Fréttablaðið - 12.03.2003, Síða 2
2 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
Einar K. Guðfinnsson mælti fyrir 15 nefndarálitum í
fyrradag á aðeins 22 mínútum. Enginn annar þing-
maður komst að á meðan.
Nei, ég hitti alltaf á að koma með réttu
skjölin í hvert sinn sem ég steig í ræðustól.
SPURNING DAGSINS
Einar, varstu ekkert farinn að
ruglast í kollinum?
ÚTGÁFA Nýtt vikulegt tímarit mun
fylgja Fréttablaðinu á föstudag-
inn. Tímaritinu verður dreift án
nokkurs endurgjalds inn á heim-
ili á höfuðborgarsvæðinu og á
Akureyri; samtals á um 75 þús-
und heimili. Auk þess mun það
fylgja Fréttablaðinu í verslanir
og aðra sölustaði víða um land í
rúmlega 10 þúsund eintökum.
Þetta verður því langút-
breiddasta tímarit landsins,
prentað í um 86.000 eintökum.
„Við teljum að tímaritin á Ís-
landi séu vanmetinn auglýsinga-
miðill,“ segir Gunnar Smári Eg-
ilsson, framkvæmdastjóri Frétt-
ar, útgáfufélags Fréttablaðsins
og hins nýja tímarits. „Gott
tímarit í mikilli útbreiðslu hefur
ýmsa kosti fram yfir aðra miðla;
mikil gæði og langan líftíma, svo
dæmi séu tekin.“
Í tímaritinu verður fjölbreytt
efni um fólkið í landinu; greinar,
viðtöl og margvíslegt annað
skemmtiefni. Sjónvarpsdagskrá
hverrar viku er birt á skýran og
aðgengilegan hátt í tímaritinu og
ætti það því einnig að nýtast
heimilunum sem sjónvarpshand-
bók.
„Við bíðum spennt eftir við-
brögðum lesenda á föstudaginn.
Þó það sé gaman að búa til blöð
þá er það ekki fyrr en þau eru
komin í hendur lesenda að þau
öðlast líf,“ segir Gunnar Smári
að lokum. ■
Tímarit í 86.000 tölublöðum hefur göngu sína á föstudag:
Nýtt vikulegt tímarit
fylgir Fréttablaðinu
Forstjórinn segist
sleppa fyrir horn
Forstjóri Löggildingarstofu segir að þar sem bætt hafi verið úr meintri
stórfelldri óreiðu í fjármálum stofnunarinnar heimili lög ekki að
honum sé vikið frá nú eins og iðnaðarráðherra vill gera.
Vísar í mál Þorfinns Ómarssonar.
STJÓRNSÝSLA Lögmaður Gylfa
Gauts Péturssonar, forstjóra Lög-
gildingarstofu, segir lög ekki
heimila að víkja Gylfa úr starfi
þar sem engin óreiða sé lengur
hjá stofnuninni.
Úrbætur voru
gerðar á meðan á
rannsókn Ríkis-
e n d u r s k o ð u n a r
stóð.
Gylfi Gautur
sendi í fyrradag
Valgerði Sverris-
dóttur, iðnaðar- og
v i ð s k i p t a r á ð -
herra, andsvör sín
við ávirðingum
Ríkisendurskoðunar um stór-
fellda óreiðu í fjármálum Lög-
gildingarstofu á árunum 1999 til
2002.
Valgerður telur að víkja beri
forstjóranum tímabundið úr
starfi á meðan sérstök stjórn-
sýslunefnd fer yfir störf hans.
Hún tekur nú afstöðu til sjónar-
miða sem hæstaréttarlögmaður-
inn Ragnar H. Hall hefur tekið
saman fyrir hönd Gylfa.
„Ég kýs síður að flytja þetta
mál í fjölmiðlum en vísa þess í
stað á lögmann minn,“ segir Gylfi
sjálfur aðeins.
Ragnar H. Hall segist meðal
annars vísa til niðurstöðu nefndar
sem gerði Tómas Inga Olrich
menntamálaráðherra afturreka
með tímabundna brottvikningu
Þorfinns Ómarssonar úr starfi
forstöðumanns Kvikmyndasjóðs
Íslands.
„Það segir í lögum um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins
að heimilt sé að víkja manni
tímabundið frá starfi ef óreiða er
á bókhaldi eða fjárvörslu, ekki ef
hún hafi verið,“ segir Ragnar.
Að sögn Ragnars er það enn
fremur meginregla laganna að
áður en mönnum er vikið úr
starfi eigi að gefa þeim áminn-
ingu og kost á að bæta ráð sitt,
nema þá að menn hafi gerst sek-
ir um refsiverða háttsemi. „Það
er enginn sem heldur því fram
að Gylfi hafi gerst sekur um
refsiverða háttsemi,“ segir hann.
