Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 10
10 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Í tilefni þess að Fréttablaðið birt-ir í dag niðurstöður skoðana-
könnunar um til hvaða stjórnmála-
manna fólk ber
mest traust – og
reyndar líka hverj-
um fólk treystir
síst – vil ég skrifa
aðeins um hlut
persóna í pólitík.
Sú skoðun er nú
orðin æði vinsæl
að hlutur persóna –
og þá einkum til-
tekinna tveggja
persóna – sé orðinn
helst til stór. Það
heyrist líka æði oft
að hyggilegra sé að taka afstöðu út
frá málefnum fremur en mönnum.
Að vissu leyti er það rétt – en að
vissu leyti er það rangt. Gott
málefni er einskis virði ef þeir
sem halda því fram eru ekki
menn til að koma því í fram-
kvæmd. Á sama hátt getur at-
orkusamur maður með vondan
málstað verið stórhættulegur.
En það er skárra að hafa atorku-
samt fólk við stjórnvölinn þótt
það haldi sjaldnast réttri stefnu
en fólk sem kemur aldrei neinu
af sínum góðum hugmyndum í
framkvæmd. Hinn atorkusami
getur rétt kúrsinn á leiðinni og
þótt hann komist kannski ekki í
mark á endanum þá kemst hann
nærri því. Hinn situr eftir og á
endanum skiptir engu hversu
góðar hugmyndir hann hafði.
Það hefði engu breytt þótt þær
hefðu verið verri.
Það vill oft gleymast að samfé-
lag okkar er samansett úr einstak-
lingum. Án þeirra er samfélagið
ekkert. Og það gerist ekkert í
þessu samfélagi nema fyrir til-
verknað einstaklinga. Við getum
smíðað okkur menningarstefnu
fyrir ríkisvaldið en hún skiptir í
raun engu máli. Það er fólk eins og
Guðbergur, Björk og Baltasar sem
búa til íslenska menningu – einnig
Birgitta Haukdal, Sverrir Storm-
sker og Svavar tískulögga. Og svo
allt fólkið sem les, horfir og hlust-
ar; notar menninguna. Sama á við
um öll önnur svið samfélagsins.
Atvinnustefna stjórnvalda er
aukaatriði. Aðalatriðið er að okkur
takist að fóstra dugmikla fram-
kvæmdamenn sem leita tækifæra
og nýta þau. Skólakerfið er dautt
þar til kennarar taka áskorun
starfsins og reyna í einlægni að
hafa áhrif til að nemendur þeirra
þroskist til almennilegrar
mennsku. Maturinn er meira að
segja vondur þar til einhver gefur
af sér við eldamennskuna.
Af sömu ástæðu er pólitík án
persóna bæði óhugsandi og óæski-
leg. Við þörfnumst þess að ein-
hverjir taki það að sér að holdgera
stjórnmálahugmyndir í áræðni
sinni, kjarki og skynsemi. Það er
ekki fyrr en hugmynd fær að
dafna í manneskju að hún verður
einhvers virði. ■
Atvinnustefna
stjórnvalda er
aukaatriði.
Aðalatriðið er
að okkur takist
að fóstra dug-
mikla fram-
kvæmdamenn
sem leita tæki-
færa og nýta
þau.
Hvers virði er málefni án manna?
skrifar um persónupólitík.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Til leigu/sölu
Til leigu/sölu rúmleg 270m2 gott
atvinnuhúsnæði við Stórhöfða.
Hentar vel til hvers konar reksturs.
Góðar innkeyrsludyr, góð lofthæð.
Upplýsingar í síma 892-4243.
Skelfing var það lágkúruleggrein sem Magnús Stefánsson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
skrifaði í Fréttablaðið nú í vik-
unni. Þingmaðurinn virðist vera í
einhverju taugaveiklunarkasti
vegna lélegs gengis Framsóknar-
flokksins í skoðanakönnunum og
sést raunar ekki fyrir. Magnús
heldur því fram að Ingibjörg Sól-
rún hafi tekið sér það hlutverk að
fylkja liði höfuðborgarbúa gegn
landsbyggðinni. Svo langt gengur
þingmaðurinn að hann heldur því
fram að Ingibjörg Sólrún ætli sér
að breyta þingfundum Alþingis í
hreppsnefndarfundi fyrir Reykja-
vík. Nú eru svona ummæli í sjálfu
sér ekki svara verð, þau eru
hlægileg og dæma sig auðvitað
sjálf. Dylgjur þingmannsins kalla
þó á að hann sé upplýstur um
skiptingu á vegafé á undanförn-
um árum.
Þingmenn höfuðborgarsvæðis-
ins hafa gegnum árin haft mikinn
skilning á því að obbinn af vegafé
hafi farið í vegabætur úti á lands-
byggðinni – og oft hlotið bágt fyr-
ir frá sínum kjósendum á höfuð-
borgarsvæðinu. Á árunum 1999-
2002 hafa þannig einungis um 4
milljarðar af 24 milljarða fjár-
veitingu (á verðlagi 2003) til ný-
framkvæmda runnið til höfuð-
borgarsvæðisins eða um 17%.
