Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 8
8 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Lyfjafyrirtæki ásakað:
Hefur not-
fært sér ótta
almennings
PEKING, AP Kínversk yfirvöld
rannsaka nú hvort alþjóðlega
lyfjafyrirtækið Roche hafi not-
fært sér þá skelfingu sem greip
um sig meðal almennings í suð-
urhluta Kína þegar dularfullur
sjúkdómur breiddist þar út fyr-
ir skemmstu. Talið er að fyrir-
tækið hafi reynt að hafa fólkið
að féþúfu með því að auglýsa lyf
sín á óviðeigandi og villandi
hátt.
Samkvæmt kínversku dag-
blaði þóttust talsmenn Roche
vita um hvaða sjúkdóm væri að
ræða og auglýstu lyf gegn hon-
um en að sögn heilbrigðisyfir-
valda er lyfið sem auglýst var
ekki ætlað sérstaklega til lækn-
inga á umræddum sjúkdómi. ■
ÓTTASLEGINN ALMENNINGUR
Óþekkt lungnabólguveira sem breiddist út í suðurhluta Kína olli mikilli skelfingu meðal al-
mennings. Brugðust margir við með því að birgja sig upp af lyfjum og sóttvarnargrímum.
GJALDÞROT Skiptafundur í þrotabúi
Frjálsrar fjölmiðlunar hf. verður
haldinn á föstudaginn. Sigurður
Gizurarson skiptastjóri segir að þá
muni hann taka afstöðu til fram-
lagðra krafna.
„Ég mun gera það eftir því sem
ég get, en þetta er ansi flókið og
mikið,“ segir Sigurður. „Það er búið
að vinna heilmikið í þessu, en hver
stór krafa er í rauninni sjálfstætt
mál ef hún er eitthvað umdeild.“
Alls bárust um 190 kröfur í
þrotabúið og námu þær 2,1 millj-
arði króna. Sigurður segir að þessi
upphæð geti enn átt eftir að breyt-
ast vegna riftunar á samningum.
Hann segir að búið sé að gera upp
forgangskröfurnar sem tengist
launagreiðslum og launatengdum
gjöldum. Þær námu um 60 til 70
milljónum króna.
Að kröfu Sparisjóðs Hafnar-
fjarðar var gert fjárnám í Frjálsri
fjölmiðlun þann 26. nóvember árið
2001. Það bar engan árangur og
lagði Sparisjóðurinn þá fram gjald-
þrotabeiðni 4. desember. ■
FRJÁLS FJÖLMIÐLUN
Alls bárust um 190 kröfur í þrotabú Frjálsr-
ar fjölmiðlunar, fyrrum eiganda DV, og
námu þær 2,1 milljarði króna.
Tveggja milljarða gjaldþrot Frjálsrar fjölmiðlunar:
Skiptafundur
á föstudaginn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Flóð og frosthörkur:
Flóðbylgja
þegar ísstífl-
ur brustu
NÝFUNDNALAND, AP Yfirvöld á Ný-
fundnalandi lýstu yfir neyðar-
ástandi í þorpinu Badger og fluttu
íbúa þess á brott í kjölfar mikilla
flóða í þremur ám sem renna í
gegnum bæinn. Frosthörkur að
undanförnu höfðu valdið því að
ísklumpar mynduðust í ánum og
stífluðu þær. Þegar stíflurnar
brustu kom skyndileg flóðbylgja
og árnar flæddu yfir bakka sína
með þeim afleiðingum að ófremd-
arástand skapaðist í bænum. Bílar
fóru sums staðar alveg á kaf og
vatnsborðið náði víða upp að
gluggum á íbúðarhúsum bæjar-
ins.
Yfirvöld óttast að fleiri stíflur
af þessu tagi eigi eftir að bresta
og valda enn frekara tjóni. ■
Á KÖLDUM KLAKA
Íbúar bæjarins Badger á Nýfundnalandi
þurftu að yfirgefa heimili sín þegar þrjár ár
flæddu yfir bakka sína og ógnuðu heimil-
um þeirra.
FLUGMÁLASTJÓRN Á LOKA-
SPRETTI Stjórnsýsluúttekt Ríkis-
endurskoðunar á Flugmálastjórn
mun nú vera á lokasprettinum og
von á skýrslu um málið innan
hálfs mánaðar samkvæmt upplýs-
ingum frá Ríkisendurskoðun. ■
STJÓRNSÝSLA
ALLSGÁÐUR FLUTNINGUR
Slík tónlist er ekki fyrir kokk-
teilpartý heldur tónleika.
Vernharður Linnet um flutning djass-
standarda. Morgunblaðið, 18. febrúar.
SKRÁ SKALTU ÓVINI ÞÍNA
Þennan „óvin“ á að nota sem
átyllu til að skrá lyfjasögu allrar
þjóðarinnar og hafa hana per-
sónugreinanlega fyrir þrjár opin-
berar stofnanir.
Tómas Helgason prófessor um lyfja-
gagnagrunn. Morgunblaðið, 18. febrúar.
KEFLAVÍKURGÖNGUVEIKIN
TEKUR SIG UPP
Fróðlegt væri að vita, hvort
Mogginn skáldar erlendar fréttir
sínar frá grunni eða hvort frétta-
stofa einhvers pólitísks sértrúar-
safnaðar í útlöndum er að baki.
Jónas Kristjánsson segir Morgunblaðið
nota lægri tölur um fjölda mótmælenda
gegn stríði í Írak en blöð annars staðar.
Jonas.is, 18. febrúar.
