Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 12
12 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
20-50%
afsláttur
Fyrstir koma, fyrstir fá
Allt á að seljast
BOX Mike Tyson, fyrrverandi
heimsmeistari í þungavigt, hefur
aflýst fyrirhuguðum bardaga við
Clifford Etienne sem átti að fara
fram á laugardag í Memphis. Hann
segist vera með flensu og maga-
kveisu.
Tyson hefur ekki keppt í boxi
síðan hann steinlá fyrir Lennox
Lewis í júní síðastliðnum. Óvíst er
hvort þeir muni mætast í hringn-
um á ný í sumar eins og þeir voru
búnir að ákveða.
„Mér þykir leitt að hafa brugð-
ist aðdáendum mínum um allan
heim,“ sagði Tyson í yfirlýsingu
sem hann sendi frá sér. „Ég er ekki
í mínu besta formi og ég slæst ekki
nema ég sé það. Ég hef legið í
flensu síðustu fimm daga og ég
vona að það sé hægt að finna nýja
dagsetningu fyrir bardagann.“
Síðustu daga hafa borist fréttir
þess efnis að ekki væri allt með
felldu í herbúðum Tyson. Hann
missti meðal annars af flugi frá
Las Vegas til Memphis á mánudag.
Jeff Fenech, náinn vinur hans og
þjálfari, flaug til sín heima fyrir
skömmu þar sem Tyson hafði ekki
látið sjá sig á æfingum í síðustu
viku. ■
MIKE TYSON
Óvíst er hvort hann mætir Lennox Lewis í
hringnum í sumar eins og áætlanir gerðu
ráð fyrir.
Mike Tyson:
Aflýsir bardaga vegna
flensu og magakveisu
Fram Reykjavíkurmeistari:
Sigur eftir víta-
spyrnukeppni
FÓTBOLTI Fram varð Reykjavík-
urmeistari í knattspyrnu karla á
mánudag þegar liðið lagði Fylki
að velli, 7-6, eftir vítaspyrnu-
keppni.
Jón B. Hermannsson kom Fylki
yfir rétt fyrir leikhlé. Kristján
Brooks náði að jafna en þar við
sat og þurfti að framlengja. Hvor-
ugu liðinu tókst að skora í fram-
lengingunni og því þurfti að grípa
til vítaspyrnukeppni.
Framarar höfðu betur í víta-
spyrnukeppninni, skoruðu úr sex
spyrnum gegn fimm spyrnum
Fylkismanna.
Fram varð síðast Reykjavíkur-
meistari árið 1998. ■
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, segir að at-
vikið í búningsklefa liðsins á
laugardag hafi verið „furðulegt
slys“. Atvikið átti sér stað eftir 2-
0 tap Manchester United gegn
Arsenal í ensku bikarkeppninni.
Ferguson kom æfur inn í búnings-
klefann og sparkaði í fótboltaskó
sem lenti í andliti David Beck-
ham. Suma þurfti tvö spor í auga-
brún enska landsliðsfyrirliðans.
„Svona atvik geta átt sér stað í
búningsklefanum,“ sagði Fergu-
son. „Þetta var furðulegt slys sem
mun ekki endurtaka sig.“
Ekki er talið að Ferguson hafi
ætlað sér að meiða Beckham þeg-
ar hann lét skapið hlaupa með sig
í gönur.
Talsmaður United vildi ekki
tjá sig um atvikið á laugardag.
„Það sem gerist í búningsklefan-
um er einkamál.“ ■
SKAPBRÁÐUR
Alex Ferguson er afar skapbráður maður. Hann var þó búinn að róa sig þegar hann fylgd-
ist með leik Parma og Juventus. Manchester United mætir síðarnefnda liðinu í Meistara-
deild Evrópu í kvöld.
Alex Ferguson um
skóatvikið:
„Furðu-
legt slys“
FIRMAKEPPNI
FH!
Firmakeppni FH í innanhússfótbolta
hefst laugardaginn 22. febrúar.
Riðlakeppni hefst klukkan 12.00
og er áætlaður tími á hvern riðil 120 mínútur.
Keppt er í 8 fimm liða riðlum
og stendur hver leikur yfir í 10 mínútur.
Fjórir leikmenn spila í hverju liði, enginn markvörður.
Riðlakeppni lýkur milli kl. 20.00 og 20.30.
16 liða úrslit hefjast í kjölfarið.
Verð kr. 15.000
Fyrirtæki og aðrir hópar eru hvött til að skrá sig
og sýna hvað í þeim býr á knattspyrnuvellinum.
Skráningu lýkur á fimmtudagskvöld.
