Fréttablaðið - 13.03.2003, Síða 4
Nær Kristján
Pálsson inn á
þing sem óháður
frambjóðandi?
Spurning dagsins í dag:
Fylgist þú með eldhúsdagsumræðum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
9%
53,2%Andvíg(ur)
37,8%
Veit ekki
Fylgjandi
Kjörkassinn 4 13. mars 2003 FIMMTUDAGUR
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
SEOUL, AP Goh Kun, forsætisráð-
herra Suður-Kóreu, hefur hvatt
bandarísk stjórnvöld til þess að
hefja viðræður við ríkisstjórn
Norður-Kóreu um lausn á kjarn-
orkudeilunni á Kóreuskaga. Suður-
kóresk stjórnvöld segja að sam-
hliða þessu eigi Bandaríkjastjórn
að halda áfram að eiga samstarf við
aðrar þjóðir á svæðinu um lausn
deilunnar.
Stjórnvöld í Pyongyang hafa ít-
rekað lýst því yfir að þau vilji ræða
málin beint við bandarísk stjórn-
völd. Bandaríkjastjórn hefur neitað
slíkum viðræðum og telur rétt að
öll ríki á svæðinu komi að lausn
deilunnar þar sem kjarnorkuvopna-
eign Norður-Kóreu ógni ekki aðeins
bandarískum hagsmunum heldur
einnig öryggi Japana, Kínverja,
Rússa og Suður-Kóreumanna.
Bandaríski flugherinn hyggst
senda sex torséðar F-117 Night-
hawk orrustuþotur til Suður-Kóreu.
Norður-Kóreumenn hafa skotið
tveimur eldflaugum út á haf í til-
raunaskyni nýlega. ■
TIL HEIÐURS LEIÐTOGANUM
Áritunin frammi fyrir þessari norður-kóresku varðstöð er til heiðurs Kim Jong-il.
Suður-Kóreumenn þrýsta á Bandaríkjastjórn:
Hvetja til tvíhliða viðræðna
Afganistan:
Fyrsta lán
í 24 ár
KABÚL, AP Afgönsk stjórnvöld
hafa fengið lán upp á rúma átta
milljarða króna frá Alþjóða-
bankianum til að vinna að bætt-
um samgöngum í landinu. Þetta
er fyrsta lánið sem Alþjóðabank-
inn veitir Afganistan í nær ald-
arfjórðung. Síðasta lán sem
Afganistan fékk frá Alþjóða-
bankanum barst árið 1979,
skömmu áður en Sovétmenn
gerðu innrás í Afganistan.
Lánið, sem er til 40 ára,
hyggjast afgönsk stjórnvöld
nota til að laga vegi, byggja
brýr, laga göng og bæta flugvöll-
inn í Kabúl. ■
DÓMSMÁL Bræðurnir tveir sem
ákærðir eru fyrir stórfellda lík-
amsárás á Skeljagranda í fyrra-
sumar segja sem fyrr að fórnar-
lamb þeirra hafi
fengið alvarlegt
höfuðhögg eftir að
hafa hlaupið á ann-
an bróðurinn. Þetta
kom fram við aðal-
meðferð málsins í
gær í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Báðir játuðu þó
bræðurnir, sem eru 21 og 22 ára,
að hafa veist að fórnarlambinu,
pilti á líku reki og þeir sjálfir.
Bræðurnir sögðu piltinn hafa
komið á heimili þeirra við Skelja-
granda þegar komið var fram yfir
miðnætti aðfaranótt föstudagsins
2. ágúst. Þeir hafi vísað honum frá
fyrr um kvöldið en hleypt honum
inn þegar hann sneri aftur með
vínflöskur.
Yngri bróðurnum sagðist svo
frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær að sjálfur hefði hann lognast
út af eftir að hafa drukkið tvö
áfengisglös og þegið einhverjar
pillur hjá gestinum. Um morgun-
inn hafi hann vaknað við það að
gesturinn hafi verið að leita á sér.
Eldri bróðirinn sagðist hafa
vakað lengur og setið að drykkju
með föður sínum og gestinum
fram á miðja nótt. Þá hafi hann
viljað ganga til náða og reynt að
koma gestinum út. Sá hafi hins
vegar grátbeðið um gistingu. Fað-
ir sinn hafi verið sofandi.
