Fréttablaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 14
■ ■ FUNDIR
12.05 Málstofa sálfræðiskorar Há-
skóla Íslands um líf og störf Milton Er-
ickson verður haldin í stofu 201 í Odda,
húsi félagsvísindadeildar Háskólans. Dr.
Hörður Þorgilsson, klínískur sálfræðing-
ur, heldur erindi um líf og störf Milton
Erickson, sem var snillingur í að beita
dáleiðsluaðferðum.
13.00 Tæknin og fiskveiðarnar er
yfirskrift ráðstefnu á vegum Verkfræð-
ingafélags Íslands og Tæknifræðinga-
félags Íslands. Meðal fyrirlesara eru Árni
M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra,
Páll Reynisson frá Hafrannsóknastofn-
un og Ragnar Árnason prófessor. Fund-
arstaður er að Engjateigi 9.
13.00 Í tengslum við norræna bíó-
daga flytur finnski bókmenntafræðingur-
inn Kaisa Kurikka fyrirlestur í Norræna
húsinu um myndina „Drakarna över
Helsingfors“ eftir Kjell Westö.
13.30 Fræðslu- og umræðufundur
um áhrif atvinnumissis á líðan fólks
verður haldinn í Safnaðarheimili Dóm-
kirkjunnar, Lækjargötu 14a. Gunnlaug
Hartmannsdóttir flytur erindi.
12.15 Hrafnaþing verður haldið í
sal Möguleikhússins á Hlemmi nú í há-
deginu. Að þessu sinni flytur Ólafur K.
Nielsen fuglafræðingur erindið Rjúpan
og viðkoma fálkans. Hrafnaþing Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands eru öllum
opin meðan húsrúm leyfir.
16.15 Hrönn Pálmadóttir, lektor
við Kennaraháskóla Íslands, heldur fyrir-
lestur í Kennaraháskóla Íslands um at-
hugun sem hún gerði á boðskiptum
barna á leikskólaaldri með samskipta-
örðugleika og íhlutun fullorðinna í þau
boðskipti.
16.30 Ásdís R. Magnúsdóttir, lekt-
or í frönsku við Háskóla Íslands, flytur
fyrirlestur í stofu 201 í Odda, húsi hug-
vísindadeildar Háskóla Íslands, um „trú
og þjóðtrú í Rólantskvæði“. Fyrirlestur-
inn er á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-
bogadóttur.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda sýnir gamanleikritið Forset-
inn kemur í heimsókn í Ásgarði
Glæsibæ.
20.00 Leikfélag Kvennaskólans í
Reykjavík frumsýnir Lýsiströtu eftir
Aristófanes í Austurbæ við Snorrabraut.
20.00 Nemendur Verslunarskóla
Íslands sýna söngleikinn Made in USA
eftir Jón Gnarr í Loftkastalanum.
20.00 Herranótt, leikfélag Mennta-
skólans í Reykjavík, sýnir Hundshjarta
eftir Mikhaíl Búlgakov í Tjarnarbíói.
■ ■ TÓNLIST
12.30 Á háskólatónleikum í Nor-
ræna húsinu leika Laufey Sigurðar-
dóttir á fiðlu og Elísabet Waage á
hörpu verk eftir Louis Spohr og Gaëtano
Donizetti.
20.00 Eydís Franzdóttir óbó-
leikari, Brynhildur Ásgeirsdóttir pí-
anóleikari og Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir mezzósópran flytja í Saln-
um í Kópavogi verk eftir Caplet, Head,
Elínu Gunnlaugsdóttur, Ibert, Albéniz,
Fauré, Rubbra og Musto. Frönsk
sönglög skipa stóran sess á tónleik-
unum í blandi við enska sveitasælu,
spænskan blóðhita og hinar fjöl-
breyttu ásjónur íslenska kvöldsins.
20.30 Sigríður Aðalsteinsdóttir
sópran og Daníel Þorsteinsson pí-
anóleikari verða með tónleika í Gler-
árkirkju á Akureyri. Þau flytja ljóða-
söngva eftir Johannes Brahms og Ric-
hard Strauss. Tónleikarnir eru tileink-
aðir aðstandendum og syrgjendum
látinna. Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
flytur hugleiðingar á milli tónlistarat-
riðanna.
23.00 Hljómsveitin Tenderfoot
leikur hugljúfa músík á Sirkus. Sirkus er
vettvangur fyrir lifandi músík öll mið-
vikudagskvöld.
14 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
* Koffín
Eykur orku og fitubrennslu.
* Hýdroxísítrussýra
Minnkar framleiðslu fitu.
* Sítrusárantíum
Breytir fitu í orku.
* Króm pikkólínat
Jafnar blóðsykur og minnkar nart.
* Eplapektín
Minnkar lyst.
* L-Carnitine
Gengur á fituforða.
BYLTING Í FITUBRENNSLU!
- ÖFLUGAR BRENNSLUTÖFLUR
Perfect bu
rner
töflur 90
stk.
Hagkvæm
ustu
kaupin!
Perfect burner er því lausnin á því að tapa
þyngd á árangursríkan, skynsaman og
endingagóðan hátt.