Þetta ber líka að skoða í ljósi þess
að umferðarþunginn hefur farið
stöðugt vaxandi í Reykjavík og á
höfuðborgarsvæðinu er síaukin
slysahætta, enda annar gatna-
kerfið engan veginn umferðar-
þunganum á helstu álagstímum.
Við sem höfum gagnrýnt hve
lítið kemur í hlut höfuðborgar-
svæðisins af þeim 6,3 milljörðum
sem nú á að verja til atvinnuskap-
andi aðgerða höfum gegnum ár og
áratugi haft mjög mikinn skilning
á vegaframkvæmdum á lands-
byggðinni. Nú ætlumst við líka til
þess að sá skilningur sé gagn-
kvæmur og að við fáum fjármagn
til þess að mæta vaxandi slysa-
hættu og umferðarþunga á vega-
kerfinu á höfuðborgsvæðinu, ekki
síst í Reykjavík. Af 6,3 milljörð-
um króna ætlar ríkisstjórnin ein-
ungis að verja einum milljarði á
höfuðborgarsvæðið, þó 64% at-
vinnulausra á landinu öllu séu á
þessu svæði. Auk þess gagnast
vegaframkvæmdir lítið til að
draga úr atvinnuleysi kvenna, en
liðlega helmingur atvinnulausra
eru konur. Þar fyrir utan er að
koma í ljós að einungis á að verja
400 milljónum af þessum 1 millj-
arði til vegaframkvæmda í
Reykjavík.
Þetta er auðvitað óviðunandi –
ekki síst í ljósi þess að þungi
framkvæmda á næstu árum
verður í stóriðjuverkefnum á
landsbyggðinni. Samfylkingin
berst fyrir hagsmunum lands-
manna allra og við tökum ekki
þátt í þeim ljóta leik að reyna að
búa til gjá milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar,
eins og Magnús reynir í sinni
grein. Við viljum að hér búi ein
þjóð í einu landi.
Kannski ættu Magnús og fé-
lagar í Framsóknarflokknum að
íhuga hvers vegna fylgið er að
hverfa í Reykjavík. Það skyldi þó
ekki vera fyrir svona sjónarmið,
sem Magnús setur fram í grein
sinni og endurspegla algjört
skilningsleysi á málefnum höfuð-
borgarinnar. Magnús gæti skrif-
að formann sinn út af þingi með
þessu áframhaldi. ■
SAMEINAST Í SORGINNI
Aðstandendur þeirra sem létust á nætur-
klúbbnum voru harmi slegnir er þeir
mættu á blaðamannafund vegna málsins
en lýsingar gestanna á því hvernig fólkið
barðist fyrir lífi sínu í mannþrönginni inni á
klúbbnum voru afar átakanlegar.
Næturklúbbur í Chicago:
Öryggismál
í ólestri
CHICAGO, AP Öryggismálum var
stórlega ábótavant á nætur-
klúbbnum E2 í Chicago þar sem
21 maður lést og 57 slösuðust þeg-
ar öngþveiti myndaðist inni á
staðnum og gestirnir ruddust að
útgöngudyrum.
Eiganda klúbbsins hafði þegar
í júlí á síðasta ári verið afhentur
dómsúrskurður þess efnis að loka
bæri skemmtistaðnum tafarlaust
vegna brota á öryggisreglum en
meðal þess sem gerð var athuga-
semd við var skortur á útgöngu-
leiðum. Þegar slysið átti sér stað
voru um 500 manns á nætur-
klúbbnum og þyrptust allir að
sama útgangi.
Borgaryfirvöld hafa lýst því
yfir að höfðað verði mál á hendur
eigandanum en þar sem ýmis at-
riði eru enn óljós varðandi dóms-
úrskurðinn er ekki á hreinu hvort
hægt verður að draga hann til
ábyrgðar. ■
Gullhringur:
Síbrota-
menn
dæmdir
DÓMSMÁL Tveir síbrotamenn hafa
verið fundnir sekir um viðskipti
með stolinn gullhring með græn-
um steini.
Þeim mannanna sem keypti
hringinn af hinum var ekki gerð
sérstök refsing. Hann hefur hlotið
27 refsidóma frá árinu 1974. Sá
sem seldi honum hringinn fékk 60
daga skilorðsbundið fangelsi.
Hann hefur hlotið tíu refsidóma
frá árinu 1981.
Hringnum hafði þriðji maður-
inn stolið í innbroti í gullsmíða-
verkstæði í október 2001. Þegar
viðskipti fyrrgreindu mannanna
tveggja fóru fram var enn 39 þús-
und króna verðmiði á hringnum.
Hann var seldur á 10 þúsund. ■
alþingismaður svarar
skrifum Magnúsar
Stefánssonar.
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
Um daginn
og veginn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AF
LI
Ð
I
Gáðu að þér, Magnús