Fréttablaðið - 12.03.2003, Qupperneq 1
ÁFANGI
Frá Kína
að Keldum
bls. 22
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 12. mars 2003
Tónlist 14
Leikhús 14
Myndlist 14
Bíó 16
Íþróttir 12
Sjónvarp 18
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
ALÞINGI Síðustu eldhúsdagsumræð-
ur kjörtímabilsins fara fram í
kvöld og hefjast klukkan 19.50. Bú-
ast má við miklu fjöri enda vart við
því að búast að þingmenn láti þetta
tækifæri renna sér úr greipum til
að heilla kjósendur í aðdraganda
kosninga.
Eldhúsdagur
Stefnt á
úrslitakeppnina
HANDBOLTI Grótta/KR, sem er í
harðri baráttu um laust sæti í úr-
slitakeppninni í Esso-deild karla,
sækir Stjörnuna heim í Ásgarði
klukkan 20. Á sama tíma sækir
kvennalið FH Fylki/ÍR heim í Fylk-
ishöllinni.
Fiskurinn og tæknin
RÁÐSTEFNA Fjallað verður um tækni
og fiskveiðar á ráðstefnu Verk-
fræðingafélagsins og Tæknifræð-
ingafélagsins um sjávarútvegsmál.
Meðal fyrirlesara eru Ragnar
Árnason prófessor og Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Ráðstefnan hefst klukkan 13 og er
að Engjateigi 9.
FRUMSÝNING Leikfélag Kvennaskól-
ans í Reykjavík frumsýnir Lýs-
iströtu eftir Aristofanes í Austur-
bæ við Snorrabraut klukkan 20.
Lýsistrata hefur oft verið sett upp
en er nú í nútímalegri rappútgáfu.
Röppuð Lýsistrata
ÍÞRÓTTIR
Verður
frábær stjóri
MIÐVIKUDAGUR
60. tölublað – 3. árgangur
bls. 22
AFMÆLI
Menn hætta
of snemma
bls. 12
ÞETTA HELST
REYKJAVÍK Suðvestanátt 15-
20 m/sek. og súld með
köflum. Hiti 3-8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
Ríkisstjórnin hefur samþykktað félagsmálaráðherra geri
samning við Byrgið sem á að
tryggja rekstur þess. Því verður
væntanlega fundið húsnæði á
Efri Brú. bls. 2
Forstjóri Löggildingarstofuvæntir þess að halda starfi
sínu þrátt fyrir ávirðingar. Hann
vísar til niðurstöðunnar í máli
Þorfinns Ómarssonar. bls. 2
Tiltrú rúmlega þriðja hversmanns á Baugi minnkaði í
kjölfar atburða síðustu viku sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins.
bls. 4
Tóbaksrisinn sem lögsækir ís-lensk stjórnvöld vegna varna
gegn reykingum hefur þegar lög-
sótt írsk og kanadísk stjórnvöld.
bls. 6
Rúmlega 2.000 manns hafaþegar skilað skattaframtali
sínu á Netinu. Tæpar tvær vikur
eru þar til fresturinn rennur út.
bls. 8
LÖGGÆSLA Lögreglustjóraembætt-
ið í Reykjavík hefur fjárfest í sex
Schäfer-hundum sem eiga að
standa vaktina með lögreglu-
mönnum nótt sem nýtan dag:
„Hér voru aðeins tveir hundar
en með þessari fjölgun verður
hundur á hverri vakt en vaktirn-
ar eru fimm talsins,“ segir Þor-
steinn Hraundal, lögreglumaður
og umsjónarmaður hundanna,
sem bindur miklar vonir við nýja
starfsfélaga eins og aðrir lög-
reglumenn. „Með sprengjuleitar-
hundinum verða hundarnir okkar
því orðnir sjö talsins,“ segir
hann.
Þorsteinn Hraundal segir að
ekki sé nokkur ástæða til að ótt-
ast hundana við eðlilegar aðstæð-
ur því þeir séu gæfir nema þeim
sé skipað annað: „Þeir bíta ekki
nema þeim sé kennt það,“ segir
Þorsteinn, sem fagnar því jafn-
framt að sérstakur lögreglubíl
hafi verið útbúinn fyrir hundana.
Það er venjulegur lögreglubíl
með rými fyrir tvo hunda og sér-
stakri loftræstingu fyrir þá. í
þessari bifreið er hægt að aka
með hunda hvert sem er með
stuttum fyrirvara og beita eins
og þarf:
„Þessir hundar eru þjálfaðir í
öllu sem viðkemur störfum lög-
reglumanna; í leit á víðavangi, að
rekja spor, leita fíkniefna og svo
að verjast hættulegum mönnum,“
segir Þorsteinn og ljóst er að
ófriðarseggir í miðbæ Reykjavík-
ur geta átt von á nýju og áður
óþekktu viðmóti yfirvalda þegar
hundunum verður beitt til að
stilla til friðar ef og þegar upp úr
sýður í hita næturinnar. ■
MIÐAÐ Á MANNFJÖLDA Ísraelskur hermaður sést hér miða hríðskotariffli sínum á hóp Palestínumanna í Hebron á vesturbakkanum í
gær. Fólkið virðir fyrir sér rústir húss sem var jafnað við jörðu eftir að einn ísraelskur hermaður lést og fimm særðust í umsátri á mánudag.