Tilboð í LYFJ
U
frá 6-13 mar
s!
Lýsistrata
í rappútgáfu
hvað?hvar?hvenær?
9 10 10 12 13 14 15
MARS
Miðvikudagur
Þessi þverflauta var sérpöntuðog handsmíðuð af Miguel
Arista,“ segir Áshildur
Haraldsdóttir flautuleikari. „Fjöl-
skylda hans er frá Perú og hefur
smíðað flautur frá örófi alda.
Miguel rekur fyrirtæki í
Massachusetts þar sem er ein-
hvers konar miðstöð flautusmiða.
Ég ætlaði að fá mér silfurflautu
en svo kynntist ég manni í París
sem var með gullflautu frá Arista
og sannfærðist um að þarna væri
eitthvað fyrir mig. Ég bað Miguel
Arista að gera flautu eftir lýsingu
minni og hef heyrt að hann hafi
seinna gert fleiri þverflautur í
þessum stíl – þarna er eiginlega
komin ný lína.
Ég er búin að eiga þessa flautu
í svona tíu ár og næstum því sef
með hana uppi í rúmi hjá mér. Ég
veit alltaf nákvæmlega hvar hún
er. Flautan er partur af mér. Ég
get ekki hugsað þá hugsun til
enda að glata henni. Tæki mig
langan tíma að sætta mig við og
aðlagast nýju hljóðfæri.“
ÁSHILDUR HARALDSDÓTTIR
Hljóðfæriðmitt
LEIKSÝNING Fyrir rúmlega viku var
leikritið Lýsistrata leiklesið í mörg
hundruð leikhúsum víða um heim,
þar á meðal bæði í Borgarleikhús-
inu og Þjóðleikhúsinu, í sameigin-
legu átaki leikhúsfólks gegn yfir-
vofandi stríði gegn Írak. Í kvöld
frumsýnir leikfélag Kvennaskól-
ans þetta forngríska leikrit, sem
virðist eiga jafnmikið erindi nú og
fyrir meira en tvö þúsund árum.
Leikstjórinn er Stefán Jónsson
og hefur hann fengið til liðs við sig
nokkra tugi vaskra nemenda í
Kvennaskólanum. Eins og venjan
er í framhaldsskólum sá leikstjór-
inn um leiklistarnámskeið í
Kvennaskólanum í haust og í fram-
haldi af því var ákveðið að setja
upp Lýsiströtu.
„Stefáni tókst greinilega að
velja leikrit sem átti mjög vel við
núna,“ segir Gunnhildur Hrólfs-
dóttir, sem fer með hlutverk Lýs-
iströtu. „Þetta hefur verið mjög
krefjandi, en það er líka virkilega
gaman að setja þetta á svið núna í
framhaldi af þessum mótmælum
gegn stríði.“
Þessi forni gamanleikur eftir
Aristófanes fjallar um eiginkonur
stríðsæsingamanna, sem eru bún-
ar að fá sig fullsadda af stríðs-
brölti karlanna. Þær grípa til þess
ráðs að neita þeim um kynlíf þang-
að til þeir láta sér segjast og semja
frið.
Plötusnúðurinn Gísli Galdur,
einnig þekktur sem DJ Magic, sér
um tónlistina, sem gegnir miklu
hlutverki í uppfærslunni.
„Það er mjög gaman að hafa
fengið Gísla Galdur til þess að
gera tónlistina. Þetta er svolítið
hipphoppskotið, því hann er hipp-
hopp plötusnúður. Við erum að
rappa textann mikið, þannig að það
má segja að þetta sé nútímaleg
rappútgáfa af Lýsiströtu.“
gudsteinn@frettabladid.is
LÝSISTRATA
KVENNASKÓLANS
Gunnhildur Hrólfsdóttir
fer með aðalhlutverkið
í Lýsiströtu, sem leikfé-
lag Kvennaskólans
frumsýnir í Austurbæ
klukkan átta í kvöld.
■ LEIKHÚS
Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
„Forsetinn kemur í heimsókn“
gamanleik með söngvum í
Ásgarði, Glæsibæ, miðvikudaga
og föstudaga kl. 14.00
og sunnudaga kl. 15.00.
Miðapantanir á skrifstofu
s. 588 2111, einnig eru miðar
seldir við innganginn.
Mér leistmjög vel
á þessa sýn-
ingu,“ segir
Sigrún Val-
b e r g s d ó t t i r,
k y n n i n g a r -
stjóri Borgar-
le ikhúss ins ,
um gamanleik-
ritið Forsetinn
kemur í heimsókn sem Snúður og
Snælda, leikfélag eldri borgara,
sýnir um þessar mundir. „Þetta er
orðinn ótrúlega stór og kraftmik-
ill hópur og þarna er fullt af góðu
og hressu söngfólki á besta aldri.
Þetta er nokkurs konar heima-
smíðuð revía og þau kunna þá list
að láta áhorfendur taka þátt í því
sem þau eru að gera, þannig að
þetta var bara hin besta skemmt-
un.“
Mittmat