ORÐRÉTT
Gróðurhúsaáhrif:
Koltvíoxíð
grafið í jörðu
SYDNEY, AP Hópur ástralskra vís-
indamanna rannsakar nú hvort
hugsanlegt sé að vinna gegn gróður-
húsaáhrifum í heiminum með því að
grafa koltvíoxíð í jörðu. Koltvíoxíð
er meðal þeirra lofttegunda sem
fara út í andrúmsloftið við bruna
jarðefnaeldsneytis og geta stuðlað
að gróðurhúsaáhrifum. Vísinda-
mennirnir segja að í Ástralíu sé
nægilegt rými neðanjarðar til þess
að grafa umframframleiðslu koltví-
oxíðs í landinu næstu 2.000 árin.
Enn á þó eftir að ganga úr skugga
um hvort þessi aðferð sé örugg og
hagkvæm en niðurstaðna er að
vænta eftir þrjú til fimm ár. ■
GRÆNMETI Meðalverð á grænmeti
hefur lækkað á Íslandi í kjölfar af-
náms tolla á tómötum, agúrkum og
papriku. Nokkuð algengt er að ein-
staka vörur hafi lækkað um 30 til
50%, en innfluttar agúrkur hafa
lækkað mest eða um 61%, sam-
kvæmt könnun Samkeppnisstofn-
unar.
Helgi Jóhannesson, formaður
Sambands garðyrkjubænda, segir
að það merkilega við þessa niður-
stöðu sé að verð á flestum græn-
metistegundum hafi lækkað, ekki
aðeins þeim þremur þar sem tollar
hafi verið afnumdir.
„Bændur voru að fá svipað verð
fyrir kílóið af tómötum og agúrk-
um í fyrra miðað við árið 2001, en
heldur minna fyrir papriku,“ segir
Helgi. „Framleiðsla á tómötum og
agúrkum hefur aukist, en aftur á
móti hafa nokkrir paprikubændur
þurft að hætta vegna þess að þeir
fá lægra verð en áður.“
Fyrir tveimur árum komust
samkeppnisyfirvöld að þeirri nið-
urstöðu að fyrirtæki á grænmetis-
markaði hefðu haft með sér ólög-
mætt samráð. Í kjölfarið voru toll-
ar á tegundunum þremur aflagðir
og 195 milljónum króna varið í
beingreiðslur til innlendra fram-
leiðenda þessara tegunda til að
jafna samkeppnisskilyrði þeirra
við útlönd. Samkeppnisstofnun tel-
ur að afnám tolla hafi haft tilætluð
áhrif og jafnframt örvað sam-
keppni á ávaxtamarkaði.
Helgi segir að þessi aðgerð rík-
isstjórnarinnar hafi haft góð áhrif
og neysla á grænmeti hafi aukist.
Hann segir að grænmetisbændur
séu samt algjörlega háðir niður-
greiðslunni frá ríkinu. Ellegar
stæðist innlenda framleiðslan ekki
samkeppnina við þá innfluttu, sem
væri oft niðurgreidd.
Þó könnunin sýni að verð hafi
almennt lækkað á einu ári hafa
einstaka vörur hækkað í verði. Ber
þar helst að nefna skalottulauk,
sem hefur hækkað um 129% að
meðaltali og kostar kílóið nú um
705 krónur. Í einni versluninni sem
könnunin náði til kostaði kílóið
1.192 krónur, en lægsta verðið var
199 krónur. Perlulaukur hefur
einnig hækkað mikið eða um 51%.
Munurinn á hæsta og lægsta verði
perlulauks, sem hækkaði um 51%
að meðaltali, var enn meiri. Hæsta
verðið var 1.405 krónur kílóið, en
lægsta verðið var 169 krónur.
trausti@frettabladid.is
VERÐÞRÓUN Á GRÆNMETI
Meðalverð Meðalverð
febrúar 2002 febrúar 2003 Verðaukning
Skalottulaukur 308 705 129%
Perlulaukur 381 575 51%
Vorlaukur 862 1.169 36%
Gulrætur 1) 336 383 14%
Steinselja 151 168 11%
Gulrófur 124 135 9%
Bláber 2.618 2.693 3%
Ananas 406 416 2%
Agúrkur 2) 419 162 -61%
Agúrkur 1) 511 250 -51%
Rauðlaukur 206 105 -49%
Blómkál 492 267 -46%
Græn paprika 457 263 -42%
Blaðlaukur 306 178 -42%
Sellerí 412 220 -42%
Melóna 221 130 -41%
Spergilkál 548 354 -35%
Tómatar 2) 286 191 -33%
Miðast við kílóverð í krónum nema stenseljan miðast við verð á 1 poka.
1) Íslensk framleiðsla 2) Innflutt vara Heimild: Samkeppnisstofnun
GRÆNMETI ALMENNT LÆKKAÐ
Fyrir tveimur árum komust samkeppnisyfir-
völd að þeirri niðurstöðu að fyrirtæki á
grænmetismarkaði hefðu haft með sér
ólögmætt samráð. Í kjölfarið voru tollar á
tómötum, agúrkum og papriku aflagðir.
Innfluttar agúrkur
lækka um 61%
Afnám tolla á þrjár tegundir grænmetis hefur víðtæk áhrif.
Grænmetisbændur eru eftir sem áður mjög háðir niðurgreiðslu
frá ríkinu. Skalottulaukur hefur hækkað um 129% í verði.
MIKIÐ ÚRVAL
HAGSTÆTT VERÐ
LOFTPRESSUR
TILBOÐ
SDAGA
R
Vandaðar heimilis- & gjafavörur
Kringlan 4-12 • s. 533 1322
Skurðbretti
úr gleri
– þrír litir
kr. 990