Fréttablaðið - 19.02.2003, Side 7
7MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003
ÞRÝST Á NÝJA ÁLYKTUN Banda-
ríkjamenn og Bretar ætla að nota
vikuna til að reyna að fá sam-
þykki fyrir nýrri ályktun örygg-
isráðs Sameinuðu þjóðanna sem
heimilar beitingu hervalds til að
afvopna Íraka.
EFTIRLIT ÚR LOFTI Vopnaeftirlits-
menn hafa notað bandaríska U-2
njósnavél til að leita að bönnuð-
um vopnum í Írak. Fyrsta slíka
flugið átti sér stað á mánudag.
Írakar höfðu þá samþykkt slíkt
flug eftir að hafa hafnað því í
fyrstu.
FÁUM STUÐNING ÞEGAR ÞAR AÐ
KEMUR Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands,
segist gera ráð
fyrir því að al-
menningsálit í
Bretlandi muni
snúast til fylgis
við hernaðarað-
gerðir í Írak þeg-
ar og ef þær hefj-
ast. Samkvæmt nýrri könnun The
Guardian eru 52% Breta andvíg
stríði.
BREIKKANDI GJÁ Talið er að
harkalegar skammir Jacques
Chiracs Frakklandsforseta í garð
þeirra austur-evrópskra ríkja
sem lýstu yfir stuðningi við
stefnu Bandaríkjanna kunni að
verða til þess að ala á óeiningu í
Evrópu. Chirac sagði þjóðirnar
stefna möguleikum sínum á aðild
að Evrópusambandinu í hættu.
BIL BEGGJA? Leiðtogar Evrópu-
sambandsríkja lýstu stuðningi
við kröfu Breta og Bandaríkja-
manna um að Írakar yrðu afvopn-
aðir en tóku einnig undir tilraun-
ir Frakka og Þjóðverja til að gera
það án stríðsátaka. Írakar voru
sagðir fá eitt síðasta tækifæri til
að verða við kröfum Sameinuðu
þjóðanna. Leiðtogar ríkja sem
stefna á aðild á næstu árum tóku
undir.
KREFJAST 800 MILLJARÐA Í
STUÐNING Tyrkir vilja fá allt að
800 milljarða króna í stuðning
frá Bandaríkjamönnum og upp
undir tvöfalda þá upphæð í lang-
tímalán gegn því að heimila
Bandaríkjaher afnot af landinu
vegna innrásar í Írak. Þetta er
tvöfalt hærri upphæð en þeir
höfðu áður krafist. Féð á að
bæta kostnað sem hlýst af stríð-
inu og fyrirsjáanlegum fólks-
flótta frá Írak.
MÓTMÆLI BREYTA ENGU George
W. Bush Banda-
ríkjaforseti segist
ekki breyta af-
stöðu sinni þrátt
fyrir fjölmenn
mótmæli gegn
innrás í Írak. „Ég
er, virðingarfyllst,
ósammála.“
VOPN FYRIR 400 MILLJARÐA
Rússar fluttu út vopn fyrir and-
virði um tæpra 400 milljarða
króna á síðasta ári. Þeir seldu
vopn til 76 landa og juku hlut-
deild sína á vopnamarkaði í suð-
austur-Asíu, Afríku og rómönsku
Ameríku.
FÓTBOLTAMEIÐSL FORSÆTISRÁÐ-
HERRA Annar
fótur Zoran
Djindjic, for-
sætisráðherra
Serbíu, var í
gifsi þegar
hinn fimmtugi
forsætisráð-
herra mætti til
vinnu eftir helgina. Hann slasað-
ist þegar hann var að leika sér í
fótbolta.
EVRÓPA
ÍRAKSDEILAN
Þingkonur Sjálfstæðisflokks vilja kortleggja vegamál höfuðborgarinnar:
Vilja skýrslu um stórframkvæmdir
SAMGÖNGUR Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir og þrjár aðrar
þingkonur Sjálfstæðisflokksins
vilja að samgönguráðherra geri
úttekt á jarðgangakostum, mögu-
legum brúarmannvirkjum og öðr-
um stórframkvæmdum sem ráð-
ast þarf í á næstu árum í vegagerð
á höfuðborgarsvæðinu. Úttektin
feli jafnframt í sér kostnaðar- og
arðsemismat á framangreindum
framkvæmdum. Í greinargerð
með þingsályktunartillögu þessa
efnis segir að megintilgangurinn
sé að stuðla að því að ráðist verði
í vinnu sem nauðsynleg er til að
unnt sé að öðlast heildaryfirsýn
yfir nauðsynlegar stórfram-
kvæmdir í vegagerð á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu árum og ára-
tugum.
Mikilvægi greiðra samgangna
á þessu svæði sé öllum ljóst. Lagt
er til að ráðherra, í samráði við
sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu, geri tillögu að forgangsröðun
þessara verkefna. Úttektin ásamt
tillögu um forgangsröðun verk-
efna verði lögð fyrir Alþingi í síð-
asta lagi 1. nóvember 2003. ■
ÞORGERÐUR KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
Leggur til að jarðgöng, brýr og aðrar stór-
framkvæmdir í vegamálum á höfuðborgar-
svæðinu verði kortlagðar.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/B
ILLI
Orkuveitan:
Flýta fram-
kvæmdum
AÐGERÐIR Framkvæmdum hjá
Orkuveitu Reykjavíkur fyrir á
annan milljarð króna verður flýtt
svo þær fari fram á þessu ári og
því næsta í stað áranna 2005 og
2006. Með því er hægt að auka eft-
irspurn eftir vinnuafli og sporna
þannig gegn vaxandi atvinnuleysi.
Stærstu verkefnin sem má flýta
eru vinna við vatnsból, lághitabor-
holur og fleira fyrir um hálfan
milljarð króna, vinna við dreifi-
kerfi fyrir 200-400 milljónir og
framkvæmdir á Nesjavöllum fyrir
um 220 til 250 milljónir. Heildar-
upphæðin getur numið 1,2 til 1,7
milljörðum. ■