Fréttablaðið - 12.03.2003, Qupperneq 16
Fréttiraf fólki
Spænskur hárgreiðslumaðurkeypti lokk úr hári Bítilsins
George Harrison á uppboði fyrir
rúmar 118 þúsund krónur. Hár-
lokkurinn var klipptur af höfði
Bítilsins árið 1964. Maðurinn er að
safna hárlokkum fyrir sérstakt
safn sem hann ætlar að opna í
heimabæ sínum Girona.
Samkvæmt skoðanakönnun semtímaritið Loaded lét gera er
Pamela Anderson
enn vinsælasta
netstúlkan í
Bretlandi. Það
þýðir að netverj-
ar slá hennar
nafn inn oftast af
öllum þeim
skvísum sem látið hafa mynda sig
fáklæddar síðustu árin. Aðrar vin-
sælar stúlkur voru Kelly Brook,
Ali Landry, Holly Valance, Kylie
Minogue og Estella Warren.
Rapparinn DMX hefur ákveðiðað hætta að rappa eftir útgáfu
næstu plötu sinnar. Hann segist
vilja eyða meiri tíma með Biblí-
unni sinni. Hann ætlar einnig að
reyna fyrir sér í kvikmyndum,
eins og svo margir aðrir rapparar.
Nýja platan, og væntanlega hans
síðasta, kemur til með að heita
„It’s Not a Game“. Meðal gesta-
rappara á nýju plötunni má nefna
50 Cent.
Breski stúlknagrínhópurinn semgerði þættina „Smack the
Pony“ er nú að
gera fyrstu bíó-
mynd sína. Hún
heitir „Gladi-
atress“ og er með-
al annars útúr-
snúningur af
hasarmyndinni
„Gladiator“.
Myndin er væntanleg í bíó í Bret-
landi í september á þessu ári.
Myndin gerist 55 árum fyrir Krist.
Leikkonan Liv Tyler hefur tekiðað sér að leika „pin-up“-stúlk-
una Bettie Page í
mynd um ævi
hennar. Stúlkan á
að hafa reynt að
næla sér í hlut-
verkið síðan 1999.
Fyrir þá sem ekki
vita var Bettie
Page ein af djarf-
ari pin-up-stúlkum sjötta áratugar-
ins en lét sig hverfa eftir stuttan
feril sem nektarfyrirsæta.
16 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
LORD OF THE RINGS kl. 4/ 4 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 2, 3.45 og 5.50
GANGS OF NEW YORK kl. 8 í Lúxus
GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10
GULLPLÁNETAN m/ísl.tali 4
THE RING kl. 5.45, 8 og 10.20
SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6
TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.30 b.i.16.ára
kl. 7.15CATCH ME IF YOU CAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
kl. 10THE RING
kl. 5.40STELLA Í FRAMBOÐI
kl. 5.50, 8 og 10LILJA 4-EVER
MAN WITHOUT A PASTkl. 6, 8 og 10
NORRÆNIR BÍÓDAGAR
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Regla 1. Aldrei gera tvöfaldaplötu. Sama hversu hæfileika-
ríkur þú heldur að þú sért. Þær eru
dýrari, lengri og nær undantekn-
ingarlaust leiðinlegri. Undantekn-
ingin er hvíta albúm Bítlanna.
Meira að segja „Mellon Collie & the
Infinite Sadness“ með Smashing
Pumpkins og „Fragile“ með Nine
Inch Nails hefðu mátt vera einfald-
ar og styttri.
Jay-Z er með afar sérstaka
rödd. Hún virkar brothætt á köfl-
um og er það mikill plús fyrir hann.
Sem rappari er hann því vel yfir
meðallagi. En hvernig í ósköpunum
datt honum í hug að einhver héldi
athygli í tvær klukkustundir? Og
hér er glás af uppfyllingarefni sem
nær hámarki smekkleysunnar í
ömurlegri afskræmingu lagsins
„My Way“. Jay-Z er nú réttdræpur
af Rottugenginu, kemur mér ekki á
óvart ef Geir Ólafsson reynir að
koma honum fyrir kattarnef líka.
Hér eru örfá sæmileg lög, nefni
„A Dream“, „03 Bonnie & Clyde“ og
„Blueprint 2“. Innan um 25 lög hlýt-
ur það að teljast slæmur árangur.
Aðeins fyrir hörðustu aðdáend-
ur Jay-Z, hinir ættu að halda sig
fjarri. Jay-Z segist ætla að gera
eina plötu til viðbótar og hætta svo.
Vonandi stendur hann við það.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjölluntónlist
Haldið ykkur fjarri
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.30 b.i.12
CATCH ME IF YOU CAN kl. 8
kl. 4DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
■ ÚTVARP
Í dag fara uppvakningarnir Sig-urjón Kjartansson og Gunnar
Hjálmarsson í fjórða skipti í loftið
undir hatti „Zombie“. Samkvæmt
þeim félögum verður það á meðal
dagskráliða í dag að gefa hass í
beinni útsendingu.
„Það verður gaman að fá við-
brögð hlustenda við því,“ segir
Sigurjón. „Sá sem þiggur það þarf
náttúrlega að gefa upp fullt nafn,
kennitölu og heimilisfang.“
Þeir félagar hafa þekkst lengi.
