Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.03.2003, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 13.03.2003, Qupperneq 2
2 13. mars 2003 FIMMTUDAGUR Já, við höfum verið í þeim nokkuð lengi. Lögreglan hefur nú fengið þýska fjárhunda á hverja vakt. Spurningdagsins Geir Jón, eruð þið alveg komnir í hundana? STJÓRNMÁL „Við sem stöndum að þessu erum óánægð með ástandið í þjóðfélaginu,“ segir Jón Magn- ússon, lögmaður og talsmaður hóps fólks sem nú kannar hvernig best sé að mynda vettvang til að berjast fyrir baráttumálum sín- um, sem sett eru fram í ávarpi undirrituðu af 40 einstaklingum, þeirra á meðal þremur fyrrum þingmönnum. Í hópnum má finna fólk víða að úr pólitíkinni en gaml- ir Framsóknar- og Sjálfstæðis- menn eru áberandi. Í ávarpi hópsins segir meðal annars að stjórnvöld hafi aukið óhóflega skattlagningu á lágar og miðlungstekjur og látið hjá líða að gæta hagsmuna almennings. Stjórnvöld hafi ekki sinnt þeirri skyldu sinni að tryggja réttlátar leikreglur á markaði auk þess sem þau hafi ekki mótað eðlilegt samkeppnisumhverfi og tryggt neytendavernd. „Það gengur ekki að venjulegt fólk sé skattað út og suður,“ segir Jón. „Við erum grasrót sem stendur upp og segir: Nei! Nú ofbýður okkur,“ segir Guðmundur G. Þór- arinsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokks og einn af tals- mönnum hópsins, og telur að stjórnvöld hafi ekki staðið sig. Hann segir ekkert ákveðið með framboð. Verið sé að kanna hvort fleiri taki undir viðhorf hópsins og hvernig megi koma þessu inn í stjórnmálaumræðuna. ■ Mogens Glistrup: Í steininn KAUPMANNAHÖFN, AP Mogens Glistrup, fyrrum þingmaður og stofnandi danska Framfaraflokks- ins, hefur verið dæmdur í 20 daga fangelsi fyrir að saka múslíma um að flytja til Danmerkur til að ná yfirráðum í landinu. Glistrup hlaut skilorðsbundinn dóm í und- irrétti. Hann áfrýjaði til Hæsta- réttar, sem þyngdi refsinguna á þeim forsendum að hann hefði ít- rekað endurtekið yfirlýsingar sín- ar í fjölmiðlum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Glistrup er dæmdur í fangelsi því árið 1983 hlaut hann þriggja ára dóm fyrir skattsvik. Hann var síð- an rekinn úr Framfaraflokknum árið 1991 vegna stefnu sinnar í málefnum innflytjenda. ■ UMHVERFISMÁL Grímur Björnsson, jarðeðlisfræðingur Orkustofnun- ar, ritaði í febrúar árið 2002 skýrslu um áhrif sem hann taldi að yrðu hugsanlega vegna Háls- lóns við Kárahnjúka. Jarðeðlis- fræðingurinn spáði því að lónið myndi breyta spennuástandi í berginu næst lón- inu með ófyrirsjá- anlegum afleiðing- um. Hann telur í skýrslu sinni að ekki hafi verið tek- ið tillit til þessa í hættumati Lands- virkjunar vegna Kárahnjúkaverk- efnisins. Grímur jarðeðlisfræðingur telur mögu- legt að gamlar eða nýjar sprungur kunni að opnast undir Kára- hnjúkastíflunni, einkum þegar lónið er fullt, með þeim afleiðing- um að stíflan kunni að bresta. „Óviðunandi er að mínu mati fyrir Alþingi að afgreiða virkj- analeyfið, ef ekki er tekið sérstak- lega á þessum þætti. Ella kann Al- þingi sjálft að teljast ábyrgt fyrir stærsta manngerða hamfara- hlaupi Íslandssögunnar, auk þess sem stíflan verður tæpast endur- gerð eftir að hafa rofnað einu sinni,“ segir Grímur í skýrslu sinni og áréttar að hættumat Landsvirkjunar sé vægast sagt grunnrist. Skýrslan var ekki gerð opinber fyrr en eftir að Náttúru- verndarsamtök