Fréttablaðið - 12.03.2003, Page 18
12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR18
Stolt vinnufélaga Tony Sopranovar sært í síðasta þætti. Þeim
rann ítalskt blóðið til skyldunnar
þegar afkomendur frumbyggja
Ameríku mótmæltu
degi Kólumbusar.
Þeir gripu til þeirra
ráðstafana sem
þeir þekkja best til
þess að stöðva mót-
mæli Indíánanna.
Aðferðirnar eru
kunnuglegar. Hót-
anir og mútur. Tony
Soprano sá fljótt að
ekki var öllu
kostandi til að
verja sært stoltið.
Hann stoppaði heimskuna í sínum
mönnum. Það gera foringjar.
Jafnvel þótt þeir séu af sauðahúsi
Tony Soprano.
Spaugstofan var svo endur-
sýnd á eftir. Hún var svo góð í
þetta sinn að ég þurfti að láta sýna
mér hana tvisvar. Tvisvar. Þeim
tekst misvel upp eins og gengur.
Mér finnst eins og þeir hafi samt
verið að sækja í sig veðrið upp á
síðkastið. Kannski að efniviðurinn
hjálpi þeim þegar nær dregur
kosningum.
Fulltrúar yngri kynslóðar
stjórnmálamanna ræddu málin í
Silfri Egils á sunnudag. Þær um-
ræður voru mun yfirvegaðri og
málefnalegri en flest pólitísk um-
ræða síðustu viku. Vekur vonir
um að umræðan geti verið á
sæmilegu plani. Umræðuefnið
var meðal annars fjárreiður
stjórnmálaflokka. Það hlýtur að
enda með því að menn sættast á
það að hafa sömu reglur hér um
greiðslur til stjórnmálaflokka og
tíðkast meðal siðmenntaðra þjóða.
Er það annars ekki til siðmenning-
ar sem við stefnum?
Við tækið
HAFLIÐI HELGASON
■ fann meiri skynsemi hjá
Soprano-fjölskyldunni en í
íslenskri pólitík.
Soprano og siðmenningin
21.00 Miðnæturhróp
21.30 Joyce Meyer
22.00 Life Today
22.30 Joyce Meyer
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
18.00 Sportið með Olís Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
18.30 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World)
19.00 Fastrax 2002 (Vélasport)
Hraðskreiður þáttur þar sem öku-
tæki af öllum stærðum og gerðum
koma við sögu.
19.30 Meistaradeild Evrópu (Real
Madrid - AC Milan) Bein útsending
frá leik Real Madrid og AC Milan.
21.40 Meistaradeild Evrópu
(Juventus - Deportivo) Útsending
frá leik Juventus og Deportivo La
Coruna.
23.30 Sportið með Olís Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
0.00 MAD TV (MAD-rásin)
Geggjaður grínþáttur þar sem allir
fá það óþvegið. Þátturinn dregur
nafn sitt af samnefndu skop-
myndablaði sem notið hefur mik-
illa vinsælda.
0.55 Creating Nicole (Þokkagyðj-
an Nicole) Erótísk kvikmynd.
2.10 Dagskrárlok og skjáleikur
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Disneystundin Otrabörnin,
Sígildar teiknimyndir og Guffagrín.
18.54 Víkingalottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
19.50 Eldhúsdagur á Alþingi Bein
útsending frá almennum stjórn-
málaumræðum á Alþingi.
22.00 Tíufréttir
22.20 Handboltakvöld
22.35 Hamingjuleit (1:6)
(Happiness) Danny Spencer er að
komast á miðjan aldur og reynir
með öllum mögulegum ráðum að
höndla hamingjuna en það er eins
og hún sé alltaf rétt utan seilingar.
Meðal leikenda í þessum bresku
gamanþáttum eru Paul White-
house, Fiona Allen úr Smack the
Pony, Mark Heap og Johnny Vegas.
23.05 Geimskipið Enterprise
(23:26) (Enterprise) Bandarískur
ævintýramyndaflokkur. Aðalhlut-
verk: Scott Bakula, John Billingsley,
Jolene Blalock, Dominic Keating,
Anthony Montgomery, Linda Park,
Connor Trinneer og Vaughn Arm-
strong.
23.50 Kastljósið Endursýndur
þáttur frá því fyrr um kvöldið.
0.10 Dagskrárlok
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours (Nágrannar)
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 Just Shoot Me (4:22)
13.05 Hanging Up (Lagt á)
Samskipti systranna Eve, Georgiu
og Maddy og pabba þeirra, hins
elliæra Lou, gegnum árin hafa ver-
ið heldur snubbótt. Dæturnar eru
allar uppteknar af eigin lífi og það
er helst Eve sem heyrir hljóðið í
gamla manninum annað slagið. En
ástandið kallar á umbætur og nú
verða systurnar að vera samstíga í
lífinu. Með aðalhlutverk fara þau
Meg Ryan, Diane Keaton, Lisa
Kudrow og Walter Matthau. 2000.
14.35 Tónlist
15.00 Spænsku mörkin
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours (Nágrannar)
18.05 Spin City (1:22)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Friends 2 (20:24) (Vinir)
20.00 Að hætti Sigga Hall (2:12)
20.30 Dharma og Greg (17:24)
20.55 Coupling (6:9) (Pörun)
21.25 The Mind of the Married
Man (3:10) (Órar kvæntra karla)
22.00 Crossing Jordan (2:25)
22.45 Hanging Up (Lagt á)
0.15 Amazing Race 3 (10:13)
1.00 Friends 2 (20:24) (Vinir)
1.20 Spin City (1:22) (Ó, ráðhús)
1.40 Ísland í dag, íþróttir, veður
2.05 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
6.00 The Cisco Kid
8.00 Air Bud: Golden Receiver
10.00 Dragonheart 2: A New
Beginning (Drekahjarta 2)
12.00 Spaceballs
14.00 Air Bud: Golden Receiver
(Hundatilþrif 2).
16.00 Dragonheart 2: A New Beg-
innin (Drekahjarta 2)
18.00 Spaceballs
20.00 Primary Suspect
22.00 Crimson Tide (Ógnir í undir-
djúpum)
0.00 Reindeer Games (Háska-
leikur).
2.00 The Cisco Kid (Cisco-strák-
urinn)
4.00 Crimson Tide
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
19.00 XY TV
20.00 Trailer
20.30 X-strím
21.00 South Park 6
21.30 Crank Yankers
22.03 70 mínútur
23.10 Lúkkið
23.30 Meiri músík
18.30 Innlit útlit (e)
19.30 The Drew Carey Show (e)
20.00 Guinness World Records
Fólk er fífl og það sannast hvergi
betur en í þessum fjölskrúðugu
þáttum þar sem menn reyna að
ganga fram af sjálfum sér og öðr-
um með skemmtilegum fíflalátum
og stundum stórhættulegum.
21.00 Fólk - með Sirrý
22.00 Law & Order
22.50 Jay Leno Jay Leno sýnir
fram á keisarans nekt á hverju
kvöldi er hann togar þjóðarleið-
toga, frægt fólk og bara hversdags-
lega vitleysinga sundur og saman í
háði. Síðan spjallar hann í róleg-
heitum um stjórnmál, kvikmyndir,
saumaskap og gæludýrahald við
gesti sína sem eru ekki af verri
endanum, margverðlaunaðar
stjörnur og stuðboltar. Þættinum
lýkur yfirleitt á að síkátir söngvarar
koma fram.
23.40 Boston Public (e)
0.30 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
Siggi Hall
Meistarakokkurinn Siggi Hall er
mættur aftur á Stöð 2. Þessi
landsins skemmtilegasti kokkur
gerir víðreist í nýju syrpunni og
heimsækir marga spennandi
staði. Hann hóf leikinn á heims-
meistaramóti matreiðslumanna í
Lyon í Frakklandi en í kvöld er
kappinn kominn til Þýskalands.
Siggi heimsækir bæði Frankfurt
og Wiesbaden. Haldið er á veit-
ingastaðinn Brick og komið við í
frægasta víngerðarhúsi Þjóð-
verja, svo fátt eitt sé nefnt. Dag-
skrárgerð annast Ingi R. Inga-
son.
Stöð 2
20.00
Skjár 1
22.00
Law and Order
Bandarískur þáttur um störf rann-
sóknarlögreglumanna og sak-
sóknara í New York.
Rannsóknarlögreglumennirnir
komast að mjög óvæntum niður-
stöðum þegar þeir rannsaka
hrikalegar barsmíðar á svörtum
manni sem er skilinn eftir í
skurði.
Það hlýtur að
enda með því
að menn
sættast á það
að hafa sömu
reglur hér um
greiðslur til
stjórnmála-
flokka og
tíðkast meðal
siðmenntaðra
þjóða.
SJÓNVARP HBO-sjónvarpsstöðin
ætlar ekki að sitja þegjandi undir
stefnu leikarans James Gand-
olfini, sem telur sig ekki skuld-
bundinn að leika í fimmta árgangi
þáttanna um Soprano-fjölskyld-
una vegna samningsrofs af hálfu
stöðvarinnar. HBO hefur lýst því
yfir að stöðin muni stefna Gand-
olfini á móti enda muni yfirvof-
andi fjarvera leikarans kosta
stöðina 100 milljón dollara. „Ef
hann mætir ekki til starfa þann
24. mars skuldar hann HBO mikla
peninga,“ segir lögmaður sjón-
varpsstöðvarinnar og bætir því
við að HBO hafi engar áætlanir
uppi um að halda framleiðslu þátt-
anna áfram án Gandolfinis.
Lögmanni Gandolfinis þykir
viðbrögð HBO full harkaleg. „Við
höfum aldrei sagt að hann muni
ekki mæta. Við erum bara að
reyna að fá það á hreint hvort
stöðin hafi brotið samninginn við
hann með því að láta hann ekki
vita með góðum fyrirvara að ráð-
ist yrði í gerð fimmtu þáttaraðar-
innar. Þeim væri nær að svara því
frekar en að fara í mál.“ ■
JAMES GANDOLFINI
HBO telur kröfur hans óraunhæfar og sér fram á stórtap ef hann mætir ekki til starfa á
tilskildum tíma.
Soprano-deilan:
Gandolfini svarað
fullum hálsi