Fréttablaðið - 13.03.2003, Blaðsíða 14
14 13 mars 2003 FIMMTUDAGURFÓTBOLTI
PISTILLINN LESINN
Amedeo Carboni, leikmaður Valencia, les
Hatem Trabelsi, leikmanni Ajax, pistilinn í
leik liðanna í Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu sem háður var í fyrrakvöld. Trabelsi
heimtaði aukaspyrnu en Carboni var ekki á
sömu skoðun. Leikurinn endaði með 1:1
jafntefli.
FÓTBOLTI Celtic og Liverpool hafa
tvisvar áður mæst í Evrópukeppni.
Félögin unnu heimaleiki sína í Evr-
ópukeppni bikarhafa veturinn
1965-66 en Liverpool hafði betur
samanlagt. Árið 1997 gerðu þau
jafntefli í Glasgow í sömu keppni
og skoraði Michael Owen annað
marka Liverpool í frumraun sinni í
Evrópukeppni. Leiknum á Anfield
lauk með markalausu jafntefli og
komst Liverpool því áfram. Liver-
pool hefur fimm sinnum leikið
gegn skosku félagi í Evrópukeppni
og alltaf unnið en Celtic hefur að-
eins einu sinni lagt enskt félag að
velli í fjórum tilraunum.
Í kvöld gefst knattspyrnu-
áhugamönnum bæði kostur á að
bera saman tvö af fremstu félags-
liðum Bretlandseyja og tvo af
marksæknustu leikmönnum
breskrar knattspyrnu síðustu árin.
Michael Owen verður að venju í
fremstu víglínu Liverpool og Hen-
rik Larsson leikur að nýju með
Celtic eftir fimm vikna fjarveru
vegna kjálkabrots.
Celtic keypti Henrik Larsson
frá Feyenoord sumarið 1997 fyrir
650 þúsund pund. Kaupin voru eitt
fyrsta verk þjálfarans Wim Jansen
en hann var einnig þjálfari Feye-
noord árið 1993 þegar Larsson
gekk til liðs við hollenska félagið.
Larsson hefur skorað 191 mark
í 239 leikjum með Celtic og skoraði
24 mörk í 72 landsleikjum á árun-
um 1993 til 2002.
Larsson hefur þrisvar orðið
skoskur meistari, tvisvar hollensk-
ur bikarmeistari og lék með
sænska liðinu sem varð í 3. sæti í
heimsmeistarakeppninni 1994.
Hann var markahæstur leikmanna
í Evrópu árið 2001 og hefur bæði
verið valinn leikmaður ársins í Sví-
þjóð og Skotlandi.
Michael Owen hefur alla tíð
leikið með Liverpool. Hann hefur
skorað 132 mörk fyrir Liverpool í
248 leikjum og er orðinn marka-
hæstur leikmanna Liverpool í Evr-
ópukeppnum. Owen hefur einnig
skorað 19 mörk í 45 landsleikjum
og varð yngstur enskra landsliðs-
manna á 20. öld þegar hann lék
gegn Chile árið 1998.
Owen hefur m.a. verið í sigur-
liði Liverpool í UEFA-bikarnum,
ensku bikarkeppninni og deilda-
bikarkeppninni. Árið 2001 var
hann valinn leikmaður ársins af
France Football. ■
AP
/M
YN
D
FORMÚLA
Ökumenn í Formúlunni þurfa að laga sig
að nýjum reglum á þessu keppnistímabili.
Stjórnendur Formúlu 1:
Funda um
nýju reglurnar
KAPPAKSTUR Stjórnendur Formúlu
1 kappaksturins ætla að fara yfir
þær rótttæku breytingar sem
gerðar hafa verið á keppninni á
fundi í næsta mánuði.
Þá verður rætt hvaða áhrif
reglubreytingarnar hafa haft á
keppnina, en þremur mótum verð-
ur lokið fyrir fundinn. Tækni-
stjórar Formúlunnar og fram-
kvæmdastjórar liðanna verða á
meðal fundaraðila.
Nýju reglurnar hafa helst ver-
ið gagnrýndar fyrir það að liðin
mega ekki bæta bensíni á tankana
eftir að tímatökunni lýkur, áður
en aðalkeppnin hefst. ■
TEKIST Á SÍÐASTA SUMAR
KR-ingar höfðu betur í baráttu liðanna um
Íslandsmeistaratitilinn síðasta sumar. Fylk-
ismenn unnu bikarinn viku síðar, í annað
sinn á tveimur árum.