Íslands óskuðu eftir að fá umrædda skýrslu af- henta. Þorkell Helgason orkumála- stjóri afhenti gögnin og svaraði einnig fyrir meinta leynd. Hann segir í bréfi sínu að „enda þótt [þessar] athugasemdir Gríms væru hans persónulegu hugleið- ingar“ og skýrslan unnin að frum- kvæði Gríms sjálfs þá hefði Landsvirkjun verið kynntar at- hugasemdirnar og haldinn fundur um málið þann 6. mars 2002 þar sem Grímur hefði verið meðal fundarmanna. Landsvirkjun hefði ákveðið að bregðast við með því að leita eftir áliti dr. Freysteins Sigmundssonar, forstjóra Nor- rænu eldfjallastöðvarinnar, sem hafi skilað því áliti að líklegt sé að lónið muni valda 30 sentímetra jarðsigi. Forstöðumaðurinn taldi í áliti sínu að ólíklegt væri að spennubreytingar í jarðskorpunni myndu hafa nokkur áhrif á kviku- hreyfingar í jarðskorpunni. Kolbrún Halldórsdóttir, alþing- ismaður Vinstri grænna, segist vera hugsi yfir þessum upplýsing- um í ljósi þess að þær hafi ekki legið fyrir þegar Alþingi sam- þykkti framkvæmdina. „Mín spurning er hvort skýrsl- unni hafi verið vísvitandi leynt. Mér finnst þarna vera svo alvar- legir hlutir á ferðinni. Þetta er sambærilegt við þær viðvaranir sem Guðmundur Sigvaldason jarðfræðingur hefur komið með áður varðandi manngerða jarð- skjálfta. Ég fagna því að fjölmiðl- ar taki við sér og fjalli um vafa- mál sem eru samfara þessari framkvæmd. Við stjórnmálamenn sem höfum gagnrýnt þessa fram- kvæmd höfum ekki haft hljóm- grunn í samkeppni við ríkis- styrktan áróður Landsvirkjunar,“ segir Kolbrún, sem hyggst taka málið upp á Alþingi og krefst skýringa. Siv Friðleifsdóttir umhverfis- ráðherra segist ekki þekkja til þessa álits eða bréfs sem hún hafi átt að hafa fengið vegna málsins. „Ég er að kanna þetta mál hér í ráðuneytinu, þ.e. hvort bréf hafi borist,“ segir Siv. rt@frettabladid.is BELGRAD, AP Zoran Djindjic, for- sætisráðherra Serbíu, var skotinn til bana þegar hann kom að stjórn- arráði landsins í Belgrad í gær. Þetta var annað banatilræðið sem honum var sýnt á innan við mán- uði. Setið var fyrir forsætisráð- herranum og hann skotinn þegar hann steig út úr bíl sínum. Djindjic var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fengið skot í maga og kviðarhol. Læknar reyndu án ár- angurs að bjarga lífi forsætisráð- herrans, sem var lýstur látinn skömmu síðar. Tveir menn voru handteknir á vettvangi. Helstu stjórnarbygg- ingar voru umkringdar þung- vopnuðum öryggisvörðum í kjöl- farið. Ríkisstjórn landsins kom saman á neyðarfundi stuttu eftir árásina. Hún lýsti yfir þriggja daga þjóðarsorg og fór þess á leit við Natasa Micic, forseta Serbíu, að hann lýsti yfir neyðarástandi. Djindjic er fyrsti þjóðarleið- toginn í Evrópu sem ráðinn er af dögum frá árinu 1986. Þá var Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóð- ar, ráðinn af dögum í Stokkhólmi þegar hann kom með konu sinni út af leiksýningu. ■ ■ ÍRAKSDEILAN BIRTA KRÖFUR Bresk stjórnvöld hafa birt skilyrði fyrir því að Írakar komist hjá innrás. Þau helstu eru að Saddam Hussein viðurkenni að eiga gjöreyðingar- vopn og heiti að eyða þeim, heim- ilað verði að vísindamenn verði yfirheyrðir utan Íraks, gerð verði grein fyrir mannlausum flugvél- um, efna- og eiturvopn verði af- hent til eyðingar og flugskeyti eyðilögð. Þessi skilyrði eru birt eftir að Donald Rumsfeld, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist