Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 20
taka einnig þátt og því finnist hon- um sem hann hafi verið svikinn. Dannii Minogue,sem er líklegast frægust fyrir að vera systir Kylie, hefur verið ráðin af útvarpsstöðinni Capital FM. Hún ætlar að bregða sér í hlutverk útvarps- konu á sunnudagskvöldum í klukkustund. Þáttur hennar kem- ur til með að heita „Neon Nights“ og fjallar um danstónlistarmenn- inguna í Bretlandi. Framleiðendur Simpsons-þátt-anna hættu við áætlanir sínar að fá fótboltakappann David Beckham sem gest í þrjúhundruð- asta þættinum. Ástæðan var sú að Beckham þótti ekki nægilega frægur. Knatt- spyrna er, eins og flestir vita, ekki vin- sæl íþrótt í Bandaríkjun- um og gæti Beckham því líklegast gengið um óáreittur í Bandaríkjun- um. 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR20 ABRAFAX 400 KR. kl. 4 og 6 m/ísl. taliMAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 TWO WEEKS NOTICE kl. 8 THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 bi 14 Sýnd í lúxus kl. 6.30 og 9.30 Sýnd kl. 9 kl. 6 og 8NÓI ALBINÓI kl. 88 FEMMES kl. 5.30, 8 og 10.30THE CORE kl. 10.05ADAPTATION kl. 5.30NOWHERE IN AFRICA Sýnd kl. 4, 5, 6, 7, 8, 9 og 10.10 Sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára THUNDERPANTS kl. 4 25th HOUR kl. 10.10 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 6, 8 og 10 NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4, 6, 8, 10 Fyrir rúmu ári kom hingað tillands breski grínarinn Alun Cockrane og skemmti í Kaffileik- hússinu. Þeir sem sáu hann þar eru víst enn að jafna sig í maganum eftir nær sársaukafullan hlátur. Eftir tvær vikur heimsækir hann Íslendinga aftur og kemur fram í Þjóðleikhúskjallaranum sumardaginn fyrsta, og kvöldið eftir það. Fram með honum koma Nick Wilty og sterkbyggði víking- urinn Ágústa Skúladóttir. Hún bjó í London í rúm 10 ár þar sem hún komst í samband við sinn innri spaugara eftir að hafa sótt námskeið í uppistandi. Spurn- ingin er, geta menn lært að verða fyndnir á námskeiðum? „Það er farið í saumana á því hvað fólki finnst fyndið og hvaða týpa leynist í hverjum og einum uppistandara,“ útskýrir Ágústa eftir að hafa hlegið í dágóða stund að spurningunni. „Ég ákvað að semja efnið út frá því hvernig ég er. Íslensk, sterk og skyggn vík- ingakona með miklar áhyggjur. Mínar sögur gengu því út á það hvernig það væri að vera Íslend- ingur í stórborginni með það að heiman að vera mjög næm. Þetta námskeið var þannig bara fyrir þá sem vildu prófa og athuga hvort þetta ætti við þá.“ Ágústa fann sig uppi á sviði og reyndi næst fyrir sér í árlegri uppistandskeppni er haldin var í Edinborg. Henni gekk ágætlega og komst í undanúrslit. Nick Wilty er fagmaður fram í fingurgóma og hefur verið þekktur undir hinu undarlega viðurnefni „The Globetrotting Comedian“. Það vann hann sér inn eftir að hafa kitlað hláturtaugarnar í öllum heimsálfunum, nema á Suður- skautslandinu. Hann hefur einnig unnið fyrir sér sem sjónvarpsmað- ur hjá BBC þar sem hann tók viðtöl við fræga fólkið. Íslandsvinurinn Alun Cockrane hefur verið nefndur „framtíð breskrar gamansemi“. Það er víst ekkert grín að standa undir þannig titli, eða hvað? Sameiginleg sýning grínaranna ber titilinn „Rosalegt uppistand“. Fyrsta og önnur sýning verða í Þjóðleikhúskjallaranum 24. og 25. apríl. Norðanmenn fá svo að njóta spaugsins í Sjallanum, Akureyri, laugardaginn 26. apríl. biggi@frettabladid.is ■ GAMANSEMI Grín í sumargjöf Íslendingar fá í sumargjöf óvænta sendingu í formi uppistandsgrínaranna Nick Wilty, Alun Cockrane og Ágústu Skúladóttur. Hópurinn ætlar að skemmta borgarbúum og íbúum Akureyrar eftir tvær vikur. Fréttiraf fólki Á væntanlegri plötu Madonnuverður að finna lag sem hún samdi um dauða móður sinnar. Sjálf segir söngkonan þetta vera persónuleg- asta texta sem hún hafi samið. Lagið heitir „Mother and Father“ og segir hún frá því hvernig það var að alast upp móðurlaus, en móðir hennar dó þegar Madonna var aðeins fimm ára. Breiðskífan „American Life“ kemur í búðir 21. apríl. Breska gamanleikkonan DawnFrench hefur tekið að sér hlut- verk í þriðju Harry Potter-myndinni. Nýliðahópurinn í næstu Potter-mynd er ekki af verri endanum, Gary Oldman leikur strokufangann Sirius Black og Michael Gambon leikur Albus Dumbledore. French kemur til með að leika persónu sem aðeins er skilgreind sem „feita konan“. Leikarinn Heath Ledger hrinti afstað deilum um útlagann, Ned Kelly í heimalandi sínu Ástralíu. Ledger leikur kappann í nýrri mynd sem fjallar um ævi hans. Hann túlkar hann sem tilfinninga- ríkan mann sem leiðist út í glæpi vegna fátæklegra aðstæðna. Margir sagnfræðingar vilja þó meina að Írinn hafi aðeins verið kaldrifjaður morðingi. Leikarinn Paul Walker, sem fermeð aðalhlutverk í „The Fast & the Furious“-mynd- unum tveimur, er fúll út í fyrrum fé- laga sinn Vin Dies- el. Walker tók til- boði um að leika í framhaldsmynd bílamyndarinnar í þeirri trú að Diesel ætlaði einnig að taka þátt. Svo þegar vöðvabúntið dró sig úr samningsviðræðum sat Walker einn eftir og því neyddur til þess að leika í myndinni. Hann segir að Diesel hafi lofað sér að kl. 6 og 10THE PIANIST ALUN COCKRANE Íslandsvinurinn Alun Cockrane er væntan- legur aftur til lands eftir tvær vikur. Steinunn I Stefánsdóttir M.Sc í viðskiptasálfræði og streitustjórnun www.starfsleikni.is steinunn@starfsleikni.is Ráðgjöf fyrir eintaklinga Fyrirlestrar og námskeið fyrir hópa og fyrirtæki Upplýsingar s 551 6990 - 697 8397

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.