Fréttablaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 6
6 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
EVRÓPA
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 22
1.
2.
3.
Hvað heitir formaður Bænda-
samtakanna sem afþakkaði
launahækkun?
Hvaða íslenska íþróttakona
sigraði í fimmtarþraut á sæn-
ska meistaramótinu í fjöl-
þraut síðastliðinn laugardag?
Leikarinn Joaquin Phoenix
hefur tekið að sér aðalhlut-
verkið í kvikmynd sem fjallar
um upphaf ferils eins af kon-
ungum kántrítónlistarinnar.
Hvað heitir þessi heimsfrægi
tónlistarmaður?
FJÁRMÁL Borið hefur á óánægju
fólks með ávöxtun lífeyrissjóða.
Þeir sem telja á sér brotið geta leit-
að til Úrskurðarnefndar um við-
skipti við fjármálafyrirtæki, fái
þeir ekki lausn sinna mála hjá við-
komandi fjármálastofnun. „Ávöxt-
unin ein og sér getur þó ekki gefið
tilefni til úrskurðar nefndarinnar,“
segir Guðjón Ólafur Jónsson, for-
maður nefndarinnar. Hann segir
dæmi um það að fyrirtæki hafi
brotið á einstaklingum með því að
fara ekki eftir fjárvörslusamning-
um.
Guðjón Ólafur segir mál sem
koma inn á borð nefndarinnar af
ýmsum toga. Málum hafi hins veg-
ar fjölgað síðustu ár. „Í fyrra voru
fleiri mál sem tengdust verðbréfa-
viðskiptum en árið á undan.“
Hann segir að ýmsar skýringar
geti verið á fjölgun mála. Meðal
annars að fólk viti betur hvert eigi
að snúa sér. Fjármálafyrirtæki séu
einnig duglegri við að vísa fólki
þessa leið.Telji fólk á sér brotið af
fjármálafyrirtækjum ber því fyrst
að snúa sér til viðkomandi fyrir-
tækis og leita leiðréttingar. Fái
menn ekki úrlausn sinna mála geta
þeir snúið sér til Fjármálaeftirlits-
ins, sem beinir málum til úrskurð-
arnefndarinnar. Fyrir einstaklinga
kostar það fimm þúsund krónur að
vísa málum til nefndarinnar. ■
Ólga vegna ókeypis ferminga:
Fríkirkjuprestur
tekin af póstlista
MÁLSHÖFÐUN „Þetta snýst um pen-
inga og aftur peninga. Ef þessir
aðilar geta ekki auglýst og
þannig náð til unga fólksins deyja
þeir út með nýjum kynslóðum,“
segir Þorsteinn Njálsson, læknir
og formaður tóbaksvarnarnefnd-
ar, um málsókn tóbaksrisans Jap-
an Tobacco International gegn ís-
lenska ríkinu vegna setningar tó-
bakslaga árið 2001. Telur tóbaks-
risinn að tóbaksvarnarlögin
stríði gegn EES-samningum og
íslensku stjórnarskránni. Fyrir-
tækið framleiðir og selur meðal
annars Winston,
Camel og Salem-
sígarettur:
„Tóbaksfyrir-
tækið reyndi þetta
sama í Kanada og
á Írlandi þar sem
ströng tóbaks-
varnarlög eru í
gildi. Dómur er
ekki fallinn í Ír-
landi en hæstirétt-
ur í Kanada stað-
festi lögin og vísaði köfum tó-
baksfyrirtækisins á bug. Þetta al-
þjóðlega fyrirtæki, með höfuð-
stöðvar í Sviss, stendur mark-
visst í málsóknum gegn ríkjum
sem sett hafa ströng tóbaksvarn-
arlög. Þess vegna verður Ísland
fyrir valinu og Írland hefur feng-
ið sinn skammt eftir að þar var
ákveðið að banna tóbaksreyking-
ar á öllum krám og veitingahús-
um í haust,“ segir Þorsteinn, sem
vonast til að íslenska ríkið verjist
vel gegn tóbaksrisanum, sem nú
hefur þingfest mál sitt fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur. Ekki veiti
af því tóbaksfyrirtækið beiti yf-
irleitt ekki öðrum en stórkanón-
unum í lögmannsstétt fyrir sig og
spari hvergi fé. Lögmaður tó-
baksfyrirtækisins hér á landi er
Hróbjartur Jónatansson hæsta-
réttarlögmaður og samstarfs-
menn hans.
„Skrefið sem við stigum hér á
landi þegar við fengum því fram-
gengt að tóbak mætti ekki vera
sýnilegt í verslunum hefur
reynst frábærlega. Sígarettu-
pakkar í hillum eru ekkert annað
en auglýsingar og sjálfir eru
kaupmenn ánægðir með að hafa
komið pökkunum fyrir í lokuðum
skápum því við það hefur rýrnun-
in hjá þeim minnkað umtalsvert,“
segir Þorsteinn Njálsson, sem
sjálfur reykti London Docks
vindla um tíu ára skeið en er
löngu hættur.
eir@frettabladid.is
Skotmark Winston-risans
Formaður tóbaksvarnarnefndar segir Japan Tobacco velja Ísland sem skotmark vegna bestu tó-
baksvarna í heimi. Reyndu einnig í Kanada og Írlandi. Verða að ná til unga fólksins með auglýs-
ingum. Þess vegna er íslenska ríkinu stefnt.
