Fréttablaðið - 19.02.2003, Side 22
22 19. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Betra að verða
fimmtugur en ekki
AFMÆLI „Ég byrja daginn á því að
kenna námskeið í stjórnmála-
heimspeki. Það vill nú svo vel til
að lexía dagsins er Karl Marx og
kenningar hans um byltingar og
hvernig þær fara,“ segir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson prófess-
or, sem er fimmtugur í dag.
Hannes Hólmsteinn verður að
kenna til hádegis en þá tekur við
undirbúningur fyrir afmælið.
„Ég get nú ekki sagt að ég
verði upp undir haus í köku-
bakstri því það er ekki mín besta
hlið,“ segir Hannes Hólmsteinn
en hann tekur á móti vinum sín-
um á milli klukkan fimm og sjö í
dag í Sunnusal á Hótel Sögu.
Hannes Hólmsteinn segist
ekki ánægður með að verða
fimmtugur. Það hefði þó verið
enn verra hefði hann ekki náð
því. „Ég hugga mig við það. Ég er
við ágætis heilsu og í góðu
skapi,“ segir afmælisbarnið.
Hannes Hólmsteinn segist
vera mikill samkvæmismaður þó
að hann sé ekki mikið afmælis-
barn. „Ég hélt nokkuð myndar-
lega upp á þrítugsafmælið mitt.
Það var mikið teiti. Síðan hélt ég
upp á fertugsafmælið mitt í kyrr-
þey en nú get ég ekki annað en
viðurkennt aldurinn. Gráu hárin
eru orðin of mörg til að ég geti
flúið frá því.“
Hannes Hólmsteinn segir að
þrítugsafmælið hafi verið afar
eftirminnilegt en vonast þó til að
afmælið í dag verði enn eftir-
minnilegra.
„Ég vona að ég eigi líka eftir
að halda upp á sextugs-, sjötugs-
og áttræðisafmælin. Ég set nú
ekki markið hærra í bili.“
Hannes Hólmsteinn er þessa
dagana að undirbúa fyrirlestur
sem hann heldur næstkomandi
föstudag á ráðstefnu félagsvís-
indadeildar um rannsóknir í fé-
lagsvísindum. Fyrirlesturinn ber
titilinn „Hvers vegna eru
menntamenn andsnúnir kapítal-
isma?“.
„Sannleikurinn er sá að
menntamenn, og þá einkum
blaðamenn og kennarar, eru
flestir andvígir kapítalisma,“
segir Hannes Hólmsteinn. Hann
vildi þó ekki gefa upp hvaða
skýringar væru á því. Fólk kemst
að því sæki það fyrirlesturinn
klukkan tólf í stofu 201 í Odda.
kristjan@frettabladid.is
AFMÆLI
KOSNINGAR „Ég hef verið viðloð-
andi Frjálslynda flokkinn frá upp-
hafi, einkum út af baráttunni gegn
kvótakerfinu og óréttlætinu sem í
því felst,“ segir Sigurður Ingi
Jónsson, 43 ára markaðs- og við-
skiptafræðingur. Hann er nýráð-
inn kosningastjóri Frjálslynda
flokksins. Kosningabaráttan
leggst vel í hann. „Þetta verður
mjög spennandi,“ segir hann.
„Það hefur sýnt sig í undanförn-
um kosningum að við mælumst
alltaf með hálft fylgi á við það
sem við fáum á endanum.“
Sigurður Ingi kom heim til Ís-
lands eftir um 12 ára fjarveru í
byrjun árs 1998. Þá hafði hann
meðal annars dvalið um nokkra
hríð í Miðausturlöndum, sem um-
boðs- og þjónustuaðili fyrir alþjóð-
legt hugbúnaðarfyrirtæki. Hann
var með aðsetur í Kúvæt en var
farinn þaðan fyrir Persaflóastríð-
ið. Hann hefur þó frá ýmsu að
segja varðandi Írak. „Ég hef sjald-
an eða aldrei séð aðra eins eymd
og þar,“ segir hann. „Írak hefur
alla burði til að vera mesta vel-
megunarríki heims, en í staðinn er
almenningi haldið í ánauð vitfirr-
inga.“ Hann segist þó vera efins
um að innrás í landið muni bæta úr
skák. „Það verður lítið mál fyrir
Bush að leggja undir sig landið, en
ég vil vita hvað hann ætlar að gera
næst. Það er lykilatriði.“
Eftir að Sigurður kom heim
starfaði hann um hríð hjá Skýrr og
síðan hjá Íslandssíma, áður en
hann fór í Háskólann í Reykjavík
og tók MBA í viðskiptafræði árið
2002. Hann segist vel getað hugsað
sér meiri pólitíska þátttöku. „Eftir
því sem ég kynnist pólitík betur
innan frá finnst mér hún meira og
meira spennandi.“ Meðal áhuga-
mála Sigurðar eru útivist, og þá
einkum stangveiði og skotveiði.
Hann og veiðihundurinn Gosi
verja löngum stundum saman við
veiðar og göngu. Þeir búa líka tveir
saman. Sigurður býr nefnilega yfir
eiginleika sem er hverjum góðum
kosningastjóra nauðsynlegur:
hann er einhleypur. ■
Sigurður Ingi Jónsson er nýráðinn kosninga-
stjóri Frjálslynda flokksins. Hann er veiðimað-
ur og viðskiptafræðingur, á móti kvótakerfinu
og hvergi banginn þótt fylgið mælist lítið.