Meistarkeppni KSÍ
endurvakin:
Íslandsmeist-
arar mæta bik-
armeisturum
FÓTBOLTI Meistarakeppni KSÍ
verður haldin í fyrsta sinn í fimm
ár á sunnudaginn þegar KR-ingar
mæta Fylkismönnum í karla-
flokki.
Um er að ræða leiki á milli nú-
verandi Íslandsmeistara og bik-
armeistara.
Keppnin var síðast haldin árið
1998 en var síðan aflögð vegna
þess að erfitt var að finna hent-
uga leikdaga. Stórbætt aðstaða
sem felst í nýbyggðum knatt-
spyrnuhúsum hefur orðið til þess
að ákveðið var að endurvekja
keppnina. KR og Breiðablik eig-
ast síðan við í kvennaflokki þann
23. mars. ■
OWEN OG LARSSON
Michael Owen og Henrik Larsson mætast í leik Celtic og Liverpool á Parkhead í Glasgow í kvöld.
Markakóngar mætast
Celtic og Liverpool leika í átta liða úrslitum UEFA-bikarkeppninnar í kvöld. Henrik Larsson er
leikfær að nýju og Michael Owen er aftur kominn á skotskóna.
KÖRFUBOLTI Úrslitakeppnin í úr-
valsdeild karla í körfubolta hefst í
kvöld með tveimur leikjum. Svali
Björgvinsson, fyrrverandi lands-
liðsmaður í körfubolta, spáir í alla
leikina í 8 liða úrslitum fyrir
Fréttablaðið.
„Það verður mjög fróðlegt ein-
vígi á milli KR og Njarðvíkur, en
Njarðvíkingar hafa haft tak á KR-
ingum. Einnig verður fróðlegt að
sjá viðureign Hauka og Tindastóls.
Haukar hafa komið liða mest á
óvart. Þeir eru með besta erlenda
leikmanninn og best skipulagða
liðið. Það verður hörkuviðureign,“
segir Svali, sem telur að Njarðvík-
ingar og Haukar komist áfram í
undanúrslit.
„Keflavík og Grindavík hafa
verið með bestu liðin í deildinni í
vetur. Keflavík á að vinna ÍR, sem
hefur valdið nokkrum vonbrigðum
í vetur. Grindvíkingar eiga sömu-
leiðis að vinna Hamar.“ Svali er
sannfærður um að Keflvíkingar
eigi eftir að hampa Íslandsmeist-
aratitilinum í ár. „Keflvíkingar eru
með breiðasta hópinn og núna fer
að reyna á þá í úrslitakeppninni.
Það er stór ósigur fyrir þá ef þeir
ná ekki að vinna mótið.“ ■
SVALI
Svali Björgvinsson á von á hörkuviðureignum í úrslitakeppninni í körfubolta.
Úrslitakeppnin í Intersport-deild karla hefst í kvöld:
Keflvíkingar lík-
legir sigurvegarar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FÓTBOLTI Knattspyrnusamband
Evrópu mun rannsaka ásakanir
Newcastle United á hendur
Christian Vieri, sóknarmanni
Internazionale, um að hann hafi
viðhaft ósæmileg ummæli í garð
Lomano Lua Lua í leik félaganna í
Meistaradeildinni á þriðjudag. At-
vikið átti sér stað undir lok leiks-
ins og lauk viðskiptum þeirra með
því að Lua Lua fékk gult spjald hjá
dómaranum en Vieri slapp. Ítalinn
hafði hins vegar fengið gult spjald
fyrr í leiknum og verður í leik-
banni þegar Internazionale leikur
gegn Bayer Leverkusen í lokaum-
ferð milliriðlanna í næstu viku.
Forráðamenn Newcastle kvört-
uðu formlega við fulltrúa UEFA
strax eftir leikinn. Á heimasíðu
UEFA kemur fram að málið verði
líklega tekið fyrir 21. mars og
verði niðurstöðunni áfrýjað verð-
ur það tekið fyrir að nýju í byrjun
apríl.
Hegðun stuðningsmanna
Internazionale var heldur ekki til
fyrirmyndar. Þeir hentu logandi
blysi að stuðningsmönnum
Newcastle og hrópuðu ókvæðisorð
að Titus Bramble, varnarmanni
gestanna. ■
CHRISTIAN VIERI
Er sagður hafa viðhaft ósæmileg ummæli í garð Lomano Lua Lua í leik Internazionale og
Newcastle.
Meistaradeild Evrópu
Vieri sakaður um
kynþáttafordóma