Fréttablaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003
MOLAR
LEIKSÝNING Nú um helgina gefst
Akureyringum tækifæri til að
sjá leikritið um dularfulla gest-
inn sem segist vera Guð, Gest-
inn eftir Eric-Emmanuel
Schmitt í uppsetningu Þíbilju og
Leikfélags Reykjavíkur. Gunnar
Eyjólfsson og Ingvar Sigurðsson
eru í aðalhlutverkum og verður
leikritið sýnt í Samkomuhúsinu
á Akureyri á laugardag og
sunnudag.
Auk Gunnars og Ingvars leika
þau Jóna Guðrún Jónsdóttir og
Kristján Franklín Magnús í sýn-
ingunni. Leikstjóri er Þór Tulini-
us. Leikmynd og búningar eru
eftir Stíg Steinþórsson. ■
Langvarandi verkir virðastþjóðinni ofarlega í huga þenn-
an miðvikudag undir þorralok.
Svo vill til að tveir fyrirlestrar
verða fluttir um meðferð við
langvarandi verkjum í dag. Yfir-
sálfræðingurinn á Reykjalundi,
Inga Hrefna Jónsdóttir, kemur á
málstofu hjá sálfræðinemum í
Háskóla Íslands í hádeginu til
þess að ræða um hugræna með-
ferð við langvarandi verkjum, en
Margrét Hákonardóttir hjúkrun-
arfræðingur ætlar að ræða um
slökun við langvarandi verkjum á
fundi á Grand hótel í kvöld.
Hannes Hólmsteinn Gissurar-son verður hálfrar aldar í
dag, hvorki meira né minna, og
mun að sjálfsögðu blása til stór-
veislu í tilefni dagsins. Súlnasal-
ur Hótel Sögu mun hýsa gleðina
og veislustjórinn er sjálfur fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, Kjartan Gunnarsson. Kjartan
á það til að bregða á leik og muna
menn til dæmis eftir ágætri
frammistöðu hans í kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar, Myrkra-
höfðingjanum. Hannes Hólm-
steinn mun hafa farið þess á leit
við Kjartan að hann sjái til þess
að ræðuhöldum verði stillt í hóf.
Þó hefur flogið fyrir að foringinn
Davíð Oddsson muni ávarpa sam-
komuna sem og sjónvarpsstjarn-
an og fyrrum lærisveinn og leigj-
andi Hannesar, Gísli Marteinn
Baldursson. Þá munu hjónin Rún-
ar Freyr og Selma Björnsdóttir
stíga á stokk, þó ekki til að flytja
tölu, heldur munu þau láta söng-
inn óma samkomunni til dýrðar.
SAGNFRÆÐI Út úr fornaldarsögum
Norðurlanda má lesa margt um
ímynd kvenna á fyrstu öldum Ís-
landsbyggðar. Þar koma fyrir fög-
ur flögð og svikakvendi, vitrar
fóstrur og prúðar meyjar í trölla-
ham, svo aðeins fátt eitt sé nefnt
af kvenpersónum þessara fornu
sagna.
Auður Ingvarsdóttir sagnfræð-
ingur hefur kynnt sér þetta efni
og ætlar að halda tveggja kvölda
námskeið um það í Þjóðarbókhlöð-
unni í Reykjavík.
„Mér finnst þessar skemmti-
legu sögur hafa verið vanræktar
mikið,“ segir Auður. „Öldum sam-
an voru þær eitt helsta afþreying-
arefni Íslendinga, alveg fram á
20. öld. Þær voru skrifaðar upp
aftur og aftur og rímur voru ortar
út af þeim.“
Auður hefur mikið fengist við
miðaldasagnfræði, en segist þó
ekki vera neinn sérfræðingur um
fornaldarsögurnar. „Þetta byggist
meira á vangaveltum mínum og
hugarflugi um það hvernig fólk
hugsaði um konur á þessum tíma.
En það má lesa margt út úr þess-
um sögum hvað fólk taldi vera
æskilega kosti við konur, jafnvel
þótt það birtist mjög í ýktum
myndum. Þarna má líka sjá hug-
myndir um valkyrjur og skörunga
sem eru með ýmis karlleg ein-
kenni. Svo er ég líka að skoða að-
eins goðafræðina í sambandi við
þetta.“ ■
20.00 Söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir og Signý
Sæmundsdóttir og píanóleikarinn
Aðalheiður Þorsteinsdóttir nefna
sig 4Klassískar. Þær bjóða okkur
upp á léttklassísk og klassísk lög í
Hafnarborg í Hafnarfirði. Tómas
R. Einarsson bassaleikari kryddar
sönginn.
LEIKSÝNINGAR
20.00 Tvöfaldi farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra
sviði Þjóðleikhússins, þýddur og
leikstýrður af Gísla Rúnari Jóns-
syni.
20.00 Rómeó og Júlía eftir William
Shakespeare er sýnd á Litla sviði
Borgarleikhússins í djarfhuga
uppfærslu Vesturports.
SÝNINGAR
Í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3, eru sýnd
verk eftir Finn Arnar Arnarsson, Hlyn
Hallsson og Jessicu Jackson Hutchins.
Opið 13-17.
Nú stendur yfir fyrsti hluti fjölbreyttrar
myndbanda- og gjörningadagskrár í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Í
fyrsta hlutanum, sem nefnist Hátt og
skýrt, eru sýnd níu DVD-verk. Opið 10-
17.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir samsýning
ungra íslenskra og breskra listamanna.
Sýningin ber heitið “then ...hluti 4 -
minni forma“. Opið 10-17.
Anna Líndal hefur komið sér fyrir í nýju
sýningarrými í kjallara Listasafns Ís-
lands með innsetningu og vídeóverk.
Opið 11-17.
Ósk Vilhjálmsdóttir hefur komið upp
hugmyndasmiðju í Gallerí Hlemmi.
Hugmyndasmiðjan er opinn vettvangur
fyrir alla sem vilja ræða og rannsaka
möguleika lífsins í landinu. Opið 14-18.
Aftökur er sameiginleg yfirskrift þriggja
sýninga í Listasafni Akureyrar. Ein þeir-
ra fjallar um útrýmingarherferð Hitlers á
hendur hommum, önnur um aftökuher-
bergi í Bandaríkjunum og sú þriðja um
síðustu máltíðir dauðadæmdra fanga.
GUNNAR EYJÓLFSSON OG INGVAR SIGURÐSSON
Gesturinn var sýndur við miklar vinsældir á Litla sviði Borgarleikhússins á liðnu ári.
Leikhús á faraldsfæti:
Gesturinn til
Akureyrar
Ímynd kvenna í fornaldarsögum Norðurlanda:
Vænar og vitrar,
ódælar og stórlyndar
AUÐUR INGVARSDÓTTIR
Í kvöld verður fyrri hluti námskeiðs hennar um ímyndir kvenna til forna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M