Persónan
Kosningastjóri með veiðidellu
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
Heldur upp á afmæli sitt í Sunnusal Hótel Sögu í dag. Segist ekki vera á kafi í köku-
bakstri enda ekki hans sterkasta hlið.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Villi var uppburðarlítill maður.Hann kemur inn á bar og tek-
ur fljótlega eftir glæsikvendi sem
situr við borð skammt frá. Það
tekur Villa óratíma að herða sig
upp og gefa sig á tal við drottning-
una en honum til mikillar furðu
segir hún þannig að heyrist um
allan barinn: „Nei, ég ætla ekki að
sofa hjá þér!“
Okkar maður kafroðnar og
snautar í sætið, niðurbrotinn.
Hálftíma síðar kemur kvendið
brosandi og segir: „Fyrirgefðu,
sjáðu til. Ég er í Háskólanum í sál-
fræði og er að stúdera atferlis-
fræði...“
Villi grípur fram í fyrir henni
og segir stundarhátt: „Ertu brjál-
uð? 60 þúsund?“
HÚSIÐ
George Robertson
lávarður.
Tannlæknar.
Trinket.
1.
2..
Svör við spurningum á bls. 6
3.
Veistu svarið?
JARÐARFARIR
13.30 Halla Sveinsdóttir, Brekkubæ 6,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Sigríður Kristinsdóttir, Þórufelli
20, verður jarðsungin frá Fella- og
Hólakirkju.
13.30 Sigþór Björgvin Sigurðsson, vél-
stjóri, Skarðshlíð 13b, Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju.
13.30 Valdimar Gunnarsson verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni í Hafnar-
firði.
13.30 Þórður Árnason, áður Stórholti
31, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu.
15.00 Rebekka Sigríður Jónsdóttir,
hjúkrunarkona, verður jarðsungin
frá Aðventkirkjunni í Reykjavík.
MINNINGARATHÖFN
14.00 Minningarathöfn í Grindavíkur-
kirkju um Elínu Þóru Sigur-
björnsdóttur frá Sveinsstöðum í
Grímsey.
AFMÆLI
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor er fimmtugur.
Hilmar Oddsson kvikmyndagerðarmað-
ur er 46 ára.
Nýr ritstjóri hefur verið ráð-inn að erótíska tímaritinu
Bleiku og bláu. Hann heitir Ragn-
ar Pétursson og er 24 ára gamall
Hafnfirðingur. Ragnar tekur við
af Hrund Hauksdóttur, sem bú-
sett hefur verið í Barcelona síð-
ustu mánuði og ritstýrt blaðinu
þaðan. Ragnar starfaði áður í
filmu- og myndasafni Fróða og
hefur samhliða því skrifað í ýmis
tímarit á vegum útgáfunnar.
Ragnar lagði stund á nám við MR
og reyndar Flensborg einnig og
fer því í fótspor annars Flens-
borgara sem einnig ritstýrði
Bleiku og bláu þannig að eftir
var tekið, Davíðs Þórs Jónssonar.
TÍMAMÓT
Hannes Hólmsteinn Gissurarson er fimmtugur í dag. Hann vonast til
að afmælið verði eftirminnilegt og stefnir að því að halda upp á næstu
þrjú stórafmæli. Segir gráu hárin orðin of mörg til að flýja aldurinn.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Hvíta húsið er hús vikunnar ítvenns konar skilningi. Í
þessu hvíta húsi er nefnilega aug-
lýsingastofan Hvíta húsið til
húsa, við Brautarholt 8. Auglýs-
ingastofan er tilnefnd til hvorki
fleiri né færri en 18 lúðra á
ÍMARK hátíðinni um helgina, en
það er önnur saga. Húsið er
byggt um 1960 og er arkítektinn
Skarphéðinn Jóhannsson, sem
var einn af fremstu arkítektum
landsins um miðja síðustu öld.
Það var Mjólkursamsalan sem lét
byggja það og í húsinu var um-
fangsmikil starfsemi á vegum
hennar: Bílasprautun og verk-
stæði fyrir bíla fyrirtækisins,
trésmíðaverkstæði og lítið innan-
búðarkaupfélag á efstu hæðinni
fyrir starfsmenn Mjólkursamsöl-
unnar. Árið 1985 keypti Hvíta hús-
ið húsið í heilu lagi og lét breyta í
skrifstofuhúsnæði. Húsið er 2.050
fermetrar og auglýsingastofan
seldi hluta þess en hefur haldið
eftir efstu hæðinni þar sem það
framleiðir þessar vel heppnuðu
auglýsingar sínar. ■
Gjafakot
Strandgötu 29, Hafnarfirði
Útsölulok á næstu dögum
Allt á að seljast, ennþá fullar hillur af útsöluvörum
Sjáumst
Sími: 555 6770
SIGURÐUR INGI JÓNSSON
Dvaldi lengi í Miðausturlöndum og segir
Írak hafa alla möguleika á því að verða
mesta velmegunarríki veraldar, ef almenni-
legri ríkisstjórn yrði komið á.