reiðubúinn að fara í stríð án Breta. Yfirlýsingin kom Bret- um mjög á óvart. VERRI SAMSKIPTI Þingmenn á Evrópuþinginu og háttsettir emb- ættismenn Evrópusambandsins vöruðu Bandaríkjamenn við því að ef þeir ráðist inn í Írak verði það til þess að samskipti Evrópu og Bandaríkjanna versni. KALDUR KLAKI Veðurfarsbreytingar á Grænlandi hafa gíf- urlega þýðingu fyrir jörðina alla þar sem 85 prósent eyjarinnar eru þakin þykkum ís. Veruleg bráðnun gæti orðið þess valdandi að yfirborð sjávar hækkaði um marga metra. Veðurfarsbreytingar: Grænland fer kólnandi VÍSINDI, AP Vísindamenn hafa lýst því ítrekað yfir að hitastig fari hækkandi víðast hvar í heiminum. Nýjar rannsóknir benda aftur á móti til þess að á Grænlandi sé þessu einmitt öfugt farið. Danska veðurfræðistofnunin hefur í samvinnu við breska vís- indamenn rannsakað veðurfars- upplýsingar frá síðustu áratugum og komist að þeirri niðurstöðu að meðalhiti á Grænlandi hefur fall- ið um 1,29 gráður frá árinu 1958. Á sama tíma hefur meðalhiti á jörðinni allri hækkað um 0,53 gráður. ■ VOPNAÐIR VERÐIR VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ „Ef einhver telur að hann geti stöðvað umbætur með því að myrða mig er sá hinn sami að blekkja sig,“ sagði Djindjic eftir að honum var sýnt banatilræði í síðasta mánuði. Fyrsti Evrópuleiðtogi sem er myrtur síðan 1986: Djindjic ráðinn af dögum ORKUSTOFNUN Jarðeðlisfræðingur komst að þeirri niðurstöðu að hættumat Landsvirkjunar vegna Háls- lóns væri grunnrist og stíflan kynni að bresta. Varaði við manngerðu hamfarahlaupi Jarðeðlisfræðingur Orkustofnunar lýsti í greinargerð því áliti að þunginn af Hálslóni kunni að valda jarðröskun með þeim afleiðingum að stíflan bresti. Var skýrslunni leynt? spyr alþingismaður. JÓN MAGNÚSSON „Besta leiðin til að ná þessu fram er að keyra inn í þetta sjálf.“ Segja almannahagsmunum fórnað: Glittir í nýtt framboð ■ „Ella kann Al- þingi sjálft að teljast ábyrgt fyrir stærsta manngerða hamfarahlaupi Íslandssögunn- ar“ KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR Krefst skýringa á því að sjónarmið jarðeðl- isfræðings Orkustofnunar komu ekki fram. Órói á hlutabréfamörkuðum: Vísitölur í frjálsu falli VIÐSKIPTI Skarpar lækkanir hafa orðið á evrópskum hlutabréfa- mörkuðum tvo daga í röð. Að sögn Einars Þorsteinssonar ráða slakar afkomubirtingar ásamt óvissu um Íraksdeiluna mestu um niður- sveifluna. „Undirliggjandi efna- hagsþróun á sinn þátt í þessu og ef stríðshættan er dregin frá er ekki ólíklegt að við værum að sjá lækkanir og óróa á mörkuðum.“ Stríðsógnin og hækkandi olíuverð ýta undir þessa þróun. Bandarískar vísitölur hafa einnig gefið eftir þótt í minna mæli hafi verið. DAX-vísitalan þýska hefur ekki verið lægri í sjö ár og fara þarf aftur til ársins 1992 til að finna jafn lága stöðu FTSE-vísitölunnar í London. Báð- ar lækkuðu um átta prósent á tveimur dögum. Útlit er fyrir fremur veikan hagvöxt bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Ein- ar segir að ekki sé að búast við því að ástand markaða lagist að neinu marki fyrr en allri óvissu um stríðsátök í Írak hafi verið eytt. ■ SVARTIR DAGAR Hlutabréfavísitölur heimsins hafa fallið síð- ustu daga. Tvo daga í röð hafa verðbréfa- miðlarar mátt horfa á bréf sín í frjálsu falli.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.