Fréttablaðið - 19.02.2003, Page 6
6 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 22
1.
2.
3.
Aðildarríkjum Nató tókst að
setja niður deilur sínar og sam-
þykkja aðstoð við Tyrki, komi til
átaka við Íraka. Hvað heitir
framkvæmdastjóri Nató?
Hvaða stétt innan heilbrigðis-
geirans hefur ákveðið að hætta
þjónustu um kvöld og helgar af
ótta við sjúklinga?
Hvað hét skipið sem lagðist
þvert í innsiglinguna í Grinda-
vík?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 79.41 1.28%
Sterlingspund 126.96 1.21%
Dönsk króna 11.46 1.42%
Evra 85.18 1.42%
Gengisvístala krónu 123,63 0,02%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 504
Velta 8.793 milljónir
ICEX-15 1.359 0,12%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 1.679.539.708
Eimskipafélag Íslands hf. 67.882.567
Fjárfestingarf. Straumur hf. 55.886.165
Mesta hækkun
Olíuverslun Íslands hf. 5,15%
Íslenskir aðalverktakar hf. 2,70%
Ker hf. 2,63%
Mesta lækkun
Skýrr hf. -10,68%
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. -8,33%
Kögun hf. -2,72%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8042,8 1,7%
Nasdaq*: 1334,3 1,8%
FTSE: 3723,4 0,8%
DAX: 2725,7 0,6%
Nikkei: 8693,0 -0,9%
S&P*: 848,8 1,7%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
GUBBAÐI Í BÍL Lögreglan í
Reykjavík fékk tilkynningu um
að ekið hefði verið á gangandi
vegfaranda í Gnoðarvogi að-
faranótt sunnudagsins. Ágrein-
ingur hafði orðið milli leigubíl-
stjóra og farþega eftir að sá
síðarnefndi gubbaði í bílinn.
Með einhverjum hætti endaði
farþeginn á vélarhlífinni og síð-
an undir bílnum. Hann var
fluttur á slysadeild með minni-
háttar meiðsl.
MISSTI DEKKIÐ OG NÚMERIÐ
Dekk losnaði undan bíl á Miklu-
braut við Grensásveg síðdegis á
laugardag og hafnaði á tveimur
bílum. Þegar lögreglu bar að
garði kom í ljós að bíllinn hafði
ekki verið færður til endur-
skoðunar á réttum tíma og að
ökumaður var réttindalaus.
Númer voru klippt af bifreið-
inni.
Innlendir framleiðendur auglýsa mest:
Bjór auglýstur fyrir 40 milljónir
ÁFENGISAUGLÝSINGAR Innflytjendur
bjórs auglýstu ekki fyrir nema brot
af því sem innlendir framleiðendur
auglýstu fyrir á síðasta ári. Alls
voru bjórvörumerki auglýst fyrir
42 milljónir króna á síðasta ári. Arn-
ar Ottesen, markaðsstjóri Austur-
bakka, segir fullyrðingar Þorgerðar
Ragnarsdóttur, framkvæmdastjóra
Áfengis og vímuvarnarráðs, ekki
standast. Þorgerður sagði að inn-
flytjendur væru jafnvel verri en
innlendir framleiðendur í markaðs-
setningu sem beint sé að ungu fólki.
Arnar segir tölur frá Íslenskum
markaðsrannsóknum fyrir síðasta
ár sýna að innflytjendur auglýsi lít-
inn hluta þess öls sem auglýst sé.
Vörumerkin eru þó í mörgum tilvik-
um erlend, þó innlend framleiðslu-
fyrirtæki ýmist framleiði þau eftir
einkaleyfi eða flytji þau inn. „Við
sem flytjum inn bjór erum því höfð
fyrir rangri sök.“
Arnar segist hins vegar fagna
umræðu um úrelt regluumhverfi
áfengisauglýsinga í kjölfar dóms í
Svíþjóð þar sem auglýsingabanni á
áfengi var hnekkt. ■
VEÐUR Aftakaveður var á Austur-
landi í fyrrinótt. Veðrið kom
mönnum í opna skjöldu þar sem
engin viðvörun um óveðrið var
send út. Á fimmta tug manna voru
við björgunarstörf um nóttina
þegar mest var. Kepptust menn
við að bjarga verðmætum og
koma í veg fyrir frekara tjón.
