Fréttablaðið - 14.04.2003, Qupperneq 4
4 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR
Ertu orðinn þreytt(ur) á
kosningaumfjölluninni?
Spurning dagsins í dag:
Eiga samkeppnisyfirvöld að heimila sam-
einingu Búnaðarbankans og Kaupþings?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
18%
56%
Nei
27%Nei, alls ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
EVRÓPUMÁL Meirihluti Ungverja
vill ganga í Evrópusambandið.
Kosningar um hvort landið ætti að
gerast aðildarríki í sambandinu
fóru fram í landinu á laugardag.
83,8% kjósenda vildu að þjóðin
verði hluti af sambandinu.
Kjörsókn var mun minni en bú-
ist hafði verið við eða aðeins
45,6%. Yfirleitt verður kjörsókn
að vera yfir 50% til þess að hún sé
lögmæt en í ljósi þess hversu hátt
hlutfall vildi aðild er kosningin
gild. Rúmlega 2 milljónir Ung-
verja vildu ganga í Evrópusam-
bandið.
Forsætisráðherra landsins,
Peter Medgyessy, fagnaði niður-
stöðunni og sagði hana sigur fyrir
börn landsins. Á laugardagskvöld-
ið fagnaði fólk úti á götum borga
landsins og haldnar voru flugelda-
sýningar. ■
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auka
framlög til Barna- og unglingageðdeildar
Landspítalans.
Barna- og unglinga-
geðdeild:
Aukin
framlög
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisstjórnin hef-
ur samþykkt að auka framlög til
Barna- og unglingageðdeildar
Landsspítalans.
Að sögn Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra verður deild-
in stækkuð um 6-8 rými og jafn-
framt komið upp betri aðstöðu til
að sinna þörfum barna og ung-
linga með geðraskanir utan
sjúkrahússins. Samþykktin um
aukin fjárframlög kemur í fram-
haldi af tillögum starfshóps sem
skipaður var læknum og sviðs-
stjóra á Barna- og unglingageð-
deild. Stofnkostnaður við stækk-
un deildarinnar er áætlaður um 45
milljónir króna og rekstrarkostn-
aður á ársgrundvelli vegna breyt-
inganna verður um 55 milljónir. ■
Laugardalshöll:
Fíkniefni
á tónleikum
LÖGREGLA Lögreglan hafði afskipti
af sex manns á tónleikum Scooter
í Laugardalshöll á föstudagskvöld
vegna gruns um fíkniefnavörslu.
E-töflur fundust á einum þeirra
og var hann fluttur í fanga-
geymslu lögreglunnar.
Lögreglan þurfti nokkrum
sinnum að stilla til friðar eftir tón-
leikana. ■
LÍFLÁTSHÓTANIR „Ég mun fella niður
kæruna á Aðalstein ef ég er þess
fullviss að hann fái hjálp sálfræð-
ings og geðlæknis,“ segir bar-
stúlka á Kaffi Róm í Hveragerði
sem í október síðastliðnum varð
fyrir því að Aðalsteinn Árdal
Björnsson hótaði henni lífláti þar
sem hún var við vinnu sína.
Í endaðan mars veiktist Aðal-
steinn illa án þess að fá rétta
greiningu. Undir þeim kringum-
stæðum hótaði hann fangaverði
sem gerði að sögn fangans lítið úr
veikindum hans. Fangelsisyfir-
völd beittu viðurlögum og úr-
skurðuðu að fanginn mætti ekki
hringja næstu mánuðina og ekki
fá heimsóknir nema í klukkustund
á viku og þá skyldi öryggisgler
skilja hann frá gestum. Foreldrar
fangans vísuðu máli hans til
dómsmálaráðuneytisins, sem
mildaði refsinguna örlítið en stað-
festi að öðru leyti úrskurðinn.
Fanginn sætti kynferðislegri
misnotkun sem barn en Hæsti-
réttur dæmdi kvalara hans í átta
mánaða fangelsi á sínum tíma.
Móðir fangans hefur gagnrýnt
harðlega að drengurinn hafi ekki
fengið hjálp kerfisins eftir þann
atburð. Þeir dómar sem hann hef-
ur fengið eru vegna líkamsárása
og líflátshótana. Þrjú mál af sama
toga á hendur honum hafa verið
dómtekin. Þeirra á meðal er mál
barstúlkunnar á Kaffi Róm. Hún
segist hafa kært hótunina en hann
hafi beðið sig afsökunar daginn
eftir og sagt að hann meinti ekki
illt með því sem hann sagði.
„Maðurinn á auðvitað mjög
bágt og þegar hann bað mig afsök-
unar var hann gjörsamlega miður
sín. Ég er tilbúin til þess að falla
frá þessu máli ef hann fær hjálp,“
segir hún.
Dómsmálaráðherra mun á
næstu dögum funda með Hólm-
fríði Lúðvíksdóttur, móður
Aðalsteins, vegna vanda hans. ■
Fíkniefni:
Sex handtek-
in í Eyjum
LÖGREGLA Um 140 grömm af hassi
og 30 e-töflur fundust í Vest-
mannaeyjum um helgina. Þrjár
konur og þrír karlar á aldrinum 16
til 31 árs voru handtekin aðfara-
nótt laugardags grunuð um fíkni-
efnamisferli.
Í framhaldi af því var gerð leit
í íbúðum og bifreiðum í eigu hinna
handteknu og fundust þá fíkniefn-
in auk áhalda til fíkniefnaneyslu.
Við yfirheyrslu játaði kona úr
hópi hinna handteknu að eiga e-
töflurnar og eigandi hassins
reyndist vera rúmlega tvítugur
piltur. Hann játaði að efnið væri
ætlað til sölu. ■
Ungverjaland gengur í Evrópusambandið:
Rúmlega 80%
kjósenda vildu aðild
GLEÐI Í UNGVERJALANDI
Ungverskur drengur veifar fána Evrópu-
sambandsins í átt til móður sinnar. Mikil
gleði var í Búdapest eftir að niðurstaða
kosninganna varð ljós.
