Fréttablaðið - 19.02.2003, Síða 14
FUNDIR
10.00 Opinn umræðufundur um list og
samfélag á hugmyndasmiðju
Óskar Vilhjálmsdóttur á Gallerí
Hlemmi.
12.05 Inga Hrefna Jónsdóttir, yfirsál-
fræðingur á Reykjalundi, flytur er-
indi um „hugræna meðferð við
langvarandi verkjum“ á málstofu
sálfræðiskorar Háskóla Íslands.
Málstofan er haldin í stofu 201 í
Odda, húsi Félagsvísindadeildar.
16.15 Dóra S. Bjarnason, dósent við
Kennaraháskóla Íslands, ræðir um
hvernig skólinn býr fatlaða nem-
endur undir fullorðinsárin í fyrir-
lestri sínum í salnum Skriðu í
Kennaraháskóla Íslands
v/Stakkahlíð sem er öllum opinn.
20.00 Fræðslufundur um fíkniefnamál
fyrir foreldra nemenda í 8. og 9.
bekk Hólabrekkuskóla.
20.00 Auður Ingvarsdóttir sagnfræð-
ingur er með námskeið undir
heitinu Konur í fornöld – ímynd-
ir og hugarflug í fyrirlestrasal
Þjóðarbókhlöðu. Námskeiðið er
á vegum Landsbókasafns Íslands
og Reykjavíkurakademíunnar.
20.00 CCU-samtökin, sem eru samtök
fólks með króníska bólgusjúk-
dóma í meltingarfærum, boða til
aðalfundar og fræðslufundar að
Grand Hótel, Sigtúni 38. Margrét
Hákonardóttir hjúkrunarfræðing-
ur flytur erindi um „slökun við
langvarandi verkjum“.
20.00 Hrygggigtarhópur Gigtarfélags Ís-
lands boðar til aðalfundar í hús-
næði félagsins að Ármúla 5 með
félagsmönnum og öðrum sem
áhuga hafa á málefninu. Árni Jón
Geirsson, sérfræðingur í gigtar-
lækningum, heldur erindi um nýj-
ungar í lyfjameðferð við hrygggigt.
Öllum áhugamönnum um efnið
er heimill aðgangur.
TÓNLEIKAR
12.30 Fyrstu Háskólatónleikar vormiss-
eris verða í Norræna húsinu í dag.
Rúnar Óskarsson leikur á
bassaklarínettu verk eftir Eric
Dolphy, Claudio Ambrosini og
Wayne Siegel.
20.00 Lokatónleikar Myrkra músíkdaga í
Borgarleikhúsinu. Lárus H. Gríms-
son stjórnar Lúðrasveit Reykjavík-
ur, sem flytur verk eftir Pál P. Páls-
son, Elías Davíðsson, Ronald
Binge, Robert W. Smith, Manfred
Scheider og Lárus H. Grímsson.
14 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Höfum fengið til landsins fullan gám af frábæru
7mm smelluparketi. Ekkert lím, ekkert vesen.
Allt verður selt á sama ótrúlega góða verðinu!
ATH: Þetta glæsilega tilboð gildir aðeins í þetta eina skipti!
Stærsti
sýningarsalur
með gólfefnum
á landinu
Eik Rauð eik Beyki
Aðeins kr. 1.190,- pr. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Aðeins k
r. 1.190,- p
r. m2
Einn gámur
eitt verð!
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
2
8
7
.0
0
6
- veisluhöld allt árið
MIÐVIKUDAGUR
19. FEBRÚAR
hvað?
hvar?
hvenær?
TÓNLEIKAR Lúðrasveit Reykjavíkur
varð áttræð síðastliðið sumar.
Hún fær þann heiður að ljúka
Myrkum músíkdögum þetta árið
með tónleikum í Borgarleikhús-
inu í kvöld. Sveitin verður þó ekki
í lúðrasveitarbúningunum sem
allir þekkja svo vel.
„Við erum orðin svo fjölmenn
að það eru ekki til búningar fyrir
alla. Við erum tæplega sextíu og
erum eiginlega hætt að koma
fram í búningum. Enda spilum við
ekkert betur í búningunum,“ segir
Lárus H. Grímsson, sem hefur
verið stjórnandi Lúðrasveitarinn-
ar frá árinu 1998.
Þetta verða heldur engir hefð-
bundnir lúðrasveitarmarsar sem
leiknir verða á sviði Borgarleik-
hússins. „Öll eru þessi verk samt
skrifuð fyrir blásarasveit. Þetta
er líka allt mjög aðgengileg tón-
list.“
Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir þrjá Íslendinga, þá Pál
P. Pálsson, Elías Davíðsson og
Lárus H. Grímsson. Einnig eru
flutt verk eftir Ronald Binge, Ro-
bert W. Smith og Manfred
Schneider.
Eftir stjórnandann, Lárus,
verður flutt tónverkið „Ann ég
dýrust drósa“, sem er balletttón-
list fyrir kvæðamann og blásara-
sveit. Það var fyrst flutt á listahá-
tíð í fyrra, en Lárus hefur aukið
svolítið við verkið.
Steindór Andersen kvæðamað-
ur flytur verkið ásamt Lúðra-
sveitinni. Textinn er unninn upp
úr gömlum vikivökum, sem er
steypt saman þannig að úr verður
lítil saga.
Lárus segir að Steindór eigi
hugsanlega fyrstu stemmuna sem
flutt er í þessu verki. „Hann
raulaði hana fyrir mig í gegnum
síma.“
Þeir Lárus og Steindór eru
jafnaldrar og spiluðu saman í
hljómsveit á unglingsárum.
„Þá var það reyndar þannig að
Steindór samdi lögin en ég fékk
bara að vera með.“
gudsteinn@frettabladid.is
LÁRUS H. GRÍMSSON
Stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur tekur fram að stofnaður hafi verið sérstakur bassa-
trommukór fyrir tónleikana í kvöld.
Áttræð lúðra-
sveit í rokk- og
rímnastuði
Lúðrasveit Reykjavíkur flytur rokksinfóníu,
saxófónkonsert og rímnastemmur á lokatón-
leikum Myrkra músíkdaga í kvöld. Steindór
Andersen kvæðamaður er í lykilhlutverki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M