Fréttablaðið - 19.02.2003, Qupperneq 17
17MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 4 m/íslensku tali
8 MILE kl. 6
CHICAGO kl. 5.30, 8 og 10.15
SPY KIDS 2 kl. 4
HARRY POTTER kl. 5THE HOT CHICK kl. 8
Sýnd kl. 4.45, 6.50, 9 og 10.15 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
FRIDA 6, 7.30, 9 og 10.30 bi. 12 ára BANGER SISTERS kl. 5.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
TÓNLIST
Þetta er svolítið undarlegurpakki. Hérna höfum við
stúlku sem útlitslega er blanda af
Rachel úr „Vinum“ og Gwen Stef-
ani úr No Doubt en tónlistarleg
blanda af Alanis Morrisette og
Pink. Hún er kannski markaðs-
sett sem villta hjólabrettastúlkan
frá New York en tónlistarlega séð
á það ekki við. Til þess vantar allt
Sonic Youth.
Ef Avril Lavigne væri persóna
í bandarískri unglingamynd væri
hún sæta lúðastelpan sem fær
uppreisn æru á síðustu 15 mínút-
unum og tekur við titlinum „ung-
frú tíundibekkur“ með bros á vör.
Sem sagt, hana dauðlangar að
verða hluti af því sem hún þykist
hafa andúð á, til dæmis í laginu
„Anything but Ordinary“.
Hún semur lög sín sjálf, er af-
bragðs lagahöfundur og hefur
góða rödd. Henni var gefið tæki-
færi til þess að renna hjólabretti
sínu á meginstraumnum og auð-
heyrt að margir hafa fengið að
hræra í tónum hennar áður en
þeir bárust til eyrna okkar.
Kannski örlítið of mikið fyrir
minn smekk. Það kæmi ekkert á
óvart ef hún færi á hormónaflipp,
heimtaði að gera allt sjálf næst
og skilaði rokkaðri plötu sem
seldist svo miklu minna.
Þetta er ekkert hjólabretta-
rokk, þetta er jafn sandblásið
popp og Írafár. Og sem slíkt er
þetta með því betra sem er í boði.
Birgir Örn Steinarsson
Venjulega hjóla-
brettastúlkan
Jimi Hendrix:
Leifarnar grafn-
ar upp og fluttar
TÓNLIST Jarðneskar leifar tónlistar-
mannsins Jimi Hendrix hafa verið
grafnar upp og endurgrafnar í nýju
marmaragrafhýsi í nýjum kirkju-
garði í Renton sem er rétt fyrir utan
Seattle í Bandaríkjunum.
Hendrix lést árið 1970 og létu að-
standendur hans færa leifar hans
26. nóvember síðastliðinn og flytja á
nýja staðinn. Þetta var gert daginn
fyrir það sem hefði orðið sextíu ára
afmælisdagur hans hefði hann lifað.
Legsteinn gítarhetjunnar var
einnig fluttur inn í grafhýsið sem
er í nývígðum Greenwood Memori-
al kirkjugarðinum.
Yngri bróður Hendrix, Leon,
var ekki sagt frá flutningnum og
hefur hann því heimsótt tóma gröf
í nokkra mánuði. Hann hefur verið
ósáttur við systur þeirra Janie eft-
ir að eigum Hendrix var skipt á
milli aðstandenda. Hann komst
ekki að hinu sanna fyrr en fyrir
tveimur vikum síðan og ákvað þá
að gera málið opinbert.
Leon hefur kært systur sína og
krafist að fá sinn réttmæta hlut af
arfi eftir bróðurinn. Hann notar
líkflutning bróður síns sér til
stuðnings í málinu.
Nýja grafhýsið er rúmlega níu
metra hátt og eru stoðveggirnir
gerðir úr perlugráum granítstein-
um sem móta regnboga yfir hvíld-
arstaðnum. Nú er verið að smíða
bronsstyttu af Hendrix og sól-
klukku úr graníti sem koma á fyrir
undir grafhýsinu. Byggingin verð-
ur tilbúin í apríl.
Faðir Hendrix og stjúpa hans
hafa einnig verið færð í grafhýsið.
Leifar ömmu hans verða svo fluttar
þangað fljótlega. ■
Hróarskelduhátíðin 2003:
Queens of the Stone
Age boðar komu sína
TÓNLIST Árlega fara tugir Íslend-
inga á Hróarskelduhátíðina í
Danmörku, sem er ein af stærstu
tónlistarhátíðum Evrópu. Nú
bætist hver stórsveitin við af
annarri og stefnir allt í glæsilega
hátíð í ár. Rokksveitin Queens of
the Stone Age hefur nú boðað
komu sína á hátíðina.
Rokkið verður greinilega í
brennidepli hátíðarinnar í ár því
þegar höfðu boðað komu sína
Metallica, Iron Maiden, Delgados
og Coldplay.
Eftir slysið árið 2000, þegar
níu manns tróðust undir, var öll
öryggisgæsla bætt til muna. Nú
hefur þannig verið búið um hnút-
ana að ómögulegt er að troðning-
ur geti myndast fyrir framan
sviðin þrátt fyrir gífurlegt fjöl-
menni.
Búast má við fleiri stórum
nöfnum á næstu vikum og mán-
uðum. Vitað er að Björk verður í
tónleikahátíðargírnum í ár en
ekkert hefur verið tilkynnt um
þátttöku hennar enn. Einnig hafa
Radiohead, Nick Cave, The Vines,
White Stripes, Beck, The Hives,
Blur, Deftones og Massive Attack
verið orðuð við hátíðina. ■
LENNON OG YOKO
John Lennon samdi lagið „She Loves You“
í húsinu.
Æskuheimili John
Lennon:
Opnað al-
menningi
TÓNLIST Æskuheimili John Lennon,
fyrrum Bítils, verður opnað al-
menningi í næsta mánuði.
Lennon, sem lést árið 1980,
samdi marga af fyrstu smellum
Bítlanna í húsinu, þar sem hann bjó
ásamt frænku sinni Mimi.
Yoko Ono, ekkja Lennon, keypti
húsið á síðasta ári og gaf það síðan
þjóðarsjóði Bretlands.
„Þegar hús Lennon var til sölu
vildi ég halda í það fyrir fólkið í
Liverpool, John Lennon og aðdá-
endur Bítlanna um heim allan,“
sagði Yoko.
Lennon flutti í húsið þegar hann
var 5 ára og átti þar heima þar til
hann var 23 ára. ■
JIMI HENDRIX
Lést í London árið 1970 og var lík hans flutt á heimaslóðir hans í Seattle. Nú hafa leifar
hans verið færðar í sérstakt grafhýsi.
AVRIL LAVIGNE:
Let Go
QUEENS OF THE STONE AGE
Upplýsingar um Hróarskelduhátíðina í ár
má finna á www.roskilde-festival.dk