Fréttablaðið - 12.03.2003, Page 4
4 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Eiga kaup á vændi að vera
refsiverð?
Spurning dagsins í dag:
Nær Kristján Pálsson inn á þing sem
óháður frambjóðandi?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
45,3%Nei
54,7%
ÓSAMMÁLA
ÞINGMÖNNUM
Frumvarp um að
gera kaup á
vændi refsiverð
var fellt á Alþingi
en hefði verið
samþykkt í kjör-
kassanum.
Já
Við höfum selt
tékkneskan kristal í 50 ár.
Í tilefni þess bjóðum við
50% afslátt
af 50 tékkneskum kristalskaröflum og -könnum.
BLÁU HÚSIN FAXAFENI
SÍMI 553 6622
www.hjortur.is.
Opnunartími: mánudaga-föstudaga 10-18 • laugardaga 11-16
KÖNNUN Ásakanir Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra um að Jón
Ásgeir Jóhannesson hafi orðað að
greiða sér mútur og aðrar fréttir
af Lundúnafundi forsætisráð-
herra og stjórnarformanns Baugs
hafa orðið til þess að 38% lands-
manna hafa minni trú á Baugi en
áður. Þetta er niðurstaða skoðana-
könnunar sem Fréttablaðið gerði
síðasta laugardag. Sex prósent að-
spurðra segja atburðina hafa auk-
ið trú sína á Baugi. Rúmlega
helmingur segir umræðuna engin
áhrif hafa á skoðun sína á fyrir-
tækinu.
Athygli vekur að þeir sem segj-
ast hafa minni tiltrú á Baugi eru
jafn margir og þeir sem hafa
minni tiltrú á forsætisráðherra,
eins og greint var frá í blaðinu í
gær. Davíð hefur þó vinninginn
þegar kemur að þeim sem telja til-
trú sína á honum hafa aukist,
ellefu prósent gegn sex prósent-
um hjá Baugi.
Baugur hefur orðið fyrir áber-
andi mestum álitshnekki hjá
stuðningsmönnum Sjálfstæðis-
flokks. 54% þeirra segjast hafa
minni tiltrú á Baugi en áður. Ein-
ungis fjögur prósent þeirra segja
tiltrú sína á fyrirtækinu hafa auk-
ist. Það er litlu meira en hjá fram-
sóknarmönnum. Baugur hefur
unnið tiltrú þriggja prósenta
þeirra en hún hefur minnkað hjá
38% Framsóknarmanna.
Töpuð tiltrú Baugs er minni
hjá stjórnarandstöðuflokkunum.
33% stuðningsmanna Frjáls-
lyndra hafa minni tiltrú á fyrir-
tækinu en áður, 31% stuðnings-
manna Vinstri grænna og 26%
Samfylkingarfólks. Sex til átta
prósent stuðningsmanna flokk-
anna segja álit sitt á fyrirtækinu
hafa aukist.
Þegar litið er til afstöðu þeirra
sem gefa ekki upp stuðning við
ákveðinn flokk kemur í ljós að
30% hafa minni trú á Baugi en
áður, tiltrú fjögurra prósenta hef-
ur aukist. Stærstur hluti, eða 57%,
segir þó að atburðir síðustu viku
hafi engu breytt um afstöðu sína
til fyrirtækisins. ■
JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON
Ásakanir forsætisráðherra þess efnis að
Jón Ásgeir hafi íhugað að bera fé á sig
hafa dregið úr tiltrú fólks á Baugi.
Baugur tapar tiltrú
Rúmlega þriðjungur aðspurðra segir að tiltrú sín á Baugi hafi minnkað vegna atburða
liðinnar viku. Einungis sex prósent segja álit sitt á fyrirtækinu hafa batnað.