Tuttugu og fjögur íbúðarhús urðu
fyrir skemmdum og steypustöð
fauk um koll.
Björgunarsveitarmaður á fer-
tugsaldri slasaðist illa þegar
kerra fauk á hann í einni vind-
hviðunni. Hann höfuðkúpubrotn-
aði og skaðaðist á handlegg. Mað-
urinn lá á Sjúkrahúsinu á Seyðis-
firði en vonir stóðu til að hægt
væri að flytja hann til Reykjavík-
ur í gærdag.
Í óveðrinu fuku þakplötur af
húsum og dæmi eru um að hálft
þak hafi fokið af húsi auk þess
sem timbur flettist af öðru húsi.
Dæmi eru um að bílskúrar hafi
hreinlega splundrast í veður-
hamnum og fokið út í buskann.
Gámur, þar sem geymdur er
Oldsmobile árgerð 1957, tókst á
loft og endaði úti í á. Þangað
fauk líka gamall landgangur af
ferju. Rúður hreinlega splundr-
ast í nokkrum bílum vegna veð-
urhamsins. Lögreglan á Seyðis-
firði segir tjónið mikið.
Aðalheiði L. Borgþórsdóttur,
ferðamálafulltrúa í Seyðisfirði,
varð ekki svefnsamt um nóttina.
„Það voru svo mikil læti í veðr-
inu að ég hef sjaldan lent í öðru
eins. Það var engu líkara en að
húsið ætlaði að fjúka af stað. Það
náði enginn að festa svefn fyrr
en undir morgun en þá tókst það
ekki síst vegna mikillar þreytu.“
Á Vopnafirði barst Lands-
björg útkall rétt eftir klukkan
sjö í fyrrakvöld þegar þakið af
Fiskmarkaðnum fór að losna.
Hjálparbeiðni barst einnig frá
Neskaupstað en þar þurfti að
fergja lausa hluti. Þá voru raf-
magnstruflanir sem gerðu
björgunarsveitarmönnum erfið-
ara fyrir.
Samkvæmt vindmæli á Fjarð-
arheiði var meðalvindhraði
meira en 30 metrar á sekúndu og
fóru mestu hviðurnar í 40 metra.
kolbrun@frettabladid.is
BANNAÐ AÐ AUGLÝSA
Óáfengur bjór var auglýstur fyrir fjörutíu
milljónir króna í fyrra. Innlendir framleið-
endur auglýsa mun meira en bjórinnflytj-
endur.
AUGLÝSINGAKOSTNAÐUR
BJÓRFRAMLEIÐENDA OG
INNFLYTJENDA ÁRIÐ 2002:
1. Thule 10.0 milljónir
2. Víking 8.6 milljónir
3. Carlsberg kr. 6.4 milljónir
4. Tuborg kr. 3.5 milljónir
5. *Beck’s kr. 3.5 milljónir
6. *San Miguel kr. 2.8 milljónir
7. Grolsch kr. 2 milljónir
* innflytjandi
Heimild: Gallup - Íslenskar markaðsrannsóknir
BÍLSKÚRINN HORFINN
Eigendum bílskúrsins á Vesturvegi á Seyðisfirði brá heldur í brún þegar þeir uppgötvuðu
að skúrinn væri fokinn.
LJ
Ó
SM
YN
D
: Ó
LA
FU
R
SV
EI
N
B
JÖ
R
N
SS
O
N
Heilu bílskúrarnir
fuku út í buskann
Aftakaveður var fyrir austan í fyrrinótt. Tuttugu og fjögur hús skemmdust.
Björgunarsveitarmaður höfuðkúpubrotnaði.
