Fréttablaðið - 19.02.2003, Side 4
4 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Verður skoðun ESA á ríkis-
styrkjum til Alcoa til að ekkert
verður af stóriðju fyrir austan?
Spurning dagsins í dag:
Hefur lækkun grænmetisverðs aukið
grænmetisneyslu þína?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
20,6%
60,8%Nei
18,6%
ÁLVERIÐ RÍS
Skoðun ESA hefur
ekki mikið að
segja að mati
lesenda.
Veit ekki
Já
FÉKK BYSSUKÚLU Í PÓSTINUM
Átökum kaþólikka og mótmælenda er ekki
lokið. Sinn Fein-maðurinn Paul Butler fékk
byssukúlu í póstinum og telur ljóst að
vígasveitir mótmælenda hafi sent honum
hana. Í bréfinu stendur meðal annars: „Sé
þig fljótlega...dauðan.“
Hryðjuverkamaður:
Óða hundi
ekki sleppt
BELFAST, AP Dómari í Belfast hefur
hafnað beiðni um að Johnny „Óða
hundi“ Adair verði sleppt úr fang-
elsi. Lögfræðingar Adair héldu því
fram að ólöglega hefði verið staðið
að fangelsun hans en því hafnaði
dómarinn.
Adair, sem hlaut viðurnefni sitt
fyrir langan og blóðugan feril í
átökum mótmælenda og kaþólikka,
var dæmdur árið 1995 fyrir að bera
ábyrgð á hryðjuverkum. Hann var
leystur úr haldi vegna ákvæða
vopnahléssamninga á Norður-Ír-
landi en hefur tvisvar verið fangels-
aður aftur vegna átaka. ■
Fákafen og Laugavegur:
Lögreglan
engu nær
RANNSÓKN Lögreglan virðist engu
nær í rannsókn vegna stórbruna í
Fákafeni og á Laugavegi. Eignatjón
hleypur á mörg hundruð milljónum.
Hörður Jóhannesson yfirlögreglu-
þjónn sagði engar vísbendingar
hafa komið fram og málin óupplýst.
Sjö mánuðir eru liðnir síðan
kveikt var í Fákafeni 9. Fjölmargir
hafa verið yfirheyrðir en enginn er
grunaður um að hafa kveikt eldinn.
Sama er að segja um eldinn á
Laugavegi fyrir fjórum mánuðum
síðan. Einn var handtekinn í kjölfar
brunans en honum var sleppt
skömmu síðar. ■
Fitjað upp á nefið:
Banna reyk-
ingar á krám
DUBLIN, AP Meirihluti Íra er fylgj-
andi áformum stjórnvalda um að
banna reykingar á krám og veit-
ingastöðum Írlands samkvæmt
nýrri skoðanakönnun. Samkvæmt
henni eru 59% fylgjandi reyk-
ingabanni, fimm prósent eru
óákveðin en 36% eru andvíg bann-
inu.
Mikill munur er á afstöðu reyk-
ingafólks og þeirra sem ekki
reykja. 73% reyklausra styðja
bannið en aðeins 28% reykinga-
fólks. Það var aðeins meðal
yngsta fólksins sem stuðningur og
andstaða við bannið voru jafn
mikil. 32% Íra reykja, þar á með-
al um helmingur ungs fólks. ■
Aukin spenna á Kóreuskaganum:
Hóta að rifta vopnahléssamningi
SUÐUR-KÓREA, AP Yfirvöld í Norður-
Kóreu hafa hótað að segja upp
vopnahléssamningnum sem batt
enda á átök Kóreustríðsins árið
1953. Halda þau því fram að Banda-
ríkin ætli að setja hafnbann á landið
og sé það liður í undirbúningi fyrir
fyrirbyggjandi árás.
Talsmenn suður-kóreskra og
bandarískra yfirvalda segja þó að
ekkert bendi til þess að Norður-
Kóreumenn ætli sér að ráðast inn í
Suður-Kóreu. Yfirlýsing norður-
kóreskra yfirvalda er engu að síður
tekin mjög alvarlega enda er ljóst
að jafnvel minnsta breyting á
vopnahléssamningnum gæti orðið
til þess að auka mjög á spennuna og
óöryggið sem ríkt hefur á Kóreu-
skaga að undanförnu.
Samningurinn sem um ræðir er
vopnahléssamningur en ekki eigin-
legur friðarsamningur og því má
segja að stríðinu hafi í raun aldrei
lokið með formlegum hætti. Því er
enn gífurlegur fjöldi hermanna úr
báðum liðum við landamærin auk
37.000 Bandaríkjamanna. ■
NORÐUR OG SUÐUR
Við landamæri Norður- og Suður-Kóreu má sjá hermenn beggja landa standa hlið við hlið
en formlega séð eiga löndin tvö enn í stríði.
