Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003 KÖRFUBOLTI John Amaechi, leik- maður Utah Jazz í NBA-deildinni í körfubolta, á von á því að Michael Jordan, leikmaður Washington Wizards, ljúki ferli sínum með því að leiða liðið í úrslitakeppnina. Jordan, sem varð fertugur á dögunum, hefur lýst því yfir að hann ætli að hætta keppni eftir þessa leiktíð. „Hann er einn af þessum leik- mönnum sem leika betur þegar líða fer að úrslitakeppninni. Ég er viss um að hann eigi eftir að eflast mikið á næstunni,“ sagði Ama- echi. ■ FRJÁLSAR Maurice Greene, ólymp- íumeistari í 100 metra hlaupi, get- ur ekki tekið þátt í þeim innan- hússmótum sem eftir eru vegna kálfameiðsla. Hann missir þar með af heimsmeistaramótinu inn- anhúss sem fram fer í Birming- ham í næsta mánuði. Greene stefnir að því að vera til í slaginn þegar utanhússmótin hefjast í sumar. Greene gekk ekki sem skyldi á síðasta tímabili. Hann segist þó vera fullur sjálfstrausts og stefn- ir að góðum árangri. ■ MAURICE GREENE Er frá vegna meiðsla en segist verða til í slaginn utanhúss í sumar. Maurice Greene: Greene missir af heimsmeistaramótinu JORDAN Michael Jordan ætlar að hætta í þriðja og síðasta sinn eftir þessa leiktíð. Amaechi, leikmaður Utah Jazz: Jordan mun leiða Wizards

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.