Að sögn yngri bróðurins brást
hann ókvæða við áreiti gestsins.
Hann hafi greitt honum þrjú
hnefahögg; á augabrún, í nef og á
kjálka. Pilturinn hafi fallið á glas
við annað höggið og rotast. Á
meðan gesturinn hafi legið í dá-
inu hafi hann gatað á honum
eyrað með gataklippara. Við
þriðja höggið hafi gesturinn fall-
ið með höfuðið á ofn. Eftir það
hafi blætt mikið.
Eldri bróðirinn segist hafa
vaknað við lætin. Hann hafi barið
piltinn fjórum til sex sinnum í
bakið með álkústskafti enda hafi
hann þá verið búinn að viður-
kenna að hafa stolið peningum af
þeim bræðrum.
Allar tímasetningar eru afar
mikið á reiki. Ljóst virðist þó að
komið var fram á miðjan föstu-
dagsmorgunn þegar bræðurnir
og gesturinn fóru út og í átt að
göngustíg fram hjá leikskólanum
Gullborg. Að sögn bræðranna
ætlaði gesturinn að vísa þeim á
peningana sem hann hafi sagst
hafa falið.
Bræðurnir segja að á göngu-
stígnum hafi komið í ljós að gest-
urinn hafi haft hníf meðferðis.
Yngri bróðirinn sagðist hafa
skorist á fingri við að ná hnífn-
um, sem við atganginn hafi
stungist í öxl piltsins. Þessi hníf-
ur fannst aldrei.
Næst segja bræðurnir það
hafa gerst að gesturinn hafi ætl-
að að hlaupa í burtu en hlaupið
beint á eldri bróðurinn. Við það
hafi hann fallið, skollið með höf-
uðið á gangstéttina og rotast.
Bróðirinn hafi misst vínflösku og
hún brotnað. Rannsóknarmaður
frá tæknideild lögreglunnar
sagði hins vegar ljóst að flaskan
hefði verið brotin með því að slá
henni í einhvern hlut. Að auki var
blóð neðan á glerbrotunum þar
sem þau lágu á stéttinni. Það hafi
ekki getað komið eftir að hún
brotnaði.
Að sögn bræðranna hræddust
þeir að hringja í Neyðarlínuna.
Þeir hafi ekki viljað skilja piltinn
eftir á göngustígnum, sem væri
fáförull. Því hafi þeir ákveðið að
varpa honum yfir girðingu leik-
skóla þar sem allt hafi „iðað af
lífi“. Víst væri að hann myndi
finnast fljótt.
„Það var algerlega útilokað að
finna hann nema vegna þess að það
var bent á hann,“ sagði aftur á
móti lögregluvarðstjóri, sem fann
piltinn eftir leiðsögn frá vitni. Pilt-
urinn var fluttur á sjúkrahús með
höfuðkúpubrot og lífshættulega
blæðingu milli heilahimna.
gar@frettabladid.is
ELDRI BRÓÐIRINN GENGUR Í DÓMSSAL
„Ég fylltist pínulítilli skelfingu,“ sagði yngri bróðirinn um það þegar fórnarlamb þeirra mis-
sti meðvitund á göngustíg við Skeljagranda. Eldri bróðirinn sagðist hafa reynt að vekja
piltinn með ýmsum hætti, meðal annars með því að hella yfir hann bjór.
Segjast saklausir
af stórfelldri árás
Bræðurnir sem ákærðir eru fyrir stórfellda líkamsárás á Skeljagranda segjast ekki hafa veitt fórn-
arlambi sínu áverkann sem leiddi til heilablæðingar. Þeir viðurkenna þó að hafa greitt honum
hnefahögg, barið hann með skafti og klippt gat í eyra.
Klónun manna:
Engin
einkaleyfi
ALÞINGI Ekki má veita einkaleyfi á
aðferðum við að klóna menn eða
breyta erfðaeiginleikum kyn-
fruma manna, samkvæmt þingsá-
lyktunartillögu um breytingar á
viðauka við EES-samninginn sem
fjallað var um á Alþingi. Einnig er
bannað að veita einkaleyfi á notk-
un fósturvísa í hagnaðarskyni eða
á öðrum uppfinningum sem stríða
gegn allsherjarreglu eða siðgæði.
