Fréttablaðið - 12.03.2003, Blaðsíða 24
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Starfsloka-
samningur
Bakþankar
Þráins Bertelssonar
Sem stendur á ég í harðvítugumkjaradeilum við þá nafnlausu
hjörð sem á Fréttablaðið, en ég hef
sett fram þá sanngjörnu kröfu að fá
greiddar 70 milljónir króna fyrir að
gera fyrirtækinu þann stóra greiða
að láta af störfum og hætta að skrifa
í blaðið. Ég hef ákveðið að sýna
mikla sanngirni og fer ekki fram á
meira en að eftirlaunaskuldbinding
mín vegna verði tæpar 54 milljónir
og laun á uppsagnarfresti verði 21
milljón – að meðtöldum launatengd-
um gjöldum.
ÞÁ HEF ÉG einnig boðist til að
dútla eitthvað fyrir eignarhaldsfélag
Fréttablaðsins, svara í síma, skreppa
í bakaríið, lesa blöðin, raða í möpp-
ur, sópa stéttina og svo framvegis
þangað til ég verð 65 ára og fyrir
þetta þarf ég ekki fá nema hálfa
milljón á mánuði, eða samtals um 30
milljónir – og er alls ekki að heimta
að fá þetta útborgað í einu lagi.
MEÐ TILLITI TIL þess að ég hef
skrifað í Fréttablaðið frá fyrsta út-
gáfudegi er líka í hæsta máta eðli-
legt að ég fái útborguð áunnin líf-
eyrisréttindi. Ekki er hér verið að
tala um háar upphæðir og þaðan af
síður reiðufé, því að ég væri tilbúinn
að sætta mig við að fá hlutabréf í
fyrirtækinu fyrir sosum 70 milljón
kall til að eiga í handraðanum, þótt
það sé vitanlega bara vonarpening-
ur.
SAMANLAGT gerir þetta ekki
nema rétt rúmar 200 milljónir sem
er ekki há upphæð fyrir 58 ára
gamlan og slitinn mann sem langar
til að setjast í helgan stein. Þangað
til ég verð áttræður eru 5720 virkir
dagar svo að þetta gerir þetta ekki
nema 34.965 krónur á dag, sem er
alls ekki mikið eins og verðlagið er í
þessu þjóðfélagi. Ég reikna að vísu
ekki með vöxtum af eftirlaunaupp-
hæðinni því að það mundi bara
flækja dæmið. Enn sem komið er
hafa eigendur Fréttablaðsins ekki
gert mér neitt starfslokatilboð annað
en fara á atvinnuleysisbætur sem
eru 3.127 krónur á dag, svo að enn
ber dálítið á milli, eða 31.838 krónur
á dag, sem ég verð að viðurkenna að
mundi skipta mig töluverðu máli
þótt ekki sé um háa upphæð að
ræða. Ég hef þó fulla trú á því að
með lempni sé hægt að leysa þetta
mál, því að eins og forstjórinn sagði:
„Hvað eru 200 milljónir milli vina?“