæðast allir sams kon-
ar klæðnaði, sem er hvítur og án sauma.
Konurnar klæðast einnig hvítu en þeim
ber skylda til þess að hylja alfarið líkama
sinn og hár.
BALDVIN ATLASON VIÐ HEIMILI SITT Í RAUÐAGERÐI
Hefur keypt rafmagnsofna til að lifa veturinn af.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ORÐRÉTT