360
985
185
458
'99 '00 '01 '02
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
1000
Svara ekki
Minnkað
Hvorki/né
Aukið
7%
36%
52%
6%
0
10
20
30
40
50
60
HAFA ATBURÐIR OG FRÉTTIR
LIÐINNAR VIKU DREGIÐ ÚR
EÐA AUKIÐ TILTRÚ ÞÍNA Á
BAUGI?
BAUGUR
Fyrirtækið hefur tapað tiltrú hjá 38% þjóðarinnar samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins. Einungis sex prósent segja tiltrú sína á fyrirtækinu hafa aukist.
KÝPUR Kofi Annan, aðalritari Sam-
einuðu þjóðanna, hefur tilkynnt
að viðræður milli leiðtoga gríska
og tyrkneska hluta Kýpur um
sameiningu svæðanna tveggja
hafi farið út um þúfur. Þar með er
margra mánaða erfiðri baráttu
Annan við að koma á sátt og friði
á eyjunni lokið með ósigri og óvíst
hvort eða hvenær viðræður verða
teknar upp að nýju.
Annan hafði reynt að nota
væntanlega inngöngu Kýpur í
Evrópusambandið til þess að
þrýsta á grísk og tyrknesk yfir-
völd að komast að samkomulagi
um ríkjabandalag sem stýrt yrði
af valdalítilli miðstjórn. Nú er út-
lit fyrir að aðild að Evrópusam-
bandinu muni aðeins ná til hins
gríska hluta eyjarinnar, að því er
framkemur á fréttavef BBC.
Samningaviðræðurnar strönd-
uðu á nokkrum grundvallaratrið-
um sem þjóðirnar voru ósáttar
við. Tyrkir töldu sig vera að láta
af hendi of stórt landsvæði og
vildu ekki ganga að kröfu Grikkja
um að grískir flóttamenn sem
fóru frá yfirráðasvæði Tyrkja
fyrir 29 árum fengju að snúa aft-
ur til síns heima. ■
RAUF DENKTAHS
Leiðtogi tyrkneska hluta Kýpur hefur stað-
ið fast á kröfum sínum í samningaviðræð-
unum undanfarna mánuði og lauk síðasta
fundi þjóðanna tveggja með því að Tassos
Papadopoulos, forseti gríska hlutans,
stormaði út í reiði sinni yfir ósveigjanleika
Denktahs.
Samningaviðræður út um þúfur:
Leiðtogar á önd-
verðum meiði
BLÁA LÓNIÐ
Tölvumynd af nýju umhverfi.
Sumarglaðningur:
Foss í Bláa
lóninu
HEILSA Bláa lónið stækkar og fyrir
1. júní verður þar kominn foss gest-
um til augnayndis. Fossinn hefur
verið teiknaður, 1,60 metrar á
breidd og tæplega þriggja metra
hár. Binda forráðamenn Bláa lóns-
ins miklar vonir við fossinn en hann
er aðeins liður í margháttuðum
breytingum sem gera á í Bláa lón-
inu.
„Þá bætast við tvö gufuböð og
tveir heitir pottar,“ segir Lovísa
Lilliendahl, markaðsfulltrúi hjá
Bláa lóninu. „Nuddaðstaðan verður
einnig færð til svo gestir geti notið
nuddsins í kyrrlátara og þægilegra
umhverfi en hingað til,“ segir hún.
Þá verður kísillinn gerður að-
gengilegri og honum komið fyrir
víðs vegar um baðsvæðið en mög-
um hefur reynst torvelt að finna
hann á botni lónsins. ■
Sjálfsvíg:
Æran ofar
öllu öðru
TÓKÍÓ, AP Sjálfsvígum sem rekja
má til fjárhagserfiðleika fer ört
fjölgandi í Japan. Bók sem nýver-
ið kom út þar sem sögð er saga
nokkurra barna sem misst hafa
foreldra sína á þennan hátt hefur
snert strengi í hjörtum Japana og
vakið athygli á vandanum.
