Fréttablaðið - 12.03.2003, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 12. mars 2003
EVRÓPA
ÍSLENSKA VEFSTOFAN
Íslenska vefstofan hýsir vef Hæstaréttar
sem hrundi þegar vélbúnaður hjá fyrirtæk-
inu bilaði. Heimasíða Hæstaréttar hefur
verið lokuð í um tíu daga en vonast er til
að hún opni að hluta um miðja þessa
viku.
Hæstaréttur:
Tveggja ára
dómasafn
glataðist
STJÓRNSÝSLA Dómar Hæstaréttar
Íslands frá síðustu tveimur árum
hurfu úr gagnabanka vefsvæðis
réttarins þegar kerfið hrundi um
mánaðamótin. Heimasíðan hefur
legið niðri síðan.
Íslenska vefstofan hýsir vef
Hæstaréttar. Að sögn Símons Sig-
valdasonar, skrifstofustjóra
Hæstaréttar, gerðist það á sama
tíma að vélbúnaður hjá fyrirtæk-
inu bilaði og öryggisatriði við af-
ritun voru ekki nægjanlega góð:
„Við þurfum að setja dómana aft-
ur inn í gagnagrunninn. Það er
ekkert annað en tvö ár aftur í tím-
ann.“
Símon segir að menn séu langt
komnir með að setja gögnin að
nýju inn í kerfið. Dómarnir séu
allir til í gagnagrunni Hæstarétt-
ar sjálfs á tölvutæku formi. Ætl-
unin sé að opna aftur fyrir ein-
hvern aðgang að heimasíðunni í
dag, miðvikudag, með áherslu á
nýjustu dómana. Uppfærslunni á
að ljúka í næstu viku.
Heimasíðan var sett upp árið
1999. Símon segir fáa hafa órað
fyrir því hversu víðtæk áhrifin
yrðu fyrir þá sem vinna að lög-
fræðistörfum: „Menn hafa tamið
sér að nota heimasíðuna geysi-
mikið sem vinnugagn og horfið
frá eldri aðferðum. Þetta hefur
því komið sér afar illa fyrir þá.“ ■
Bíræfinn þjófur:
Stal tösku í
dómsalnum
HONG KONG, AP Sakborningur sem
orðinn var frjáls ferða sinna eftir
að hafa verið sýknaður af ákæru
um þjófnað var handtekinn aftur
fyrir utan dómshúsið með tösku
sem hann hafði rænt af konu inni í
réttarsalnum. Maðurinn var færð-
ur fyrir rétt að nýju en þetta sinn
var hann fundinn sekur og dæmd-
ur í fjögurra mánaða fangelsi.
Taskan tilheyrði dómtúlki en
maðurinn bar því við að hann
hefði haldið að þetta væri taska
móður sinnar. Þótti dómaranum
skýring mannsins að vonum ekki
trúverðug. ■
Kindurnar í Helgafelli:
Sveinn styður garðyrkjustjórann
GRÓÐURVERND Sveinn Runólfsson
landgræðslustjóri hefur í bréfi til
bæjarstjórnar Vestmannaeyja lýst
yfir fullum stuðningi við garð-
yrkjustjóra bæjarins í deilum um
sauðfjárbeit í Helgafelli. Þar hefur
Gísli Óskarsson, fréttaritari sjón-
varps og kennari, beitt fé sínu í
skjóli hefðar og í nafni nýstárlegr-
ar uppgræðsluaðferðar um langt
skeið í óþökk Kristjáns Bjarnason-
ar garðyrkjustjóra.
Starfsmenn Landgræðslunnar
hafa farið í vettvangsrannsókn í
Helgafellið og í kjölfar þeirrar
ferðar lýsir Sveinn Runólfsson yfir
stuðningi sínum við sjónarmið
garðyrkjustjórans sem reynir að
halda fé fréttaritarans frá Helga-
fellinu. Hefur garðyrkjustjórinn
lokað hliði á girðingu með neti sem
sauðfjárbóndinn klippir á án afláts:
„Ég aðhefst ekkert á meðan bæj-
arstjórinn segist ætla að lempa
málin,“ segir sýslumaðurinn í Vest-
mannaeyjum en búast má við af-
gerandi viðbrögðum bæjarstjórn-
arinnar í Eyjum eftir stuðningsyfir-
lýsingu landgræðslustjóra við garð-
yrkjustjórann á staðnum. ■
KINDAHLIÐIÐ Í HELGAFELLI
Deilan um sauðfjárbeitina í Eyjum hefur
vakið athygli og menn sett á svið mynda-
töku til að lýsa ástandinu.
HÉLT VELLI Tékkneska stjórnin
hélt velli þó með naumindum
væri þegar þing landsins greiddi
atkvæði um traustsyfirlýsingu
við ríkisstjórnina. Forsætisráð-
herra landsins fór fram á slíkt
eftir að frambjóðandi stjórnar-
innar tapaði forsetakosningu. 101
þingmaður af 200 styður stjórn-
ina.
GAGNRÝNIR SKIL Á LISTMUNUM
Formaður menningarnefndar
rússneska þingsins hefur gagn-
rýnt menntamálaráðherra lands-
ins fyrir að ætla sér að skila list-
munum sem sovéskar hersveitir
stálu í Þýskalandi í síðari heims-
styrjöld og hafa verið geymdar í
Rússlandi síðan.