KIRKJAN „Það er ekkert launung-
armál að ókeypis fermingar hjá
okkur hafa farið mjög fyrir
brjóstið á mörgum prestum þjóð-
kirkjunnar,“ segir séra Hjörtur
Magni Jóhannsson, prestur Frí-
kirkjunnar í Reykjavík, sem
gagnrýndi formann Prestafé-
lagsins í predikun um síðustu
helgi fyrir að reyna að „veiða“
fólk úr frjálsum trúfélögum úr
hópi fermingarbarna. Jón Helgi
Þórarinsson, formaður Prestafé-
lagsins, hvatti aðra presta í
tölvupósti til að leggja að ferm-
ingarbörnum utan þjóðkirkjunn-
ar að ganga til liðs við hana til
eflingar og styrkingar í framtíð.
Eftir gagnrýni Hjartar
Magna var Fríkirkjupresturinn
tekinn af póstlista Prestafélags-
ins „...og mér tilkynnt að ég yrði
ekki settur aftur inn á hann fyrr
en komið hafi verið upp ein-
hverju öryggiskerfi sem ég veit
ekki hvað þýðir,“ segir séra
Hjörtur Magni, sem hætti allt í
einu að fá tölvupóst frá Presta-
félaginu.
„Prestafélagið er ekki með
neinn póstlista,“ segir Jón Helgi
Þórarinsson, formaður félags-
ins. „Það er vefstjóri þjóðkirkj-
unnar sem hefur umsjón með
honum. Mér skilst að mörgum
prestum hafi þótt Fríkirkju-
presturinn brjóta trúnað með
því að vitna í hann og því hafi
hann verið tekinn af listanum
tímabundið,“ segir Jón Helgi. ■
TÓBAKSVERSLUNIN BJÖRK Í BANKASTRÆTI
Aðili að málsókn Japan Tobacco International gegn íslenska ríkinu. Þar vilja menn fá að
sýna vöruna sem þeir selja.
...tóbaksfyrir-
tækið beiti yf-
irleitt ekki
öðrum en
stórkanónun-
um í lög-
mannsstétt
fyrir sig og
spari hvergi
fé.
SÉRA HJÖRTUR MAGNI
Hætti að fá tölvupóst eftir predikun um
fermingarbörn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
MÁLUM FJÖLGAR
Guðjón Ólafur Jónsson, formaður Úrskurð-
arnefndar um viðskipti við fjármálafyrir-
tæki, segir hluta skýringar á fjölgun mála
vera þá að fólk viti betur hvert það á að
leita.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.99 0.26%
Sterlingspund 123.28 0.60%
Dönsk króna 11.46 0.39%
Evra 85.1 0.39%
Gengisvístala krónu 121,89 -0,33%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 312
Velta 3.746 m
ICEX-15 1.382 -0,7%
Mestu viðskipti
Kaupþing banki hf. 184.942.887
Íslandsbanki hf. 150.991.949
Tryggingamiðstöðin hf. 114.446.601
Mesta hækkun
ACO-Tæknival hf. 25,00%
Hampiðjan hf. 4,76%
Vinnslustöðin hf. 3,57%
Mesta lækkun
SÍF hf. -7,22%
Skýrr hf. -3,33%
Íslandsbanki hf. -2,88%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7593,0 0,3%
Nasdaq*: 1281,2 0,2%
FTSE: 3452,7 0,5%
DAX: 2290,4 -1,7%
Nikkei: 7862,4 -2,2%
S&P*: 808,0 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
HERSTÖÐIN Í GUANTANAMO
650 mönnum er haldið eftir stríðið í
Afganistan. Þeim hefur verið neitað um
réttarhöld og lögfræðiaðstoð.
Hryðjuverkamenn:
Misjafnir
dómar
BANDARÍKIN, AP Bandarískur alrík-
isdómstóll hefur úrskurðað að
grunaðir vígamenn Talibana og al
Kaída, sem haldið er í herbæki-
stöðinni í Guantanamo á Kúbu,
eigi engan rétt á lögfræðingi eða
réttarhöldum. Dómstóllinn sagði
að um útlendinga væri að ræða
sem væri haldið utan Bandaríkj-
anna og því giltu landslög ekki um
þá.
Um svipað leyti úrskurðaði
dómstóll í New York að meintur
bandarískur hryðjuverkamaður
skyldi fá að hitta lögfræðing.
Stjórnvöld hafa reynt að koma í
veg fyrir að meintir hryðjuverka-
menn njóti aðstoðar lögfræðings.
Þau hafa skilgreint þá sem víga-
menn óvina og halda því fram að
þannig þurfi ekki að fylgja lands-
lögum um meðferð og yfirheyrsl-
ur fanga. Þetta hefur verið harð-
lega gagnrýnt innan Bandaríkj-
anna og á alþjóðavettvangi. ■
Brot fjármálfyrirtækja á einstaklingum:
Ávöxtunin ein
ekki næg ástæða
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HERT EFTIRLIT Bresk stjórnvöld
hafa ákveðið að heimila fleiri
stofnunum að skoða tölvupóst
einstaklinga og hlera símtöl
þeirra. Þetta á að skila auknum
árangri í baráttunni gegn hryðju-
verkum og glæpum. Áhugafólk
um persónuvernd hefur andmælt
hugmyndunum.