Sjálfsmorðstíðni er um helm-
ingi hærri í Japan en Bandaríkj-
unum. Stór hluti sjálfsvíga tengist
óhóflegri skuldasöfnun. Þetta er
fyrst og fremst rakið til þess hve
Japanir eiga afar erfitt með að tjá
sig um tilfinningar sínar og
vandamál og þeirrar ofuráherslu
sem lögð er á að verja æruna. ■
HEILSA Tveir hafa sótt um leyfi til
að fá að selja pylsur við sundstaði
höfuðborgarinnar og hafa um-
sóknirnar verið teknar fyrir á
fundi hjá skipulagsfulltrúa
Reykjavíkur. Sigurður Sveinsson
sækir um að fá að reisa pylsuvagn
við Árbæjarsundlaugina en þar
hafa pylsur ekki verið seldar
fram til þessa. Þá sækir Hjalti
Hjaltason um að fá að stækka
pylsuvagn sinn við Vesturbæjar-
laugina en Hjalti hefur selt þar
pylsur um árabil þó reksturinn
hafi legið niðri um nokkurra miss-
era skeið. Hugmyndir Hjalta
byggjast á því að stækka pylsu-
vagn sinn inn á grasbala sem til-
heyrir lóð laugarinnar og er lítt
nýttur.
„Það verður að byrja á því að
koma þessu inn á skipulag en um-
sóknirnar eru nú til meðferðar hjá
skipulags- og byggingarsviði
borgarinnar,“ segir Helga Björns-
dóttir hjá Íþrótta- og tómstunda-
ráði Reykjavíkur.
Enginn hefur sótt um að fá að
reisa pylsuvagn við Grafarvogs-
laugina en þar í hverfinu hafa for-
eldrar mótmælt sælgætissölu í
anddyri sundlaugarinnar. Við
Sundhöllina á Barónsstíg var um
skeið rekinn pylsuvagn en aðsókn
þótti ekki nægjanleg og var hann
aflagður. Við Laugardalslaugina
hefur hins vegar verið reistur
stór pylsuvagn og þar blómstra
viðskiptin. ■
SUND
Margir vilja selja pylsur.
Tveir sækja um:
Pylsur í sundi
PÉTUR GUÐMUNDSSON, ÓLAFUR
ÓLAFSSON OG MARÍAS GUÐMUNDS-
SON FRÁ FÉLAGI ELDRI BORGARA
Menn greiða hærra hlutfall af tekjum í
skatta nú en fyrir tíu árum. Skattleysis-
mörkin hafa ekki fylgt launaþróun og á því
átti menn sig ekki.
Eldri borgarar:
Skattar hafa
hækkað
SKATTAR Skattar á tekjur ellilífeyr-
isþega hafa hækkað verulega frá
1988. Mestar eru hækkanir á
lægri laun, að sögn Ólafs Ólafs-
son, fyrrum landlæknis og for-
manns Félags eldri borgara.
Ólafur segir að skattar sem
hlutfall af tekjum hafi hækkað
vegna þess að menn gleymi skatt-
leysismörkunum. Þau hafi dregist
aftur úr launaþróun. „Við erum
orðin leið á þeim hálfsannleik sem
felst í umræðu um skattamál.
Menn hafa haldið því fram að
skatthlutfall staðgreiðslu hafi
lækkað. Það er alveg rétt en í raun
og veru fer hærra hlutfall tekna í
skatta nú en árið 1990,“ segir
Ólafur.
Einar Árnason hagfræðingur
hefur reiknað þróunina undanfar-
in ár út fyrir Félag eldri borgara.
Þegar litið er á tölur kemur í ljós
að skattleysismörk árið 1988 voru
41.182. krónur á mánuði en nú eru
þau 69.585. krónur. Ef þau hefðu
hækkað í takt við verðlag á þess-
um tíma ættu þau að vera 96.009
eða rúmum 24.000 krónum hærri.
Ef þau hins vegar hefðu fylgt
launavísitölu ættu skattleysis-
mörk að vera 108.509. ■