Fréttablaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 21
21ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2003
www.herognu-innrettingar.is
ÚTSALA
Fataskápar • Baðinnréttinga Eldhúsinnréttingar
Borgartúni 29
MICHAEL JACKSON
Í tvígang á skjáinn.
Ríkissjónvarpið:
Jackson
endursýndur á
laugardaginn
TÓNLIST Robin Gibb úr hljómsveit-
inni Bee Gees hefur brugðist
harkalega við ummælum spjall-
þáttastjórnandans Graham
Norton um bróður hans Maurice
Gibb þegar hann lá á dánarbeði.
Norton sagði þetta í gríni um
Maurice, sem lést í síðasta mán-
uði: „Ég þori að veðja að hjarta-
riti Maurice Gibb var að spila
lagið Staying Alive.“
Robin Gibb segir að Norton sé
algjör þrjótur og hefur farið
fram á afsökunarbeiðni bæði frá
honum og sjónvarpsstöðinni
Channel 4, þar sem þátturinn var
sýndur. „Þessum manni mun ég
aldrei fyrirgefa. Þetta er lítill
bransi og ég vona að ég eigi
aldrei eftir að hitta hann því þá
mun ég rífa af honum hausinn,“
sagði Robin, greinilega yfir sig
hneykslaður. „Ætli Graham
Norton hefði sagt þetta eða hefði
leyft einhverjum öðrum að segja
þetta ef einhver úr hans fjöl-
skyldu hefði legið dauðvona á
sjúkrahúsi?“ ■
OFURHUGINN
Ben Affleck mætir hér til frumsýningar á
myndinni „Daredevil“ eða „Ofurhuganum“
ásamt unnustu sinni, söng- og leikkonunni
Jennifer Lopez.
Robin Gibb hneykslaður út í spjallþáttastjórnanda:
Gerði grín að
dauðvona bróður
BEE GEES
Robin Gibb (í miðjunni) er ósáttur við ummæli þáttastjórnandans Graham Norton um
bróður sinn Maurice (til hægri).
SJÓNVARP Víðfræg heimildarmynd
um Michael Jackson, sem Ríkis-
sjónvarpið sýndi í síðustu viku,
verður endursýnd næstkomandi
laugardag. Mikil eftirspurn er eft-
ir endursýningu þáttarins því þeir
sem af misstu telja sig margir
hverjir ekki vera samræðuhæfir á
mannamótum:
„Þeir sem misstu af þættinum
geta séð hann síðdegis á laugar-
daginn 15. febrúar,“ segir Rúnar
Gunnarsson, dagskrárstjóri Ríkis-
útvarpsins. „Um kvöldið verður
svo bein útsending frá Háskólabíói
þar sem íslensku Eurovisionlögin
keppa þannig að þetta verður stór
dagur fyrir marga,“ segir hann. ■
KVIKMYNDIR Breski leikarinn Roger
Moore, sem lék í sjö myndum um
njósnarann James Bond, segir að
starf sitt sem sendiherra Barna-
sjóðs Sameinuðu þjóðanna sé mun
meira gefandi en baráttan við fúl-
menni hvíta tjaldsins.
Johannes Rau, forseti Þýska-
lands, veitti Moore í gær orðu op-
inberu þjónustunnar í Þýskalandi
fyrir hjálparstarf sitt. „Þessi
verðlaun eru mér mun meira virði
en nokkur Óskarsverðlaun,“ sagði
Moore við tækifærið. „Sem James
Bond var auðvelt að koma auga á
illmennin. Núna eru þau ekki eins
sjáanleg og baráttan er upp í
móti.“ ■
Roger Moore fær orðu:
Betra en Óskarinn
ORÐUVEITING
Christina Rau, eiginkona Johannes Rau,
nælir orðunni í jakka Roger Moore.
Lesbíudúettinn T.a.t.u.:
Enn vinsælastar
í Bretlandi
TÓNLIST Hin umdeildi rússneski
lesbíudúett T.a.t.u hélt toppsæti
breska vinsældalistans aðra vikuna
í röð. Stelpurnar eru 17 og 18 ára og
þykir myndband lagsins „All the
Things She Said“ fara yfir velsæm-
ismörk Breta. Þar sjást stúlkurnar
kyssast og kela í rigningu klæddar í
breska skólabúninga.
Málið hefur gengið það langt að
útvarpsfólk hefur neitað að leika
lagið þar sem þeir telja plötufyrir-
tæki þeirra vera að reyna að hagn-
ast á ímynd barnakláms. Unglings-
stúlkurnar gera svo vitanlega það
sem þær geta til þess að hneyksla
fólk meira. Eiga það til að kyssast
blautum kossum þegar þær koma
fram á tónleikum.
Talið er að stúlkurnar séu í raun
gagnkynhneigðar og eru þær sagð-
ar eiga kærasta í heimalandi sínu.
Þær hvorki neita því né játa. ■
Dansarinn Chris Judd, sem vargiftur Jennifer Lopez, er á
leiðinni í sviðsljósið aftur. Hann
hefur samþykkt
að taka þátt í gerð
raunveruleika-
sjónvarpsþáttar.
Þar keppir hann á
móti öðrum
„þekktum andlit-
um“ um stóran
fjárvinning. Þátt-
urinn heitir „I’m
a Celebrity - Get Me Out of
Here“ og er í anda bresku þátt-
anna „Big Brother“.
Breiðskífur Michaels Jacksonsseljast enn eins og heitar
lummur, bæði í Bandaríkjunum
og Bretlandi, eftir sýningu hins
umdeilda sjónvarpsþáttar „Liv-
ing with Michael Jackson“. Tals-
menn samtaka plötubúða stað-
festu að sala breiðskífna kappans
hefði tífaldast eftir þáttinn. Vin-
sælastar eru plöturnar „Greatest
Hits Vol. 1“ og „Thriller“.
FRÉTTIR AF FÓLKI
T.A.T.U.
Ögra breskum almenningi með lesbískum
kossum og leikjum. Rússnesku stúlkurnar
hafa þó verið sakaðar um að vera í raun
gagnkynhneigðar.