Fréttablaðið - 12.03.2003, Síða 12
FÓTBOLTI Fimmtu umferð milliriðla
Meistaradeildar Evrópu lýkur í
kvöld með fjórum leikjum. Stór-
leikur kvöldsins er án
efa viðureign Real Ma-
drid og AC Milan í C
riðli. Leikið verður í
Madríd.
Þar mætast tvö af
sigursælustu félögum
Evrópu en leikurinn í
kvöld hefur ólíkt vægi
fyrir þau. Milan hefur
þegar tryggt sér sæti í
átta liða úrslitum eftir
fjóra 1:0 sigra. Evr-
ópumeistarar Real
Madrid berjast hins
vegar um annað sæti
riðilsins við Borussia
Dortmund og
Lokomotiv frá
Moskvu. Fyrir fimmtu
umferð hefur Real
frumkvæðið þökk sé
síðbúnu jöfnunar-
marki Javier Portillo
gegn Dortmund í síðustu viku.
Real hefur sigrað í flestum leikj-
um og skorað mest allra félaga í
tíu ára sögu Meistaradeildarinnar.
Fimmtugasti sigurleikur þeirra
gæti fleytt félaginu áfram og
skori Raúl González, fyrirliði
Real, í kvöld verður hann fyrstur
allra til að skora 40
mörk í Meistaradeild-
inni.
Á sama tíma leikur
Dortmund við
Lokomotiv frá
Moskvu. Frami Dort-
mund í keppninni velt-
ur á sigri í kvöld og
úrslitunum í leik Real
Madrid og AC Milan.
Manchester United
hefur þegar sigrað í
D-riðli en hin félögin
eiga áþekka mögu-
leika á að fylgja þeim
í átta liða úrslitin.
United á heimaleik
gegn Basel en Juvent-
us og Deportivo La
Coruna leika í Tórínó.
Úrslitin í riðlinum
gætu ráðist í kvöld því
tapi Basel fer sigur-
vegarinn í leik Juventus og
Deportivo í átta liða úrslit.
Leikur Juventus og Deportivo
verður sjötta viðureign þeirra í
Meistaradeildinni á þremur árum.
Fjórum leikjanna hefur lokið með
jafntefli en Deportivo vann 2:0 á
heimavelli fyrir rúmu ári. Enn
eitt jafnteflið milli þeirra býður
upp á spennandi lokaumferð í
næstu viku. ■
12 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
ÍÞRÓTTIR Í DAG
15.00 Stöð 2
Spænsku mörkin. Mörk síðustu helgar
í spænska boltanum sýnd.
18.00 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show.
Heimsfótbolti West World.
19.30 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Bein útsending
frá leik Real Madrid og AC Milan.
20.00 Ásgarður
Stjarnan og Grótta/KR eigast við í
Esso-deild karla í handbolta.
Grótta/KR er í harðri baráttu um
laust sæti í úrslitakeppninni.
20.00 Fylkishöll
Fylkir/ÍR tekur á móti FH í Esso-deild
kvenna í handbolta.
Fylkir/ÍR er í áttunda sæti deildarinnar
en FH í því sjötta.
21.40 Sýn
Meistaradeild Evrópu. Útsending frá
leik Juventus og Deportivo La Coruna.
22.20 Sjónvarpið
Handboltakvöld. Fjallað um
Esso-deildina í handbolta.
23.30 Sýn
Sportið með Olís. Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
Skráðu þig strax í dag til að auka vinningsmöguleikana
Skráning í öllum bönkum, sparisjóðum og á www.kreditkort.is
Ferð fyrir 4 á úrslitaleik UEFA Champions
League í boði MasterCard®
Ástralinn Harry Kewell, leik-maður Leeds, ætlar að
ákveða eftir þessa leiktíð hvort
hann skrifar undir nýjan fimm
ára samning við félagið. Núver-
andi samningur Kewell rennur
út eftir næstu leiktíð.
Meistarar Real Madrid gegn
ósigruðu Mílanóliði
Spænsk og ítölsk félög í sviðsljósinu í 5. og næstsíðustu umferð Meistaradeildarinnar. Juventus
mætir Deportivo í Tórínó og Milan heimsækir Real Madrid.
RONALDO
Ronaldo og Real Madrid hafa verið á góðu skriði í spænsku deildinni að undanförnu en
eiga á brattann að sækja í Meistaradeild Evrópu.
MEISTARADEILDIN Í
KVÖLD
C riðill
Dortmund - Lokomotiv
Real Madrid - AC Milan
Staðan L S
Milan 4 12
Madrid 4 5
Dortmund 4 4
Lokomotiv 4 1
D riðill
Juventus - Deportivo
Man. United - Basel
Staðan L S
Man. Utd 4 12
Juventus 4 4
Deportivo 4 4
Basel 4 3
Sir Alex Ferguson:
Roy Keane verður frábær
knattspyrnustjóri
FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United,
telur að Roy Keane, fyrirliði liðs-
ins, verði frábær knattspyrnu-
stjóri ákveði hann að leggja
starfsvettvagninn fyrir sig þegar
hann leggur skóna á hilluna.
Keane hefur meðal annars lýst
því yfir að hann vilji einhvern
tímann taka við Manchester
United.
„Ef hann vill gera þetta þá er
engin spurning að hann verður
frábær stjóri,“ sagði Ferguson.
Keane, sem var nýkominn aft-
ur í lið United eftir mjaðmar-
aðgerð, er meiddur á læri og leik-
ur væntanlega næst með United
gegn Liverpool þann 5. apríl.
„Hann kemur aftur í leikinn gegn
Liverpool, það er engin spurn-
ing,“ sagði Ferguson. „Við fáum
tveggja vikna frí frá Evrópu-
keppni sem hjálpar okkur. Við
munum leika án hans í tveimur
mikilvægum leikjum, gegn Aston
Villa á útivelli og heima gegn Ful-
ham.“ ■
KEANE
Roy Keane, fyrirliði United, hefur hug á að
gerast knattspyrnustjóri eftir að knatt-
spyrnuferlinum lýkur.
MOLAR
MOLAR
Carlo Cudicini, markvörðurChelsea, hefur sakað Francis
Jeffers, framherja Arsenal, um
að hafa fiskað vítaspyrnuna sem
dæmt var á Cudicini í bikarleik
liðanna um síðustu helgi. „Þegar
ég sá Jeffers koma hélt ég hönd-
unum frá honum vegna þess að
ég gat ekki ná boltanum almenni-
lega,“ sagði Cudicini.