Ragnar segir enn fremur að í
svari sínu sé gerð grein fyrir ein-
stökum efnisatriðum í skýrslu
ríkisendurskoðunar.
„Við skýrum viðhorf Gylfa til
ýmissa hluta sem settir eru
fram. Að öllu samanlögðu teljum
við það sé ekki nein lagastoð fyr-
ir því að víkja honum úr starfi
eins og kann að hafa verið ráð-
gert,“ segir Ragnar.
Hvorki ráðuneytið né Gylfi og
Ragnar afhentu í gær eintak af
sjálfum andsvörunum.
gar@frettabladid.is
DÓMSMÁL Dómari í máli Steins Ár-
manns Stefánssonar, sem játar að
hafa banað manni á Klapparstíg í
fyrrahaust, mun í dag skera úr um
hvort kveða eigi til dómkvadda
matsmenn til að meta geðheil-
brigði Steins.
Geðlæknir, sem þegar hefur
skoðað Stein, telur hann sakhæfan.
Þessu mati mótmælti lögmaður
Steins þegar málið var þingfest í
síðustu viku í Héraðsdómi Reykja-
víkur. Hann telur Stein eiga heima
á réttargeðdeildinni á Sogni.
Sjálfur játaði Steinn að hafa
banað 66 ára gömlum manni 26.
september í fyrra. Hinn myrti
hafði sjálfur hlotið fangelsisdóm
fyrir að myrða sambýliskonu sína í
sama húsi.
Í óspurðum fréttum mun
Steinn hafa látið þess getið við
þingfestinguna að hann væri
Gengis Khan endurborinn. Einnig
að hann yrði fullnuma vígamaður
þegar fangelsisvistinni lyki og
myndi þá bjarga íslensku þjóð-
inni frá glötun.
Frá því drápskvöldið hefur
Steinn dvalið á Litla-Hrauni, iðu-
lega í einangrun. Hann mun oft
hafa lent í slagsmálum við bæði
fanga og fangaverði, auk þess að
brjóta og bramla það sem fyrir
verður. Mun mönnum þar standa
mikill stuggur af honum. ■
Lögmaður telur banamann í Klapparstígsmáli vera geðveikan:
Nýir geðlæknar meti
sakhæfi drápsmanns
BYRGIÐ Í HÖFN
Allar líkur eru á að húsnæði fyrir Byrgið sé
fundið. Það verður mikil breyting að flytja
frá Rockville í glæsilegt húsnæði þar sem
hægt verður að hafa búskap.
Starfsemi Byrgisins í
höfn:
Byrgið á
Efri Brú
FÉLAGSMÁL Ríkisstjórnin hefur
samþykkt að félagsmálaráðherra
geri rammasamning við Byrgið
og tryggi rekstur þess.
Guðmundur Jónsson, for-
stöðumaður Byrgisins, sagðist
hafa beðið frá áramótum eftir að
af þessum samningum yrði.
Hann sagði einnig að hann vissi
til þess að húsnæðismál heimilis-
ins væru einnig um það bil að
leysast.
Heimildir blaðsins herma að
jörðin Efri Brú í Grímsnesi verði
fyrir valinu en hún var auglýst til
sölu fyrir rúmri viku og sam-
kvæmt upplýsingum úr fjármála-
ráðuneytinu fyrir helgi voru allar
líkur á að tilboði í eignina yrði
skilað inn í gær. Á Efri Brú í
Grímsnesi hefur verið rekið
gæðahótel; eitt það glæsilegasta
á landsbyggðinni. Því fylgir ein-
nig hluti jarðarinnar og útihús.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra segir að á næstu dögum
verði drög að rammasamningi út-
búin í ráðuneytinu. „Upphæð
verður ákveðin við fjárlagagerð
hverju sinni og Byrgið tekur að
sér að hýsa ákveðna tölu manna á
hverjum mánuði,“ segir Páll.
Hann vildi ekki nefna upphæðir
en sagði þær skuldir sem Byrgið
hefur stofnað til vera á ábyrgð
þeirra sjálfra. ■
ENGAR TAFIR Bandaríkjamenn
segja að ekki komi til greina að
gefa Írökum 45 daga frest eins og
nokkur aðildarríki Öryggisráðs SÞ
hafa lagt til. Bretar taka undir að
málið megi ekki tefjast úr hófi.
OPINN FUNDUR Í ÖRYGGISRÁÐINU
Öryggisráðið hefur samþykkt að
halda opinn fund um íraksdeiluna
að beiðni Samtaka óháðra ríkja.
