Fréttablaðið - 11.02.2003, Side 22
22 11. febrúar 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Harði diskurinn
bilaður í Bush
Geir Magnússon forstjóri á afmæli í dag. Eins og aðrir spáir hann
í heimsmálin. Honum finnst Bush ótrúverðugur og grunar að
yfirvofandi styrjöld snúist um olíuhagsmuni.
61 ÁRS „Ég ætla að vera í vinnunni í
dag og í kvöld ætla ég að spila
bridge með félögunum. Við spilum
á tveggja vikna fresti og okkur fer
ekkert fram,“ segir Geir Magnús-
son, forstjóri Kers og fyrrum for-
stjóri Olíufélagsins, en hann er af-
mælisbarn dagsins. Geir heldur
sjaldan upp á afmælið sitt með
miklu tilstandi. Þegar hann var
fimmtugur hélt hann veislu og
hann segir að það hafi verið ein-
kennileg upplifun. Hátt í 500
manns létu sjá sig. „Ég stóð í
anddyrinu og heilsaði fólkinu þeg-
ar það kom. Svo voru haldnar ræð-
ur. Síðan stóð maður í anddyrinu og
kvaddi fólkið þegar það fór. Þetta
var dálítið eins og á járnbrautar-
stöð.“ Geir þótti vænt um þann hlý-
hug sem honum var sýndur, en seg-
ist þó hafa uppgötvað eitt sem haft
hafi áhrif á hann. Blómin sem hann
fékk voru flutt heim til hans í stór-
um sendiferðabíl, og húsið allt varð
yfirfullt af blómum sem á endan-
um komust ekki fyrir. „Ég hef
aldrei séð betur skreyttan bílskúr,“
segir Geir. „Eftir þetta hef ég ekki
gefið öðrum blóm á stórafmælum.“
Forstjórastaða Kers er rólegri
en staða forstjóra Olíufélagsins,
sem Geir gegndi áður. Á Keri hf.,
sem er eignarhaldsfélag og eigandi
Olíufélagsins, vinna einungis þrír.
„Starfið snýst um verðbréfavið-
skipti,“ segir Geir. „Ég er að kaupa
og selja hlutabréf. Banka í dag,
tryggingarfélag í gær.“
Helstu áhugamál Geirs fyrir
utan vinnuna eru hestamennska og
veiði. Hann lætur af störfum sem
forstjóri Kers eftir mánuð. „Ég
hætti bæði fyrir sjálfan mig og
vinnuna,“ segir Geir. „Maður á að
hleypa yngra fólki að.“ Aðspurður
um hvað taki við er Geir fljótur til
svars. „Hestar og veiði,“ segir
Geir. Auk þess mun hann taka að
sér ýmis sérverkefni.
Geir spáir eins og aðrir í ástand
heimsmála um þessar mundir.
Hann segist ekki geta varist þeirri
hugsun að yfirvofandi stríð í Írak
snúist um olíuhagsmuni. „Mér
finnst Bush vera orðinn mjög ótrú-
verðugur,“ segir Geir. „Það er eins
og harði diskurinn hafi bilað í hon-
um eftir 11. september.“
gs@frettabladid.is
AFMÆLI
Ég ætla örugglega í framhalds-nám og langar þá mest að fara
til útlanda en hef ekki ákveðið hvort
ég legg þá fyrir mig klíníska sál-
fræði eða réttartengda sálfræði,“
segir Emil Einarsson, sem gerði
rannsókn á fölskum játningum að
beiðni ríkislögreglustjóra. „Ég
skoðaði afbrotahegðun framhalds-
skólanema í BA-verkefni mínu
ásamt Evu Björk Valdimarsdóttur
og Ólafi Erni Bragasyni og ég fékk
þetta verkefni í framhaldinu.“
Jón Friðrik Sigurðsson, for-
stöðusálfræðingur á geðsviði Land-
spítala – háskólasjúkrahúss, leið-
beindi Emil og félögum hans við
gerð lokaverkefnisins og hann
mælti með því að Emil yrði fenginn
til að gera játningarannsóknina.