Barstúlka í Hveragerði fékk líflátshótun:
Fellir niður kæru
ef fangi fær hjálp
AÐALSTEINN ÁRDAL BJÖRNSSON
Hótaði fangaverði þar sem hann lá sár-
þjáður. Var refsað með síma- og heim-
sóknabanni.
SKOÐANAKÖNNUN Frjálslyndi flokk-
urinn er orðinn þriðji stærsti
flokkur landsins samkvæmt nið-
urstöðum vikulegrar skoðana-
könnunar Fréttablaðsins sem
gerð var á laugardaginn.
Frjálslyndir mælast með
10,5% fylgi og bætir flokkurinn
við sig tæpum 2% frá síðustu
könnun blaðsins. Samkvæmt
þessari niður-
stöðu fengi flokk-
urinn 7 þingmenn
og gæti myndað
tveggja flokka
stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum.
Sjálfstæðisflokk-
urinn fær 39% at-
kvæða í könnun
blaðsins, sem er
rúmum 4% meira en fyrir viku
síðan. Samkvæmt þessu fengi
hann 26 þingmenn, sem er einum
þingmanni meira en hann hefur í
dag.
Samfylkingin nýtur stuðnings
31,1% landsmanna og hefur flokk-
urinn aldrei mælst með lægra
fylgi í skoðanakönnunum blaðs-
ins. Áður hafði hann lægst farið í
32,4% þann 3. febrúar, en í síðustu
viku fékk flokkurinn 34,9%. Sam-
kvæmt niðurstöðunni á laugar-
daginn fengi flokkurinn 20 þing-
menn.
Framsóknarflokkurinn stend-
ur í stað milli vikna. Hann mælist
nú með 8,9%, sem er nákvæm-
lega sama og hann mældist með
fyrir viku síðan. Samkvæmt
þessu fengi flokkurinn 5 þing-
menn eða sjö færri en hann er
með í dag.
Vinstri grænir tapa hlutfalls-
lega mestu milli vikna, því flokk-
urinn mælist nú með 7,4% fylgi,
sem er 3,2% minna en fyrir viku
síðan. Samkvæmt þessu fengi
flokkurinn 5 þingmenn, sem er
einum minna en hann er með
núna. Hæst hafa Vinstri grænir
mælst með 13,5% í skoðanakönn-
unum blaðsins fyrir mánuði síðan.
Nýju flokkarnir tveir mælast
báðir undir 2%. T-listi Kristjáns
Pálssonar, sem býður fram í Suð-
urkjördæmi, fær 1,7% en Nýtt afl
fær 1,3%.
Í könnuninni á laugardaginn
var hringt í 1.200 manns á landinu
öllu og tóku 66,3% þeirra afstöðu.
Í Fréttablaðinu á morgun verður
fjallað um samandregnar niður-
stöður þriggja síðustu kannanna
blaðsins, þar sem samanlagt úrtak
er 2.400 manns. Helsta niðurstað-
an er sú að Sjálfstæðisflokkurinn
er stærsti flokkur landsins með
rúmlega 37% fylgi, Samfylkingin
er með 34% og Frjálslyndi flokk-
urinn 9,1%.
trausti@frettabladid.is
FJÖLDI
ÞINGMANNA
12. MARS
Þingmenn
B 5
D 26
F 7
S 20
U 5
Samfylkingin dalar samkvæmt niðurstöðum könnunar Fréttablaðsins.
Tveggja flokka stjórn Frjálslyndra og Sjálfstæðisflokks möguleiki.
Vinstri grænir virðast í lægð. Úrtakið var 1.200 manns.
Frjálslyndir þriðji
stærsti flokkurinn
GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON
Formaður Frjálslyndra nýtur vaxandi stuðn-
ings samkvæmt könnunum.
SVANUR KRISTJÁNSSON
Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er
orðið nokkuð stöðugt.
Skoðanakannanir:
Stöðugt fylgi
smáflokka
SKOÐANAKANNANIR Frjálslyndi
flokkurinn, Framsóknarflokkur-
inn og Vinstri grænir fá um 10%
fylgi samkvæmt síðustu skoðana-
könnunum Félagsvísindastofnun-
ar, Fréttablaðsins og Gallup. Hins
vegar virðist fylgi Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar sveiflast
nokkuð til og þar ber könnunun-
um ekki saman. Könnun Félags-
vísindastofnunar var gerð á tíma-
bilinu 6.-10. apríl, könnun Frétta-
blaðsins 12. apríl en Gallup gerði
sína könnun allan marsmánuð.
Svanur Kristjánsson, prófess-
or í stjórnmálafræði, telur að
fylgi Sjálfstæðisflokksins og
Samfylkingarinnar sé orðið nokk-
uð stöðugt í kringum 35% og fylgi
hinna flokkanna í kringum 10%.
Hann telur að í grófum dráttum
muni þetta verða niðurstaðan í
vor. Hins vegar telur hann enn
ekki ráðlegt að spá um of í þessar
tölur því að um þriðjungur kjós-
enda gefi ekki upp afstöðu sína og
þann hóp telur hann mjög óút-
reiknanlegan.
Svanur segir að Frjálslyndi
flokkurinn njóti þess að hafa skipt
um formann á síðasta landsfundi
flokksins auk þess sem hann telur
umræðuna um kvótakerfið hafa
komist í umræðuna í auknum
mæli. „Það er greinileg stemning
fyrir breytingum og Frjálslyndi
flokkurinn nýtur þess.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T