Fréttablaðið - 19.02.2003, Síða 9
9MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003
VIÐSKIPTI
AUGNMÆLINGAR Sjóntækjafræðing-
ar áttu fund með heilbrigðisráð-
herra fyrir helgi um þá kröfu
þeirra að fá að mæla sjón fyrir
gleraugum, að sögn Kristins
Kristinssonar, stjórnarmanns í
Félagi sjóntækjafræðinga.
Fundur þeirra var vinsamlegur
og óskaði heilbrigðisráðherra eftir
að fá svigrúm til að ræða við land-
lækni um málið. Kristinn segir þó
nokkuð að gera hjá sjóntækja-
fræðingum en þeir séu í raun og
veru að gera það sem þeir alltaf
hafi gert. Eini munurinn sé að þeir
hafi tilkynnt það nú. „Þjónustan
hjá okkur kostar á bilinu 1.500-
2.000 krónur en ég veit ekki hvað
augnlæknar taka fyrir að mæla
sjón en skilst að það sé að lágmarki
3.000 krónur. Í þessu felst sparnað-
ur bæði fyrir viðskiptavininn og
þjóðfélagið því augnlæknar fá gre-
itt til baka frá Tryggingastofnun,“
segir Kristinn.
Í vikunni mun að öllum líkind-
um verða rætt að nýju við augn-
lækna en Haukur Valdimarsson
aðstoðarlandlæknir hefur sagt að
embættið muni ekki líða það að
brotin séu lög. „Það þýðir ekki að
breytingar gætu ekki orðið á lög-
unum en ég reikna með að frá
landlækni komi tillaga þar um.
Það er hins vegar í hendi ráðherra
að ákveða það. Ef svo verður þarf
að vanda til þeirrar vinnu og
leggja verður lagabreytingar fyr-
ir þing,“ segir Haukur Valdimars-
son. ■
KOSTAR MINNA
Sparnaður felst í því bæði fyrir þjóðfélagið og viðskiptavini að fara beint til gleraugnasal-
ans og láta mæla sjónina þar.
Sjóntækjafræðingar halda áfram að mæla:
Kostar minna en hjá augnlækni
BYGGINGARLIST Um 40 tillögur hafa
verið lagðar fram í samkeppni
Ríkiskaupa um hönnun nýs sendi-
herrabústaðar í Berlín.
Frestur til að skila inn tillögum
rann út í fyrradag en í gær var þó
enn von á einhverjum tillögum í
hraðpósti samkvæmt upplýsing-
um frá Ríkiskaupum. Opna á til-
lögurnar í dag. Reiknað er með að
niðurstaða dómnefndar liggi fyrir
í næsta mánuði.
Í samkeppnislýsingunni kemur
meðal annars fram að húsið eigi
ekki aðeins að vera heimili sendi-
herra Íslands heldur eigi það
einnig að vera móttökustaður fyr-
ir gesti. Lóðin, sem er 2.600 fer-
metrar og liggur að litlu stöðu-
vatni, er „í góðu hverfi“ eins og
stendur í lýsingunni. Húsið á að
hámarki að vera 640 fermetrar og
13 metrar á hæð. Hverfið er hefð-
bundið einbýlishúsahverfi.
Keppendur í hönnunarsam-
keppninni eiga að skila inn kostn-
aðarmati sem miðast við bygging-
arkostnað á Íslandi. Heildarkostn-
aður má ekki fara yfir 250 þúsund
krónur á fermetra. Þannig ætti
hámarkskostnaður vegna bygg-
ingar bústaðarins að nema um 160
milljónum króna. ■
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
Mikil þátttaka í keppni um sendiherrabústað í Berlín:
Fjörutíu vilja teikna
sendiherrabústað
TRABENERSTRASSE 68
Lóðin sem ríkissjóður hefur keypt í Gru-
newald Berlin-einbýlishúsahverfinu er 35
metrar á breidd og 74 metrar á lengd.
TAP Í SVÍÞJÓÐ Tap JP Nordiska,
sem er í eigu Kaupþings, var 43,1
milljón sænskra króna eftir
skatt, sem samsvarar tæplega
400 milljónum íslenskra króna.
BANKARÁÐ LANDSBANKA Banka-
ráð Landsbanka Íslands hefur á
fyrsta fundi sínum ákveðið skipt-
ingu starfa. Björgólfur Guð-
mundsson er formaður bankaráðs
og Kjartan Gunnarsson varafor-
maður bankaráðs. Þorgeir Bald-
ursson, Einar Benediktsson og
Andri Sveinsson eru meðstjórn-
endur. ■
Hraðakstur:
Háttsettir
ökuþórar
DANMÖRK Ráðherrar í dönsku ríkis-
stjórninni virða ekki lög um há-
markshraða þegar þeir aka um á
embættisbílum sínum. Þetta er nið-
urstaða könnunar sem fréttastofa
sjónvarpsstöðvarinnar TV2 lét
gera á aksturslagi ráðherranna.
Sjónvarpstöðin hefur við ólík tæki-
færi fylgt eftir mismunandi ráð-
herrum og myndað ökuferðir
þeirra. Upptökurnar sýna að ráð-
herrarnir óku umtalsvert hraðar
en lög gera ráð fyrir og var hraði
þeirra á bilinu 30 til 40 kílómetrar
yfir löggiltum hámarkshraða. Við-
skipta- og atvinnumálaráðherrann
Bendt Bendtsen átti metið en hann
ók 41% hraðar en leyfilegt er á sín-
um silfraða BMW. ■
MANNSKÆÐUR FELLIBYLUR
Hvirfilbylur fór yfir tvö þorp á
vestanverðu Indlandi með þeim
afleiðingum að að minnsta kosti
sjö létust og 60 slösuðust. Yfir 34
hús voru jöfnuð við jörðu á einu
augnabliki í öðru þorpinu og 24
hús hrundu í hinu. Á þriðja tug
manna er enn saknað.
JAPANSKEISARI RISINN ÚR
REKKJU Akihito Japanskeisari
hefur snúið aftur til starfa eftir
mánaðarlangt veikindafrí en
hann var skorinn upp við krabba-
meini í blöðruhálskirtli 18. janúar
síðastliðinn. Gekk aðgerðin vel
og er búist við því að keisarinn
nái sér að fullu.
ASÍA