Emil eyddi svo næstu fimm mánuð-
um á lögreglustöðvum og reyndi að
fá fólk til að ræða við sig að loknum
yfirheyrslum.
Emil er 26 ára og er í sambúð
með Sigríði Ólöfu Sigurðardóttur,
garðyrkjufræðingi hjá Kirkjugörð-
unum. Hann hóf skólagöngu sína í
Austurbæjarskóla en síðan lá leið
hans í Kvennaskólann. Hann tók sér
tveggja ára frí að loknu stúdents-
prófi en skellti sér svo í sálfræðina
og starfar nú sem aðstoðarmaður
við ýmsa rannsóknarvinnu hjá Jóni
Friðrik.
Emil segir áhugann á réttarsál-
fræðinni hafa dúkkað upp í miðju
námi og þvertekur fyrir að sú ævin-
týralega mynd sem oft er dregin
upp af störfum réttarsálfræðinga í
sjónvarpi og bíómyndum hafi haft
nokkuð með það að gera. „Sú mynd
sem dregin er upp af réttarsálfræð-
ingum þar er nokkuð fjarri raun-
veruleikanum og glamúrinn tölu-
vert meiri en gengur og gerist. Ég
tók einfaldlega eitt námskeið í rétt-
arsálfræði og þótti það mjög áhuga-
vert.“ ■
Emil Einarsson vann skýrslu um falskar
játningar að beiðni ríkislögreglustjóra.
Hann íhugar að leggja réttarsálfræði fyr-
ir sig enda viðfangsefnið áhugavert.
Persónan
Réttarsálfræðin heillar
GEIR MAGNÚSSON
Stendur upp úr forstjórastólnum eftir mánuð og ætlar að njóta lífsins við
hestamennsku og veiðar.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
EMIL EINARSSON
„Það kom okkur á óvart að 25% framhalds-
skólanema sögðust hafa farið í yfirheyrslu til
lögreglu. Okkur þótti það hátt hlutfall en þó
ber að hafa í huga að margir voru yfirheyrð-
ir fyrir smávægileg brot.“
Lögfræðingurinn: „Ég hef góðarfréttir og ég hef slæmar frétt-
ir.“
Skjólstæðingurinn: „Já, ætli
það sé ekki best að fá þær slæmu
fyrst...“
Lögfræðingurinn: „DNA-prófið
leiddi í ljós að lífsýni þitt passar
við það sem er að finna á vett-
vangi morðsins.“
Skjólstæðingurinn: „Fjandinn
sjálfur, en góðu fréttirnar?“
Lögfræðingurinn: „Kólesteról-
magnið í blóði þínu er komið niður
í 140.“
Að gefnu tilefni skal tekið fram að efna-
vopnabann Sameinuðu þjóðanna á Írak
gildir ekki um íslenskan þorramat - hann
er hins vegar bannaður í Danmörku.
Leiðrétting
Fær Þórólfur Árnason, borgar-stjóri í Reykjavík. Hann sýndi
strax á fyrstu metrunum að hann
ætlar ekki að verða litlaus emb-
ættismaður. Kom oddvita Sjálf-
stæðisflokksins í skilning um að
hann hygðist nýta sér þann sjálf-
sagða rétt að ráða sjálfur hverj-
um hann byði heim til sín.
HRÓSIÐ
Íslenska kvikmyndin Morðsagaeftir Reyni Oddsson er 25 ára
um þessar mundir. Myndin þykir
ekki síst merkileg þar sem hún
var gerð á tímum þegar fæstir
höfðu trú á að hægt væri að búa
til almennilegar kvikmyndir á Ís-
landi. Kvikmyndasjóður Íslands
var til dæmis ekki stofnaður fyrr
en þremur árum eftir að myndin
var gerð og fáum blandast hugur
um að Morðsaga hafi flýtt fyrir
því að frumvarp um sjóðinn var
afgreitt á Alþingi. Það hefur ekki
farið mikið fyrir Reyni í íslenskri
kvikmyndagerð síðan þá og er
það ekki síst vegna þess að Kvik-
myndasjóðurinn, sem hann átti
sinn þátt í að koma á koppinn,
hefur aldrei séð ástæðu til að
styrkja verkefni hans. Hann hef-
ur þrisvar sinnum sótt um styrk
en beiðnum hans hefur aldrei
verið svarað.