Verðmat fyrirtækja:
Mælir með
Íslandsbanka
VIÐSKIPTI Greiningardeild Lands-
bankans hefur hækkað verðmat
sitt á hlutabréfum í Íslandsbanka
úr genginu 5,36 í 5,98. Gengi
bankans í gær var 5,05 og hefur
hækkað að undanförnu. Sam-
kvæmt verðmati Landsbankans
er Íslandsbanki ríflega 56 millj-
arða virði og mælir bankinn með
kaupum á bréfum bankans. Ís-
landsbanki er með lægsta kostn-
aðarhlutfallið og bestu ávöxtun
eigin fjár af bönkunum. Á móti
kemur, að sögn Landsbankans, að
hann er hæst verðlagður af bönk-
unum ef miðað er við hagnað síð-
asta árs. ■
Umferðarstofa segir Ísland ekki þróunarríki í umferðaröryggi:
Banaslysum fjölgar um 42% á fimm árum
UMFERÐARÖRYGGI Banaslys í um-
ferðinni hérlendis voru að meðal-
tali 27,2 á síðustu fimm árum.
Næstu fimm ár þar á undan var
meðaltalið 19,2 banaslys á ári.
Munurinn er 42%.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram
að samkvæmt skýrslu OECD
fjölgaði banaslysum á Íslandi um
33% milli áranna 1990 og 2000;
miklu meira en í nokkru öðru
landi OECD.
Ragnheiður Davíðsdóttir hjá
VÍS sagði þetta skipa Íslendingum
á bekk með þróunarríkjum. „Full-
yrðingar um að Ísland
sé þróunarríki á sviði
umferðaröryggismála
eru hreinlega rangar,“
segir hins vegar Sig-
urður Helgason, sviðs-
stjóri umferðarörygg-
issviðs Umferðarstofu.
Sigurður bendir á að
ofangreint viðmiðunar-
ár, árið 2000, sé versta
banaslysaár á Íslandi í
tæpan aldarfjórðung. Í
raun séu tölur um
banaslys hérlendis
hlutfallslega eins og
þær gerist lægstar.
Að sögn Sigurðar
þarf að skipta tíman-
um niður í fimm ára
tímabil „til að draga
úr áhrifum sveifl-
na.“ Þá komi meðal
annars í ljós að
banaslysum hafi
fækkað úr 25,8 að
meðaltali á árunum
1986 til 1990 í 21
banaslys árin 1996 til
2000.
„Nokkur ár á síðasta áratug
urðu fæst dauðaslys á Íslandi mið-
að við höfðatöluna frægu af öllum
þjóðum innan PRI, alþjóðasam-
taka umferðarráða,“ segir Sigurð-
ur í yfirlýsingu í gær.
Í fimm ára meðaltölum Sigurð-
ar er hins vegar ekki reiknað með
síðustu tveimur árum, árunum
2001 og 2002.
Séu þau reiknuð með sést að á
síðasta fimm ára tímabili, árin
1998 til 2002, fjölgaði banaslysum
á Íslandi um 42% frá næsta fimm
ára tímabili þar á undan. ■
BANASLYS Í UM-
FERÐINNI 1991–2002
1991 30
1992 22
1993 22
1994 18
1995 28
1996 11
1997 17
1998 27
1999 22
2000 34
2001 24
2002 29
Heimild: Umferðarráð
BORG Í LAMASESSI
Fáeinum mínútum eftir að eldurinn braust
út gaus mikill reykur upp úr neðanjarðar-
lestarstöð í miðbæ borgarinnar. Öll umferð
á svæðinu stöðvaðist á meðan slökkvilið
og sjúkrabílar þustu á vettvang.
Eldur í neðanjarðarlest:
Brennu-
vargur veld-
ur stórslysi
SUÐUR-KÓREA, AP Maður er í haldi
lögreglunnar í Norður-Kóreu eftir
að hafa kveikt eld í neðanjarðar-
lestarvagni í borginni Daegu með
þeim afleiðingum að yfir 100
manns létust og að minnsta kosti
137 slösuðust. Upphaflega var
gert ráð fyrir að nokkrir tugir
manna hefðu farist en fljótlega
kom í ljós að endanleg tala látinna
yrði í kringum 120 manns. Að
sögn opinberra talsmanna eru lík-
in mörg hver mjög illa farin og
því aðeins hægt að bera kennsl á
þau með DNA-prófum.