Talið er að fundurinn muni tefja
atkvæðagreiðslu um hina nýju
ályktun Bandaríkjamanna og
Breta varðandi innrás í Írak.
PAKISTANAR SITJA HJÁ Pakistönsk
yfirvöld hafa ákveðið að sitja hjá
þegar greidd
verða atkvæði
um ályktun
Bandaríkjanna og
Bretlands í ör-
yggisráðinu. For-
sætisráðherra
landsins, Zaf-
arullah Khan
Jamali, fer fram
á að Írökum verði gefinn lengri
tími til þess að afvopnast.
BROT Á STOFNSKRÁNNI Kofi Ann-
an, aðalritari Sameinuðu þjóðanna,
hefur varað Bandaríkin við því að
árás á Írak án samþykkis Öryggis-
ráðsins brjóti í bága við stofnskrá
Sameinuðu þjóðanna.
NÝR FORSÆTISRÁÐHERRA Leiðtogi
stjórnarflokksins í Tyrklandi,
Recep Tayyip Erdogan, hefur ver-
ið útnefndur sem
forsætisráðherra
landsins. Erdogan
er fylgjandi því
að bandarískum
hersveitum verði
leyft að setja upp
víglínu í landinu í
undirbúningi fyr-
ir stríð í Írak og
er nú búist við því að hann muni
beita sér fyrir því að fá ríkis-
stjórnina á sitt band.
ÍRAKAR ÓGNA EFTIRLITSFLUGI
Gert var tímabundið hlé á eftir-
litsflugi í Írak eftir að Írakar ógn-
uðu bandarískri U-2 njósnavél í
eftirlitsleiðangri. Tvær banda-
rískar vélar voru nýfarnar í loftið
þegar Írakar sendu orrustuvélar á
eftir þeim og ógnuðu annarri vél-
inni.
Tóbaksvarnir:
Stærri
merkingar
ALÞINGI Reitir fyrir viðvaranir á
tóbaksvörupökkum stækka mikið
frá því sem nú er krafist sam-
kvæmt þingsályktunartillögu um
breytingum á viðauka við EES-
samninginn.
Í tilskipuninni skýr fyrirmæli
um hönnun og útlit merkinga og
bann við að hafa tiltekin heiti og
tákn á umbúðum tóbaksvöru sem
gefa í skyn að tiltekinn tóbaks-
varningur sé skaðminni en annað
tóbak. ■
KLAPPARSTÍGUR 11
Steinn Ármann Stefánsson játar að hafa
banað 66 ára gömlum manni í þessu húsi.
Geðlæknir telur Stein sakhæfan. Lögmaður
Steins er því algerlega ósammála og vill að
dómari kveði til nýja matsmenn. Sjálfur
dvelur Steinn á Litla-Hrauni og veldur þar
usla.
ÍRAKSDEILAN
LÖGGILDINGARSTOFA
Ríkisendurskoðun og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið segja stórfellda óreiðu hafa verið
hjá Löggildingarstofu á árunum 1999 til og með árinu 2002.
Það er megin-
regla laganna
að áður en
mönnum er
vikið úr starfi
á að gefa
þeim áminn-
ingu og kost á
að bæta ráð
sitt.
Tannréttingar:
Þurfa í ann-
an fjórðung
ALÞINGI Enginn sérfræðingur í
tannréttingum er við störf á Aust-
urlandi og þurfa börn og ungling-
ar því að sækja þjónustuna í ann-
an landsfjórðung.
Þuríður Backman, þingmaður
Vinstri grænna, vakti athygli á
því að á Austurlandi væru um 70
einstaklingar, sem þyrftu að með-
altali að fara 15 sinnum til sér-
fræðings en fengju ekki allir
greiddan ferðakostnað. Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra tók
undir það að þetta væri óréttlátt.
Hann vill kanna hvort tannlæknar
geti sinnt þjónustunni. Ef það
gangi ekki skuli hann beita sér
fyrir því að fá fjárveitingu til að
standa straum af ferðakostnaði
barna og unglinga sem þurfa á
þjónustunni að halda. ■
Íslenska ánægjuvogin:
Mest ánægja
með Öl-
gerðina
KÖNNUN Viðskiptavinir voru
ánægðastir með Ölgerð Egils
Skallagrímssonar á síðasta ári
samkvæmt niðurstöðum Íslensku
ánægjuvogarinnar.
Niðurstöður úr hinni árlegu
mælingu voru kynntar í Húsi at-
vinnulífsins í gær. Að mælingunni
stóðu Samtök iðnaðarins, Stjórn-
vísi og IMG Gallup. Veitt verða
verðlaun því fyrirtæki sem náði
bestum árangri af þeim 25 sem
mæld voru. Næst á eftir Ölgerð-
inni komu Sparisjóðirnir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI