Fréttablaðið - 12.03.2003, Page 22
Tómas mannfræðingur var áferð um Amazon-svæðið.
Skyndilega var hann umkringd-
ur ófriðlegum hópi innfæddra.
Þá hrökk upp úr honum: „Púfff,
ég er í djúpum skít.“ Þá kom eins
og þruma úr heiðskíru lofti yfir-
náttúruleg rödd sem sagði: „Nei,
það er ekki rétt! Taktu hnullung-
inn sem liggur við fætur þér og
sláðu honum í hausinn á foringja
þeirra.“
Tómas gerði eins og fyrir
hann var lagt og nú stóð hann
með hnullung í hendi yfir blóð-
ugum máttvana líkama foringj-
ans og allt um kring voru furðu
lostnir meðlimir ættbálksins.
Þá kom önnur þruma og yfir-
náttúruleg rödd sagði: „Ókei, nú
ertu í djúpum skít.“ ■
22 12. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
35 ÁRA „Eftirminnilegasta afmæl-
isgjöfin? Þetta er allt of erfið
spurning... Jú, bíddu. Sjö ára fékk
ég Manchester United-búning. Ég
fór út, þar sem var 20 cm snjór, í
búningnum og í fótbolta. Síðan
hefur maður haldið með djöflun-
um,“ segir afmælisbarn dagsins,
markvörðurinn snjalli Ólafur
Gottskálksson.
Hann á því sögu sem áhangandi
þess vinsæla liðs, átti mörg mögur
ár sem slíkur og lét lítið fyrir sér
fara. „Svo komu árin þegar maður
gat látið heyra í sér.“
Ólafur er nú búsettur í Grinda-
vík og æfir með liði staðarins. Það
leggst ákaflega vel í hann en þang-
að á hann ættir að rekja, á þar
marga góða vini auk þess sem
kona hans er frá Grindavík. „Já,
þetta lá beint við eftir Englands-
dvölina. Hér eru kröftugir menn
sem standa þétt á bak við sína
menn. Ekki vandamál að safna liði
ef þarf að taka til hendinni.“
Ekki stendur til að gera neitt
sérstakt í tilefni dagsins. „Nei,
þetta er nú í miðri viku þannig að
ætli ég reyni ekki bara að eiga
góða æfingu með strákunum og
svo góðar stundir með fjölskyld-
unni seinna um kvöldið. Að það sé
mottó dagsins.“
Ólafur er 35 ára, sem þýðir að
hann á 5 til 10 ár eftir í boltanum.
„Ég þekki allt of marga sem hafa
hætt of snemma og sjá eftir því.
Ég ætla ekki að gera þá skissu. En
auðvitað er vandi að finna rétta
tímapunktinn, það er áður en mað-
ur fer að dala mikið.“
Með eftirminnilegri afmælis-
veislum er sú þegar Ólafur varð
þrítugur. „Þá varð mér hugsað til
þess að vera svo til nýbyrjaður í
atvinnumennsku. Héldum upp á
það í bongóblíðu í mars, úti í
garði, í húsinu mínu í Edinborg.
Þar komu nokkrir kunningjar
saman og við áttum glaða stund.
Edinborg er stórkostleg borg.
Hún er svo falleg og rómantísk.
Mikil söguborg og Skotarnir gott
fólk.“
AFMÆLI
Ég hef búið á Íslandi í tæp sjö árog hef lært mikið á þeim tíma,“
segir Chen Huiping, sem varði
doktorsritgerð sína um krabbamein
af völdum genabreytinga við
læknadeild Háskóla Íslands í gær.
„Þetta er afslappað og þægilegt
umhverfi og Íslendingar eru af-
skaplega vingjarnlegir, þannig að
ég hef virkilega notið þess að
dvelja hérna.“
Hann hefur svo dvalið við nám
og störf á Íslandi frá árinu 1996
þegar hann byrjaði að vinna við
rannsóknir í Frumulíffræðideild
Landspítala – Háskólasjúkrahúss.
Hann hóf doktorsnám sitt við Há-
skóla Íslands árið 2000 og hefur
starfað sem doktorsnemi, undir
leiðsögn dr. Sigurðar Ingvarssonar,
við Tilraunastöðina í meinafræðum
að Keldum frá því síðla árs 2002.
„Það finnst mörgum skrítið að ég
skuli hafa ákveðið að flytja frá
Kína til Íslands. Ég vissi ekkert um
landið áður en ég kom hingað en
þekkti til verka Sigurðar Ingvars-
sonar. Þegar ég vann að MS-verk-
efni mínu í Kína komst ég að því að
hann var á svipuðum slóðum í rann-
sóknum sínum. Aðferðafræði hans
vakti áhuga minn og ég skrifaði
honum, bæði til þess að fá frekari
upplýsingar um störf hans og
kanna hvort við gætum fundið ein-
hvern samstarfsgrundvöll.“
Sigurður bauð Chen stöðu á
Keldum árið 1996 og eftir tveggja
ára starf gerði Chen sér ljóst að
hann þyrfti að kynna sér krabba-
meinsrannsóknir enn frekar og
hóf því doktorsnám við HÍ. „Ég
velti því mikið fyrir mér að flytja
aftur til Kína. Við hjónin erum
enn barnlaus en ég held að Kína sé
heppilegri staður fyrir mig og
fjölskyldu mína, en geri þó fast-
lega ráð fyrir að vera hér eitthvað
áfram og ljúka í það minnsta
verkefni mínu á Keldum.“ ■
Chen Huiping hefur búið á Íslandi í tæp sjö
ár ásamt eiginkonu sinni. Hann varði dokt-
orsritgerð sína við læknadeild HÍ í gær en
telur það heppilegra fyrir sig og fjölskyldu
sína að búa í Kína þó hann sé ekki á för-
um alveg strax.
Áfangi
Frá Kína að Keldum
ÓLAFUR GOTTSKÁLKSSON OG ANDREA BJÖRT
Á jólaskemmtun með dóttur sinni í London. Sjö ára fékk hann Manchester United-
búning í afmælisgjöf, beið ekki boðanna og fór í honum út í snjóinn í fótbolta – þó
þykkur snjór væri yfir öllu.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
CHEN HUIPING
Er fæddur í Kína árið 1965 og lauk lækn-
isfræðinámi árið 1986 frá Tongji-lækna-
háskólanum í Wuhan, Hubei, Kína. 1991
lauk hann meistaranámi frá sama háskóla.
Ólafur Gottskálksson á afmæli í dag en hann æfir um þessar mundir
stíft með liði Grindvíkinga. Ýmis bönd tengja hann þeim ágæta stað.
Menn hætta of
snemma í boltanum
FRÉTTIR AF FÓLKI TÍMAMÓT
M j ó d d • D a l b r a u t • A u s t u r s t r ö n d
M j ó d d • D a l b r a u t • A u s t u r s t r ö n d
1000 kr.
tilboð
TILBOÐ sótt kr. 1.000
Stór pizza með
4 áleggstegundum
®
Spaugstofan gerði málefnumBaugs og Davíðs Oddssonar
skil á sinn sérstaka hátt í þættin-
um Sönn íslensk svakamál á
laugardag-
inn og þyk-
ir mörgum
forsætis-
ráðherra
hafa farið
frekar halloka í söguskýringum
spaugaranna. Sjónvarpið hefur
sem kunnugt er oft verið upp-
nefnt „Bláskjár“ og þótt vera
valdhöfum frekar hliðhollt og því
verður stofnunin sjálfsagt seint
talin aðili að stórsamsæri Sam-
fylkingarinnar, Baugs, Jóns
Ólafssonar og fjölmiðla gegn for-
sætisráðherra. Glöggir kenning-
arsmiðir eru hins vegar búnir að
bæta Spaugstofunni í þennan
skrautlega hóp og nefna hana nú
ekkert annað en „Baugstofuna“.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að þó
menn setji sig í trúboðsstellingar í dýrkun
á stjórnmálaforingjum á það ekkert
skylt við kynlíf.
Leiðrétting
Ari Teitsson.
Vala Flosadóttir.
Johnny Cash.
1.
2.
Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
3.
ANDLÁT
Benedikta Lilja Karlsdóttir, Lindargötu
57, Reykjavík, lést 23. febrúar. Útförin
hefur farið fram.
Elín Magnúsdóttir lést á dvalarheimil-
inu Hlíð, Akureyri, 25. febrúar. Útförin
hefur farið fram.
Friðrik Magnússon, bóndi, Hálsi, Dalvík,
lést 10. mars.
Guðrún J. Þorsteinsdóttir, píanóleikari,
er látin.
Helga Jóna Elíasdóttir, fyrrverandi
skólastjóri og organisti á Þórshöfn, lést
8. mars.
AFMÆLI
Ólafur Gottskálksson markvörður er 35
ára.
Marta Nordal leikkona er 33 ára.