Tilskipunin um lögvernd upp-
finninga í líftækni samræmir
ákvæði um einkaleyfishæfi upp-
finninga á þessu sviði. Með
ákvæðum tilskipunarinnar er
skýrt nánar fyrir hverju er hægt
að fá einkarétt á sviði líftækni. ■
ALÞINGI Engin formleg umsókn
hefur borist frá sveitarstjórn til
menntamálaráðuneytisins þar
sem óskað hefur verið eftir leyfi
til heimakennslu.
Svanfríður Jónasdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, spurði
menntamálaráðherra um þetta í
fyrirspurnartíma á Alþingi í gær.
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra sagði að samkvæmt
grunnskólalögum væri öllum
börnum á grunnskólaaldri skylt
að sækja skóla. Þó væri ráðuneyt-
inu heimilt að veita undanþágu.
Tómas Ingi sagði að ráðuneytinu
hefðu borist nokkur erindi frá for-
eldrum þar sem óskað hefði verið
eftir leyfi til heimakennslu. Þeim
bæri hins vegar að leita fyrst til
viðkomandi sveitarstjórnar. Sveit-
arstjórnin gæti síðan borið fram
við menntamálaráðuneytið rök-
studda beiðni um tímabundna und-
anþágu, en slíkt hefði ekki gerst.
Hann sagði að strangar reglur giltu
um heimakennslu, t.d. þyrftu for-
eldrar að hafa kennararéttindi. ■
HÆGT AÐ VEITA UNDANÞÁGU
TIL HEIMAKENNSLU
Samkvæmt grunnskólalögum er öllum
börnum á grunnskólaaldri skylt að sækja
skóla. Þó hefur menntamálaráðuneytið
heimild til að veita undanþágu.
Strangar reglur um heimakennslu á grunnskólastigi:
Enginn sótt um
heimakennslu
■
„Það var alger-
lega útilokað
að finna hann
nema vegna
þess að það var
bent á hann.“
OCALAN FLUTTUR TIL TYRKLANDS
Tyrkneskir hermenn náðu Ocalan á sitt vald
í Kenýa 1999. Hann var dæmdur til dauða
en dómnum breytt í ævilangt fangelsi.
Dómur Ocalans:
Réttarhöldin
gölluð
BRUSSEL, AP Kúrdíski uppreisnar-
foringinn Abdullah Ocalan fékk
ekki sanngjarna málsmeðferð
þegar tyrkneskur dómstóll
dæmdi hann til dauða. Þetta er
mat Mannréttindadómstóls Evr-
ópu. Mannréttindadómstóllinn
komst að þeirri niðurstöðu að
dómstóllinn sem dæmdi Ocalan
hefði hvorki verið sjálfstæður né
hlutlaus í störfum sínum.
Tyrknesk stjórnvöld hyggjast
áfrýja dómnum til Evrópudóm-
stólsins. Ef Evrópudómstóllinn
staðfestir niðurstöðuna má búast
við miklum þrýstingi á Tyrki að
taka mál Ocalans upp á nýjan
leik. ■
VEÐRIÐ
10-12 stiga hiti í höfuðborginni um
helgina.
Helgarveður:
Hlýir vindar
VEÐUR Spáð er 10-12 stiga hita í
Reykjavík og nágrenni um helg-
ina. Með hlýindunum fylgja hins
vegar nokkuð stífir suðlægir
vindar:
„Það verður gott í skjóli en
hressandi annars staðar,“ segir
Sigurður Þ. Ragnarsson veður-
fræðingur. „Ástæða til að benda
fólki á að vinna í garðinum því
það verður veður til þess. Birkið
er meira að segja farið að taka við
sér og það áður en margir eru
búnir að klippa það,“ segir hann.
Veðurfræðingurinn segir helg-
arveðrið ákjósanlegt til að hressa
landsmenn við fyrir hið raunveru-
lega vor, sem er á næsta leiti. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T