Nánari upplýsingar í símum 824 2670, 891 8181 og 849 2077.
15.00 Stöð 2
Mörkin úr síðustu umferð spæn-
sku úrvalsdeildarinnar verða sýnd.
18.00 Sýn
Greint verður frá helstu sportvið-
burðum í Sportinu með Olís.
19.30 Sýn
Manchester United fær Juventus
í heimsókn í D-riðli Meistaradeild-
ar Evrópu. United er efst í riðlin-
um en Juve í öðru sæti. Bein út-
sending.
21.40 Sýn
Real Madrid og Dortmund eigast
við í Meistaradeild Evrópu. Madr-
ídarliðið ætlar sér sigur enda að-
eins hlotið eitt stig í C-riðli.
22.25 RÚV
Sýnt verður úr leikjum Íslands-
mótsins í handbolta í Handbolta-
kvöldi.
23.30 Sýn
Greint verður frá helstu sportvið-
burðum í Sportinu með Olís.
20.00 Njarðvík
Njarðvík og Haukar mætast í 1.
deild kvenna í körfu.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
FÓTBOLTI Manchester United og
Juventus hafa mæst sex sinnum í
Meistaradeildinni til þessa. Síð-
ustu viðureignir liðanna voru í
undanúrslitum árið 1999 og lauk
þeim með samanlögðum 4:3 sigri
United. United kláraði síðan
dæmið og hampaði titlinum eftir
æsilegan úrslitaleik gegn Bayern
München.
Juventus á því harma að hefna
á Old Trafford í kvöld. Liðið, sem
vann Basel með fjórum mörkum
gegn engu í síðasta leik sínum í
Meistaradeildinni, verður án
markaskorarans Al-
essandro Del Piero,
sem er meiddur.
Sir Alex Fergu-
son, knattspyrnu-
stjóri United, segir
Juventus vera helstu
hindrunina á leið
liðsins í 8 liða úrslit
keppninnar. „Ég veit
að þetta verður erf-
iður leikur. Juventus
er með fjögur stig.
Við erum hins vegar
með sex og höfum
náð frábærri byrjun.
Ef við náum 10 stig-
um fljótlega og
komust áfram í
keppninni skiptir
það öllu máli. Ef við
göngum út af Old
Trafford með níu
stig þá er ég nokkuð viss um að
við komust áfram.“
Óvíst er hvort David Beckham,
sem er með skurð á augabrún eft-
ir viðskipti sín við Ferguson fyrr í
vikunni, geti leikið með United
vegna meiðsla. Argentínumaður-
inn Juan Sebastian Veron
er einnig meiddur og verð-
ur að öllum líkindum ekki
með í kvöld.
Í hinum leik D-riðils eig-
ast við Deportivo frá Spáni
og svissneska liðið Basel,
sem hefur tapað báðum leikjum
sínum í riðlinum til þessa.
Deportivo þarf nauðsynlega á
sigri að halda til að halda sér í
keppninni.
Nífaldir Evrópumeistarar Real
Madrid taka á móti þýska liðinu
Dortmund í C-riðli. Madrid hefur
aðeins náð í eitt stig úr fyrstu
tveimur leikjum sínum í riðlinum
og verður að sigra í kvöld til að
rétta sinn hlut.
AC Milan og Lokomotiv frá
Moskvu mætast í hinum leik rið-
ilsins. Milan hefur leikið mjög vel
í Meistaradeildinni til þessa og er
með fullt hús stiga. Lokomotiv,
sem gerði jafntefli við Real Ma-
drid í síðasta leik sínum í deild-
inni, á því erfiðan leik fyrir hönd-
um á San Siro, heimavelli Milan. ■
Juventus á harma að
hefna gegn United
Fjórir leikir verða háðir í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Stórleikur
umferðarinnar er viðureign Manchester United og Juventus á
Old Trafford í D-riðli. Meistarar Real Madrid stefna á sinn fyrsta
sigur í C-riðli gegn Dortmund.
LEIKIR
KVÖLDSINS
C-riðill:
Real Madrid-Dortmund
AC Milan-Lokomotiv
D-riðill:
Basel-Deportivo
Man.Utd-Juventus
STAÐAN
C-riðill: L S
AC Milan 2 6
Dortmund 2 3
Lokomotiv 2 1
R. Madrid 2 1
D-riðill L S
Man. Utd 2 6
Juventus 2 4
Deportivo 2 1
Basel 2 0
VAN NISTELROOY
Hollendingurinn Ruud van Nistelrooy hefur verið á skotskónum með United á
leiktíðinni. Hann verður í sviðsljósinu á Old Trafford í kvöld.