JARÐARFARIR
10.30 Auðunn Jóhannesson, húsgagna-
meistari, Fannborg 8, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogs-
kirkju.
13.30 Sigurður Sigurðsson, forstjóri
Loftorku Reykjavík, Vonarholti,
Kjalarnesi, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
13.30 Torfi Ásgeirsson, hagfræðingur,
Faxaskjóli 22, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Neskirkju.
ANDLÁT
Sigurleifur Guðjónsson, Safamýri 48,
Reykjavík, lést 3. febrúar.
AFMÆLI
Geir Magnússon er 61 árs.
Valur Valsson er 59 ára.
FÓLK Í FRÉTTUM
FÓLK Í FRÉTTUM
TÍMAMÓT
Imbakassinn eftir Frode Øverli
Ó, mikli vitringur...
setja allir smá pappír
í klósettskálina til að
forðast skvettur, eða er
það bara ég?
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Athygli vekur að Ellert B.Schram er hættur að skrifa
vikulega pistla sína í Morgunblaðið
eftir að hann tilkynnti framboð sitt
fyrir Samfylkinguna. Ekki þykir
við hæfi að frambjóðendur viðri
skoðanir sínar í almennum pistlum
á síðum blaðsins á meðan þeir eru í
framboði. Annar frambjóðandi
heldur þó áfram að skrifa pistla í
Morgunblaðið þrátt fyrir allt. Pistl-
ar Björns Bjarnasonar, fyrrum
menntamálaráðherra, halda áfram
að birtast þó Ellert sé farinn.
Umræður um ráðherraábyrgðurðu nokkuð háværar í kjölfar
mála Árna Johnsens. Björn
Bjarnason, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, má enn þola það að
„huglausir nafnleysingjar“ reyni á
vefsíðum enn að draga hann inn í
þá umræðu. Aldrei hefur reynt á
ákvæði laga um ráðherraábyrgð
frá 1963 og á málstofu hjá laga-
deild HÍ á miðvikudaginn ræða þau
Róbert R. Spanó, aðstoðarmaður
umboðsmanns Alþingis og lektor
við lagadeild HÍ, og Bryndís
Hlöðversdóttir alþingismaður um
hvort þörf sé á að breyta núgild-
andi reglum um refsiábyrgð ráð-
herra á pólitískum embættisbrot-
um. Viðfangsefnið verður meðal
annars skoðað út frá mannréttinda-
reglum, einkum 69. gr. stjórnar-
skrárinnar um að refsiheimildir
þurfi að vera skýrar, svo og ýmis
vandkvæði á því að virkja þetta úr-
ræði með því að Alþingi kæri ráð-
herra fyrir embættisrekstur
þeirra.
Vísindavefur Háskóla Íslands(www.visindavefur.hi.is) fagn-
aði þriggja ára afmæli sínu á dög-
unum. Ekkert lát virðist vera á vin-
sældum þessa vefjar, sem að
flestra mati er sá gáfaðasti á land-
inu, enda lætur hann nánast engum
spurningum ósvarað. Hann er há-
stökkvari sjöttu viku ársins hjá
teljara.is með aukningu upp á 2.437
gesti, eða 78,7%, en það telst mjög
gott fyrir jafn stóran vef. Talna-
spekingar í netheimum rekja há-
stökkið til þess að vefurinn hefur
tekið upp samstarf við Sjónvarpið
og þáttinn Vísindi fyrir alla.