Til dæmis aðstoðaði Dr. Gunni,
eins og hann er kallaður, Sigurjón
fyrir nokkrum árum þegar hljóm-
sveit hans Ham vantaði gítarleik-
ara. Í þá daga gekk Sigurjón undir
viðurnefninu „hertoginn“. Það
hefur líklegast ekki verið vegna
þess hversu blíður stjórnandi
hann var.
„Það er bara einn harðstjóri í
þessu teymi og hann heitir Dr.
Gunni,“ fullyrðir Sigurjón. „Ég
lemur mig áfram í þrotlausa
vinnu, endalaust. Hann vill bara
vinna, vinna og vinna.“
„Sigurjón var búinn að vera að
spila badminton svolítið lengi
einn,“ bætir Dr. Gunni við. „Hann
vantaði mótleikara.“
Í þættinum eru nokkrir fastir
dagskrárliðir. Annan hvern dag
fer nýr þáttur úr framhaldsleik-
ritinu „Menntaskólamorðin“ í
loftið.
„Það er „stöff“ sem Agatha
Christie hefði látið aðra löppina
fyrir,“ fullyrðir Dr. Gunni.
„Hún hefði grenjað,“ segir Sig-
urjón. „Síðan erum við með þræla-
uppboð á þjóðþekktum einstak-
lingum. Við setjum fólk í uppboð
og bjóðum hlustendum að bjóða.“
„Þrælunum“ er ekki tilkynnt
um sölu þeirra fyrirfram og því
ólíklegt að þeir mæti sjálfviljugir
til „meistara“ síns.
„Það hefur eiginlega ekkert
reynt á það,“ segir Sigurjón.
„Hlustendur geta bara prófað að
sækja þá heim til sín.“
Það að mæta á hverjum degi í
útvarpið að röfla er nýtt fyrir Dr.
Gunna. Hingað til hefur hann látið
skoðanir sínar flakka á bloggsíðu
sinni á Netinu. Hann segist líklega
verða að hætta því núna. „Ég verð
að hafa stjórn á hlutunum, það
þýðir ekkert að dreifa öllu sínu
andlega sæði upp á hvern dag. Ég
var skammaður einu sinni þegar
ég var að vinna á blaði að ég ætti
ekki að eyða öllum hugmyndunum
strax. Mér var bara sagt að ég
væri of duglegur. Maður er bara
svo misjafn. Ég er til dæmis í geð-
lægð núna og ekkert ofboðslega
hress,“ segir Gunni og hlær.
biggi@frettabladid.is
Hertoginn og doktorinn
Radíó X er nú orðið að X-inu 97,7 aftur. Dagskrá stöðvarinnar hefur verið lítillega
breytt og er stærsta breytingin nýr morgunþáttur, „Zombie“, í umsjón Sigurjóns
Kjartanssonar og Dr. Gunna.
CHICAGO kl. 8 og 10.30
ZOMBIE
Sigurjón Kjartansson og Dr. Gunni segjast ætla að gefa hass í beinni útsendingu í þætt-
inum í dag. „Það verður gaman að fá viðbrögð hlustanda við því. Sá sem þiggur þarf
náttúrlega að gefa upp fullt nafn, kennitölu og heimilisfang.“
Prófkvíði
Námskeið fyrir þá sem þurfa að ná tökum á kvíðanum (14 st.)
fim. 20. mars – 8. maí kl. 17:00-19:00.
Leiðbeinendur: Halldóra Bergmann sálfræðingur og Guðmunda Birg-
isdóttir námsráðgjafi.
Verð: 14.000 kr. Einstaklingstími hjá sálfræðingi innifalinn.
Upplýsingar í síma 581 4914 og www.fa.is/framvegis
Pete Townshend:
Málinu
vísað frá?
FÓLK Svo gæti farið að mál Pete
Townshend, gítarleikara bresku
rokksveitarinnar The Who, komi
aldrei fyrir dóms-
stóla. Townshend var
sakaður um að hafa
keypt sér aðgang að
netsíðu sem innihélt
barnaklám. Hann við-
urkenndi að hafa
keypt sér aðgang en
aðeins í rannsóknar-
skyni fyrir bók sem
hann er að skrifa.
Hann hefur alla tíð
haldið því fram að
hann sé ekki barnaníðingur og að-
stoðaði lögreglu við rannsókn máls-
ins. Lögregla hefur boðið Townshend
að fella niður málið ef hann viður-
kenni sekt upp að vissu marki. Hann
á nú að vera að velta tilboðinu fyrir
sér. ■
PETE
TOWNSHEND
Reynir hvað
hann getur til
þess að bjarga
mannorði sínu.
ELVIS COSTELLO
Popparinn Elvis Costello var á mánudag
vígður inn í „Frægðarhöll rokksins“ með
mikilli athöfn á Waldorf Astoria í New York.
Honum þótti þetta mikill heiður og lagði
sig allan í framkomu sína um kvöldið.
Rokkhljómsveitin The Clash var einnig vígð
inn í safnið.
JAY-Z: The Blueprint
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
LI