Lögreglan í Reykjavík:
Hundur á hverri vakt
SJÁVARÚTVEGSMÁL Níels Ársælsson,
skipstjóri og útgerðarmaður
Bjarma BA frá Tálknafirði, var í
gær ákærður fyrir að
fleygja fiski aftur í sjóinn í
frægri veiðiferð dagana 3.
og 4. nóvember árið 2001.
Helstu sönnunargögn
ákæruvaldsins eru sjón-
varpsupptökur úr veiði-
ferðunum þar sem Magnús
Þór Hafsteinsson frétta-
maður var innanborðs og
fylgdist með framvindu mála. Árni
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
hélt því fram að atburðirnir um
borð í Bjarma hefðu verið sviðsett-
ir. Magnús Þór kærði hann fyrir
þær staðhæfingar og fékk ráðherr-
ann dæmdan fyrir meiðyrði fyrir
undirrétti. Árni hefur áfrýjað mál-
inu til Hæstaréttar. Hið skondna í
málinu er að eitt vitna í málsvörn
ráðherrans er Níels skip-
stjóri, sem nú hefur verið
ákærður fyrir að fleygja
fiski.
Í ákæruskjalinu er því
lýst að Níels teljist hafa
brotið gegn lögum um um-
gengni um nytjastofna
sjávar þar sem hann hafi
ekki hirt eða landað hluta
aflans í umræddum veiðiferðum.
Þá er því lýst í ákærunni að áhöfn-
in hafi hent í það minnsta 53 þorsk-
um skömmu eftir veiði þeirra. Aðr-
ir í áhöfn Bjarma BA hafa ekki
verið ákærðir en bæði útgerðar-
maður og skipstjóri Báru ÍS frá
Þorlákshöfn, sem einnig voru með
sjónvarpsmenn og blaðamenn
Morgunblaðsins um borð, hafa
samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins einnig verið ákærðir.
Níels sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að ákæran kæmi sér
ekkert á óvart.
„Nú veit ég hvernig Jóni Hregg-
viðssyni hlýtur að hafa liðið forð-
um daga þegar hann fékk vandar-
högg fyrir meintan snærisþjófnað.
Vont er þeirra ranglæti en verra er
þeirra réttlæti,“ segir Níels, sem
við yfirheyrslur hefur sagt að ein-
ungis hafið verið fleygt skemmd-
um fiski í umræddum veiðiferð-
um, sem á umræddum tíma var
ekki lögbrot.
rt@frettabladid.is
AP
M
YN
D
Ákærður fyrir að
fleygja 53 þorskum
Skipstjóra Bjarma BA var birt ákæra ríkislögreglustjóra í gær. Hann
segir að sér líði eins og Jóni Hreggviðssyni, sem var húðstrýktur fyrir
meintan snærisþjófnað. Auk þess að vera ákærður er skipstjórinn eitt
höfuðvitna í málsvörn sjávarútvegsráðherra.
„Nú veit ég
hvernig Jóni
Hreggviðssyni
hlýtur að hafa
liðið forðum
daga.“
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 15-20 Súld 6
Akureyri 15-20 Rigning 8
Egilsstaðir 20-25 Rigning 7
Vestmannaeyjar 10-12 Rigning 4
Svíar:
Leyfa íslensk
eftirnöfn
STOKKHÓLMUR, AP Útlit er fyrir að
Íslendingar sem búsettir eru í Sví-
þjóð muni áður en langt um líður
fá leyfi til þess að skíra börn sín
samkvæmt íslenskum nafnahefð-
um. Búist er við því að tillaga
þessa efnis verði lögð fyrir
sænska þingið í vor.
Ef tillagan verður samþykkt fá
Íslendingar að sækja um íslensk
eftirnöfn fyrir börn sín í stað þess
að þurfa að gefa þeim eftirnafn
föður síns eða móður. Sænsk yfir-
völd vonast til að þessi breyting
muni verða til þess að styrkja enn
samskipti þjóðanna tveggja. ■
BÖRN AÐ LEIK
Íslendingar búsettir í Svíþjóð geta farið að
nefna börn sín samkvæmt íslenskum
hefðum.
13
fimmtudagur
mars 2003
14
föstudagur
15
laugardagur
sunnudagur
16
10.00 til 21.00
10.00 til 19.00
10.00 til 18.00
13.00 til 17.00
Fylgir blaðinu í dag
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
55%
81%