Fréttablaðið - 19.02.2003, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2003
FRÉTTIR AF FÓLKI
SNIÐUGUR
Leikstjórinn Stephen Hendry bregður hér á
leik eftir að mynd hans „The Hours“ hlaut
þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Berlín.
Pondus eftir Frode Øverli
Halló, þetta er símsvarinn hjá Jennu,
aftur! Ég verð vant við látin næstu 60 ár,
þar sem ég hef ákveðið að helga líf mitt
baráttunni gegn holdsveiki í Botsvana!
Hæ, Jenna, þetta er Jói! Hvern-
ig líst þér á feitan borgara og
ískalt öl á Skippernum í kvöld?
Halló... þetta er sím-
svari hjá Jennu!
Skildu eftir skilaboð
eftir tóninn ...
Hæ, Jenna!
Þetta er ég,
Jói ...
Birgitta Haukdal:
Hefði komist áfram
án símakosningar
TÓNLIST Eftir rúmlega 15 þúsund
eintaka sölu á fyrstu breiðskífu
Írafárs um jólin hlaut það að telj-
ast borðleggjandi að söngkonan
Birgitta Haukdal fengi tilboð um
að taka þátt í undankeppni
Eurovision. Sex lagahöfundar báðu
hana um að syngja lag og segir hún
að tvö þeirra hafi komið sterklega
til greina. Hún vill ekkert gefa upp
um hvaða lög henni hafi verið boð-
ið að syngja.
„Það væri svo ljótt gagnvart
höfundunum,“ segir hún á
diplómatískan hátt. „Ég fékk öll
lögin og hlustaði einu sinni á hvert
þeirra. Sá hvaða lög stóðu upp úr
og þau voru tvö. Svo valdi ég bara
á milli þeirra. Ég passaði mig á því
að hlusta bara eins og hver annar
áhorfandi á keppnina og sjá hvaða
lög ég myndi muna eftir. Fólk fær
bara að heyra lagið einu sinni í
Eurovision og það verður að grípa
strax.“
Birgitta segist ekki hafa viljað
taka tvö lög þar sem hún hefði talið
að það myndi vinna á móti sér. Hún
valdi lag Hallgríms Óskarsson og
fékk að hafa puttanna í útsetningu
þess. Birgitta er ein höfundur text-
ans þrátt fyrir að annað hafi komið
fram á keppniskvöldinu.
Söngkonan unga er stolt af vel-
gengni sinni í keppninni og blæs á
þær sögur að hún hefði komist
áfram hvað sem hún hefði sungið.
Hún bendir til dæmis á að bráða-
birgðadómnefndin, sem hefði ráð-
ið úrslitum ef símkerfið hefði
klikkað, valdi einnig lagið í fyrsta
sæti. „Lagið hefði þannig farið
áfram hvort sem aðdáendur mínir
hefðu valið það eða ekki,“ segir
Birgitta ákveðin. „Það er svo leið-
inlegt að fólk segir að ég hefði far-
ið þótt ég hefði sungið „Gamla
Nóa“. Það er gaman að geta sagt
frá því að dómnefndin var sam-
mála fólkinu í landinu.“ ■
FUGL FRIÐARINS
Hvítum friðarfugli var sleppt út í frelsið af indónesískum læknum á meðan á mótmælum
stóð í Indónesíu vegna hugsanlegra árása á Írak. Mótmælin fóru fram fyrir utan sendiráð
Ástralíu í borginni Jakarta, skömmu áður en John Howard, forsætisráðherra Ástralíu,
heimsótti landið.
Móðir Eminem:
Óttast um líf
sonarins
TÓNLIST Debbie Nelson, móðir rapp-
arans Eminem, segist óttast um líf
sonar síns.
Í nýlegu viðtali
segir hún tónlist-
ariðnaðinn vera
ljótan og ofbeldis-
fullan og segist
hrædd um soninn
vegna þess að
margir taki hann
alvarlega. Óttast
hún að fá símtal
þar sem henni er
tjáð að búið sé að
myrða hann.
Eminem hefur út-
húðað móður sinni í textum sínum,
þar á meðal í laginu „Cleaning Out
My Closet.“ Að sögn Nelson angrar
það hana töluvert en hún lítur þó á
textana sem listræna tjáningu. ■
BIRGITTA HAUKDAL
Eftir gott samstarf við Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem útsetti metsöluplötu Írafárs, ákvað
hún að leita til hans. „Hann er bæði svo faglegur og yndisleg persóna,“ segir hún. „Hann
er alveg fremstur á þessu sviði af öllum hérna heima að mínu mati.“ Þetta gæti hugsan-
lega verið byrjunin á faglegu ástarsambandi þeirra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
EMINEM
Eminem hefur
gagnrýnt móður
sína harðlega í
textum sínum.
AP
/M
YN
D
Hringdu í mig!
Nakti kokkurinn, Jamie Oli-ver, segir að sjónvarps-
þættirnir hans hafi næstum
gert út um hjónabandið. Eigin-
kona hans, Jools, varð æfa reið
þegar Oliver leyfði sjónvarps-
mönnum að fylgja sér á sjúkra-
húsið þegar hann var að heim-
sækja nýfædda dóttur sína.
Tökurnar átti að sýna í sjón-
varpinu. Kokkurinn hefur nú
ákveðið að setja fjölskylduna í
fyrsta sæti enda hafi þættirnir
næstu riðið sambandinu að
fullu. Oliver og Jools eiga von á
öðru barni í apríl.