Enn er á huldu hvað hinum
grunaða gekk til með ódæðisverk-
inu en að sögn vitna tók hann upp
kveikjara inni í lestarvagninum
og kveikti í mjólkurfernu sem
innihélt eldfiman vökva. Aðrir
farþegar reyndu að stöðva mann-
inn þegar þeir áttuðu sig á því
hvað hann ætlaðist fyrir en án ár-
angurs. ■
Í frétt í gær um banaslys í
OECD-löndunum var ranglega
sagt að næst á eftir Íslandi hefði
fjölgun banaslysa milli áranna
1990 og 2000 verið mest í Grikk-
landi. Hið rétt er að næstmest
var fjölgunin í Tékklandi, 15%. Á
Grikklandi nam fjölgunin hins
vegar aðeins 1%, ekki 13% eins
og sagði í fréttinni.
LEIÐRÉTTING
SKOÐANAKÖNNUN Davíð Oddsson og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru
þeir stjórnmálamenn sem kjós-
endur bera mest traust til sam-
kvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Tæp 36 prósent kjós-
enda treysta Davíð best, en Ingi-
björg Sólrún kemur á hæla honum
með traust 33 prósenta þeirra sem
svöruðu í könnuninni.
Davíð Oddsson er einnig efstur
á lista yfir þá stjórnmálamenn
sem kjósendur treysta síst. Rúm
33 prósent nefna hann þegar spurt
er til hvaða stjórnmálamanns þau
beri minnst traust. Fleiri van-
treysta formanni og forsætisráð-
herraefni Samfylkingar en Davíð,
en þau njóta þó góðs af því að van-
traustið skiptist á milli þeirra. 19
prósent svarenda treysta Össuri
Skarphéðinssyni síst. Strax á
hæla honum kemur Ingibjörg Sól-
rún. 17,5 prósent segjast treysta
henni síst.
Könnunin sýnir að staða Sam-
fylkingarinnar og Sjálfstæðis-
flokksins í könnunum birtist
einnig í vinsældum og óvinsæld-
um leiðtoga flokkanna. Ingi-
björg Sólrún situr þó ein að vin-
sældunum, en óvinsældir leið-
toga Samfylkingarinna skiptast
á milli hennar og Össurar Skarp-
héðinssonar.
Karlar treysta Davíð nokkuð
betur en konur. 38% karla treysta
honum best en 33% kvenna. Kon-
ur vantreysta honum hins vegar
mjög. 44% kvenna treysta honum
síst. Þá nýtur hann meira trausts á
höfuðborgarsvæðinu, 39%, en á
landsbyggðinni, 31%. Fleiri konur
treysta Ingibjörgu Sólrúnu en
karlar; 36% kvenna treysta henni
helst meðan 30% karla treysta
henni helst. Álíka margir karlar
og konur treysta henni síst. Jafn
margir treysta Ingibjörgu Sól-
rúnu best á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni.
Halldór Ásgrímsson og Stein-
grímur J. Sigfússon njóta báðir
trausts um tíu prósenta á lands-
byggðinni en nær helmingi
minna á höfuðborgarsvæðinu.
Karlar treysta Halldóri talsvert
betur en konur. Konur treysta
Steingrími J. litlu betur en karl-
ar. Össur Skarphéðinsson sækir
stærstan hluta vantrausts síns á
höfuðborgarsvæðið. Þar treysta
23% honum síst en 13% á lands-
byggðinni. Geir H. Haarde sækir
allt sitt traust á höfuðborgar-
svæðið, mælist ekki utan þess. ■
DAVÍÐ ODDSSON
Umdeildastur allra stjórnmálamanna. Ein-
ungis þriðjungur nefnir hann ekki sem
þann stjórnmálamann sem nýtur mest eða
minnst trausts.
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Önnur á lista yfir þá sem njóta mest
trausts. Í þriðja sæti á lista þeirra sem
njóta minnst trausts, kemur þar fast á
hæla formanns síns, Össurar Skarphéðins-
sonar.
Davíð slær Ingi-
björgu Sólrúnu við
Forsætisráðherraefni Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar tróna efst á
lista yfir þá stjórnmálamenn sem kjósendur treysta best. Davíð
toppar einnig lista yfir þá sem kjósendur treysta síst.
KJÓSENDUR
TREYSTA ÞEIM BEST
1. Davíð Oddsson 35,7%
2. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 32,9%
3. Halldór Ásgrímsson 7,8%
4. Steingrímur J. Sigfússon 6,9%
5.-6. Geir H. Haarde 2,4%
5.-6. Jón Kristjánsson 2,4%
KJÓSENDUR
TREYSTA ÞEIM SÍST
1. Davíð Oddsson 33,3%
2. Össur Skarphéðinsson 19,4%
3. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 17,5%
4. Sturla Böðvarsson 7,3%
5. Steingrímur J. Sigfússon 5,6%