GÁMURINN TÓKST Á LOFT
Í veðurhamnum fauk þessi gámur út í á en innanborðs er bíll af gerðinni Oldsmobile, ár-
gerð 1957. Líklega er bíllinn illa farinn.
ÞAKIÐ ÓNÝTT
Tuttugu og fjögur hús skemmdust í
óveðrinu, þar á meðal þetta hús við
Garðarsveg.
Hæfismat eigenda BÍ:
Næst varla
fyrir aðal-
fund
EINKAVÆÐING Gagnaöflun Fjármála-
eftirlitsins vegna kaupenda Búnað-
arbankans er ekki lokið. Páll Gunn-
ar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftir-
litsins, segir ekki hægt að segja á
þessu stigi hvenær henni lýkur.
Lögum samkvæmt hefur Fjármála-
eftirlitið 30 daga frá því að gagna-
öflun lýkur til að úrskurða um hæfi
hópsins til þess að fara með ráðandi
hlut. Aðalfundur bankans verður
haldinn 1. mars. Miðað við stöðuna
er ólíklegt að nýir eigendur verði
komnir með atkvæðisrétt þá. ■
ÆTTLEIÐINGAR Íslenskir kjör-
foreldrar sem fá börn til ætt-
leiðingar frá öðrum löndum
eiga ekki kost á styrkjum úr
ríkissjóði vegna ættleiðingar-
innar. Á hinum Norðurlönd-
unum fá kjörforeldrar hins
vegar styrki ættleiði þeir
barn frá öðrum löndum. Þetta
kemur fram í svari dóms-
málaráðherra við fyrirspurn
Guðrúnar Ögmundsdóttur,
Samfylkingunni.
Fram kemur að danskir
kjörforeldrar fá rúmar 437
þúsund krónur í ættleiðingarstyrk, í
Finnlandi nemur styrkurinn frá 161
þúsundi til 383 þúsunda, eftir því
frá hvaða landi barn er ættleitt, í
Noregi fá kjörforeldrar rúmar 260
þúsund krónur og í Sví-
þjóð nemur ættleiðingar-
styrkurinn rúmum 370
þúsund krónum.
Fram kemur í svarinu
að ekki er nein heimild í
íslenskum skattalögum til
að taka tillit til kostnaðar
vegna ættleiðingar barns
frá útlöndum. Við lauslega
athugun Ríkisskattstjóra
fundust dæmi um að
skattstjórar virtust hafa
ívilnað kjörforeldrum
vegna mikils kostnaðar
við ættleiðingar frá útlöndum en
talið var að þar hefði ekki verið
staðið rétt að málum. Þess er ekki
getið hvort krafist var endur-
greiðslu vegna þeirra ívilnana. ■
Óveðrið:
Landslagið
réði úrslitum
VEÐUR Helga Ívarsdóttir veður-
fræðingur segir spá Veðurstofunn-
ar um veðurfar í fyrrinótt hafa
gengið eftir að mestum hluta. Spáð
hafi verið 25 m/s og samkvæmt
sjálfvirkri veðurathugunarstöð
sem staðsett er á Seyðisfirði gekk
það eftir. Sýndu mælingar að
klukkan tvö um nóttina hafi meðal-
vindhraði mælst 24 m/s. „Aftur á
móti sýndu mælingar að í mestu
vindhviðunum komst vindhraði
mest í 53 m/s. Þar spilaði landslag-
ið stórt hlutverk en það getur or-
sakað hversu vindhviður geta
magnast upp. Hefði byggðin á
Seyðisfirði t.a.m. staðið á slétt-
lendi hefðu hviðurnar ekki orðið
svona öflugar. Einnig er hægt að
taka með í reikninginn að mjög
hvasst var í háloftunum þessa nótt
og náðu hviðurnar að stinga sér
niður í fjörðinn.“ ■
SÓLVEIG
PÉTURSDÓTTIR
Upplýsir að
skattstjórar hafa í
einhverjum tilvikum
ívilnað kjörforeldr-
um.
Önnur stefna á Íslandi en á Norðurlöndum:
Engir styrkir til ætt-
leiðinga á Íslandi